Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 27 koma undan heiðinni, þar á Tungufljót upptök sín. Skamm- degið grúfði yfir, frostið herti og frusu að okkur fötin. Ég taldi líklegt, að okkur mundi kala á fótum áður en við næðum heim. Hvað skal þá til ráða? Við vöðum báða lækina, sagði Tommi, þetta er kaldavermsl. Við ösluðum báð- ir lækina og komum heim með heila fætur. Sporin hverfa í streymandi lindinni en orðin greina frá at- burðum. Næstu árin vinnur Tómas heima að búi föður síns, sem var mjög farinn að heilsu, hann dó 1952. Nokkru áður hafði Tómas ásamt Einari bróður sínum, sem býr i Auðsholti, tekið við jörðinni og hafið þar búskap. Einar er kvæntur Ragnheiði Guðmunds- dóttur frá Hjarðardal i Önundar- firði. Tómas bjó með móður sinni, Vilborgu, þar til hún dó, 1960. Arið 1962 kvæntist Tómas Helgu Þórðardóttur Jónssonar, kaup- manns úr Reyk.iavik. Hafði hún áður verið ráðskona hjá honum. Þau hjónin eignuðust tvo drengi, Tómas 13 ára og Þorbjörn 11 ára. Auk þess ólst upp hjá þeim Þórð- ur, sonur Helgu af fyrra hjóna- bandi. Heimili þeirra hjóna var með myndarbrag og búið stundað af forsjá og atorku. Konan var oft við kennslustörf, einkum síðari árin. Verkin eru sannasti vitnisburð- ur hvers manns. 1 starfinu er hann fegurstur og bestur, þannig lifir hann áfram i verkum sínum. Tómas unni bújörð sinni og rækti vel sín ættartengsl. Byggingar voru reistar yfir fólk og fénað og unnið að ræktun jarðarinnar. Til þessara verka var vel vandað. Starfið var Tómasi lifsnautn, hver stund var notuð til verka og jafnvel eftir að heilsan tók að bila, hélt hann samt vöku sinni og veitti þjónustu við lifið sjálft. Eins og áður er sagt hefur Auðsholt verið mjög afskekkt jörð, vegna stórra vatnsfalla, sem að henni liggja, urðu Auósholts- bændur af þessu að þola mikið erfiði og óþægindi vegna ferða- laga og flutninga að og frá heimil- unum. Sem vænta mátti sýndi Tómas mikinn áhuga um bættar samgöngur að Auðsholti. Auðs- hyltingar fengu því framgengt að brú var byggð á Litlu-Laxá og vegur var lagður austur í Hruna- mannahrepp. Nú er hægt aó aka bíl að Auðsholti, sem á aðra bæi, þó lengri leið sé að fara en áður, „Betri er krókur en kelda.“ Eitt sinn var um það rætt, að Auðshyltingar vildu segja sig úr lögum við Biskupstungnamenn og sameinast Hrunamannahreppi. Mörgum Tungnamönnum þótti leitt að breyta svo ævafornum hreppamörkum. Þó skildu menn rök þeirra sem bjuggu vió vöítnin ströng. Tómas taldi sig Biskups- tungnamann og vildi vera það framvegis sem forfeður hans. A þessu varð engin breyting, Auðs- holt telst enn til Biskupstungna og verður svo væntanlega um langa framtíð. Tómas og ættmenn hans hafa búið þar hátt á aðra öld. 1 Auðs- holti búa nú þrír bændur, standa tveir þeirra í sporum feðra sinna, en einn er aðfluttur fyrir nokkr- um árum. Fyrir tveim árum fór Tómas að finna fyrir þeirri meinsemd er dró hann til dauða. Áður fékk hann kölkun í mjaðmir en hlaut á því nokkra bót. Bar hann þetta með stakri ró og þolgæði og var sístarfandi meðan unnt var. Ég heimsótti hann á Borgarspítal- ann nokkru áður en hann do. vio tókum tal saman, var hann sem jafnan áður æðrulaus og hógvær. Við minntumst liðinna stunda og bar margt á góma. Enn sem fyrr átti hann áhugamál um framfarir til umbóta —. Tiguleg kona geng- ur hljóðlega inn i sjukrastofuna, með henni er ungur piltur. Þetta er Helga kona Tómasar, drengur- inn er sonur þeirra, það er ef til vill hann, „sem er of