Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1975 11 fólk — fólk — fólk — fólk úr hópnum án þess aö þreifa þær áður. Ég lét síðan aðra vita hvaða kindur ég valdi og síðan völdu þeir sömu kindurnar. Það þótti þeim undarlegt. Já, þú hafðir heyrt um mig fyrir sunnan, ég er vist orðinn þekkt- ur víða, er það ekki? Einu sinni var ég farinn til sjós og þá kom Karl heitinn og kvartaði vegna þess að það var komin pest i féð og hann vildi fá mig til þess að gæta þess og hlúa að því. Ég viidi ekkert gera fyrst, en svo veiktist fólkið á bænum og það varð eitthvað að gera. Ég byrjaði á því að velja 7 kindur úr hópnum, sem ég sá pestina i og skaut þær og allt fór vel upp frá þvi. Annars hafði ég helvíti gam- an af því eitt sinn er ég fór með Jóni heitnum í Skarði suður í Dali að velja fé. Hann ýmist skammaði mig eða bað mig fyr- irgefningar út af því sem ég valdi, en oftar tók hann síðari kostinn. Ég valdi þar eitt sér- stakt lamb og þeir báðu mig þrisvar að sleppa því, en ég þekkti það alltaf strax úr og þá hættu þeir. Ég er orðinn vanur úrvalsfé, þvi ég hef alltaf átt úrvalsfé, fallegar kindur. Veturgamall hrútur sem ég á vigtar 90 kg. Hann var fremstur í 1. verð- laununum i haust. Þrevetur- gamall hrútur hjá mér sem vó 110 kg fékk einnig 1. verðlaun. Ég hef átt sæg af verðlauna- hrútum, venjulega 5 á hverju ári. Annars skar ég gömlu hrút- ana niður i haust.“ „Kallarðu þá nöfnum?" „Nei, það er litió um það, rétt kind og kind að gamni minu, en ég hef féð númerað og þau númer eru geymd í höfðinu á mér eins örugglega og i beztu tölvu Sameinuðu þjóðanna." „Þú gengur daglega til gegn- inga.?“ „Já, ég geng daglega um hálfrar klukkustundar gang að fjárhúsunum upp að Kálfanesi og oft tvisvar á dag. Svo heyja ég fyrir féð á sumrin og leik mér að því einn, en ég gef mik- ið vothey á vetrum, gef vothey í þrjú fjárhúsin af fjórum.“ „Þekkir féð þig?“ „Já, það þekkir mig. Það er engin meðferð á fé ef það þekk- ir ekki manninn. Á haustin tek- ur það mig eina viku að raða fénu á húsin. Eftir það rennur féð inn í sitt hús og ég þarf ekki að hreyfa kind.“ „Er búfjárhaldið ekki dýrt núna?“ „Vélarnar kosta orðið dáldið, þetta veltur i kring um 1 millj. kr. brúttó og svo fer dáldið í áburð, fóðurbæti og heyköggla. Þar koma svona 300 þús. kr. í kostnað hjá mér, en ég fóðra vel eftir að ég er byrjaður að fóðra á annað borð og svo blanda ég saman einni körfu af votheyi og hálfu öðru hneppi af þurrheyi, en hneppi er það sem maður getur tekið í fang sér af þurru heyi. Ég hef núna þrjár vélar." A véggnum hjá Jóa Nilla eins og hann er kallaður í daglegu tali við Steingrimsfjörðinn hékk innrömmuð verðlauna- skýrsla frá héraðssýningu á hrútum í Strandasýslu 27. sept. 1964. Þar var skráður Smári Sómason, en móður var ekki getið. Þungi 102 kg, brjóstmál 111 sm, hæð 81 sm, lofthæð 352^ sm, spjaldhryggur 26 sm, leggur 134 sm og aldur þrjú ár. Við röbbuðum nokkuð um Sóma og svo tók Jóhann aftur upp þráðinn: „Ég hef látið tvær kindur í skiptum fyrir eina ef ég hef fengið að velja og með þvi móti náði ég minu góða fé. Ég skal segja þér skrýtlu. Ég var hjá frænda