Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1975
23
Tillaga Elínar Pálmadóttur:
Ráðstefna um vernd-
un gamalla bygginga
BORGARSTJÓRN samþykkti
sl. fimmtudag tillögu Elínar
Pálmadóttur, þar sem um-
hverfismálaráði er falið að
kanna grundvöll þess að
halda síðar á árinu ráðstefnu
með fyrirlestrum og umræð-
um um verndun gamalla og
Ærnar
tókuá
rás upp
tilfjalla
HAUKUR Pálsson bóndi á Röðli I
Torfulækjarhreppi og Einar Guð-
laugsson á Rlönduósi fóru I gær-
morgun á tveimur vélsleðum til
að leita 11 kinda sem hurfu frá
Röðli s.l. föstudag. Fundu þeir
kindurnar efst uppi á Langadals-
fjalli. Þar hýmdu þær og þorðu
ekki niður aftur. Ráku þeir Hauk-
ur og Einar þær heim að Röðli.
Varð ánum ekki meint af flakk-
inu.
„Ég skildi rollurnar eftir við
fjárhúsdyrnar á föstudaginn og
átti mér einskis ills von,“ sagði
Haukur bóndi á Röðli þegar við
ræddum við hann í gær. „En þeg-
ar ég kom aftur voru 11 þeirra
horfnar. Ég gat rekið slóð þeirra
upp ókleift hjarnið. Síðan höfum
við reynt að svipast um eftir þeim
og m.a. hringdi ég i Flugfélagið
og Vængi og bað um að flugmenn,
sem ættu leið um í háloftunum,
svipuðust um eftir rollunum. Svo
lögðum við af stað við Einar og
fundum ærnar efst uppi á Langa-
dalsfjalli. Ferðin gekk i alla staði
mjög vel. Það er nú heldur óvana-
legt að fé taki svona á rás upp til
fjalla, helzt að lömb geri slíkt. Það
var í hópnum svört gimbur, sem
virtist greinilega hafa forystu fyr-
ir honum."
Hvernig er heilsan?
Ertu þreytt, stirð eða slöpp? Þá er tækifæri til að
bæta úr því núna.
Ný 6 vikna námskeið í frúarleikfimi eru að
hefjast af fullum krafti. Námskeið þessu eru
fyrir konur á öllum aldri.
Gufuböð — Ljós — Kaffi.
Einnig er góð nuddkona á staðnum.
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka
daga kl. 13 — 22.
Júdódeild Ármanns,
Ármúla 32.
PÍLU-
RÚLLUG lugg atjöld
Framleiðum PÍLU rúllugluggatjöld eftir máli.
Yfir 100 mismunandi mynstruð og einlit efni
Stuttur
afgreiðslutími
PILU- rúllugluggatjöld
Ólafur Kr. Sigurðsson & Co.
Suðurlandsbraut 6.
Simi 83215 —
sögulegra bygginga og um-
hverfis i Reykjavik. Sam-
þykktin gerir ráð fyrir að slík
ráðstefna verði haldin i sam-
vinnu við áhugafólk, arki-
tekta og sagnfræðinga.
í forsendum fyrir tillögunni segir
að mjög sé brýnt orðið að glöggva
sig á stefnum og hagnýtri fram-
kvæmd í húsfriðunarmálum hér í
Reykjavik. Jafnframt er minnt á, að
Evrópuráðið hafi tilnefnt árið 1975
sérstakt húsfriðunarár, en Evrópu-
löndin taki þessi mál nú til sérstakr-
ar yfirvegunar undir einkunnarorð-
unum: Framtíð fyrir fortíð okkar.
Elín Pálmadóttir sagði, er hún
fylgdi tillögunni úr hlaði, að margar
Evrópuþjóðir hefðu nú búið sig undir
að nota þetta ár til ýmiss konar
átaka á þessu sviði, og yrði atþjóða-
ráðstefna haldin um málið í Amster-
dam i haust. Þvi mætti búast við að
mikill fróðleikur bærist úr ýmsum
áttum, er læra mætti af, og nota sem
aflvaka við krufningu á málinu. f
Reykjavík væri ekki siður nauðsyn-
legt en annars staðar að efna til
umræðna fagmanna og áhugafólks
um þessi mál, einkum með tilliti til
hagnýtra þátta, svo sem hvernig eigi
að vernda gamlar byggingar, hvernig
ætti að nýta þær og á hvers kostnað
friðunin ætti að vera. Vel væri við
hæfi að nýta þetta húsfriðunarár
Evrópuráðsins til að reyna að átta
sig á undirstöðunni, sem við
byggðum einstakar ákvarðanir á svo
og markmiðum og leiðum.