ungur," eins og Tómas sagði mér. Ég kvaddi og för. Aðfaranótt 3. desember sl. andaðist Tómas á Borgarspitalan- um. Hjálmar bróðir hans var þar nærstaddur. Hann segir svo frá: „Örlögum sínum tók hann af mik- illi karlmennsku eins og vænta ásamt bróður sinum og öðrum Is- lendingi til, og hugðust þeir nota hann til krabbaveiða. Ágúst heit- inn gekk að starfi sinu og atvinnu með ötulleik. Auk þess mun hann hafa verið all-mikill „sportmað- ur“, lærði t.d. köfun (froskmað- ur). Ágúst Gúðmundsson var ókvæntur og barnlaus. En hann hélt svo mikilli tryggð við móður sína og vini á „gamla landinu", að oft kom hann um langa leið til að vera hjá þeim um jólin. — Ágúst var jarðsunginn 15. júlí 1974 af síra John T. Greeny, lútherskum presti við Calvary-kirkjuna I Seattle. Myndir og nafnalistar, sem móður hans hafa verið send- ir, bera þess vott, að þar hefir margmenni verið saman komið á björtum og fögrum degi, enda er þar margt Islendinga, þar á meöal bróðir hans og mörg skyldmenni í móðurætt. Enginn sálmur var oftar sung- inn við jarðarfarir á Norðfirði í „gamla daga“ heldur en sálmur séra Valdimars Briem: „Ég horfi yfir hafið“. Engum gat dulist, sem einhver kynni hafði af fólkinu við hina fjallskornu, austfirzku störnd, að því var tamt að hugsa sér dauðann sem ferð út á hafið eilifa, sem vér mennirnir horfum út yfir af strönd þessa lffs. Þar hafa ættmenn Ágústs heitins horft út yfir hafið, til bjargræðis sér og sínum. Sjálfur hafði hann ætlað að beina för sinni út á ann- að haf, þar sem einnig sér til fagurra fjalla á ströndinni. En i þetta sinn varð honum ekki auðið að fara í slíkan róður'. Um þaðer ekki að fást. Höfnin verður sú sama, sem opnast oss öllum að lokumogþví rita égþessarlínur, að þeim er ætlað að verða kveðja frá móður, systkinum og vinum, f þakklátri minningu hins liðna, og i tilhlökkun til endurfundanna „handan við hafið“. Yfir þeim endurfundum verður vakað af honum, sem eitt sinn stóð á ströndinni að morgni dags, þegar vinir hans komu úr róðri. Hann er jafn-nærri með huggun sina og hjálp, hvar sem horft er yfir hafið og hvar sem tekið er land. Sú von sé einnig styrkur þeirra, sem hryggðust við fráfall Ágústs Guðmundssonar. Rv. 5. febr. 1975 Jakoh Jónsson. mátti. Kveðjum til vína sinna bað hann mig að koma til skila.“ Ævin öll er glíma. Tómas stóð vel að sinni lifsglimu og fylgdi jafnan settum leikreglum. Lifs- gliman gerói hann að gæfumanni, það voru heiðurslaunin. Og nú, þegar tjaldið fellur og hann hefur kvatt okkur, sína viðfangsmenn og leikbræður, söknum við hans allir óg þökkum fyrir samfylgd- ina. Jarðarför Tómasar fór fram að Skálholti 14. desember s.l. að við- stöddu fjölmenni. Sóknarprestur- inn, séra Guðmundur Öli Guð- mundsson, flutti kveójuorð. Við hjónin vottum fyllstu sam- úð fjölskyldu og vinum hins látna. Sigurður Greipsson. Málfundanám- skeiðið í kvöld er þar almenn félagsstörf Jón Gunnar Zoéga Pétur Sveinbjarnarson. Þar verður tekið tyrir, fundarboð, fundargerðir, starfsáætlanir fundarritun, auglýsingar, áróður, Hvað er félag, stofnun félags, réttindi og skyldur félaga, tilgangur félaga, rekstur félags, tengsl almenns félagsmanns við félagið, tengsl félags við almenna félagsmenn. Leiðbeinendur: Jón Gunnar Zoéga og Pétur Sveinbjarnarson. Mætið stundvislega kl. 20.30 i Miðbæ við Háaleitisbraut. Nýir þátttakendur velkomnir. Upplýsingar í sima 1 7102. HEIMDALLUR. Ágúst Norðfjörð Guð- mundsson — Minning þeir frændur sjómennsku og