Morgunblaðið - 26.01.1975, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
® 22-0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
Sr. BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TT 21190 21188
LOFTLEIÐIR
tel 14444 * 25555
BiLALEIGA CAR RENTAlI
Q
BILALEIGAN
5IEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
pioneeti
Útvarp og stereo, kasettutæki
BILALEIGA
Car Rental
(JP SENDUM
41660—42902
lí
Ví" borvélar með eða án
hulsubúnaðar til af-
greiðslu strax.
G. Þorsteinsson
og Johnson
Ármúla 1,
sími 85533
Undraafl
augaveiklun er útbreiddur
sjúkdómur víða um lönd og hef-
ur færst í aukana hér á landi
við öra þéttbýlisþróun, fjöl-
þætta og oft sjúklega kapp-
girni. Kvilli þessi birtist oft
sem ástfiðuþrungin leit að ein-
hverjum haldraða í ólgusjóum
mannlífsins. 1 háskalegu kappi
geysast menn áfram og koma
víða við, svífa eftir hraðbraut-
um, sveigja á hvínandi ferð inn
í öngstræti og hafna í blindgöt-
um, þar sem allt situr fast í
stjórnlausu öngþveiti. Oft er þá
kvillinn orðinn að ömurlegum
sjúkdómi. Fæstum nægir það,
sem þeir hafa, hvorki af efnis-
gæðum né andlegum auði. Þess
má hvorugs njóta i næði, því
annars er eins víst að einhvers
'verði misst. Og bensíngjöfin er
stigin i botn á meðan ekki
kreppir að. Það er iíkt og
. dekurbarnið, sem fær hlaða af
jólagjöfum og rífur upp hvern
pakkann af öðrum með áfergju.
Litskrúðugur pappírinn fýkur
um alla stofu, leikföngin eru
aðeins snert, þeim fleygt til
hliðar, þvi þarna er annað for-
vitnilegra og þarna, þarna og
þarna. Að lokum er barnið að-
framkomið og veit ekki sitt
rjúkandi ráð. Þvi er sagt að
þakka fyrir sig, en það má ekki
vera að því. Þá sigrar þreytan
og brárnar siga. Barnið er borið
i bólið, þar sem það leggur litl-
ar hendur utan um gömlu,
heimatilbúnu tuskubrúðuna,
sem alltaf er á visum staö, við
svæfilinn i rúminu. Hvert er
gildi þess gamla leikfangs, sem
setur það skör ofar gjöfunum
góðu og dýru. Það er helgað af
hljóðum stundum, þegar þys
dagsins var þagnaður og
mamma eða pabbi komu inn í
herbergið til þess að fara með
bænaversin og fólu barnið sitt
Guði á vald. — Er þetta nú ekki
helzt til of mikil tilfinninga-
semi? Þesskonar tilfinninga-
semi, sem er úrelt og enginn
tekur lengur mark á? Eru
bænaversin gömlu ekki úr sög-
unni eins og ættjarðarkvæðin
og sofna börnin ekki með plast-
byssu við vangann og lítinn
skriðdreka til fóta á meðan
pabbi og mamma horfa á sjón-
varpið sitt? Hvers virði er faðir-
vor í harðri lífsbaráttu á öld,
sem hefur þá ævintýralegu fjöl-
breytni lífsnautna að bjóða,
sem forfeður okkar hefðu
aldrei getað látið sig dreyma
um. Er það sálfræðilega rétt að
láta börnin þylja utanbókar
fjölda af bænaversum, sem þau
skilja ekkert í og flytja með
sama hugarfari og margföldun-
artöfluna í skólanum. Sálfræði-
lega! Þetta er eitt af töfraorð-
um nútímans. Lausnina er að
finna í sálarfræðinni. Hún er
ekki vanmetin á okkar tímum.
Þegar i óefni er komið, þá er
bezta ráðið að fara til sálfræð-
ings og þaðan til taugalæknis,
sem gefur róandi sprautur og
pillur. Það eru kvöldbænir nú-
tímans. Mér er minnileg frá-
sögn gamals baráttumanns, sem
látinn er fyrir nokkrum árum.
Það var Pétur Sigurðsson rit-
stjóri og regluboði. Hann
kvaðst ekki hafa kynnst fram-
angreindum læknislyfjum,
aldrei þurft á þeim að halda.
