Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975
5
Einn hesturinn gæðir sér á fóðurbæti hjá Sigurborgu.
I
Skóla-
fólk
hjá
Morgun
blaðinu
I
Vel
hugsað
um
hestana
Atli Stefán Aðalsteinsson,
Þingholtsskóla í Kópavogi,
skrifar eftirfarandi grein:
MIÐVIKUDAGINN 5. febrúar
áttum við leið um Kópavog og
notuðum þá tækifærió og litum
viö hjá Hestamannafélaginu
Gusti, sem hefur aðsetur sitt
þar. Virtist okkur starfsemi
félagsins standa með miklum
blóma. Það hefur reist allmörg
hesthús á svæði, sem er innar-
lega í Kópavogi, nánar tiltekið i
Fífuhvammi, og hefur þar rúmt
og gott athafnasvæði.
Þarna hittum við tvær konur,
sem voru nýkomnar úr útreiða-
túr og tókum þær tali smá-
stund. Önnur konan, sem heitir
Sigríður, sagói okkur að hún
hefði alla tíð verið mikið fyrir
hesta, enda uppalin austur i
sveitum, en giftist hingað
suður. Kvaðst hún vart geta
hugsað sér að búa í Reykjavík
án þess að komast af og til á
hestbak.
Snerum við þá máli okkar að
Sigurborgu, sem er aðeins 16
ára gömui, en hefur samt
fengið mikinn áhuga á hestum
og hestamennsku. Sagðist hún
eiga tvo hesta, sem hún keypti i
sumar. Ennfremur á hún hlut í
hesthúsi og hefur lagt í þetta
allt sitt fé.
Aöspurð sagði Sigurborg
okkur að hestamennska væri
vinsæl meðal unglinga i Kópa-
vogi, og sagðist hún sjálf oft
fara i útreiðatúra eftir skóla-
tíma.
Lögðum við nú leið okkar
upp aó hesthúsunum, enda
voru þær Sigriður og Sigurborg
að fara að gefa hestunum.
Sögðu þær okkur að þær fóór-
uðu hestana aðallega á góðu
heyi og fóðurbæti, enda sýndi
það sig að hestarnir voru vel
fóðraðir hjá þeim, spikfeitir og
sællegir. Þurfti Sigurborg ekki
annað en sýna þeim fötuna með
fóðurbætinum til þess að þeir
kæmu allir á harðaspretti.
Örugglega er ævi þessara
hesta ólíkt betri og ánægjulegri
en þeirra, sem forðum voru
seldir úr landi til ævilangs
þrældóms í breskum kolanám-
um, og sáu siðan ekki dagsins
ljós framar. En þessum kafla í
sögu islenska hestsins er nú
lokið sem betur fer og kemur
vonandi aldrei aftur.
Sigriður I sólskinsskapi á gæð-
ingi sínum Ljósm. Sv. Þ.
OFT VAR ÞORF — EN NU ER NAUÐSYN
LÁTIÐ EKKI HINN
UMTALAÐA
VTSÖI.rM ARKAD FRAM H.JÁ YDtTR FARA.
HREINT ÓTRÚLEG KJÖR.°
MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
50
70%
afsláttur
UpKARNABÆR
I I + o I ■ irvt orl/o Aa ■ I ■ in ottrkn
Utsölumarkaður Laugaveg 66