GETIÐ
ÞER SELT
HÚS?
Við óskum eftir að
komast í samband við
smið eða fyrirtæki í
byggingariðnaði, til
að selja hús frá okkur
á íslandi.
Við höfum margar
gerðir af húsum og
þau eru mjög sam-
keppnishæf.
Vinsamlega skrifið:
VN-huse,
Adelgade 115, 8660
Skanderborg,
Danmark.
t. IRorgMnbbiííílí
^mnRGFHLDRR
f mnRKRfl VÐPR
ATHUGASEMDIR
VH) ÞINGFRÉTT
EFTIRFARANDI hefur Morgun-
blaðinu borizt:
„Fóstureyðingafrumvarpið hef-
ur nú verið lagt fyrir þing á ný, að
lokinni endurskoðun, en að henni
vann stjórnskipuð nefnd, sem i
voru eingöngu karlar.
I fréttaþættinum „Þingvikan" I
Sjónvarpinu, laugardaginn 1.
þ.m. var m.a. fjallað um þegar
Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra fylgdi frumvarpinu, í
núverandi mynd, úr hlaði. Sýnd
var kvikmynd úr þingsölum við
það tækifæri og fluttur kafli úr
framsöguræðu ráðherra.
Að sögn þingfréttaritarans,
tóku einnig til máis, aiþingis-
mennirnir Sigurlaug Bjarnadótt-
ir, Magnús Kjartansson, Bjarn-
fríóur Leósdóttir og Sverrir Her-
mannsson.
Ræðum Magnúsar og Sverris
voru gerð nokkur skil, en ekki
minnst á hvað Sigurlaug og
Bjarnfríður hefðu haft fram að
færa.
Má vera að tilviljun hafi ráðið
þvi, að fréttaritarinn lét hjá llða
að birta ummæli þeirra alþingis-
manna, sem af líffræðilegum
ástæðum gætu haft reynslu af
meðgöngutima, barnsfæðingum
og móðurhlutverki. Þó læðist sá
grunur að manni, að þau viðhorf
þekkist og hafi jafnvel fylgi, að
konur ættu ekki að skipta sér af
lagasetningum um málið, en eftir-
láta lagasmiðum úr hópi karla að
ákveða „hvað þeim sé fyrir
beztu“.
Hér er um svo mikilvægt mál að
ræða, að varla er að vænta rétt-
látrar niðurstöðu, nema reynsla,
viðhorf og rök þeirra, sem á hrín,
fái að sitja i fyrirrúmi.
I ljósi þess leyfum við undirrit-
uð okkur að átelja þann frétta-
flutning, sem hér hefur verið lýst
frá löggjafarsamkundu þjóð-
arinnar.
Björg Einarsdóttir
Björg Sveinbjörnsdóttir
Gunnar Sigurðsson
Jón Kristjánsson
Lilja Ölafsdóttir.“
RUCIVSinCRR
<^-•22480
Lóð í Arnarnesi
Góð byggingarlóð (rúml. 1200 ferm.) I Arnarnesi er til sölu. Hægt er
að hefja byggingu strax, gatnagerðargjöld eru þegar greidd og afnot af
kyndistöð eru þegar tryggð.
Þeir er kynnu að hafa áhuga, vinsamlega sendi nöfn sín ásamt
heimilisfangi og simanúmeri inn á afgr. Mbl. merkt: „Góð lóð —
6595 'fyrir 20. feb. n.k.
Til sölu:
Einbýlishús við Blesugróf.
Skipti á 3ja—4ra herb. íbúð koma til greina.
2ja herb. íbúð við Baldursgötu
Fasteignasa/a,
Lækjargötu 2, (Nýja Bíó)
Sími 21682.
Auglýsing
Samkvæmt lögum nr. 106 verður 11 milljón-
um króna ráðstafað úr Gengishagnaðarsjóði
1 974 til orlofshúsa sjómannasamtakanna.
Umsóknir um framlög úr sjóðnum óskast send-
ar ráðuneytinu fyrir 10. mars n.k.
Reykjavík 12. febrúar 1974.
Sjávarútvegsráðuneytið.
V
ALLT
FYRIR
FERM-
INGUNA
HERRAR:
Grófrifflaðir
flauelsjakkar
Leðurjakkar, stuttir og
siðir
Terylenebuxur
Skyrtur
Slaufur
DOMUR:
Þunnir kjólar
Leðurjakkar
Frottépeysur
Þunnir samkvæmisbolir.
Sendum í póstkröfu samdægurs.