Morgunblaðið - 30.01.1975, Síða 4

Morgunblaðið - 30.01.1975, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975 LOFTLEIÐIR BÍLALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 LOFTLEIÐIIt Æbílaleigan ^IEYSIR CAR RENTAL a, 24460 * 28810 piONcen Útvarp og stereo kasettutæki FERÐABILAR h.f. Bílaleiga, sími 81260. Fólksbilar — stationbílar, sendibílar- hópferðabílar. tei 14444 * 25555 BiLALEIGA CAR RENTAlI Hópferðabílar Til leigu i lengri og skemmri ferðir 8—50 farþega bilar. KJARTAN INGIMARSSON Sími 86155 og 32716. símh19294 RAFTORG símh 29960 IGNtS kæliskápar | STAKSTEINAR Ríkisútvarpið og Þjóðviljinn 1 lesendadálkum Velvakanda birtist fyrir nokkrum dögum bréf, þar sem rætt var um tengsl Rfkisútvarpsins og Þjóð- viljans. Bréfritari benti þar m.a. á nfu dæmi um þetta atriði. Sá hluti bréfsins fer hér á eftir: 1) „Einn og sami maður er lát- inn sjá um bókmenntaþátt Þjóðviljans og Rfkisútvarps- ins. 2) Fréttastjóri Þjóðviljans annast fréttaskýringar f inn- lendum fréttaskýringaþætti f Sjónvarpinu. 3) Einn og sami maður hefur yfirstjórn á erlendum fréttaflutningi Þjóðviljans og fjallar um erlendan fréttaskýringaþátt Sjón- varpsins. 4) Einn og sami maður er ábyrgur fyrir leiklistarþætti Þjóðviljans og Rfkisútvarps- ins. 5) Sami maður sér um þjóð- háttaþátt Þjóðviljans og Ríkisútvarpsins. 6) Unglingaþáttur Rfkisút- varpsins, „Frá ýmsum hlið- um“, er frá upphafi tryggð- ur f höndum kommúnista, og þegar hann var gagnrýnd- ur með röksemdum f Morg- unblaðinu, svaraði umsjón- armaður hans ekki á sama vettvangi, heldur með ósannindum f málgagni sfnu (og þáttarins?), þ.e. f Þjóð- viljanum. 7) Einn og sami maður annast popp-þátt f Þjóðviljanum og Ríkisútvarpinu. 8) Séð hefur verið til þess, að þátturinn „Spurt og svarað" sé alltaf f höndum öruggra marxista, sbr. fimmtán mfn- útna auglýsingasvörin (við heimatilbúnum spurn- ingum) varðandi Marx- Leninista-samtökin, Menn- ingar- og friðarsamtök fs- lenzkra kvenna og fleira álfka. 9) Fram til skamms tfma sá sama kona um að skrifa um barnabækur f Þjóðviljann og að velja efni handa Rfkis- útvarpinu til flutnings fyrir börnin okkar. Geðslegt, eða hitt þó heldur. Nú er sú kona farin af landi brott f bili, en önnur kona farin að fjalla um barnabækur f Þjóðviljanum. Hún heitir Olga Guðrún Árnadóttir, og auðvitað verður hún að fá að eiga að taka þátt f þvf að velja, þýða og flytja efni handa börnum okkar f Rfkisútvarpinu. Þó að hún hafi lýst yfir þvf á prenti (f Þjóðviljanum, náttúrulega), að hún sé á móti útvarps- kerfinu, — hvað sem það skyldi nú annars vera —, þá virðist hún vera svo ómiss- andi hjá kerfisstjórunum, að geti þeir ekki haft hana á kontórunum hjá sjálfum sér, þá senda þeir hana bara á börnin okkar.“ Söluskatturinn og símagjöldin 1 forystugrein Suðurlands á Selfossi var nýlega rætt um hækkun afnotagjalda hjá Pósti og síma og þá rekstrarörðug- leika, sem sú stofnun hefur átt við að etja. Þar sagði m.a.: Póst- og sfmagjöld hafa hækkað mjög að undanförnu. Þegar síðasta hækkun þessara gjalda var ákveðin var þvf borið við, að fjárhagur Pósts og síma væri það bágborinn að ekki yrði hjá þvf komist að auka tekjurnar með hækkun notendagjalda. Var frá því skýrt, að Landsfminn væri með yfirdráttarskuld um 900 milljónir króna, sem safnast hefði fyrir á 2—3 árum. Vinstri stjórnin komst til valda sumarið 1971 og gekk þvf frá fjárlögum fyrir árið 1972. Þá var ákveðið að auka tekjur rfkissjóðs með þvf að leggja söluskatt á Póst og síma. Hafði það aldrei verið gert áður, þó fjárþörf rfkissjóðs væri alltaf mikil. Söluskattur, sem hefur verið innheimtur af Landsfm- anum 1972—73 og 1974 nemur sömu upphæð og fyrrnefnd skuld stofnunarinnar við sfðastliðin áramót. Ef sölu- skatturinn hefði ekki verið lagður á f ársbyrjun 1972 og innheimtur sfðan, hefði ekki verið nauðsynlegt að hækka póst- og símagjöldin, þegar það var sfðast gert. ORÐ í EYRA GAS Það má með sanni seigja að verið hafi handagángur í menn- ingaröskjunni undanfarið. Ölýgnir seigja mér að menníng- arneyslan aukist í öfugu hlut- falli við ökuneyslu og verði jafnframt þvi meiri sem leingra dragi frá höfuðstöðvum gáfaðra og míkilhæfra myndgarpa og skáldmenna. Tilaðmynda ku menníngarneysla með