Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975 25 William Fullbright lœtur af__ þingmennsku______________ Var einn litríkasti og þekktasti þingmaður Bandaríkjanna William Fullbright á fundi með islenzkum frétta- mönnum f Háskðla Islands 1967. UM SÍÐUSTU áramót lét Willi- am Fullbright öldungadeildar- þingmaður frá Arkansas af þingmennsku eftir 30 ára lit- rikan stjórnmálaferil. Full- bright tók ekki þátt í kosn- ingunum í nóvember, hann féll í forkosningunum í júní, fyrir Dale Bumpers, rikisstjóra Arkansas, ungum og mjög vax- andi stjórnmálamanni, sem þegar er nefndur i sambandi viö forsetaframboð í náinni framtíð. I forkosningunum fékk Fullbright aðeins 34,8% atkvæða á móti 65,2% fyrir Bumpers. Mikill ósigur fyrir mann, sem alltaf hafði sigrað með gífurlegum yfirburðum. Með Fullbright er horfinn af sjónarsviðinu einhver litrikasti og þekktasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna. Hinn kunni bandaríski dálkahöfundur Walter Lippmann, sem fyrir skömmu er látinn, sagði um Fullbright eitt sinn: „Það er ekki hlustað á hann í þinginu fyrr en allur heimurinn hefur heyrt það sem hann hefur að segja." Það voru framsýni, þrákelni og frábærir hæfileikar Fullbrights til að skilja og meta stórmál, sem unnu honum virð- ingu heima fyrir og erlendis. Hann var oft einn á báti með skoðanir sínar og oft kom það í ljós, að hann hafði haft rétt fyrir sér. Hann gagnrýndi alla forseta Bandaríkjanna frá Truman til Nixons fyrir að vera of kreddukenndir eða of mikla beitingu bandarísks valds er- lendis. Hann var einn af fáum, sem vöruðu John F. Kennedy við að reyna að steypa Fiedel Castro úr sessi með þvi að senda skæruliðasveitirnar til Svínaflóa, hann barðist gegn hernaðaríhlutuninni, sem Johnson fyrirskipaði i Dómin- kanska lýðveldinu og hans lengsta og harðasta barátta var gegn Vietnamstríðinu, sem hann kallaði „endalaust, gagns- laust, veikjandi og ósiðsam- legt.“ Fullbright barðist af hörku gegn aukinni þátttöku Banda- ríkjanna í stríðinu með því að kalla talsmenn ríkisstjórnar- innar fyrir nefnd sina, utanríkismálanefnd öldunga- deildarinnar, þar sem spurði þá spjörunum úr og fór ekki dult með andúð sína, þótt allt væri það gert á rólegan og hógværan hátt. Eitt sinn er Melvin Laird, fyrrverandi varnarmálaráð- herra, var fyrir nefndinni og skýrði frá því að stjórnin hygð- ist búa her S-Vietnam betri og nýtizkulegri vopnum til þess að draga úr aðild Bandaríkja- manna að striðinu, sagði Full- bright: „Ég hef heyrt þetta áður, þetta er eins og grammó- fónplata, sem hjakkar í sama farinu, þið verðið að gera eitt- hvað róttækt til að breyta þessu striði, annars dregur það okkur til glötunar." Margir eru þeirrar skoðunar að þessir opinberu fundir Fullbrights hafi átt stóran þátt í að koma Bandarikjamönnum út úr stríð- inu og einnig að áskoranir hans um raunsæi og málamiðlun hafi átt sinn þátt í samningatilraun- um til að draga úr spennu, sem nú standa yfir og heimsóknum Nixons til Sovétríkjanna og Kína. Afskipti Fullbrights af er- lendum málefnum, sem for- manns utanríkismálanefndar í 15 ár, skyggðu á afskipti hans af innanríkismálum, en á þvi sviði var hann einnig talinn framfarasinnaður. Þó geta sumir starfsbræður hans ekki fyrirgefið honum, að hann greiddi atkvæði gegn ýmsum jafnréttislögum á sviði kyn- þáttamála. Þeirri gagnrýni svaraði Fullbright með því að yppta öxlum og segja að hann ætti ekki annarra kosta völ þar sem hann væri þingmaður fyrir suðurríki, allt annað þýddi póli- tískt sjálfsmorð. Hins vegar þótti Fullbright sýna mikið hugrekki, er hann einn manna greiddi atkvæði árið 1954 gegn fjárveitingu