Morgunblaðið - 30.01.1975, Page 34

Morgunblaðið - 30.01.1975, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975 27 stór íþróttahús byggð á næstu árum I ÁVARPI sem Gisli Halldórsson, forseti ISl, flutti i kaffisamsæti sem Iþróttasambandið efndi til á afmælisdegi sinum i fyrradag, komu fram mjög athyglisverðar upplýsingar um breytta stefnu i byggingamálum íþróttahúsa. Gat Gísli þess, að nú sæti á rökstólum rikisskipuð nefnd sem semja ætti reglugerð um stærð og gerð íþróttahúsa og hefði nefnd þessi nýlega átt fund með menntamála- ráðherra. Sagði forseti ISÍ, að hingað til hefði of smátt verið hugsað við byggingu íþróttahúsa, en útlit væri fyrir breytta stefnu í þeim málum. Væri áformað að byggja á næstu árum 27 íþrótta- hús sem hefðu vallarstærðina 22X44 metrar ásamt áhorfenda- rými og alls væri gert ráð fyrir að á næstu árum yrðu byggð hvorki fleiri né færri en 80 íþróttahús. Þá gat Gísli Halldórsson þess einnig í ávarpi sínu að hér væri nú staddur erlendur aðili sem væri að athuga um lagningu tart- an-efnis á Laugardalsvöllinn, og kvaðst Gisli vona að þess yrði ekki lengi að bíða að það mál kæmist i höfn. Forseti ÍSl gat þess, að fjár- stuðningur opinberra aðila hefði farið vaxandi á undanförnum ár- um. T.d. hefði framlag til íþrótta- sjóðs hækkað á fáum árum úr 50 milljónum króna í 84,0 milljónir króna og einnig hefðu hækkað framlög til kennslumála og mörg byggðarfélög hefðu hækkað sín framlög verulega. Þetta bæri allt vott um aukinn skilning á gildi íþróttastarfsins. Fagna ber sérstaklega þeirri stefnubreytingu í byggingu íþróttahúsa, sem forseti ISl greindi nú frá, og einnig þeim skyndilega stórhug sem virðist ríkja á þessu sviði. Hingað til hafa aðeins verið byggð tvö íþróttahús á íslandi sem hafa löglegan keppnisvöll fyrir allar greinar íþrótta, Laugardalshöllin og Iþróttahúsið í Hafnarfirði, og hafa mál skipast svo með mjög vaxandi þátttöku i flestum íþróttagreinum að um hreint ófremdarástand hefur verið að ræða. Má geta þess t.d. að i yfir- standandi Islandsmóti i hand- knattleik þurfa Reykjavíkurfélög- in að senda lið sín út úr borginni til þess að keppa hvort við annað, og þá í iþróttahúsum sem hafa ekki löglega vallarstærð. Á Reykjavíkursvæðinu eru tvö hús sem veitt hefur verið undanþága til þess að keppa i, á Seltjarnar- nesi og í Garðahreppi. Bæði þessi hús hafa 18X33 metra vallar- stærð, en sú stærð húsa virðist hafa verið í miklu uppáhaldi und- angengin ár, og er t.d. verið að byggja slíkt hús í Borgarnesi um þessar mundir. Það mun muna um minna en 27 keppnishús þegar þau verða kom- in í gagnið, en það verður á næstu árum, samkvæmt því sem kom fram í ávarpi forseta ÍSl, auk þeirra 53 minni húsa sem byggja skal. En auðvitað má ætla að það taki nokkurn tíma að koma hús- um þessum upp, og ef að líkum lætur munu þau kosta gífurlegt fjármagn. Þá eru það veruleg tiðindi að nú skuli vera hafin alvarleg athugun á því að fá tartan-efni á hlaupa- brautirnar á Laugardalsvellinum, sem er raunar eini íþróttavöllur- inn á islandi, þar sem frjáls- íþróttakeppni getur farið fram við sæmileg skilyrði. Þó er svo komið, að hingað munu ekki fást nein meiri háttar mót, né íþrótta- menn í fremstu röð, fyrr en gervi- efni