mínum vestur í Dölum að taka af. Maður þar þóttist þekkja öll lömbin og ég ' spurði hann hvað hrútur einn væri gamall. Hann svaraði aó hann væri tveggja vetra, en ég sagði hann veturgamlan og það reyndist rétt. Hann átti líka rollu með ómörkuðu lambi, en tók alltaf allt aðra rollu með lambinu. Ég sagði honum hvar rétta rollan var, því ég þekkti hana, hafði séð hana einu sinni með lambinu. Þegar ég var á Fitjum um tvítugt dró ég lömbin þar og þá lambaði maður allt ómerkt. Nú er allt merkt út, sem á að sleppa." „Er sauðkindin vitur skepna?" „Féð er ekki vitlaust, það er tilfellið. Það sýnir tilfinningar og getur orðið alveg vitlaust ef það er ekki umgengið af sama manni. Það er of lítið gert af þvi að mínum dómi að ganga innan um féð. Kindin hefur al- veg sál eins og maðurinn, já það er alveg svipað.“ „Trúir þú á annað líf fyrir kindina og manninn?" „Menn brjóta hugann um annað líf. Skrýtið hvernig heimurinn hefur orðið til, það getur maður ekki skilið alveg. Líklega er annað lif þegar þar að kemur. Það var gamall mað- ur hér á Stokkanesi, Sigurður að nafni. Hann sagði að það væri ekki til annað líf. Svo kom að þvi að ^maðurinn var að deyja. Þá bráði af honum og hann sagði: „Nú veit ég að það er annað lif.“ Já, það er margt skrýtið í þessu og kannski bezt að láta það hafa sinn gang í rólegheit- unum án þess að vera að teygja sig of mikið eftir þvi. Það er svo margt sem maður veit ekki hvað er og af hverju komið. Aður heyrði fólk barnsgrát og annað úr klettunum, en nú er — ffiinna um það. Þó er sitthvað. Einu sinni fórst maður á Steinadalsheiði. Ég sá þar einu sinni mann, sem hafði farist þar. Sá hann sem snöggvast, en ég vissi alveg hve lengi hann fylgdi mér eftir. Hann fylgdi mér alveg fram undir brún. Þetta er skrýtið og merkilegt, en voðalega hefur það nú verið -leiðinlegt mál á sinum tima. Hann ætlaði að fara að trúlofa sig og var að sækja hringana. Á heimleiðinni með hringana fórst hann svo i snjóflóði." „Þú hefur lika lent i ýmsu til sjós.“ „Já vist er það. Ég lenti meðal annars í því láni að bjarga tveimur bátum sem ég var á. 1 eitt sinn kom gat á bátinn og ég stakk löppinni niður- i gatið þannig að lekinn stöðvaðist. Mér var svoldið kalt þegar við lentum. Einu sinni í fárviðri tók ég við stýrinu þegar allt var komið i fár og svo sagði ég fyrir um leiðina inn úr sortanum. Það er eitthvað sem er i þessu öllu. Einu sinni stöðvaði ég linulögn á bát sem ég var á og við héldum til lands. Áður en rosinn var fyllilega skollinn á fengum við yfir okkur brotsjó, sem tók allt af bátnum. Þetta veður sá ég fyrir. Já, það má nú kalla að maður hafi lent í ýmsu. Oftast hafði ég tvo hluti, enda dró ég oftast helmingi meira en aðrir lengi vel og hafði líka frítt fæði. Það þótti eins gott að vera á sjó þegar ég var fullröskur maður, en mér líkar rollusnuddið vel nú. Já, það er víst eitthvað í þessu öllu heldurðu ekki? Það var hér maður sem þóttist sjá menn, sem voru dauðir. Þannig var það. Annars er ég viss um að ef það er til annaó líf i boói fyrir mannskepnuna, þá fylgir sauðkindin alveg örugglega.