Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 3 Frystihúsið á Vopna- firði stopp vegna bil- unarinnar í Brettingi Sjálfboöaliði frá Rauða krossinum afhendir gamla manninum matinn í dyrunum hjá honum. Friðrik A. Friðriksson, deildarstjóri hjá RK, fylgist með þessari fyrstu matarafhendingu. Með mat til gamla fólksins # Á öskudag hóf Rauði krossinn í Reykjavík nýja þjónustustarfsemi, þ.e. að gefa öldruðum borgurum í Reykjavík, sem búa einir, kost á heitri máltíð fyrir þaó verð, sem efnið í matinn kostar. Byrjað er í 3 stórum husum, þar sem margir aldraðir búa. Rauði krossinn leggur til matargerðina og sjálfboðaliðsvinnu. Hér á myndun- um er komið með matinn á Austurhrún 6 til beirra fyrstu. Alþýðubandalagið stóð að þremur gengislækkunum Vopnafirði 12. feb. SKUTTOGARI Vopnfirðinga Brettingur hefur nú verið frá veiðum síðan fyrir áramðt vegna véiabilana. Að sögn Sigurjóns Þorbergssonar forstjóra Tanga hf., sem er útgerðarfélag togar- ans, varð fyrst vart við járnsvarf í smurolfu 1 desember s.l. Varð það til þess að vélar togarans voru athugaðar nánar. Kom þá í ljós, að um alvarlegan samsetningar- galla var að ræða. Gert er ráð fyrir að viðgerð verði lokið um næstu mánaðamót, en þá hefur togarinn verið frá veiðum í u.þ.b. 2 mánuði. Engin vinna hefur verið í frysti- húsinu á Vopnafirði frá því togar- inn hætti veiðum, þar sem Brett- ingur er eina skipið sem landar afla sinum í fyrstihúsið á þessum árstíma, enda hefur verið um nokkurt atvinnuleysi að ræða á Vopnafirði frá áramótum. Aætlað tap útgerðarfélagsins vegna tafa frá veiðum er um 20 milljónir ef miðað er við sömu mánuði ársins Vitni vantar að ákeyrslum í Hafnarfirði RANNSÖKNARLÖGREGLAN í Hafnarfirði hefur beðið Mbl. að lýsa eftir vitnum að tveimur ákeyrslum þar í bæ. í fyrra tilfellinu var s.l. þriðju- dag, 11. febrúar, ekið á bifreiðina G-8591, sem er Morris Marina, græn að lit, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Strandgötu, gegnt bæjarskrifstofunum. Gerð- ist þetta á tímabilinu 11—14. Bif- reiðin er dælduð í hægra aftur- horni, ofan við afturljós. I beygl- unni mátti sjá gula málningu. Miðvikudaginn 12. febrúar var ekið á bifreiðina Y-5063, sem er rauð Austin mini, þar sem hún stóð á Suðurgötu í Hafnarfirði, gegnt St. Jósefsspítalanum. Gerð- ist þetta á tímabilinu frá kl. 12 til 14. Vinstri hurð er mikið dælduð. Það eru tilmæli rannsóknarlög- reglunnar í Hafnarfirði, að þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um þessar ákeyrslur hafi sem fyrst samband við lögregluna í síma 51566. Ekið á bifreiðar MIÐVIKUDAGINN 12. febrúar s.l. var ekið á tvær bifreiðar og vantar rannsóknarlögregluna nauðsynlega upplýsingar um þessar ákeyrslur. A timabilinu 22 kvöldið áður til 15,30 á miðviku- daginn var ekið á bifreiðina G- 1589, sem er ljósblár Volkswagen, þar sem hún stóó við Stórholt 28. Vinstra afturbretti hennar var mikið dældað. Þá var ekið á bif- reiðina R-41883, sem er Mazda 818 grængul að lit, þar sem hún stóð í stæði bak við Laugaveg 178. Farangursgeymslulok var dældað og rifið. Þeir, sem kunna að geta gefið einhverjar upplýsingar um þetta eru beðnir að hringja til rannsóknarlögreglunnar síma 21100. Vitni vantar VITNI vantar að árekstri, sem varð á Kringlumýrarbraut á móts við Nesti klukkan rúmlega 8 að morgni 4. febrúar s.l. Þar lenti Saab-bifreið aftan