Morgunblaðið - 30.01.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975
17
Nokkrir brezku sfldveiðimannanna sem fóru f hópferð á fund stjórnvalda f London til að krefjast
mflna útfærslu tafarlaust.
Brezkir sjómenn krefjast
50 mílna útfærslu strax
Gefa stjórnvöldum eins mánaðar frest
HÖPUR 120 skozkra sfldarsjó-
manna fór f sfðustu viku með
þotu til London til þess að ýta á
eftir kröfum þeirra um 50 mflna
fiskveiðilögsögu undan Bret-
landsströndum hjá þingmönnum
og rfkisstjórn. 1 London kom til
móts við Skotana flokkur n-frskra
sjómanna sem einnig taka nú þátt
f harðnandi baráttu brezkra sjó-
manna fyrir verndun ört minnk-
andi sfldarstofna undan vestur-
strönd Skotlands og Hjaltlands-
eyjum, að þvf er fram kemur f
frétt f brezka blaðinu Fishing
News. Hafa fulitrúar sjómann-
anna gert rfkisstjórninni ljóst að
ef hún komi ekki skozka sfldveiði-
flotanum tii hjáipar innan eins
mánaðar munu sjómenn grfpa til
sinna ráða til að fá 50 mflna út-
færslu framkvæmda.
Eftir fund með þingmönnum
sagði einn af fulltrúum skozka
sfldariðnaðarins að þeir hefðu
fengið fullvissu um að sett yrði á
laggirnar sérstök þingnefnd allra
flokka til að kanna málstað
skozku sfldveiðimannanná.
Á fundi með David Ennals að-
stoðarutanríkisráðherra gerðu
fulltrúarnir grein fyrir þeirri
skoðun sinni að algerlega ómögu-
legt væri að fylgjast með því
hvort nýgerðum samningum um
veiðikvóta væri framfylgt. Er-
lendum skipum, einkum af stærri
gerðinni, væri einkar auðvelt að
virða kvótareglurnar algerlega að
vettugi. Væri nú svo komið að
pólsk, rússnesk, færeysk og ís-
lenzk fiskiskip hefðu með „slátur-
veiði“ eyðilagt öll helztu veiði-
svæði skozka síldveiðiflotans, og
væru nú aðeins miðin undan St.
Kildu, 50 mílur austur af
Hebrideseyjum, eftir, þótt
ágengni erlendra veiðiflota, þ. á
m. 80 rússneskra veiðiskipa, tak-
markaði nú mjög afla Skota.
Ný átök Fords og þings
vegna Indókínaaðstoðar?
Washington, Phnom Penh,
29. janúar — Reuter.
GÖMUL sár ýfðust upp f dag f
10% hækkun
fargjalda yfir
N-Atlantshaf
Osló, 29. janúar — NTB.
FARMIÐAVERÐ á flugleið-
inni yfir Norður-Atlantshaf
mun hækka að meðaltali um
10% f ferðamannafarrými og
1. farrými frá 1. aprfi, að þvf er
Helge Lindberg, forstjóri hjá
SAS, segir f samtali við norska
blaðið Aftenposten. Þessi
hækkun átti að koma tii fram-
kvæmda 1. nóvember s.L, en
dróst á langinn vegna þess að
IATA hafði ekki náð sam-
komulagi um nýja skilmála
fyrir hópferðir við ieiguflugfé-
lögin. Frá 1. aprfl verður verð
á hópferðum mun lægra en
áður. M.a. munu flugfélög sem
halda uppi reglulegum áæti-
unarferðum geta boðið sér-
stakt hópferðaverð, sem verð-
ur um helmingi lægra en nú
er, ef farið er pantað og greitt
með 60 daga fyrirvara.
bandarfska þinginu er Gerald
Ford forseti bar fram ósk um
nýja hernaðaraðstoð við Indókfna
að upphæð rúmlega 500 milljónir
dollara. Ford Iagði f dag fram
formlega ósk um 300 milljóna
dollara fjárveitingu f aðstoð til
Suður-Vfetnam og 222 miiijónir
tii Kambódfu, og kvað þessara
peninga þörf til að hrekja skæru-
liðasveitir kommúnista á undan-
hald. Væru N-Vfetnamar og Vfet
Cong lfklegir tii að ná S-Vfetnam
smám saman á sitt vaid ef ekki
væri að gert. Sterkar Ifkur eru
taldar á þvf, að þessari ósk Fords
verði synjað af þinginu.