Jafnan hafði hann þann sið að
gera bæn sína áður en hann
sofnaði á kvöldin, og þess vegna
aldrei misst svefn eða þjáðst af
þessum nagandi kvíða eða
spennu, sem setur taugakerfið
úr skorðum. Ekki hafði hann
samt farið varhluta af von-
brigðum í lífinu, í stríði þar
sem óvinunum f jölgaði sífellt,
þrátt fyrir harðar atlögur, í
striði við hinn marghöfðaða
þurs, Baccus, og ýmsa fylgifiska
hans. Hvað er það, sem gefur
slíkum mönnum þrótt, veitir
þeim andlega og likamlega
reisn til hárrar elli? Það er
undraafl, leyndardómur, sem
við fáum ekki skilið, heldur lif-
að. Það undraafl heitir kristin
trú. Með hana að veganesti
gefst enginn upp og þess vegna
hikaði rómverski hundraðs-
höfðinginn alls ekki eins og frá
er greint í frásögn þeirri, er
guðspjall þessa sunnudags hef-
ur að geyma (Matt. 8,1 — 13).
Knúinn af því undraafli leitaði
hann til Jesú og traust útlend-
ingsins var ösvikið og einlægt:
„Herra, ég er ekki verður þess,
að þú gangir undir þak mitt. En
seg það aðeins með orði, og
mun sveinn minn verða heil-
brigður.“ Gamall maður geng-
innar kynslóðar og lýsingar
fornra helgisagna, kann ein-
hvar að segja. Það eru dæmin,
sem tekin eru. En vitnisburður
trúarinnar hljómar áfram úr
ólíklegustu áttum, úr röðum
manna, sem við munum sizt
ætla að hirði um fagnaðarerind-
ið og gætu játað Krist hátt og
opinskátt, játað, að þeir hefðu
leitað langt yfir skammt. Utan-
garðsmenn, sem hafa hafnað i
neti eiturlyfja, en bjargast og
læknast fyrir trú. Á því leikur
enginn vafi og vitnisburði
skortir ekki. Játningar nútíma-
manna. Fyrst voru það róandi
sprautur og pillur. Og sjá, ævin-
týraheimur opnaðist. Paradis-
argarður, þar sem fegurstu ilm-
jurtirnar voru eitraðar og
hvössum þyrnum þaktar undir
litríkum krónum. Fyrr en
grandalaus fórnarlömbin varði
sátu þau föst eins og spriklandi
flugur á slímugum blöðum
lyfjagrassins. Játning nú-
timamanns, sem verið hefur i
hringiðunni, sem virðist kitla
forvitni unglinga um allan
heim. Þar er útrásar leitað i
uppþotum, svalli og eitri. Þar
deyja menn úr þorsta við falsk-
ar uppsprettur. — Sú hugmynd
hefur notið fylgis á Islandi, að
nauðsynlegt sé að fylgjast með
þvi, sem er að gerast í öðrum
menningarríkjum. Við erum
veikir fyrir hvers konar banda-
lögum, sem eiga að glæða við-
skipti við aðrar þjóðir á sviði
stjórnmála, verzlunar, menn-
ingar og lista. Þvi er ekki hægt
að mótmæla, að margt gött get-
ur áunnist í samvinnu við aðrar
þjóðir. En það, sem oft hefur á
skort i áhuga okkar fyrir erlend-
um samskiptum er heilbrigð
gagnrýni byggð á siðferðismati
kristinnar trúar. Ahrifin að
utan eru eins og vorleysingin,
sem flæðir yfir engjalönd i ár-
hólmum. Hún ber með sér
áburð, sem eykur grasvöxtinn,
en jafnframt dreifast grjót-
hnullungar um landið, sem síð-
ar leynast i grasinu og geta
brotið dýrar vélar, ef þeir hafa
ekki verið f jarlægðir í tíma,
áður en grasnálin stingur upp
kollinum.
bn
Á BLAÐAMANNAFUNDINUM sem
stjórn BSI hélt sl. fimmtudag kom
fram að í ráði er að koma upp
kvennalandsliði eða laridsliðs-
kjarna og fá þjálfara fyrir konurnar
sem munu að sjálfsögðu verða
með á Norðurlandamótinu, sem
haldið verður hér á landi 1977.
Nauðsynlegt er að kvennalands-
liðið verði með í öllum ferðum
sem farnar verða eftir þann tíma.
000
Starf Bridgesambands Evrópu
hefur nánast einungis verið að sjá
um og halda Evrópumótin. Á þingi
sem haldið var í Tel Aviv í vetur
var ákveðið að gera breytingu á
starfsháttum sambandsins og
voru fjárlög sambandsins marg-
földuð. Ákveðið var að sambandið
sinnti fleiri verkefnum, veitti að-
stoð á ýmsan hátt svo sem I fjár-
málum og skipulagningu svo eitt-
hvað sé nefnt.
