Morgunblaðið - 26.01.1975, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
10
fólk — fólk — fólk — fólk
stranda-
Jóhann Nfelsson f járbóndi. Ljósmynd Mbl. órni johnsen.
5?
Ef
mannskepnunni
býðst annað
llf,
fylgir
sauðkindin
Hann er engin „drusla“ þessi.
alveg örugglega”
„Ég er 70 ára gamall og slátr-
aði núna i haust 213 kindum
undan minu fé. Þaó er helvíti
gott, finnst þér ekki? Ég hugsa
að það hafi lagt sig upp á um 2
millj. kr. i innlegg. Meðalvigtin
hjá mér var 19 kg, góð vigt af
svo miklu tvílembdu, en ég var
aðeins með 30 einlembdar."
Jóhann Níelsson, fjárbóndi á
Hólmavik, situr á rúmbálkinum
sínum og segir frá. Hann er
lágvaxinn, þrekinn og snar-
eygður, dökkur á hár, með rösk-
legt fas eins og hann eigi erfitt
með að stöðva sig og þó er hann
á áttræðisaldri. Reyndar hefur
hann verið vel að verki sína
daga og ávallt i hópi harðdug-
legustu manna og algjör þrek-
maður á stundum og ekkert
myrkur I máli um sínar skoðan-
ir, sem tengjast oftast sauð-
kindinni, blessaðri.
„Já, ég hef lengst af séð um
fé,“ hélt hann áfram, „ég var
vinnumaður i 16 ár hjá lærðum
búfræðingi, Karli Jónssyni. Það
er nú lygilegt, en ég tók af
honum féð 18 ára gamall um
miójan vetur. Það átti að fara
að drepa það vegna hagleysis,
en ég tók það að mér og það tók
við sér. Ég er talinn með betri
fjármönnum og það hefur eng
inn ráðunautur staðið í mér.
Það er kynlegt sem þeir ætlast
sumir til af okkur fjárbændun-
um, þeir ætlast til þess að við
drepum kjarkmesta féð, en
höldum druslunum eftir. Ég
tek ekki slíkum boðskap og ég
þarf aldrei að taka á fé, mér er
nóg að sjá það til að geta metið
það til fulls. Ég skal segja þér,
ég gerði það af hrekk einu
sinni. Það átti að dæma tvær
kindur á héraðssýningu. Ég
sagði þremur búfræðingum að
ég skyldi taka beztu kindurnar