Mike Mansfield, leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni, sagði að
aukin heraðstoð myndi aðeins
leiða til meiri bardaga og meira
mannfalls, og kvað Víetnama
verða að ráða fram úr málum sfn-
um sjálfa.
Á sfðasta ári bað ríkisstjórnin
um 1400 milljóna dollara aðstoð
við S-Vfetnam og Kambódíu, en
fékk aðeins helminginn.
Ef Ford forseti leggur áherzlu á
að þetta mál nái nú fram að ganga
gætu þau átök við þingið sem tal-
in eru fylgja f kjölfarið bætzt við
núverandi deilu þings of forseta
uin skatt á innfluttri olíu.
I fréttum frá Phnom Penh I dag
segir að um 6000 hermenn stjórn-
arinnar f Kambódfu hafi beðið
bana eða særzt frá því er skæru-
liðasveitir kommúnista hófu nýja
sókn á nýjársdag, að þvf er áreið-
anlegar heimildir innan hersins
herma.
I nótt var hart barizt á eystri
bakka Mekong-árinnar andspænis
höfuðborginni Phnom Penh og
vfðar.
Ford — enn f deilum við þingið.
Ríkið batt enda á
blaða-
dauðann
BEINIR ríkisstyrkir til sænskra
dagblaða, sem hófust árið 1969,
hafa svo til algjörlega bundið
enda á biaðadauða þar f landi en
hann var áður mjög mikill, að þvf
er fram kemur f nýlegri könnun
sem háskólinn f Gautaborg gerði
að tilhiutan rfkisstjórnarinnar á
högum sænsku dagblaðanna. Á
meðan 77 dagbiöð hættu útkomu
á árunum 1945 til 1968, hefur
aðeins eitt dáið drottni sfnum frá
þvf rfkisstyrkirnir héldu innreið
sfna fyrir fimm árum.
Lífshættulegar
sykursýkistöflur?
Chicago, 29. jan. Reuter.
PILLUR sem teknar eru inn til að
hafa hemil á sykursýki kunna að
valda dauða 10.000 til 15.000
Bandarfkjamanna ár hvert, að þvf
er fram kemur f ritsfiórnargrein
tfmarits bandarfska læknafélags
ins. Segja læknasamtökin fjórar
milljónir Bandarfkjamanna vera
sykursjúka og meir en 1500.000
þeirra taki inn umræddar töflur.
Lyfin sem rannsökuð voru f þessu
sambandi draga úr sykurmagni
Ifkamans, og efni það sem athygl-
in beindist einkum að heitir tol-
butamide. Framleiðendur tol-
butamide lýstu hins vegar f dag
yfir vanþóknun á fullyrðingum
læknatfmaritsins og kváðust
treysta á gæði lyfsins.
Umrædd sykursýkislyf hafa
verið rannsökuð í allmörg ár, og
árið 1970 var birt skýrsla þar sem
fram kemur að dauði af völdum
hjartasjúkdóma sé helmingi tíð-
ari hjá þeim sykursýkissjúkling-
um sem neyta þessara lyfja en
hinna sem eru undir annars kon-
ar læknismeðferð. Þessi skýrsla
var gagnrýnd af ýmsum læknum,
og var hún tekin til endurskoðun-
ar. Á meðan voru lyfin áfram á
markaðnum. Endurskoðunin, sem
nú er lokið, staðfestir fyrri niður-
stöður skýrslunnar.
