Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1975 35
fH tfn w m :íi [Ti IR MORGIINBLAfiSiniS
Island þokast upp á við
German DR 20 10 6 4 27:17 26:14
Germany FR 15 11 2 2 27:9 24 6
Netherlands 14 10 3 1 32:8 23:5
Brazil 16 9 5 2 19:6 23:9
Poland 15 10 2 3 29:15 22:8
Bulgaria 19 6 6 7 30:23 18:20
Uruguay 13 6 3 4 16:13 15:11
England 10 4 5 1 12:7 13:7
Scotland 11 5 2 4 15:9 12:10
Argentina 12 4 4 4 18:20 12:12
Zaire 10 5 1 4 16:21 11:9
Yugoslavia 12 4 3 5 21:14 11:13
Sweden 13 4 3 6 12:20 11:15
Belgium 7 4 2 1 8:4 10:4
CSSR 9 4 2 3 14:11 10:8
Hungary 8 4 1 3 11:13 9:7 j
Rumania 9 3 3 3 7:6 9:9
Austria 5 3 2 1 5:2 8:2
Spain 5 3 1 1 6:4 7:3
Greece 7 2 3 2 9:11 7:7
Denmark 6 2 2 2 13:6 6:6
France 6 2 2 2 9:8 6:6
Wales 6 3 - 3 9:6 6:6
Australia 7 2 2 3 5:8 6:8
Ireland Rep. 5 2 1 2 7:6 5:5
Italy 7 1 3 3 6:8 5:9
Chile 7 1 3 2 3:6 5:9
Ireland North 5 2 - 3 4:4 4:6
Turkey 4 1 1 2 4:8 4:6
Finland 6 i 2 3 8:11 4:8
USSR 4 1 1 2 2:5 3:5
Switzerland 7 1 1 5 5:7 3:11
Portugal 3 — 2 1 0:3 2:4
lceland 4 — 2 2 4:7 2:6
Haiti 9 — 2 7 3:23 2:16
Norway 6 1 " 5 6:1,1 2:10
Malta 4 — 1 3 1:4 1:7
Luxemburg 2 2 2:7 0:4
ISLAND er ekki lengur neðst á'
blaði, þegar árangur knattspyrnu-
landsliða þjóða sem eiga aðild að
FIFA, alþjóðasambandi knatt-
spyrnumanna, er reiknaður út.
Fjögur iönd eru fyrir aftan okkur
á töflunni: Haiti, Noregur, Malta
og Luxemburg árið 1974, en hing-
að til hafa Islendingar jafnan ver-
ið neðstir eða næstneðstir á töfl-
Tafla þessi sýnir útkomu landsleikja á
keppnistímabilinu 1974. Fremsta talan tákn-
ar leikna leiki, næsta tala unna leiki, þriðja
tala jafntefli, fjórða tala tap, fimmta tala
markaskorun í leikjunum og sjöfta talan
táknar unnin og töpuð stig viðkomandi
landa. Dæmi: A-Þýzkaland lék 20 leiki, vann
10, gerði 6 jafntefli, tapaði fjórum, skoraði
27 mörk en fékk á sig 17, hlaut 26 stig, en
tapaði 14 stigum.
Arni Guðjónsson kominn 1 steinngarnar og skorar eitt fimm marka sinna í leiknum í fyrrakvöld
FH-ingar léku vel
meðan þess þurfti með
unni.
Á árinu 1974 léku Islendingar
fjöra landsleiki í knattspyrnu sem
FIFA viðurkennir; við Finnland,
Belgfu, A-Þýzkaland og Dan-
mörku. Tveir leikja þessara urðu
jafntefli og tveimur töpuðu Is-
lendingarnir og hlutu því tvö stig.
Franska knattspyrnutimaritið
„France football", hefur einnig
reiknað út árangur aðildarþjóða
FIFA, en gerir það á öðrum for-
sendum. Skipar blaðið Islending-
um aðeins ofar á blað, og er
ástæða þess góð frammistaða í
landsleikjunum við A-Þýzkaland
og Belgíu.
Það voru Austur-Þjóðverjar
sem náðu beztum árangri í lands-
leikjum s.l. sumar. Þeir léku sam-
tals 20 leiki, unnu 10 gerðu 6
jafntefli og töpuðu 4. Vestur-
Þjóðverjar eru í öðru sæti og Hol-
lendingar í þriðja sæti.
