Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1975 35 — Krossgötur Framhald af bls. 36 aður náið og verk Jesú i trú- fræðinni og hingað til Dan- merkur eru komin mörg aust- ræn trúarbrögð og þvi er nauð- synlegt að vita hvað kristin- dómurinn hefur fram yfir önnur trúarbrögð." Önnur hjúkrunarkona er hér, Ida Andreasen: „Þegar ég kom bjóst ég við að öðlast meiri skilning og þekkingu á Guðs orði og að njóta góðs samfélags okkar nemenda á milli og samfélags við Jesúm Krist. Ég hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með það.“ Ég hef heyrt að þú munir eiga óvenjulega framtíð fyrir höndum. Geturður sagt okkur eitthvað um það? „Já, mér hefur í fleiri ár fundist Guð vera að kalla á mig til sérstaks verks fyrir sig. Það er að vera kristniboði og nota menntun mína í hans þágu. Ég veit núna að þetta rætist og ég reikna með að vera í Eþíópíu eftir eitt ár Fyrst verð ég að læra hið opinbera tungumál þeirra.“ Benny Mortensen 19 ára ný- stúdent. Hvers vegna ert þú á Bibliuskóla? „Ég óskaði að þekkja Biblíuna betur og i gegnum hana að þekkja Jesú.“ Hvað finnst þér um þennan skóla? „Ég hef verið ánægður með kennsluna, sem sýnir hvað kristindómur raunverulega er. Kennslan sýnir okkur Jesúm Krist, sem Guðsson og frelsara okkar. Það er öruggt án tillits til hversu margar húgmyndir mennirnir gera sér. Þessi boðun um hinn eina, sanna Jesúm og Guð skapa trúna og samfélagið við hann. Þetta sam- félag upp á við til Guðs finnst mér sjást vel í hinu góða mann- lega samfélagi okkar nemenda á milli. Hér höfum við félags- skap, sem ég held að við gleym- um aldrei." Við höfum heyrt nokkuð sagt frá satansdýrkun í Eþíópíu og ég spurði Vagn Jensen hvað honum fyndist um ástandið i Danmörku: „Á vissan hátt er ekki hægt að líkja saman ástandinu hér og i Eþiópiu, þar er baráttan við illa anda miklu sterkari og aug- ljósari. Jafnvel börn þekkja til hræðslu við satan og fólk er haldið illum öndum. Kristni- boðar hafa lika tekið á móti þessu fólki, er það biður um hjálp til að losna undan þessu valdi. Hér á landi er ör breyting á þessu sviði, aukinn áhugi er fyrir bókum og kvikmyndum um yfirnáttúrulega hluti og hér er til fólk, sem dýrkar satan. Maður les um það í blöðum og sér i sjónvarpinu. Fyrir stuttu var sýnt frásatansdýrkendum, söfnuður sem beinlinis tilbiður satan. Ég vil undirstrika að það er ekki hættulaust að gefa sig að hinum illu öndum.“ „Með þessum orðurn," segir Ragnheiður „vil ég enda og minna jafnframt á orð úr Prédikaranum 12,1: „Og mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um: mér líka þau ekki.“ Og Rómverjabréfið 1,17: „En hinn réttláti mun lifa fyrir trú.“ AUGLÝSINGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Aðalstræti 6 sími 25810 5,7 tonna bátur til sölu í góðu ástandi. Upplýsingar í síma 93-1893. Lífið getur verið eins og að spila sömu plötuna aftur og aftur. Væri ekki gaman að reyna að spila hinum megin? Þarf það að vera alltaf sama starfið sömu launin, sömu áhyggjurnar? Efastu stundum um hæfileika þina til að leika nýtt lag? Sennilega efast þú ekki um sjálfan þig en aðrir halda að þú gerir það. Ef til vill hikar þú við það að segja nokkur orð á fundum, frestar því að taka ákvarðanir eða mistekst að túlka skoðun þína á skýran og kröftugan hátt. Þú gætir verið að gefa alranga mynd af þér. Dale Carnegie námskeiðin hafa þjálfað meira en 2.000.000 einstakl- inga i því að hugsa, framkvæma og taka árangursríkar ákvarðanir og við höfum uppgötvað að flestir einstaklingar hafa miklu meiri hæfileika til að ná árangri heldur en þeir sjálfir héldu. Um þetta fjallar Dale Carnegie námskeiðið — kenna þér að komast áfram á eigin hæfileikum. Nú, ef þú vilt spila hina hliðina á plötunni okkar, þá er innritun og upplýsingar I sima 82411 STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson o 'Nýjung á niundu hæð Viö bjóöum gestum okkar úrval rétta, allt frá heitum samlokum upp í stórar steikur. Einnig eru á boðstólum súpur, forréttir, eftirréttir, kaffi og meö því, aö ógleymdum rétti dagsins hverju sinni. Allt þetta sem viö bjóöum upp á, hefur eitt sameiginlegt, og þaö er verðið, það er eins lágt og hægt er aö hafa það. Opið frá kl. 08.00 til 22.00 alla daga. Suðurlandsbraut 2 Reykjavík. Simi 82200 Hótel Esja, heimiliþeirra er Reykjavik gista Skipstjórar, ú tgeröarmenn athugið Höfum á lager þorskanet 210/12 og 210/15 P.P. mónófimtó 12", 16", 26", 30", 30", 32", 36", Terrelintó 12", 14", 16", 18", M.M. Til loðnu- og síldveiða loðnunótabálkar 210/15, 210/18, 210/21, 210/30. Síldanótabálkar 210/12 Flot og blý. Einnig höfum við til sölu, nót, ný yfirfarna 1 80 fm langa og 46 fm djúpa. Mjög hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Flottroll 400 möskva X 800 m m möskvi úr 492 möskva X 800 m m möskvi næloni 640 möskva X 800 m m möskvi 762 möskva X 800 m m möskvi Trollmottur 2x2 og 2x5 KEPTIJMJS LTD. Ingólfsstræti 1 A, sími 21380 t>ér verður hlýtt til hans Þurrkarinn frá ENGLISH ELECTRIC I er ómissandi i islenskri veöráttu. Tvær hitastillingar. 5 kg. afköst. Einfaldur öryggisbúnaöur. Útblástursbarki einnig fáanlegur. Yfir 20 ára reynsla hérlendis. Varahluta- og viögeröarþjónusta frá eigin verkstæði. ocp&sri Laugavegi 178 Sími 38000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.