000
Þá má nefna tölur um kostnað
við utanlandsferðir sem áformaðar
eru á vori komandi. 1400 þúsund
kr. voru nefndar sem kostnaður á
ferðum, hóteli, einni máltið og
morgunmat og vita þeir sem til
þekkja að ekki er þar með allt upp
talið.
Einnig kom fram að þegar sið-
asta ferð landsliðsins var farin,
þ.e. til ísraels, var mjög mikill
fjárskortur — enda langt að fara
— en ísraelar vildu ekki að ís-
lendingar sætu heima og styrktu
þá til fararinnar — greiddu ferðir
þeirra til og frá London — Tel
Aviv.
000
Oxfordháskóli bauð félögum i
Háskólanum til alþjóðakeppna i
tvimenning og verður hann spilað-
ur i kring um 26. febrúar í a.m.k.
einum riðli.
000
Þess má að lokum geta að
bridgeiþróttin á ekki upp á pall-
borðið hjá Sjónvarpinu. Blaða-
menn af öllum blöðunum mættu
til þessa fyrSta fundar BSÍ —
Útvarpið sendi fulltrúa til að
sækja gögn sem lágu fyrir á fund-
inum — en af þvi að þessi fundur
var haldinn á fimmtudegi gat eng-
inn mætt frá sjónvarpi.
000
Sl. þriðjudag voru spilaðar 3. og
4. umferð í Reykjavíkurmótinu —
sveitakeppninni — og er staða
efstu sveita þessi:
Sveit Þórarins Sigþórssonar 71
Sveit Helga Sigurðssonar 69
Sveit Þóris Sigurðssonar 63
Sveit Hjalta Elíassonar 56
Sveit Gylfa Baldurssonar 55
Sveit Viðars Jónssonar 42
Sveit Jóns Hjaltasonar 41
Sveit Ingibjargar Halldórsd., 40
Miklar sviptingar eru í efstu
sætunum og var t.d. sveitin sem
var I efsta sæti eftir tvær umferðir
ekki meðal átta efstu sveitanna
nú.
000
Frá Bridgefélagi Reykjavlkur
Þegar sveit Hjalta hafði lokið
þeim leikjum, sem hún átti óspil-
að, var hún komin með örugga
forystu og að ellefu umferðum
loknum er staðan þessi:
Sveit stig
1. Hjalta Eliassonar 181
2. Þóris Sigurðssonar 172
3. Helga Sigurðssonar 147
4. Þórarins Sigþórssonar 136
5. Jóns Hjaltasonar 115
6. Björns Eysteinssonar 108
7. Gylfa Baldurssonar 100
8. Hermanns Lárussonar 87
Næsta umferð verður n.k.
miðvikudagskvöld [ Domus
Medica kl. 20.
000
Hin óopinberlega heims-
meistarakeppni í tvimenning.
Sunday Times-mótið, var haldið I
London og er nýlokið. íslendingar
áttu þátttakendur i mótinu, þá
félaga Stefán Guðjohnsen og
Simon Simonarson. Þeir höfnuðu i
11. sæti af 1 8 pörum sem má telja
góðan árngur þar sem ekki er við
neina aukvisa að etja i þessu móti.
Mikill fjöldi spilaranna eru launað-
ir atvinnuspilarar. Sigurvegarar
urðu ungir Bandarikjamenn,
Sontag og Weichsel að nafni, og
sigruðu þeir með nokkrum yfir-
burðum, hlutu 204 stig.
Röð parnáhna varð annars
þessi:
1. Sontag-Weichsel, 204
2. Möller-Werdelin, 191
3. Derry-McNeil, 187
4. Coyle-Silverstone, 185
5. Ortiz-Bernasconi, 181
6. Thompson-Reardon, 179
7. Teixeira-Debonnaire, 174
8. Shapiro-Delmouly, 173
9. Flint-Rose, 171
10. Svarc-Boulanger, 167
11. Símon-Stefán, íslandi, 165
12. Priday-Rodrigue, 164
13. de Palco-Burgay, 163
15. Stampf-Swartz, 155
16. Amor-Slavenburg, 152
17. Reese-Dixon, 147
18. Nilsland-Anderson, 141
Ásmundur Pálsson og Hjalti
Eliasson hafa tekið þátt i keppni
þessari og staðið sig með ágætum
— lentu rmiðjum hópnum eins og
Stefán og Símon.
Á.G.R.