frystihúsavinnu. Voru meðal ann- ars við krabbaveiðar norður i Alaska, en þaðan að norðan hefir jafnan komið mikið af fiski á markaðinn suður með ströndinni. Minnist ég þess, að á ferðum min- um sumarið 1934 hitti ég á þess- um slóðum gamla leikbræður frá Djúpavogi, sem stunduðu lax- veiðar í Alaska, en höfðu niður- suðuverksmiðju skammt norðan til Seattle. Fyrir skömmu hafði Agúst heitinn fest kaup á bát, Hraunbær 2ja herb. ibúð. Verð 3.3 millj til 3.5 millj. Laugavegur 2ja herb. íbúð i bakhúsi. Verð 2.6 millj. Vesturberg 2ja herb. ibúð. Verð 3.5 millj. Álftamýri 2ja herb. ibúð á jarðhæð. Verð 3.5 millj. Gaukshólar 2ja herb. ibúð á 2. hæð. Verð 3.3 millj. Hraunbær 3ja herb. ibúð. Verð 4.5 millj. (búðinni fylgir eitt herb. i kjallara. Lundarbrekka 3ja til 4ra herb. ibúð. Sérþvotta- hús á hæðinni. Verð 4.5 millj. Laugavegur 3ja herb. íbúð i bakhúsi. Verð 3.3 millj. Kársnesbraut 3ja herb. ibúð með bilskúr og eitt herb. J kjallara. Verð 5.5 millj. Leirubakki 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Störar svalir. Verð 5.5 millj. Hofteigur 4ra til 5 herb. ibúð. Verð 4.5 millj. til 5 millj. Byggðarholt raðhús selst tb. undir tréverk og málningu. Verð 6.5 millj. Rauðarárstigur 4ra herb. íbúð um 1 20 fm. Verð 4.3 millj. Torfufell raðhús. Verð 7.5 millj. Fasielgnasaian ingöltsstræll 1. slml 16138 Það er senn liðið hálft ár síðan svipleg dánarfregn barst hingað til lands alla leið vestan frá Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. Dauðanum ættum vér raunar allt- af að vera viðbúin, en því er ekki að leyna, að fráfall góðs vinar i mikilli fjarlægð verður oss við- kvæmara en venjulega, þegar ekki hefir neitt það gerst, sem gaf til kynna, hvað i vændum væri. Samt var þessari dánarfregn tek- ið með mikilli stillingu, og að- dáanlegri rósemi, þegar hún barst hingað á björtum sumardegi. Þá hafði Agúst Norðfjörð Guðmunds- son látist sviplega í bílslysi að morgni 10. júli 1974. — Hann var einn f bifreið sinni á leið til vinnu, og kenndi sér einskis meins, en umferðin var geysileg, og hálkan á veginum viðsjárverð. Er ekki að orðlengja það, að slysið bar að með þeim hætti, að enginn gat við ráðið, — og var þá lokið ævi manns, sem enn var á bezta aldri og allir vonuðu, að enn ætti mikið óunnið af drengilegu dags- verki. Ágúst Norðfjörð Guðmundsson var fæddur í Neskaupstað í Norð- firði 18. okt. 1937. Foreldrar hans voru Guðmundur Eyjólfsson úr Höfnunum (d. í Reykjavfk 1968) og kona hans Sigríður Guðjóns- dóttir útgerðarmanns Símonar- sonar. Bæði faðir Ágústs heitins 'og móður-frændur stunduðu sjó- inn um langt skeið, og engin furða, þótt hugur hans sjálfs sner- ist í þá átt. Börn þeirra Guðmund- ar og Sigríðar urðu átta talsins, en þrjár litlar dætur áttu skamma ævi hér á jörð. Hins vegar voru fósturbörnin tvö. Agús* heitinn var því alinn upp I tengslum við stóran systkinahóp, sem eins og gengur, dreifðist víða, þegar hver fyrir sig fór sina leið út í lífsbar- áttuna. En Ágúst heitinn var jafn- an mjög tengdur bæði foreldrum sinum og systkinum, og þegar hann 18 ára að aldri réðst í að flytja til Kanada, gerði hann það sennilega fyrst og fremst vegna þess, að þangað var kominn móð- urbróðir hans og nafni og stund- aði störf við fiskiðnað. Með þeim hjónunum, Ágústi Guðjónssyni og Olöfu Hinriksdóttur fluttist hann siðan til Seattle-borgar á Kyrra- hafsströndinni. Þar stunduðu * , margfaldor markað gðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.