Wilson og
Ford funda
Washington, 29. jan. Reuter.
HAROLD Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, og Gerald Ford
Bandarikjaforseti hefja á morg-
un, fimmtudag, viðræður i
Washington og er gert ráð fyrir
að til umfjöllunar verði einkum
orkuvandamálin, samband aust-
urs og vesturs, og Miðausturlönd.
Wilson sem heldur til Moskvu
fljótlega eftir Washingtondvölina
er talinn vilja kynna sér hug-
myndir Fords um hugsanlegar
endurbætur á sambúð austurs og
vesturs. Þetta er í fyrsta sinn sem
Ford og Wilson hittast, en Wil-
son kemur til Bandaríkjanna frá
Kanada þar sem hann ræddi við
Trudeau forsætisráðherra. Við-
ræður þeirra Fords munu standa
yfir i tvo daga.
Tanaka saklaus
af skattsvikum?
JAPANSKA ríkisst jórnin til-
kynnti I fyrri viku að bráða-
birgðarannsókn skattstofu rfkis-
ins hefði ekki leitt f ljós verulegt
fjármálamisferli Kakuei
Tanakas, fyrrverandi forsætisráð-
herra, sem sagði af sér embætti I
desember si. vegna meints við-
skiptahneykslis. Ohira fjármála-
ráðherra sagði þingnefnd að eng-
inn fótur hefði verið fyrir ásök-
unum á hendur Tanaka enn sem
komið væri, að sögn brezka blaðs-
ins The Times. Aðeins hefði orðið
vart smá misreiknings f skatta-
skýrslum.
Þingmenn kommúnista og
sósíalista voru þó langt í frá
ánægðir með þetta, og báru
brigður á yfirlýsingu Ohiras. Þeir
bentu m.a. á það, að rannsóknin á
fjárreiðum Tanakas hefði farið
fram bak við luktar dyr og ein-
stök atriði hennar hefðu ekki
verið gerð lýðum ljós.
Tanaka — ranglega sakfelldur?
Ohira svaraði þvf til, að rann-
sókninni yrði haldið áfram, og
yrði endanleg skýrsla um niður-
stöður hennar afhent þinginu i
marzmánuði.
Háskólakennur-
unum bolað frá
Belgrad, 29. janúar. Reuter.
SJÖ ára langri pólitískri
baráttu, sem athygli vakti
meðal háskólamanna um
heim allan, lauk í gær með
því að átta andófssinnuð-
um háskólakennurum við
Belgradháskóla var vikið
úr starfi við heimspeki-
deild skólans. Þar með
telja fréttaskýrendur end-
anlega tekið fyrir opinbert
viðnám gegn harðlfnu-
stefnu júgóslavneska
kommúnistaflokksins. Há-
skólakennararnir átta
höfðu opinskátt gagnrýnt
stjórnmála- og efnahags-
stefnu flokksins, og á
serbneska þinginu í gær
var samþykkt einróma að
vfsa þeim úr starfi fyrir
„að skaða almannahag
alvarlega“.
Þeir munu þó halda
launum sfnum áfram unz
þeim verða útveguð önnur
störf eða þeir setjast f
helgan stein.
Brezhnev mætt-
urtilstarfa á ný
Moskvu, 29. janúar. NTB.
LEONID Brezhnev, aðalritari
sovézka kommúnistaflokksins,
mun nú vera búinn að ná sér eftir
mikil veikindi, sem komu á kreik
orórómi um að hann væri dauð-
sjúkur. Fréttamenn i Moskvu
telja sig hafa séð Brezhnev aka til
og frá vinnu í Kreml undanfarna
daga og er talið vist, að hann
muni koma fram opinberlega í
Moskvu á næstu dögum. Heimild-
ir f Kreml herma, að Brezhnev
hafi i desember fengið mjög
slæmt kvef, sem þróaðist í
lungnabólgu og barkabólgu. Var
Brezhnev mjög þungt haldinn um
skeið, en þó ekki lífshættulega.