Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 48
JWorgunt'ln&ib
nuGivsincHR
<g, ^22480
OPIÐ TIL KL. 22
ÞRIÐJUD4GA
Reykjavikurvegi 72 Hafnarfirði Sími 53636
SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
BíIHnn fauk út af
Ökumaðurinn varð undir
OFSAROK var undir Esju í fyrra-
kvöld og um áttaleytið í fyrra-
kvöld fauk þar bifreið út af veg-
inum og slasaðist ökumaðurinn
nokkuð.
Hér var um að ræða vörubifreið
með boddí á vörupalli og í einum
sviptivindinum fauk bifreiðin út
af veginum. Ökumaðurinn kast-
aðist út um framrúðu bifreiðar-
innar og varð hann undir bílnum
með annan fótinn. Fljótiega tókst
þó að ná manninum undan bíln-
um en fóturinn mun hafa brotnað
nokkuð illa.
Boddíið, sem á vörupallinum
var, fannst hvergi. Lögreglumenn
leituðu þess á nálægum slóðum og
allt niður að sjó. Telja þeir víst að
boddíið hafi fokið á haf út, og
segir það sina sögu um hvass-
viðrið sem þarna var.
I gær var gerð frá Dómkirkjunni útför fjögurra af þeim 7, sem fórust í þyrluflugslysinu á
Kjalarnesi. (Jtför þeirra Lúðvfks Karlssonar og Kristjáns S. Helgasonar var gerð s.l. fÖstudag, en f gær
var útför þeirra Stefáns Ólafssonar verkfræðings, Indriða H. Einarssonar verkfræðings, Sigurbjargar
Guðmundsdóttur og Tómasar Sigurðssonar verkfræðings. A morgun, mánudag, verður útför
Guðmundar Hannessonar yfirverkstjóra. Myndin var tekin í Dómkirkjunni f gær.
Dómur ráðuneytisins:
BORGA SKAL TOLL
AF SÁLMABÓKLNNI
FJARMALARAÐUNEYTIÐ
hefur synjað beiðni Hins fslenzka
biblíufélags um niðurfellingu á
tollum af nýrri útgáfu sálma-
bókarinnar, sem prentuð er f
Vestur-Þýzkalandi.
Að sögn Þorsteins Ölafssonar
deildarstjóra i fjármálaráðuneyt-
inu eru heimildir í tollalögum
þannig orðaðar, að fella megi
niður tolla af bókum, sem
prentaðar eru erlendis, ef ekki er
hægt að prenta þær á viðhlítandi
hátt hér innanlands. Hafi þessu
aðallega verið beitt þar sem um
svonefnda samprentun er að
ræða, þ.e. sama bókin prentuð á
mismunandi tungumálum en bók-
in að öðru leyti eins í útgáfum
hvers lands, t.d. sömu myndir
notaðar. Slíkar útgáfur hafa mjög
færzt í vöxt á undanförnum árum.
Að mati ráðuneytisins flokkast
prentun sálmabókarinnar ekki
undir fyrrnefnda skilgreiningu,
og verður Hið íslenzka biblíufélag
því að greiða 10% toll af sálma-
bókinni.
Vegirnir lokast jafnóð-
um og þeir eru ruddir
SAMKVÆMT upplýsingum Hjör-
leifs Ólafssonar hjá vegaeftirlit-
inu hefur lftil breyting orðið á
færð á vegum landsins undan-
farna sólarhringa. 1 fyrrakvöld
var t.d. versta veður á Hellisheiði
og vfða á Suðurnesjum, en f gær-
morgun var komið ágætisveður á
þessum slóðum, en þó gekk á með
éljum á Hellisheiði. 1 Arnes- og
Rangárvallasýslu var vel fært og f
gærmorgun var byrjað að moka
út frá Vík í Mýrdal, bæði til
austurs og vesturs. Var það mikið
verk og óvfst hvenær vegurinn
opnaðist.
