Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.02.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 SKELFING er þessi ítalska „Dag- bók kennara" rýr í roðinu. Leikur er að vísu með ágætum, sérlega hjá strákunum í bekknum sem ekki virðast vita af myndavélum og maksínuútbúnaði í kringum þá. En efnið og framvinda þess, — ef einhver er —, sýnist ómerki- legt í hæsta máta. Viðureign kennarans við bekkinn er svo ópersónuleg og litlaus að hún vek- ur hvorki spennu né umhugsun. Dick Cavett er verðugur læri- faðir fyrir „gestgjafa“ íslenzka sjónvarpsins. Það var hrein unun að sjá hvernig honum tókst með hlédrægni, orðheppni og bein- skeyttum spurningum í bland að opna gömlu Hallywoodfrúna Bette Davis upp á gátt, koma henni sífellt að óvörum með djörfum en kímilegum skeyt- um, þannig að hún gat ekki annað en svarað. Þess- ir þættir eiga gott erindi hingað, — þó ekki væri nema til annars en sýna okkar mönnum hvernig unnt er að gera svona spjallþætti ekki aðeins að prýðis afþreyingu, heldur nánast að list. Fyrir alla muni sendið okkur Upton lækni aftur, ef ekki er á boðstólum neitt skárra en „Elsku pabbi“, sem nú er farið að sýna á laugardagskvöldum, og fjallar um yfirmáta háttstilltan hávaðakarl og dætur hans, sem rembast við af innilegri tilgerð að vera „kjút“. I „Lækni á lausum kilí“ var fersk- leiki, geðveikislegur húmor og hnyttni. Þar voru persónurnar þrátt fyrir smá satíruöfga manneskjur, en ekki upptrekktar farsadúkkur eins og þessi hrút- leiðinlega fjölskylda rithöfundar- ins f „Elsku pabbi". Þessi þáttur byggist algerlega á útkeyrðum formúlum og barnalegum hunda- kúnstum. I þættinum s.l. laugar- dag gerðust þær hundakúnstir meira að segja bókstaflegar, en það má virða hundinum „H.G. Wells“ til vorkunnar að vera eini leikarinn í þessum samsetningi sem stendur undir nafni. Og þá er komið að þessari bless- aðri „Uglu sat á kvisti" sem verið i hefur I gangi frá því í haust. í | fyrsta lagi er það tæpast ver.jan- legt að hinir tveir föstu skemmti- þættir sjónvarpsins skuli vera spurninga- eða getraunaþættir, eins og „Uglan“ og „Á ferð með B-E-S-S-A" hafa verið í vetur. í öðru lagi er þetta form sem „Uglan" hefur valið sér afskap- lega þröngt og einhæft, og var búið að spila úr sér strax í öðrum eða þriðja þætti. Og I þriðja lagi þá eru umsjónarmenn „Uglunn- ar“ ekki nógu vel máli farnir og hafa ekki á valdi sfnu það öryggi sem þarf ef þátturinn á ekki ann- aðhvort að steinrenna eða komast í algjör ringulreið. Jónas R. Jóns- son gerði í samvinnu við Egil Eðvarðsson einhverja beztu skemmtiþætti sem íslenzka sjón- varpið hefur sent út, þ.e. þá Uglu- þætti sem sýndir voru eftir ára- mófin í fyrra. En hann er ekki á réttri hillu í þessu formi, og þar hjálpar ekki gjammgjörn að- stoðarstúlka upp á sakirnar. I þættinum á laugardaginn var reyndu umsjónarmenn að breyta til og koma með ný tilbrigði við getraunastefið, sem þó dugðu skammt. Náttúrulega má hafa af þessu einhverja ánægju, en engu að síður finnst manni peningum, tíma og hæfileikum kastað á glæ. Hinar margfrægu ferðir land- ans til „sólarlanda" eru hnýsilegt viðfangsefni fyrir hugkvæma sjónvarpsmenn, og maður bjóst við að þessi þjóðarsiður yrði að einhverju leyti tekinn fyrir í mynd Arnar Harðarsonar „Að selja sólina“ á sunnudagskvöldið. Það reyndist miskilningur. Þetta var ósköp venjuleg hraðferð um helztu túristastaði á Spáni, kynn- ingar- eða nánast auglýsingamynd sem hefði getað komið beint frá einhverri ferðaskrifstofunni. Myndin var unnin ágætri fag- mennsku. prýðileg myndvfsi ein- kenndi oft myndatökuna, klipp- ingar voru fimlegar (t.d. skemmtistaðaatriðin), og tónlist veitt inná af fjöri. Þá var texti örnólfs Árnasonar yfirleitt vel saminn og fluttur, en kannski ofurlítið ofhlaðinn. Sem sagt, allt f lagi, en býsna ópersónulegt og ófrumlegt. Maður hefði ekki þurft meir en að heyra „Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn" kyrj- að út úr hópferðabíl einhvers staðar á þjóðvegum Andalúsíu til þess að vita að þessi mynd var gerð af tslendingum. Eins og hún hins vegar var gerð virtist hún ekki eiga sér annan metnað en einmitt „að selja sólina“. En þetta bætti brezka leikritið t „Ferðafélagar" upp, sem fylgdi strax á eftir, meinhæðin skyndi- mynd af ferðahópi í Skotlands- reisu. Þetta var anzi útsmogin dagskrárskipan hjá sjónvarps- mönnum. — Á.