á Bronco- jeppa. Steypubifreið átti leið þarna um og er talið, að ökumað- ur hennar hafi séó áreksturinn. Er hann beðinn að hafa samband við rannsóknarlögregluna sem fyrst svo og önnur vitni ef ein- hver eru. 1974. Þó telur Sigurjón, að út- gerðarfélagið sé tryggt gagnvart þeim göllum sem fram hafa kom- ið i vélinni. Mjög erfiólega hefur gengið að afla varahluta og má sem dæmi nefna, að einn hlutur- inn sem þeir gátu fengið í Evrópu var sá eini sem þar var á boóstól- um. Bræðsla í síldarbræðslunni á Vopnafirði hefur gengið mjög vel og eru brædd rúmlega 400 tonn á sólarhring. Búið er að bræða um 4500 tonn, en alls hafa borist á land um 10.500 tonn. — Gunnlaugur. 1 framhaldi af þessari frétt frá Vopnafirði hafði Mbl. samband við þá Einar Steindórsson og Jóa- kim Pálsson sem standa fyrir út- gerð og frystihúsarekstri i Hnífs- dal, en þaðan er togarinn Páll Pálsson, sem einnig er frá veiðum vegna sams konar galla í vél og í Brettingi. Þeir voru sammála um, að það hefði mjög slæmar afleið- ingar að missa skipið frá veiðum þvi ekki væru önnur skip gerð út á fiskveiðar frá Hnífsdal. Til að ekki þurfi að koma til stöðvunar frystihússins, hefur verið keyptur fiskur til vinnslu frá Súðavik og Isafirði. Sagði Einar, að fyrír vel- vilja manna á þessum stöðum hefði fengist nægur fiskur til að Framhald á bls. 22 Söguleg sýning um stöðu konunnar á Norðurlöndum? A 23. þingi Norðurlandaráðs verður til umræðu tillaga um, að Norðurlandaráð efni til sögulegrar sýningar um þróun stöóu konunnar á Norðurlönd- um. Efnt verði til sýningarinn- ar i tilefni Kvennaárs Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir því, að unnt verði að flytja sýninguna milli landa. Gert er ráð fyrir, að sýningin verði einnig höfð utan Norður- landa. Tillagan er flutt af Ragnhildi Helgadóttur, lslandi, Elsi Hetemaki og Tellervo M. Koivisto, Finn- landi, Sven Mellquist og Anna- Greta Skantz, Svíþjóð. Félagsmálanefnd Norður- landaráðs mun fjalla um tillög- una á fundi sinum i Reykjavík og leggja álit sitt fyrir ráðið. Frá íslandsdeild Norðurlanda- ráós Halkion seld- ur til Noregs BUIÐ er að selja vélskipið Halkion frá Vestmannaeyjum til Maalöy I Noregi og verður bátur- inn afhentur þann 15. apríl n.k. Ástæðan fyrir þvi að Halkion er seldur til Noregs mun vera sú, að útgerð skipsins er að hætta og að í Noregi fékkst mun hærra verð fyrir skipið en hægt var að fá á Islandi, auk þess sem útborgun er þar miklu hærri. Halkion var byggður í A- Þýzkalandi árið 1965 og er 264 lestir að stærð og var í eigu Halkion h.f. í Reykjavík. Alla tið hefur það verið mikið happaskip og meðal annars hefur þaó bjarg- að sjómönnum, sem lent hafa í lífsháska. Eitt sinn strandaói skipið á Landeyjarsandi en náðist strax á flot. Morgunblaðinu er kunnugt um að fleiri aðilar hafa áhuga á að selja skip sín úr landi, bæði þar sem þeir hafa áhuga á að fá sér stærri skip ellegar að útgerðirnar eru að hætta. ÞINGMENN Alþýðubandalagsins hafa lýst yfir andstöðu við þá ákvörðun rlkisstjórnarinnar að mæta efnahagserfiðleikunum með lækkun á gengi krónunnar. I þessu sambandi er rétt að minna á, að á þriggja ára valdaferli vinstri st jórnarinnar stóð Alþýðu- bandalagið að þremur umfangs- miklum gengisfellingum við lausn aðsteðjandi efnahagsvanda. Á siðasta ári stóð þingflokkur Alþýðubandalagsins með beinum og óbeinum hætti að hart nær 40% lækkun á gengi íslensku krónunnar. 