Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 1
2L tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bangladesh:
Mujibur
forseti
Eins flokks kerfi
tekið upp
í landinu
Dacca, 25. jan. Reuter — AP
MUJIBUR Rahman, fursti, varð í
dag forseti ríkisins Bangladesh
með því að þing landsins sam-
þykkti nýja stjórnarskrá, sem
gerir ráð fyrir valdamiklum for-
scta, er kosinn skal til fimm ára i
senn — og aðeins einum stjórn-
málaflokki. Skal öllum þing-
mönnum skylt að ganga I þann
flokk eða fara af þingi ella. Sömu-
leiðis skulu þingmenn ganga af
þingi, ef þeir greiða atkvæði gegn
flokknum. Mjuibur Rahman lýsti
þessari stórnarbreytingu sem
nýrri byltingu, sem til þess væri
ætluð, eins og hann sagði, „að
kalla fram bros á andliti hins
óbreytta borgara".
Mujibur kvaðst siðustu þrjú ár-
in hafa gert tilraun með stjórnar-
skrá, er væri úrelt arfleifð frá
nýlendutímanum og hentaði ekki
fullvalda og framsækinni þjóð.
Framhald á bls. 47.
Sex fórust
er brezkt
skip sökk
Plymouth, 25. jan. REUTER
SEX menn fórust i morgun, þegar
1093 lesta flutningaskip, brezkþ
sökk i hvassviðri um 40 km undan
suðvesturströnd Englands. Eins
manns er saknað og hafa flug-
vélar leitað hans I morgun, en sjö
menn af áhöfninni björguðust og
eru þeir allir í sjúkrahúsi. Einn
þeirra er mjög illa haldinn, hann
hafði verið i sjónum i hálfa fjórðu
klukkustund, þegar þyrla náði
honum upp.
Skozkir þjóðernissinnar
krefjast 50 mílna
r
Vísa til fordæmis Islendinga
Frá fréttaritara Mbl.
í Edinborg,
Pétri Eiríkssyni, 25. jan.
HUGSANLEG útfærsla brezku
fiskveiðilögsögunnar kom til um-
ræðu í neðri málstofu brezka
þingsins f gær, er leiðtogi skozkra
þjóðernissinna, Donald Stewart,
krafðist þess fyrir hönd flokks-
ins, að fiskveiðilögsagan við Skot-
lögsögu
land yrði þegar f stað færð út f 50
mflur. Hann sagði, að fiskstofnar
við Skotland, sér f lagi sfldin,
væru nú í mikilli hættu vegna
ágangs erlendra fiskiskipa og þvi
væri ekki hægt að bfða lengur.
Framhald á bls. 47.
Eins og háleggjuð
blóm rísa ljósastaurarn-
ir yfir götum borgar-
innar, bílarnir eru lúr-
legir eins og fé á fjalli og
senn fer sólin að hækka
sig yfir þessu landi.
Ljósmynd Mbl. Ól. K. M.
Egyptar
í stríð
Glistrup hefur heldur ekki
greitt hlutafjárskattana
Dregur enn úr líkum fyrir samvinnu við Framfaraflokk hans
Kaupmannahöfn, 25. jan.
Frá fréttaritara Morgun-
blaðsins, Gunnari Rytgaard.
STJÓRNMALAASTANDIÐ f
Danmörku er ennþá óljóst en
Kristilegi þjóðarflokkurinn
hefur reynt að miðla málum
milli Venstre og Framfara-
flokks Mogens Glistrups. 1 gær-
kveldi, föstudagskvöld, ræddu
forystumenn Kristilegra við
Glistrup og var það bein af-
leiðing af þvf að viðræðurnar
nú í vikunni milli Venstre og
Sósfaldemókrata fóru út um
þúfur.
Kristilegi þjóðarflokkurinn
hefur reynt að athuga hvort
unnt sé að lfta á Framfara-
flokkinn sem trúverðugan sam-
vinnuaðila. Glistrup hefur til
þessa verið andvfgur þeim fyr-
irætlunum, sem fram komu
fyrir kosningarnar um sparn-
aðarráðstafanir, er nema sjö
milljörðum danskra króna.
Astæðan er sú, að hann vill
sparnaðarráðstafanir upp á tfu
milljarða danskra króna. Af
þeim sökum var hann að þvf
kominn f september sl. að velta
stjórn Hartlings.
I sjónvarpsumræðum hefur
Glistrup þó haldið fram þeirri
afstöðu, að nú verði flokkarnir
að koma sér saman, þrátt fyrir
mismunandi sjónarmið og
Kristilegi þjóðarflokkurinn fór
þess á leit við Glistrup, að hann
segði til um það, hvort hann
væri reiðubúinn að greiða at-
kvæði með sjö milljarða króna
sparnaði.
Kristilegi þjóðarflokkurinn
hefur áhuga á þvf að safna
saman til samstarfs öllum
flokkunum sex, sem ekki eru
sósialistískir. Þeir myndu sam-
tals hafa 102 þingsæti. Spurn-
ing er nú, hvort Radikale
Venstre vill vinna með Fram-
faraflokknum. An hans myndu
flokkarnir hafa aðeins 89 þing-
sæti sem er þó meirihluti.
Kristilegi þjóðarflokkurinn
verður þó líklega hikandi við að
ganga til slikrar samvinnu án
þátttöku Radikale Venstre.
Skattamál
Glistrups
Vafalaust á það eftir að tor-
velda viðræðurnar við Fram-
faraflokkinn, að í dag, laugar:
dag, Jtom fram, að Glistrup
hefur ekki greitt hlutafjárskatt
fyrir þau mörgu „tómu“ hluta-
félög eða gervihlutafélög sem
hann hefur stofnað og stýrt.
Hann er þekktur fyrir að
aðstoða fólk við að sleppa vel
undan sköttum með því að
kaupa af honum slik hluta-
félög. Þau eru kölluð „tóm“
vegna þess, að þau hafa ekki
neitt verðmæti á bak við sig,
hlutaféð er aðeins til að
nafninu til.
Með þvi að losna við persónu-
skatta og greiða i st'aðinn hluta-
fjárskatta hafa viðkomandi
aðilar sloppið með minni
Framhald á bls. 47.
á árinu?
— ef Israel skilar ekki
herteknu svæðunum
Kairo, 25. jan. NTB — Reuter
ALI Amin, aðalritstjóri frétta-
tímaritsins Akhbar EI Yom, skrif-
ar f blað sitt I dag, að Egyptar
muni fara í strfð við Israel á
þessu ári ef þeir hverfi ekki frá
þeim landsvæðum, sem þeir hafi
tekið af Aröbum.
Segist Amin geta staðfest,. aó
stjórn Egyptalands hafi tjáð stór-
veldunum, að Egyptar muni hefja
styrjöld til að ná þessum land-
svæðum, ef tsraelsmenn láta ekki
undan og hverfa þaðan á þessu
ári. Ekki tiltekur Amin, hvaða
stórveldum hafi verið tilkynnt um
þessa ákvörðun, Hinsvegar segir
hann, að nú um helgina verði
ákveðió, hvenær Henry Kissinger
komi til Egyptalands, en búizt er
við, að hann leggi upp i ferð til
landanna fyrir botni Miðjarðar-
hafs 6. febrúar nk. eða þar um bil.
Kissinger fer þá væntanlega til
Israels, Egyptalands, Sýrlands og
Jördaniu.