Morgunblaðið - 30.01.1975, Side 19

Morgunblaðið - 30.01.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1975 19 Minni eftirspurn erlendis MEÐ hækkandi sól fara stang- veióimenn að hugsa til sumarsins og þess er eflaust ekki langt að bíða, að sumir hverjir fari að taka fram veiðitækin sín, pússi þau upp og hafi þau i góðu lagi þegar fyrstu árnar verða opnaðar. Umræður um ár á Islandi, sér- staklega laxveiðiár, hafa verið miklar undanfarin ár, og sumum hverjum finnst, að við ættum ekki að hleypa útlendingum i okkar laxveiðiár, þrátt fyrir allan þann gjaldeyri, sem þeir skilja eftir í landinu og okkar gjaldeyris- þyrstu þjóð veitir ekki af. Um þessi mál og fleiri ræddi Mbl. við Barða Friðriksson, formann Stangveiðifélags Reykjavíkur, á dögunum, en Stangveiðifélagið er nú með mörg mál á prjónunum þessari spurningu hér á undan, en vil þó aðeins vekja athygli á eftirfarandi. Það er næsta furðuleg skoðun, að það sé einhvers konar þjóðnýt- ingarathæfi að selja útlendingum veiðileyfi. Erum við ekki á öllum sviðum að leita uppi gæði, sem við getum selt útlendingum? Eftir ovi sem þjóðinni vex fiskur um irygg reynir hún að renna fleiri itoóum undir framleiðslu sína og ekjuöflunarleiðir. Þarna er ein. Þeir, sem svipta vilja land- ngendur veiðirétti sínum, nota n.a. þau rök, að landeigendur tafi lítið gert til að auka eða /iðhalda veiði i ám sínum. Meðal innars af þessum ástæðum beri ið svipta þá þessum eignum. Urá 'ornu fari hafa að því er virðist tér á Islandi, bæði landeigendur og löggjafinn, haft i huga að veiði- ínum yrði ekki spillt með ofveiði og eignarréttur eins skaði ekki jm of eignarrétt annarra. Laxveiðin hefur aukizt um Lagarfljót. Á hér eftir að verða mesta laxagengd á tslandi? „Lagarfljótsáætlun sú stærsta sinnar tegundar í V-Evrópu” Rætt við Barða Friðriksson formann Stangaveiðifélags Reykjavíkur eins og t.d. ræktun Lagarfljóts- svæðisins, sem verður stærsta stangveióisvæði landsins, og sennilega í allri Norðurálfu, þegar það kemst i gagnið i sumar. Fyrst spurðum við Braga hvort ásókn útlendinga í íslenzkar lax- veiðiár færi nú minnkandi? „Það virðist sem markaðurinn erlendis sé nú eitthvað tregari en áður,“ segir Barði, „en hinsvegar virðist eftirspurn innanlands vera svipuð. Veiðileyfi hér hafa hækkað mest um 15—20% á meðan kaup hefur hækkað um 48%, og sumsstaðar hafa þau staðið i stað. Við erum farnir að reikna með minni sölu til útlend- inga og til marks um það, eru útlendingum nú ætlaðar 5 veiði- vikur i Grímsá i staó 7 áður. En eftir þvi sem umboðsmaður okkar í Bandaríkjunum segir nú, er þessi tími allur lofaður. I Norðurá verður engin breyting, þar verða örfáir útlendingar, viðskipta- menn frá gamalli tíð. Og til gam- ans má geta þess, að á vegum félagsins kemur „holl“ frá Kan- ada, þrátt fyrir, að þeirra laxveiði- ár hafi batnað mikiö síðustu árin.“ — Veldur þaö ekki nokkrum erfiðleikum í rekstrinum, að ásælni útlendinga í íslenzkar lax- veiðiár er ekki eins mikil og áður? „Vissulega er það, en salan hér innanlands hefur gengið mjög vel s.l. 2 ár og nú verðum við að vona, að árnar verði ekki eins vatns- litlar og s.l. sumar." — Nú hefur veiðileyfissala til útlendinga verið gagnrýnd af mörgum íslenzkum stangveiði- manninum. Ættum við kannski alveg að hætta að selja útlend- ingum veiðileyfi? „Hún er m.a. gagnrýnd vegna þess, að hún hefir orðið til að stórhækka leigu fyrir ýmsar þær ár, er við nú höfum á leigu eða jafnvel misst af af þessum sökum. Mín skoðun er að slík veiði- leyfissala sé a.m.k. innan vissra marka sjálfsögð og eðlileg. Þróun- in hefir orðið sú, að fjórar til sex vikur í ýmsum beztu ánum eru seldar til útlendínga, en hin tíma- bilin til íslendinga. Þetta stafar að sjálfsögðu af því að útlendu veiðimennirnir vilja borga hærra verð fyrir þessi gæði en við. Þegar Islendingar geta og vilja greiða sambærilegt verð, kaupa þeir að sjálfsögðu þennan tíma líka. Yfirleitt reynum við að fá bezta fáanlegt verð fyrir þau gæði, sem við höfum til sölu? Eða eigum við e.t.v. af þjóðernisástæð- um að hætta að flytja bezta og verðmætasta fiskinn úr landi? Eigum við af föðurlandsást að hætta að selja kjöt af blessuðum litlu lömbunum okkar til annarra þjóða 200 þús. kr. í gjaldeyri Rétt er að geta þess í þessu sambandi, að hver erlendur veiði- maður, sem stundar hér veiðar í Unnið að gerð laxastiga við Faxa í Tungufljóti. Barði Friðriksson. eina viku í góðri á, kemur með gjaldeyri, sem svarar u.