til rannsóknar- nefndar Josephs McCarthy’s er kommúnistaofsóknir hans stóðu sem hæst. Fullbright kallaði McCarthy „skepnu“ og fékk i staðinn uppnefnið Half- bright (lauslega þýtt hálfviti). William Fullbright er af bændafólki kominn, en hann var frábær námsmaður og fékk hinn fræga Rohdesstyrk, til náms við Oxford-háskóla í Bret- landi. Fullbright beitti sér 1946 fyrir frumvarpi um stofnun sjóðs til að styrkja erlenda há- skólastúdenta og fræðimenn til framhaldsnáms í Bandarikjun- um og Bandaríkjamenn til náms erlendis. Eru styrkir úr þessum sjóði kallaðir Full- brightstyrkir. Sumir starfs- bræður Fullbrights iitu á hann sem sjálfselskan og montinn mann, sem aldrei hefði komist yfir mikinn menntaframa sinn. Harry Truman þáverandi Bandaríkjaforseti kallaði hann eitt sinn i reiðiskasti „of- menntaðan tíkarson frá Ox- ford“. Undir lok stjórnmála- ferils síns hallaðist Fullbright að vináttu við ríka menn og volduga og varð vinur og ráð- gjafi forseta og konunga. Um leið missti hann tengslin við kjósendur sina heima i Arkans- as sem fundu það og létu hann fara í forkosningunum í sumar eins og fyrr segir. William Fuli- bright heimsótti Island i febrúar 1967 ásamt konu sinni, í tilefni 10 ára afmælis Full- brightstofnunarinnar á Islandi. Ræddi hann m.a. við ráðherra og forystumenn á sviði skóla- mála. öndverðar og skeyta hvorki um skömm eða heiður í valdabaráttu sinni. Það hlýtur að vekja sér- staka athygli af hve mikilli per- sónulegri heift Ellert veitist að Sverri Hermannssyni og Tómasi Árnasyni.“ Auðvitað er það út i bláinn að persónulegar árásir sé um að ræða af hálfu Ellerts, enda veit víst enginn til þess, að hann hafi neitt persónulega á móti þeim einstaklingum, sem hér koma við sögu, heldur þvert á móti. En hann heldur fram sinni skoðun og sannfæringu, eins og hann hefur heimild til og ber raunar skylda til. Og það er síður en svo að nokkuð sé óeðlilegt að þessi sjón- armið komi fram af hálfu sjálf- stæðisþingmanna, þvert á móti væri einkennilegt, ef þessar radd- ir heyrðust ekki. Forystumenn kommúnista hafa löngum lagt á það áherzlu, að að- eins ein rödd heyrðist i flokki þeirra og leggja sig í framkróka um að kæfa i fæðingunni allar tilraunir til frjálsræðis eða nýs mats á málefnum. Stundum verða þeir að vísu að grípa til harka- legra ráða, sem koma þá fram í dagsljósið, eins og t.d. að undan- förnu, er þeir hafa verið að kúga Magnús Kjartansson til stefnu- breytingar 1 stóriðjumálum. Fólkið veitir þvi athygli, t.d. þegar ungkommúnistar koma fram i sjónvarpsþáttum, að þeir eru allir steyptir i sama mót. Þeir ganga í leikskóla til að læra setningarnar, sem þeir eiga sifellt að endurtaka og allir hafa þeir sömu tilgerðarlegu áherzlurnar, hvort sem þeir heita Svavarar, Ragnarar eð Kjartanar. Þeir eru: „Litlir kassar, og allir eins.“ Frjálsleg blaðaskrif og málefna- legar deilur um ýmsa þætti þjóð- mála og menningarmála eru að sjálfsögðu undirstaða heilbrigðr- ar, lýðræðislegrar þróunar, og vissulega hafa ýmis málefni verið rædd að undanförnu, enda er það einkennandi að i skammdeginu verða deilur okkar íslendinga oft háværastar. Og ekki er þvi að leyna, að stundum getur orðaval orðið nokkuó harðdregið, þótt ekki eigi það við um grein Ellerts Schram. Persónulegra aðdróttana gætir lika stundum úr hófi fram og mættu menn gjarnan leggja þann sið niður, enda eru blaða- greinar venjulega áhrifameiri, ef sæmilegrar hófsemdar er gætt. Upp á Grænlandsjökul Nýlega fór fram viðræðuþáttur um landhelgismál í Ríkisútvarp- inu, þar sem m.a. komu fram full- trúar allra stjórnmálaflokkanna. Þeir virtust nokkuð sammála um, að