Færð í Hvalfirði og Borgarfirði
var sæmileg og stærri bilar
komust um Snæfellsnes og vestur
Söfnuninhafin
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá í vikunni er hafin fjársöfnun
til styrktar eiginkonu og börnum
Geirfinns Einarssonar. Framlög-
um er veitt móttaka hjá Morgun-
blaðinu og Vísi, svo og á gfró-
reikning Hjálparstofnunar kirkj-
unnar nr. 20000. 1 Keflavfk taka
Sparisjóðurinn og sr. Björn Jóns-
son við framlögum.
43 bátar
SKÖMMU fyrir hádegi i gær voru
43 loðnubátar búnir að tilkynna
um afla til Loðnulöndunar-
nefndar frá því í fyrradag alls
4555 lestir. Bátarnir fóru flestir
út frá Austfjörðum á föstudags-
morguninn og fyrir miðnætti
voru 22 búnir að tilkynna afla. Á
svipuðum tíma hvessti á ný og
fóru þá bátarnir af stað til lands
og þá tilkynnti 21 bátur um afla,
flestir með slatta. 1 gærmorgun
lægði á ný á veiðisvæðinu úti
fyrir Austfjörðum og þá sneru
sumir við, sem voru á leið til
Dali. Á norðanverðum Vestfjörð-
um var það að frétta, að fært var
frá Isafirði til Bolungarvíkur og
Súðavíkur, en aðrar fréttir höfðu
ekki borizt að vestan. Vegurinn
norður í land opnaðist milli
Skagafjarðar og Reykjavíkur í
fyrradag, en i gær var hann orð-
inn ófær á Holtavörðuheiði og i
Vatnsskarði.
Fasteignamarkaðurinn:
Brunabótamat nálgast mark-
aðsverð íbúðarhúsnæðis
Vegurinn til Siglufjarðar var
opnaður í fyrradag og til þess
voru notaðar 5 jarðýtur. En
draumurinn stóð ekki lengi, því
ekki voru ýturnar fyrr búnar að
moka, en vegurinn varð ófær á
ný. Þá tókst einnig i fyrradag að
koma bilum og moksturstækjum
niður af Öxnadalsheiði, er voru
búin að vera þar i einn sólar-
hring. Vegurinn þar varð strax
ófær aftur og nú hefur öllum
mokstri á þessari leið verið slegið
á frest.
Hjörleifur sagði, að mikil ófærð
væri í Eyjafjarðarsýslu, en ekki
hefðu borizt fregnir af NA-landi.
Frá Austfjörðum væri það hins
vegar að frétta, að þar væru allir
vegir ófærir. Aftur á móti
opnaðist vegurinn frá Höfn
vestur i Öræfi um tíma í fyrradag.
lands með einhvern afla. Eftir-
talin skip tilkynntu um afla:
Pétur Jónsson KÖ með 380
tonn, Sandafell GK 150 t, Gull-
berg VE 220 t, Fífill GK 50 t,
Sveinn Sveinbjörnsson NK 140 t,
Keflvíkingur KE 140 t, Jón Finns
son GK 60 t, Helga Guðmunds-
dóttir BA 100 t, Gísli Árni RE 100
t, Hafrún ÍS 80, Bergur VE 60 t,
Ársæll GK 40 t, Ásver RE 50 t,
Jón Garðar GK 170 t, Sæberg SU
100 t, Hrafn Sveinbjarnarson GK
60 t, Örn RE 80 t, Asberg RE 130
FASTEIGNAMARKAÐURINN
er f góðu meðallagi nú um þessar
mundir. Morgunblaðið hefur rætt
við nokkra fasteignasala um
ástand markaðarins og bar flest-
um saman um að markaðsverð
væri yfirleitt mjög stöðugt og
hefði verið undanfarna mánuði.