“ „Hlýðir féð þér algjörlega?" „Ég kalla á féð og það kemur. Ég hef þann sið að vera meira hjá fénu þegar það er byrjað að snjóa, en þegar ég geng heim á leið eltir það mig viðstöóu- laust.“ „Eftir hverju dæmirðu góða á?“ „Fyrst er að lita framan i hana, líta eftir skapi hennar og það sé ég framan i henni. Það er mikill munur á harðgerðu fé og druslum. Blakka féð er yfir- leitt harðgerðara. Ég sé þetta hraustlega fé eftir svip og brjóstbyggingu, því eftir því fer allt annað. Það er þetta sama með hrútana og ekki síð- ur. Til að mynda ef þú ætlar að velja góða kind getur þú haft þetta í huga: Standi hún bein, þarf brjóstið að vera stif þver- hönd fyrir framan bóg.“ „Eru kindur veðurglöggar?" „Já, þær eru fljótar að finna veður á sér, en stundum fara þær illa á því, það er að segja ef þær fara í hnytskjól undir há börð sem getur fyllt af snjó. Þaó er mikils virði að hafa vitra forystukind. Oft eru þær svolit- ið óþekkar og þá er erfiðara að tjónka við þær, sérstaklega ef maður ætlar að breyta um átt. Ég á eina forystukind og dætur hennar og gimbrar undan þeim hafa sýnt sig að góðu í forystu. Eitt sinn átti ég eina svarta, sem var alltaf á visum stað eftir veðri. Ég gat gengið að henni vísri eftir því hvernig viðraði og til dæmis ef það gerði norð- anátt um nótt gat ég gengið að henni visri alltaf á sama stað daginn eftir. Fé fer dáldið eftir veðrum og eins áttum. Það er þó ekki sama hvort þú elur kind inni allan veturinn eða beitir henni.“ „Stundar þú rjúpnaveióar eða aðrar veiðar?" „Nei, ég skýt aldrei rjúpu, ég trúi á gömlu trúna, sem boðar að þeir peningar endist aldrei neitt. Ég sinni bara fénu. Mað- ur þekkir á það. Það er hægt að hafa tvílembt eftir fóðrun og maður getur haft sama arð af færra fé ef margt er tvilembt.“ Jóhann býr einn, en hann sýndi mér myndir af syni sín- um, sviphreinum og myndar- legum manni meó fjölskyldu sinni, fólk, sem skilar af dugn- aði hlutverki sínu i islenzku nútimaþjóðfélagi. Sérkennilegir persónuleikar eins og Jóhann Níelsson eru viða i okkar landi og þeir eru ekkert að mylja moðið I mann- skapinn og ekkert að hangsa við hæversku, enda ávallt látið hendur standa fram úr ermum. Ég spurði Jóhann hvort hann væri sáttur við lífið og tilver- una? „Það þýðir ekkert annað,“ svaraði hann, „ég tala nú ekki um þegar maður er orðinn hálf- gerð drusla. Jú, ég hef aldrei haft tilhneigingu til að röfla við tilveruna, hún býður upp á svo margt. Eg á nú þetta hús sem ég bý i, fjárhús fyrir 200 fjár, þrjár vélar og margt fé. Það kalla ég gott fyrir mig sjötugan. Hér í plássinu hefur verió feiki- legur uppgangur síðustu árin og bæjarbragurinn er góður. Ekki er hér atvinnuleysið og hér er ágætis fólk. Annars þekki ég betur sauð- féð, ég er hændur að þvi og það hænist að mér. Ein kindin til dæmis, Rella heitir hún, kemur alltaf inn í hús til mín á hverj- um degi til þess aó fá sér tuggu þótt féð sé úti. Hún er mjög hænd að mér.“ __ ýrnj j Rabbað við Jóhann Níelsson, fj árbónda á Hólmavík Jóhann með Stóra-Gul. Þetta eru engin smásýnishorn. Jóhann að baki hluta af sinum myndarlega bústofni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.