bíða ætti með að tilkynna um útfærsludag landhelginnar, þar til hafréttarráðstefnan i Genf væri a.m.k. hafin, ef ekki þangað til fundum þar í borg væri lokið. Raunar voru engin rök færð fyrir því sem viðhlítandi eru, að þessi stefna væri rétt, og er bréfritari þeirrar skoðunar, að stefna nú, sem Sjálfstæðisflokkurinn mark- aði haustið 1973 um það að hraða útfærslunni einhliða, hafi verið hin eina rétta, og af flokksins hálfu verði að þrýsta á ákvarðanir í þessu efni. Sérstaka athygli vakti, að full- trúar tveggja stjórnarandstöðu- flokkanna, þeir Lúðvík Jósepsson og Benedikt Gröndal, lögóu ríka áherzlu á frestun málsins. Kom það ekki á óvart að þvi er Lúðvík varðar, þvi að hans flokkur vill bíða allt fram i nóvember, en ekki verður hjá því komist að geta um býsna stráksleg ummæli Benedikts Gröndal, sem ekki sæma for- manni lýðræðislegs stjórnmála- flokks. Þar var um „glósur“ að ræða, sem þó vonandi hafa verið fram settar i hugsunarleysi. En formaður Alþýðuflokksins sagði orðrétt: „Ja, ég geri mér vonir um, að það sé samkomulag um það, ég held að það sé milli stjórnmála- flokkanna um að láta ekki í ljós af Islands hálfu, hvað við ætlum að gera, fyrr en eftir fundinn Í Genf, og ég tel satt að segja að við getum það ekki með nokkru móti. Það eru svo mörg atriði, sem þar verða til umræðu, sem munu skýrast, sem við megum til með að vita um, áður en við tilkynnum okkar ákvörðun, t.d. hvernig eiga linurnar að vera milli landa, sem eru minna en 400 milur? Ætlum við að færa út bara með yfirlýs- ingu upp á miðjan Grænlandsjök- ul? Það er ekki hægt. Hvað um Jan Mayen? Hvað um svoleiðis eyjar, hvað um Rockall? Það eru svona atriði, ótalmörg, sem ég held, að muni a.m.k. skýrast það mikið i Genf, að við gætum eftir það áttað okkur á því, hvernig við höldum síðan áfram, og enn eru þó svo vandasöm, að við megum til með að bíða eftir þessari ráð stefnu, auk þess sem það er mjög diplomatiskt skynsamlegt, þó að það geti verið svolítið aðhald fyrir ráðstefnuna, að hún viti af þvi, að bæði við og fleiri ætlum að færa út, hvað sem tautar.“ Hefur maðurinn aldrei heyrt miðlínur nefndar? Getum við ekki gert breytingar á þeim, ef alþjóðareglur breytast? Mikilvægasta málið Auðvitað hefur það grundvall- arþýðingu, að við Islendingar get- um staðið sameinaðir um útfærsl- una í 200 mílur og skiljanlegt að stjórnmáiamenn vilji leggja sig í framkróka um að ná slíkri sam- stöðu. Þó hefur það grundvallar- þýðingu, að enginn geti fundið neitt hik á okkur Islendingum i landhelgismálinu, því að hika er sama og tapa. Jafnvel þótt út- færsludagur verði ekki ákveðinn, áður en hafréttarráðstefnan kem- ur saman í Genf, veróur það að vera lýðum ljóst, að enginn ís- lenzkur stjórnmálaflokkur mun hvika frá þeirri ákvörðun, sem ráðuneyti Geirs Hallgrímssonar hefur tekið, að færa landhelgina út á þessu ári, og raunar hefur forsætisráðherra bent á, að það þurfi að gerast ekki síðar en i sumar eða snemma hausts. Þvi miður er það staðreynd, að útfærslan í 50 milur hefur borið miklu minni árangur en vió Is- lendingar gerðum okkur vonir um. Að því er veiðar Breta varð- ar, dró ekki úr þeim að neinu ráði, fyrr en nú að undanförnu og ekkert fyrr en eftir að Olafur Jóhannesson, þáverandi forsætis- ráðherra, hafði gert samninginn við Heath forsætisráðherra Breta. Útfærslan í 200 milur er lifs- nauðsyn og ekki er okkur islend- ingum vandara um að stefna að 200 mílna einhliða útfærslu en tveim þriðju hlutum öldunga- deildar Bandarikjaþings og þeim áhrifaöflum i Bretlandi, sem fyrir þeirri stefnu berjast. Hikum þvi ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.