Þ. » aigarour, Halli, Erna og Laddi bjóða upp á gamlar og nýjar lummur á þriðjudagskvöld. Liðin tfð: Myndin er frá æfingu fyrir uppfærslu Þjóðleikhússins. Sjónvarpið sýnir leikritið á sunnudagskvöld. Jeffrey Hunter, John Wayne og Harry Carey jr. f mynd John Fords „Eftirförinni“ eða „The Searchers" sem sýnd verður á laugardag. 1 HlfAÐ EB AÐ SJA? Á SUNNUDAGSKVÖLD verður sýnt 1 sjónvarpinu leikritið LIÐIN TÍÐ eftir brezka leikskáldið HAR- OLD PINTER 1 uppfærslu Þjóðleik- hússins. „Liðin tið" var eins og menn muna fært upp eftir ára- mótin 1973—4 1 Leikhúskjall- aranum, og hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda. Leikstjóri var Stefán Baldursson, en leikendur Erlingur Glslason, Kristbjörg Kjeld og Þóra Friðriksdóttir. „Liðin tlð" er eitt af nýrri verk- um Pinters, frumsýnt árið 1971 undir stjórn hins kunna brezka leikstjóra Peter Hall. Það þótti hnitmiðasta, opinskáasta og um leið dularfyllsta verk Pinters til þess tíma. Pinter, sem er nú 45 ára að aldri, var 1 upphafi leikari og telja ýmsir að hið næma eyra hans fyrir klingjanda daglegs máls, sem svo gjörla birtist i sam- tölum leikrita hans, eigi leikaratíð- inni talsvert að þakka. Fyrsta leik- rit hans var „The Room" (1957), en „The Birthday Party", sem var fyrsta verkið f fullri lengd og var frumsýnt 1 London 1958, gekk afar illa, þrátt fyrir góðar viðtökur nokkurra gagnrýnenda. En næsta leikrit, „The Caretaker" (Hús- vörðurinn) náði almenningshylli árið 1960. Verk Pinters þykja sverja sig nokkuð í ætt við absúrdisma. persónur hans er innilokaðar á einhvern hátt, ná ekki saman, tala fram hjá hver annarri, og yfir til- veru þeirra er einhver ógn, eða dómur sem ekki er auðvelt að henda reiður á. Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ kl. 21.45 er þáttur sem ætti að geta lifgað svolitið upp hina stöðnuðu og yfirleitt heldur dauflegu dag- skrá þriðjudaganna. MÁ BJÓÐA YÐUR LUMMUR? nefnist hann og þar bregða þeir velkunnu bakka- bræður HALLI og LADDI á leik, en þeir ættu að vera flestum sjón- varpsáhorfendum kunnir fyrir þátttöku sina í „Ugla sat á kvisti". „Þetta er röð af skrítlum," sagði Andrés Indriðason, stjórn- andi þáttarins, þegar við ræddum við hann, „sem allar eru stuttar. Þetta er hálftíma þáttur og er samansettur af 30 atriðum, þann- ig að það er að meðaltali ein skritla á mínútu. Þetta eru bæði gamlar lummur, og nýjar, flestar þó nýjar. Þær eru heimabakaðar, og mest er runnið undan mlnum rifjum, þótt þeir Halli og Laddi hafi lagt talsvert til lika." Auk þeirra Halla og Ladda koma fram i þættinum þriðji bróðirinn, sem heitir Valgarður, og ung stúlka, Erna Einarsdóttir. Aðspurður hvað Andrés það ekki útilokað að eitthvað fleira af þessu tagi fylgdi i kjölfarið þótt ekkert hefði verið ákveðið um það. Um annað sem á döfinni væri sagði Andrés að Vaka væri i hálf- gerðu millibilsástandi. Gylfi Gisla- son, sem var ráðinn umsjónar- maður til áramóta, sá sér ekki fært að halda áfram og mun hafa snúið sér að myndlistinni. Þó er einn Vökuþáttur nú i vinnslu, og tók Egill Eðvarðsson hann upp á Akureyri, og með i þeirri för var Aðalsteinn Ingólfsson, listfræð- ingur, sem m.a. hefur skrifað gagnrýni I Vísi undanfarið. Þá sagði Andrés að Tage Ammendrup hefði nýlega verið á ferð á Húsa- vík þar sem hann tók upp þáttinn „Á ferð og flugi". Tekur sá þáttur við af „Á ferð með B E S S A" og er nú Guðmundur Jónsson, söngvari, kominn i stað Bessa Bjarnasonar. Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ verður sýnd í sjónvarpinu kl. 21.30 nokkuð óvenjuleg þýzk mynd, ULTIMA THULE, sem eins og segir i dagskrá er um „óbyggð- ir íslands og áhrif þeirra á manns- sálina". „Jú, þetta er nokkuð skrýtin mynd," sagði Veturliði Guðnason, yfirþýðandi hjá sjón- varpinu, þegar hann var inntur eftir efni þessarar myndar. „Það var hér Þjóðverji, K. H. Kramberg að nafni, sem fór ásamt tækniliði upp á hálendi, likast til árið 1 973. Hann var þarna nokkurn tima og myndaði allt hvað af tók. En myndin er langt frá þvi að vera landkynningarmynd i venjulegum skilningi. fslenzku óbyggðirnar koma honum fyrir sjónir eins og jörðin á að hafa verið i upphafi vega." „Þetta eru eingöngu myndir af landslagi," saqði Veturliði, „með ákaflega háfleygum texta Kram- bergs, þar sem hann vitnar m.a. í griskar goðsagnir og i lokin les hann sköpunarsöguna afturábak. Þó held ég að textinn verði i islenzkri þýðingu ekki alveg jafn uppskrúfaður. Ég man að ég sá þessa mynd úti i Þýzkalandi þegar ég var þar við nám, og það urðu nokkrar deilur um hana meðal islenzkra stúdenta. Okkur fannst þetta hálf skrýtið, þar eð þetta var ekkert nema grjót. Þarna voru allir litir nema grænt." „En Þjóðverjum líkaði myndin held ég nokkuð vel og þetta ýtti undir þessa hugmynd manna um furðulandið i norðri. En því er ekki að neita að myndin er að mörgu leyti skemmtilega tekin t.d. tóku þeir myndir af Herðubreið á 3—4 klukkustunda fresti i heilan sólar- hring, þannig að hún sést i ótal biæbrigðum, birtu og veðri." LAUGARDAGSMYND sjónvarps- ins að þessu sinni er ekki af lakara taginu fyrir vestraunnendur hér- lendis. Myndin er THE SEARCH- ERS gerð af frægasta vestrahöf- undi Bandarikjanna, JOHN FORD, með frægasta vestraleikaranum, JOHN WAYNE. Þessi mynd, sem gerð var árið 1956 og er þar með_ ein af seinni myndum Fords, fjallar um leit John Waynes og félaga hans, sem leikinn er af Jeffrey sáluga Hunter, að ungri stúlku sem rænt var að Indíánum. Stúlkuna, sem alizt hefur upp meðal Indiánanna, leikur Natalie Wood, en systir hennar, Lana Wood, leikur stúlkuna sem barn. Wayne þykir stúlkan hafa svikið fjölskyldu sína og gerir árás á Indiánaþorpið með það i hyggju að myrða stúlkuna. Ekki verður meira látið uppi um efni þessarar myndar, en báðar kvikmyndabibli- ur okkar gefa henni góða einkunn fyrir spennu og prýðilegan leik. John Ford fæddist i Maine árið 1895. Hann var alla tið háður framleiðslumaskínu Hollywood en tókst samt að gera samstæðar, persónulegar myndir að efni óg uppbyggingu. Megin viðfangsefni hans voru frumdyggðir mannsins, eins og trygglyndi. stolt fyrir hönd fjölskyldu eða bæjarfélags, hug- rekki, frumbyggjaeiginleikar, og i margra augum hafa myndir Fords orðið eins konar þjóðarsaga Bandarikjanna frá upphafi til kreppunnar á fjórða áratugnum. Fyrsta myndin sem Ford stjórnaði er talin vera „The Tornado", gerð árið 1917, en hann ávann sér fyrst frægð fyrir „The Iron Horse" frá árinu 1924. Ein mesta gróðamynd Fords var „Four Sons" (1928), en við hana var John Wayne aðstoðarleik- stjóri. Wayne varð síðan fastur meðlimur í leikaraflokki Fords, ásamt m.a. Victor McLaglen, Ward Bond og Henry Fonda. Fyrsta talmynd Fords var „Napoleon's Barber" (1928), og síðan gerði hann nánast eina mynd á ári. Af þekktustu myndum John Fords má nefna „The Informer" (1935,Oscarsverðlaun), „Grapes of Wrath" (1 940, Oscar), „How Green Was My Valley" (1940, Oscar), og vestraröðin. Frægasti vestrinn er vafalaust „Stagecoach" (1939), og siðan komu „Young Mr. Linco'n", „My Darling Clementine", „Fort Apache", „Wagon Master", sú mynd sem nú er sýnd. „The Searchers", „The Man Who Shot Liberty Valance" og sú siðasta „Cheyenne Autumn" (1964). Ford var oft sakaður um að vera afturhaidssinni, kynþáttahatari, gamaldags. en myndir hans, með óbifanlegri trú þeirra á hið hefð- bundna yildismat gömlu Ameriku, tala sínu máli, og áhrif Fords á jafn ólika leikstjóra og Ingmar Bergman, Akira Kurosawa og Orson Welles verða ekki mæld. I GLUGG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.