verður komið á hlaupabraut- irnar. Breytir þar engu um þótt íþróttafulltrúi ríkisins lýsti því yfir í útvarpsþætti um áramótin, að einn þeirra er hafði með bygg- ingu Olympiumannvirkjanna í Munchen að gera, hefði sagt sér, að sér kæmi það á óvart að Islend- ingar væru að leggja gerviefni á atrennubrautir Laugardalsvallar- ins, þar sem þeir hefðu yfir að ráða hinu ágæta „eldfjallaefni". Þær upplýsingar sem fram komu í ávarpi Gísla Halldórsson- ar um aukin fjárframlög opin- berra aðila til íþróttastarfsins eru einnig mjög gleðilegar. Þegar hann greinir frá því að framlag til íþróttasjóðs hafi hækkað „á fáum árum“ úr 50 milljónum i 84 millj- ónir, ber þó að athuga að ekki mega árin vera mörg til þess að fjárframlag þetta hafi ekki bein- línis lækkað, ef tekið er mið af þeirri gífurlegu verðbólgu sem verið hefur i landinu undanfarin ar' — stjl. Hreinn Halldórsson, varpaði kúlunni 17,92 metra. Slakur árangur á Reykjavíkurmótinu Reykjavikurmeistaramótið f frjálsum fþróttum innanhúss, sem fram fór um helgina f Laugardalshöllinni og Baldurs- haga, var f daufara lagi. Helzt var það utanborgarfólk, sem lét að sér kveða, og eina umtalsverða afrekið vann Strandamaðurinn Hreinn Halldórsson, sem varpaði kúlunni 17,92 metra. Bendir af- rek þetta til þess, að Hreinn sé f góðri æfingu og líklegur til frekari afreka næsta sumar. Keppni í 50 metra hlaupi karla var einnig hin skemmtilegasta. 1 undanrásum náði Bjarni Stefáns- son beztum tíma, 5,9 sek., en Björn Blöndal KR, átti annan beztan tímann 6,1 sek. I úrslita- hlaupinu hafði hinn kornungi Efnilegt sundfólk UNGMENNIN á meðfylgjandi mynd eru úr Keflavík og hafa að undanförnu vakið athygli fyrir ágæt afrek og íslandsmet í sundi í sfnum aldursflokkum. Þau eru: Sveinbjörn Gizurar- son, Eiríkur Á Sigurðsson og Sonja Hreiðarsdóttir. Ef getið er um helztu afrek þeirra má nefna að á unglingamóti Ár- manns sem fram fór 10. nóv- ember s.l. synti Sveinbjörn 100 metra baksund á 1:28,1 mín. og bætti metið í greininni um 5/10 úr sek. Á meistaramóti Hafnar- fjarðar sem fram fór 2. desem- ber synti Sveinbjörn 100 metra bringusund á 1:28,0 mín. og Eiríkur á 1:28,3 mín., en gamla metið i aldursflokki þeirra var 1:28,6 mín. Á sama móti synti Sveinbjörn 200 metra fjórsund á 3:04,0 mín., og bætti þar eldra met um 10 sek. Krakkarnir voru enn á ferð- inni á innanfélagsmóti Ár- manns KR og Ægis, sem haldið var skömmu fyrir áramót. Sonja synti þá 200 metra bak- sund á 3:06,1 mín., en gamla metið var 3:24,0 mín. Eiríkur og Sveinbjörn syntu 400 metra bringusund á 6:40,7 mín., en gamla metió var 7:13,6 mín. Eiríkur synti síðan 1000 metra bringusund á 17:46,5 mín., Sveinbjörn hætti metið i 200 metra baksundi úr 3:07,2 mín. i 3:01,5 mín. og jafnaði metið í 50 metra baksundi með því að synda á 39,7 sek. Þjálfari þessa unga og mjög svo efnilega sundfólks er Friðrik Ölafsson. 