Liverpool
tapaði
1 FYRRAKVÖLD fór fram
einn leikur f ensku 1. deildar-
keppninni í knattspyrnu.
Mættust þá Liverpool og
Newcastle á heimavelli síðar-
nefnda liðsins og urðu úrsiitin
þau að Newcastle vann yfir-
burðasigur f leiknum: 4—1.
Hafði Newcastle náð 3—0 for-
ystu I leiknum þegar eftir 23
mfnútur með mörkum John
Trudor, Malcolm McDonalds
og Stewars Barrowclough. A
69. mfnútu skoraði Brian Hall
fyrir Liverpool, en hinn mark-
sækni MacDonald átti sfðasta
orðið f leiknum og skoraði fyr-
ir Newcastle á 72. mfn.
Þá fór fram einn leikur f 3.
deildar keppninni og urðu úr-
slit hans þau að Aldershot
tapaði fyrir Swindon 0—1. I
fjórðu deild kepptu
Hartlepool og Lincoln City og
sigraði fyrrnefnda liðið 2—0.
FH-liðið fékk óskabyrjun undir
stjórn hins nýja þjálfara sfns,
Geirs Ilallsteinssonar, er það
sigraði Gróttu með 29 mörkum
gegn 22 f Islandsmótinu f fyrra-
kvöld. Verður ekki annað sagt, en
að Geir hafi stjórnað sfnum
mönnum vel f þessum leik, og vfst
er, að FH-ingarnir léku ágætan
handknattleik f fyrri hálfleik,
meðan þeir voru að tryggja sér
sigur f leiknum. 1 seinni hálf-
leiknum tóku þeir hins vegar lff-
inu með ró, reyndu lítið á sig í
vörninni, og sóknarloturnar voru
flestar stuttar. Það kom að engri
sök fyrir þá, langflestar þeirra
enduðu með mörkum, og FH-
ingarnir héldu að mestu hlut sfn-
um frá fyrri hálfleiknum f leiks-
lok.
Annars er það auðvitað ófyrir-
séð hvaða áhrif það hefur fyrir
FH-ingana að Birgir Björnsson
lætur af störfum sem þjálfari liðs-
ins. Þvf verður ekki á móti mælt
að Birgir hefur náð frábærum
árangri sem þjálfari hjá FH, og
gert þar marga góða hluti, m.a. nú
i vetur með þvi að leiða liðið í átta
liða úrslit Evrópubikarkeppninn-
ar í handknattleik, sem teljast
verður glæsilegur árangur. Það
hefur oft gefizt misjafnlega fyrir
lið að skipta um þjálfara á miðju
keppnistimabili. A hitt ber svo að
líta, að Geir Hallsteinsson er sá
Islendingur sem einna mest kann
fyrir sér í þessari íþrótt. Ekki
einungis það að hann hafi sjálfur
leikið handknattleik allt frá unga
aldri, heldur öðlaðist hann dýr-
mæta reynslu og kynntist mörgu
af því bezta sem til er í þessari
íþróttagrein með veru sinni hjá
þýzka liðinu Göppingen i fyrra-
vetur. Ef að likum lætur nýtur
Geir nú þeirrar reynslu og hún
mun fyrr eða síðar koma fram hjá
FH-liðinu. Með tilliti til þessa
kann það að vera ávinningur fyrir
FH að skipta nú um þjálfara.
Mestu munaði fyrir FH-inga í
þessum leik að Gunnar Einarsson
iék nú í fyrsta sinn í vetur af
fullum krafti, og sýndi þá takta
sem gerðu hann að einum bezta
handknattleiksmanni lslands i
fyrravetur. Gunnar hefur átt við
þrálát meiðsli að stríða i vetur, og
ekki verið nema svipur hjá sjón,
þar til loksins nú, að bæði spil
hans og skot voru eins og bezt
verður á kosið. Munar miklu fyrir
FH-liðið að hafa Gunnar með í
fullu fjöri, og á það ugglaust eftir
að koma betur í ljós seinna.