fátæk- legra móti meðal Súmera, að ekki sé minnst á hring þann ekki smáan hvers miðja eður sentrúm er í heilabúi Þorleifs Haukssonar. Að venju birtust þjóð vorri ýmis dæileg hugverk á jóla- föstu. Ber þar að sjálfsögðu hæst glæsilega skrifaða, víð- sýna og gáfuíega ritdóma ójoð i vísi til dagblaðs, sem og þætti ritstjóra þess blaðs um bændur og önnur óarðbær fyrirbæri velferðarþjóðfélags. Þykir Jakobi einsýnt að menn setjist nú þegar að útlendum kjötkötl- um og veisluborðum í stað þess að vera sýknt og heilagt að hakka í sig gæðasmjör og niður- greitt rolluket, ásamt með mygluðum kartöflum frá Jó- hanni í grænmetinu. Er ekki vafi á að margan hefur dreymt litfögur svinslæri og drjúpandi uxabrjóst siðan téður ritstjóri bar fram vísdómsfullar ábend- íngar sinar um fækkun bænda og innflutníng hræbillegs góð- gætis frá útlandinu. Og svo gerði hann Gylfa heimaskits- mát i leiðinni. Þá ber ekki að gleyma fram- lagi megass til menningarneysl- unnar enda meingar gas það nú bæði undirlendið og háfjöllin i svokölluðum menníngarheimi islenskra. Má undarlegt heita að fleiri en við menníngarvit- arnir skuli ekki hafa glaðst yfir þessum óvænta gasfundi i ís- lensku menningarneyslusamfé- lagi, þegar aðrar þjóðir og frumstæðari verða að láta sér nægja að gorta af jarógasi í löndum sínum og aðrar beita jafnvel svo ómerkilegu gasi sem táragasi i lífsbaráttunni. Megas þetta hefur nú þegar náð að frjóvga ýmislegt dót, bæði gamalt og nýtt, á menn- íngarakrinum, svo sem mínn- inguna um listaskáldið góða og fleiri afdánkaða kalíbera úr upploginni sögu, sem sumir hafa verið að bera sig að kalla islandssögu. Þó ber þvi ekki að neita að gvuðbergur eyminginn átti hér fyrrmeir marga anna- sama mæðustund og af fési hans draup margur sveitadrop- inn á þeim akri við samskonar iðju. Jakobi er það fyllilega ijóst að megasið i islensku menn- íngarlifi er verðugt rann- sóknarefni ýmsum öðrum en ritdómurum og jafnvel enn merkilegra fyrirbæri en útlent svínakjöt. 25 ára afmæli Lúðra- sveitar Hafnarfjarðar SUMIR þættir félags- og menn- ingarlifs hafa stundum átt erfitt uppdráttar i Hafnarfirði, og þá oft kennt um nálægð við höfuðborgina. Ber því að fagna, þegar tekizt hefir langan, sam- felldan tíma hjá einstökum áhugamannahópum að halda uppi þróttmiklu menningar- starfi, eins og raunin hefir t.d. orðið hjá Lúðrasveit Hafnar- fjarðar, en i dag, 31. janúar, eru liðin 25 ár frá stofnun hennar. I tilefni þeirra tímamóta verður hér stuttlega minnzt þessa ágæta félagsskapar í bæjarlífi Hafnarfjarðar. Það var árið 1890, sem fyrst var stofnað til lúðrasveitar í Hafnarfirði, aðallega fyrir for- göngu Jóns kaupmanns Bjarna- sonar, og starfaði hún um ára- bil. Á árinu 1908, er bærinn hlaut kaupstaðarréttindi, vakn- aði aftur áhugi á lúðrablæstri og þá stofnuð lúðrasveit, sem lék i nokkur ár. Aftur varð til lúðrasveit í Hafnarfirði árið 1923 og starfaði um fimm ára skeið. Hlaut hún nokkurn styrk úr bæjarsjóði. Formennsku I Lúðrasveit Hafnarfjarðar hefir lengst af gegnt Einar Sigurjónsson, rakarameistari, eða um 15 ára skeió, en fyrsti formaður henn- ar var Friðþjófur Sigurðsson, byggingafulltrúi. Auk Frið- þjófs hafa þeir Eiríkur Jóhannesson og Guðvarður Jónssonar verið í lúðrasveitinni frá upphafi. Fyrsti stjórnandi Lúðrasveit- ar Hafnarfjarðar var Albert Klahn og um tólf ára skeið eða þar til hann féll frá. Þá tók vió Jón Ásgeirsson i þrjú ár eða unz Hans Ploder Fransson varð stjórnandi hennar. Hefi ég orð þeirra lúðrasveitarmanna fyrir því, að hann hafi reynzt hinn ágætasti félagi og átt hvað rík- astan þátt i því að auka hróður lúðrasveitarinnar og móta þann létta anda og góðu samheldni, sem rikt hefir innan félags- hópsins. Lúðrasveitin hefir lengi verið talinn sjálfsagður þáttur i flest- um útihátíðahöldum i Hafnar- firði síðasta aldarfjórðung. Einnig hefir hún komið fram viðar hér á landi. Eiga margir ljúfar og ánægjulegar endur- minningar frá leik hennar, en óhætt mun að fullyrða, að fáar greinar tónlistar eiga jafn al- mennum vinsældum að fagna og lúðrablástur. Samkomuhald í Hafnarfirði hefði oft orðið fátæklegt að yfirbragði, ef ekki hefði notið við lúðrasveitarinn- ar. Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.