1 ; Sigurður Sigurðsson úr Ármanni hins vegar vinninginn og hljóp á 5,9 sek., — aðeins sekúndubroti frá Islandsmetinu. Þátttaka i mótinu var annars mjög lítil, og flest bezta frjáls- íþróttafólk borgarinnar lét sig af einhverjum ástæðum vanta. Helztu úrslit í einstökum keppnis- greinum urðu sem hér segir: 1500 metra hlaup karta: Róbert McKee, FH 4:32,9 mfn. Gunnar P. Sigmundsson, FII 4:35,3 mfn. Rúnar Hjartarson, UMSB 4:37,3 mfn. Hafsteinn Óskarsson, IR 4:46,1 mfn. Guðmundur Magnússon, HVl 4:56,2 mfn. Magnús Haraldsson, FH 5:11,6 mín. Sigurður Haraldsson, FH 5:15,5 mfn. Langstökk karla: Sigurður Sigurðsson, Á 6,26 metr. Rúnar Jónsson, UMSB 6,05 metr. Einar Óskarsson, UMSK 5,73 metr. Óskar Thorarenssen, IR 5,65 metr. Einar Guðmundsson, FH 5,49 metr. Ágúst Ágústsson, FH 5,41 metr. Hástökk kvenna: Björk Eirfksdóttir ÍR 1,57 metr. Anna Haraldsdóttir, FH 1,50 metr. Þórdfs Gfsladóttir, tR 1,45 metr. Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, A 1,45 metr. Ása Halldórsdóttir, Á 1,45 metr. Kristbjörg Þórarinsdóttir, KR 1,40 metr. Hildur Harðardóttir, FH 1,35 metr. Kúluvarp kvenna: Ása Halldórsdóttir, Á 10,84 metr. Ingunn Einarsóttir, iR 8,56 metr. Hanna Dóra Stefánsdóttir, (R 7,37 metr. Hildur Harðardóttir, FH 7,04 metr. Kúluvarp karla: Hreinn Halldórsson, HSS 17,92 metr. Guðni Halldórsson, HSÞ 15,51 metr. Óskar J akobsson, IR 15,00 metr. Stefán Hallgrímsson, KR 13,23 metr. Hafsteinn Jóhannesson, UMSK 11,70 metr. Stangarstökk: Hafsteinn Jóhannesson, UMSK 3,60 metr. Sigurður Krist jánsson, (R 3,40 metr. 800 metra hlaup kvenna: Ánna Haraldsdóttir FH 2:39,1 Hildur Harðardóttir, FH 2:45,4 Inga Lena Bjarnadóttir FH 2:49,5 Kristjana Jónsdóttir, FH 2:49,6 Svandfs Sigurðardóttir, KR 3:01,7 50 metra grindahlaup kvenna: Ása Halldórsdóttir, A 7,8 sek. Hildur Harðardóttir, FH 9,6 sek. Anna Haraldsdóttir, FH 9,7 sek. 50 metra grindahlaup karla: Valbjörn Þorláksson, KR 7,4 sek. Hafsteinn Jóhannesson, UMSK 7,4 sek. Jón Sævar Þórðarson, (R 7,5 sek. 50 metra hlaup kvenna: Asa Halldórsdóttir, A 6,9 sek. Margrét Grétarsdóttir, A 7,1 sek. Oddný Árnadóttir, UNÞ 7,1 sek. Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, A 7,2 sek. Anna Haraldsdottir, FH 7,5 sek. 50 metra hlaup karla: Sigurður Sigurðsson, A 5,9 sek. Bjarni Stefánsson, KR 6,0 sek. Björn Blöndal. KR 6,2 sek. Skeggi Þormar, KR 6,5 sek. Góð þátttaka í unglingamóti SR UM SlÐUSTU helgi fór fram á vegum Skíðafélags Reykjavíkur skíðamót fyrir börn og unglinga i Hveradölum. Alls mættu þarna um 100 ungmenni til leiks, og var um mjög skemmtilega keppni að ræða í flestum aldursflokkunum. Færi var nokkuð þungt á laugar- daginn, en hins vegar betra á sunnudaginn. Keppt er um vegleg verðlaun sem Verzlunin Sportval hefur gefið, — nú fengu sigurvegararn- ir verðlaunapeninga, en þegar mótum Skíðafélagsins lýkur verða afhentir bikarar til þeirra sem bezt hafa staðið sig á mótun- um. Sigurvegarar í einstökum ald- ursflokkum urðu sem hér segir: Stúlkur 10 ára og yngri: Þórunn Egilsdóttir, Á 72,3 sek. 11—12 ára stúlkur: Asdís Alfreðs- dóttir, A, 104,8 sek. 13—15 ára stúlkur: Maria Viggós- dóttir, KR, 100,7 sek. Piltar 10 ára og yngri: Tryggvi Þorsteinsson, Á, 64,6 sek. 11—12 ára piltar: Kristján Jóhannsson, KR, 114,3 sek. 13—14 ára piltar: Jónas Ólafsson, A, 80,5 sek. 15—16 ára piltar: Ólafur Gröndal, KR, 76,8 sek. Skólamót SKÓLAMÓT í knattspyrnu á að hefjast um miðjan febrúar. Þátt- tökutilkynningar þurfa að hafa borizt til KSÍ i pósthólf 1011, fyrir 1. febrúar n.k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.