þ.b. kr. 200.000,-. Ég tel mjög vafasamt eins og nú er háttað i þjóðfélag- inu að við höfum efni á að missa af þessum gjaldeyri. Það munar verulega um hann í þjóðarbúinu. ' — Nú hefur komið fram þings- ályktunartillaga þess efnis, að öll fallvötn og stöðuvötn á afréttum verði alþjóðareign, þannig að það verði ríkið eitt, sem geti leyft og leigt fiskirækt og veiðirétt. Hvert er þitt álit og stangveiðimanna yfirleitt á þessari tillögu? „Ekki leikur á tveim tungum, að í tillögunni felast ódulbúnustu þjóðnýtingaráform, sem komið hafa fram á Alþingi frá upphafi, svo að líklegt er, að flestir sósíal- istar felli sig vel við þau. Við, sem ekki erum áhangendur þess trúarflokks, höfum hinsvegar margt við þau að athuga. Ef rætt er sérstaklega urn spurninguna, hvort svipta eigi landeigendur eignaraðstöðu að lax- og silungsveiói koma eftir- talin rök þeirra, er það vilja gera, einkum til athugunar. 1. Okur- leiga landeiganda á veiðileyfum. 2. Sala veiðileyfa til útlendinga. Ég ætla þá fyrst að ræða um hina svokölluðu okurleigu land- eigenda á veiðileyfum. Ekki leikur vafi á, að leiga fyrir laxveiðiréttindi hefir mjög hækkað á síðustu árum vegna aukinnar ásóknar Islendinga og útlendinga í þessi gæði. I stað þess, að laxinn var áður nær ein- göngu veiddur í net eru nú fleiri og fleiri, sem sækjast eftir að veiða hann á stöng og vilja greiða landeigendum miklu hærra verð en þeir hefðu haft upp úr neta- veiðinni. Nú er spurningin. Eiga land- eigendur að neita að taka á móti hækkandi upphæðum fyrir þessi gæði? Getur nokkur vænzt þess? Ég svara þessari spurningu hik- laust neitandi. Eiga landeigendur að neita að selja veiðileyfi til út- lendinga á hæsta fáanlegu verði vegna þess að einhverjir íslenzkir stangveiðimenn viljdu kaupa þessi leyfi fyrir verð, sem þeir sjálfir skömmtuðu. Allir raunsæir menn hljóta, að telja slíkt fjar- stæðu. Með þvl töpuðu veiði- réttareigendur og þjóðin miklum og árvissum tekjum. Er þá með réttu hægt að brigzla landeigend- um um okur, þótt þeir selji þau verðmæti, sem þeir hafa á boð- stólum fyrir hæsta markaðsverð. Mér finnst slíkt í hæsta máta ósanngjarnt og heimskulegt. Það væri í raun og veru alveg sam- bærilegt við það, að framleiðend- ur neituðu að selja kjöt og fisk, nema á verði sem væri fyrir neðan markaðsverð. Ég kem þá að hinni spurning- unni. Á að neita að selja út- lendingum veiðileyfi: Ég hefi að nokkru svarað helming síðan 1959 I 56. kafla hinnar fornu Jóns- bókar koma fram merkileg ákvæði þar sem fjallað er um landsréttindi og hlunnindi jarða. Þegar þessi lagaákvæði voru sett var íslenzka þjóðveldið fyrst og fremst bændaþjóðfélag. I þessum lagaákvæðum kemur fram hverj- um augum jarðeigendur hafa litið á gildi göngu fisksins og þá fyrst og fremst laxins. I þessum ákvæðum felst ákveðið friðunarsjónarmið, sem hlýtur að byggjast á þeirri grund- vallarskoðun, að einn megi ekki ganga um of á rétt annars eða möguleika til að njóta þessara hlunninda. Hin gullvægu ákvæði, sem ég á hér við eru svohljóðandi: „Ganga skal guðs gjöf til fjalls sem til fjöru, ef gengið vill hafa." Þessi fögru ákvæði Jónsbókar munu áreiðanlega ekki hafa verið lögfest gegn vilja landeigenda, en þau fela í raun og veru í sér hin fyrstu lagaákvæði um fiskrækt, sem þekkt eru hérlendis. Siðasta endurskoðun á lögum um lax- og silungsveiði er frá 1970. Er þar að finna itarleg ákvæði um veiðirétt, friðun, göngu fisks, veiðitæki, mann- virkjagerðir i veiðivötnum, styrk- veitingu til fiskræktar, réttarfar og fl. Öll eru þessi ákvæði til bóta frá því sem áður var og eru góð og gild. Það sem ég held þó að orðið Framhald á bls. 23 Nýr leigusamningur var undirritaður um Eiliðaárnar á s.I. hausti. A þessari mynd sjást þeir Viggó Jónsson og Steingrímur Jónsson að veiðum i ánum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.