Aðeins hefði verið um óverulega
hækkun markaðsverðs að ræða ef
einhver breyting væri merkjan-
leg. Á stærri eignum er ástandið
orðið þannig að markaðsverð er
t, Reykjaborg RE 200 t, Eldborg
GK 100 t, Halkion VE 80 t, Þórður
Jónasson EA 60 t, Ólafur Magnús-
son EA 40 t, Faxaborg GK 30 t,
Isleifur VE 80 t, Skirnir AK 60 t,
Ásgeir RE 100 t, Náttfari ÞH 140
t, Bjarnarey VE 70 t, Súlan EA
200 t, Guðmundur RE 300 t,
Ólafur Sigurðsson AK 50 t, Harpa
RE 70 t, Óskar Magnússon AK 20
t, Héðinn ÞH 25 t, Rauðsey AJ 340
t, Þorsteinn RE 30 t, Sigurður RE
60 t, Bjarni Ólafsson AK 80 t,
Albert GK 150 t og Arsæll
Sigurðsson GK 30 tonn.
nú að verða jafnhátt brunabóta-
mati, en við eðlilegar aðstæður
markaðarins má jafnvel gera ráð
fyrir því að markaðsverð sé um 20
til 25% hærra en brunabótaverð.
Talsverð hreyfing er á fast-
eignamarkaðinum og hljóp
kippur í hana upp úr áramótum.
Er það ekki óvenjulegt, þar eð i
desembermánuði, einkum er jól
fara að nálgast færist venjúlega
deyfð yfir markaðinn. 1 haust
gátu menn, sem ætluðu að selja
fasteign, jafnvel búizt við því að
þurfa að hafa hana í sölu I 2
mánuði eða svo, en þessi timi
hefur nú stytzt verulega. Engir
þeir fasteignasalar, sem Mbl.
ræddi við vildu þó segja fyrir um
þá þróun, sem þeir byggjust við á
næstunni. Spádómar í þessum
viðskiptum hafa aldrei reynzt
marktækir. Efnahagsástandið,
sem kunngert hefur verið í fjöl-
miðlum, hefur þó ekki enn sett
neitt mark á fasteignamarkaðinn,
hvað sem verður. Líkur benda og
til að svart efnahagsástand komi
alla jafna síðast fram í fasteigna-
markaðinum, þvi að eins og einn
fasteignasalinn orðaði það í við-
tali við Mbl.: „Slæmt má ástandið
verða, ef menn hætta að hafa
áhuga á að fá sér þak yfir höfuðið,
því að hvernig sem ástand efna-
hagsmála er þá er eigin Ibúð þó
ávallt veigamestur þáttur I efna-
hagslegu sjálfstæði einstaklings-
ins“.
Útborganir i ibúðum hafa
heldur lækkað siðustu misseri og
hafa þær dreifzt á lengra tímabil
og kemur fyrir að þær dreifist á
allt að 12 mánuði, en fyrir nokkr-
um misserum var algert hámark
um 8 mánuðir. Eftirstöðvar eru
yfirleitt lánaðar til 8 ára og al-
gengustu vextir af þeim eru 12%.
Astand fasteignamarkaðarins
er sem sé talsvert óvenjulegt, þar
sem markaðsverð og brunabóta-
mat eru nú svo til hið sama.
Brunabótamat er eða á að vera
sem næst byggingakostnaði og því
vaknar sú spurning, hvernig
byggingaiðnaðinum reiðir af i
þessari stöðu. Er jafnvel orðið
ódýrara að kaupa notað húsnæði,
en kaupa íbúð í nýbyggingu. Áður
fyrr á meðan verðbólga var af
eðlilegri íslenzkri stærðargráðu
var eðlilégt að markaðsverð not-
aðs húsnæðis væri 20 til 25%
hærra en byggingakostnaður. Því
getur verið vafasamt að tala um
verðbólguhagnað af íbúðarhús-
næði á meðan þetta ástand ríkir.
með 4555 lestir