Vörn FH-liðsins stóð sig með
miklum ágætum í fyrri hálfleikn-
um, og nánast var sem lokaður
veggur fyrir Gróttuliðið, en leik-
menn þess höfðu heldur ekki
mikla þolinmæði að bíða eftir þvi
að smugur gæfust. Hvað eftir ann-
aó hálfvörðu varnarieikmenn FH
skot Gróttumanna, þannig að
eftirleikurinn varð Birgi
Finnbogasyni í FH-markinu auð-
veldur. Leit um tíma út fyrir að
um algjört burst yrði að ræða í
leiknum, en þegar FH-ingar
höfðu náð tíu marka forskoti virt-
ist svo sem þeir hefðu engan
áhuga að láta kné fylgja kviði, og
varnarleikur liðsins á köflum í
seinni hálfleiknum var bara til
málamynda. Gróttmenn fóru
sinna ferða eins og þeim sýndist
og slíkt kunnu skyttur liósins
greinilega vel aö meta og skoruðu
og skoruðu. Eins og i undanförn-
um leikjum var hins vegar vörn
Gróttuliðsins sem sáld, og það fer
nú ekki að teljast til neinna tíð-
inda lengur þótt liðið fái á sig
25—30 mörk i leik. Eru afdrif
liðsins i 1. deildar keppninni enn
ófyrirséð, en víst má telja að það
verður að leika miklu betur en
það hefur gert að undanförnu til
þess að eiga sigurvon á móti lR-
ingum, liðinu sem stendur í slagn-
um við það um fallið, í seinni
umferðinni.
Það hafði sýnileg áhrif til hins
verra, einkum í varnarleik Gróttu
að Atli Þór Héðinsson lék ekki
með liðinu, en sem kunnugt er
dvelur hann við knattspyrnu-
iðkanir í Skotlandi um þessar
mundir. Við þetta bættist svo að
Árni Indriðason, sem verið hefur
kjölfestan i vörn liðsins var
óvenjulega daufur i dálkinn i
þessum leik, og lét litið að sér
kveða. Hið sama má raunar segja
um sóknarleikinn. Þar hefur Árni
oftast unnið geysilega vel og opn-
að fyrir félaga sina með baráttu
og hreyfingu, en að þessu sinni
var hann óvenjulega lítið á ferð-
inni.
Eins og venjulega var það
Björn Pétursson sem skoraði
mest fyrir Gróttu, en nýting hans
í þessum leik var mjög góð þegar
á heildina er litið. Halldór
Kristjánsson naut sín líka vel
þegar á leikinn leið, en til að
byrja með hafði hann náð litlu út
úr mörgum skottilraunum sinum.
I STUTTU MALI:
lslandsmótið 1. deild
Iþróttahúsið í Hafnarfirói 12.
febrúar
ÚRSLIT; FH - - Grótta 29—22
(15-7) Gangur leiksins:
Mln. FH Grótta
2. ólafur 1:0
3. ólafur 2:0
3. 2:1 Björn
4. Sæmundur 3:1
6. Árni 4:1
11. Árni 5:1
12. Gunnar 6:1
14. Arni 7:1
14. 7:2 Björn
14. Guðmundur 8:2
17. Gunnar 9:2
18. Guðmundur 10:2
19. 10:3 Halldór
21. 10:4 Halldór
21. Gunnar 11:4
22. 11:5 Halldór
23. 11:6 Björn (v)
24. Gunnar 12:6
26. 12:7 Björn (v)
27. Þórarinn 13:7
28. örn 14:7
29. Þórarinn 15:7 Framhald á bls. 22
LIÐ FH: Birgir Finnbogason 2, Sæmundur Stefánsson 2, Viðar
Sfmonarson 3, Guðmundur Stefánsson 2, Tryggvi Harðarson 1,
Jón Gestur Viggósson 2, Arni Guðjónsson 3, Örn Sigurðsson 1,
Ölafur Einarsson 2, Þórarinn Ragnarsson 2, Magnús Ölafsson 2,
Gunnar Einarsson 3.
LIÐ GRÓTTU: Ivar Gissurarson 1, Björn Pétursson 3, Kristmund-
ur Asmundsson 1, Þór Ottesen 1, Arni Indriðason 2, Halldór
Kristjánsson 2, Grétar Vilmundarson 1, Georg Magnússon 2, Axel
Friðriksson 1, Sigurður Pétursson 1, Magnús Sigurðsson 2, Guð-
mundur Ingimundarson 2.