1 desember 1972 riðaði vinstri stjórnin til falls vegna átaka, sem þá áttu sér stað um aðgerðir í efnahagsmálum. Svonefnd val- kostanefnd hafði þá bent á þrjár kunnar leiðir til lausnar vandan- um: 1 fyrsta lagi niðurfærsluleið, i öðru lagi millifærsluleið og í þriðja lagi uppfærsluleið eða gengislækkun. Niðurstaðan var sú, að ráðherrar Alþýðubanda- lagsins svo og allir þingmenn flokksins stóðu að ákvörðun rikis stjórnarinnar um 10,7% lækkun á gengi íslensku krónunnar. A siðasta ári greip vinstri stjórnin til þess ráðs að láta gengi krónunnar fljóta eða síga eins og það var kallað. Ráóherrar Alþýðu- bandalagsins og þingmenn flokks- ins stóðu einarðlega með ákvörð- un rikisstjórnarinnar um þetta efni og gerðu ekki ágreining þar um. Þegar upp var staðið hafði Alþýðubandalagið átt þátt í að fella. gengi krónunnar um 20% með þessum hætti. Þó að vinstri stjórnin hefði þannig fellt gengi krónunnar um 20% á fyrri hluta ársins 1974, var ljóst sl. sumar, að gengi krónunn- ar var enn fallið. Meðan vinstri stjórnin sát enn við völd sl. haust og viðræður fóru fram um endur- skipulagningu hennar vildi Alþýðubandalagið standa að ann- arri gengislækkun það ár. Alþýðubandalagið lagði þá til, að gengi krónunnar yrði fellt um 15% til viðbótar þeirri 20% TVÆR AF þremur þýskum kvik- myndum, sem félagið Germanía ætlar að sýna á næstunni, „Mazurka" og „Maskerade", urðu ákaflega vinsælar hér á landi, eins og annars staðar, á árunum eftir 1930. Myndir þessar þóttu taka öðrum fram og eru enn þann dag í dag i flokki bestu mynda, þótt ekki séu þær á breiðtjaldi. Mazurka verður sýnd i Nýja bíó n.k. laugardag (15. febrúar) kl. 2 e.h. Pola Negri leikur aðalhlut- verkið, en leikstjórnin er i hönd- um Willy Forst, hinum mikla töframanni þýskra kvikmynda hér áður fyrr. Mazurka er byggð á sönnum atburði, manndrápi í leikhúsi og tilheyrandi ástaharm- leik, árið 1930, og lagið sem leikið er og sungið í myndinni var á allra vörum á sinum tima. 1 myndinni „Maskerade" leikur Adolf Wohlbrúde aðalhlutverkið á móti Paulu Wessely, sem einnig gengisfellingu, sem það hafði áð- ur staðið að. Gengi krónunnar féll þannig um tæp 40% á síðasta ári. Ráð- herrar Alþýðubandalagsins tóku þannig ákvörðun um 20% gengis- sig og lýstu fylgi við þá gengis- lækkun, sem formlega var ákveð- in, þegar núverandi rikisstjórn tók við völdum, en áður hafði Lúðvík Jósepsson viðskiptaráð- herra og Seðlabankinn stöðvað gjaldeyrisviðskipti. var mjög fræg á sínum tima. Söguþráðurinn i Maskerade er eins og í Mazurka bæði spennandi sem og ágætlega settur á svið, enda báðar myndirnar einhverjar hinar minnisstæðustu frá besta skeiði þýskrar kvikmyndagerðar. Maskerade verður sýnd i Nýja bió laugardaginn 22. febr. Þriðja myndin verður sýnd á vegum Germaníu laugardaginn 1. mars. Hér er á hinn bóginn um að ræða kvikmynd af nýrrí gerð (eftir 1960), „Das Feuerschiff", byggð á frægri skáldsögu eftir Sigfried Lenz. Mynd þessi hefir alls staðar hlotið frábæra dóma. Germaníu hefir tekist að fá hingaó þessar gömlu þýsku kvik- myndir með ærinni fyrirhöfn. Myndunum verður skilað strax aftur og veröur þess vegna ekki ha'gt að endursýna þær. Aðgang- ur að sýningunum er ókeypis. Frægar þýskar kvik- myndir hjá Germaníu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.