Morgunblaðið - 14.02.1975, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.02.1975, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 Ragnhildur Helgadöttir alþingis- maður, forseti Norðurlandaráðs. Umræðuefni þingsins eru mörg og mætti kannski drepa á þau helztu I röð eftir nefndum: 1 efna- hagsmálanefnd til dæmís hefur verið fjallað um orkumálin, sem verða eitt af höfuðviðfangsefnun- um, viðskiptamál ýmisleg, fisk- veiðilögsögu og hafréttarmál, sem einnig verða rædd sérstaklega, um nýtingu matvælaframleiðslu og fleira. Eitt af stærstu málum menningarmálanefndarinnar er sjónvarpsmálið, sem snertir kannski, hinar þjóðirnar meira en okkur. Hefur verið gerð geysimik- il skýrsla um samstarf þeirra i sjónvarpsmálum meðal annars með hliðsjón af nábýli þeirra. Þessi nefnd hefur lika fjallað um fræðslu í tungumálum grannþjóð- anna og norrænt stafróf eða sam- ræmingu stafagerðar, fullorð- innafræðsla hefur og mikið verið til umræðu á þessum vettvangi. Gert er ráð fyrir stórauknum framlögum til menningarmála- sjóðsins á næstu árum til að greiða fyrir ýmiss konar sam- vinnu, m.a. umskipti á vísinda- mönnum og til stuðnings norræn- um námskeiðum á sviði vísinda. Frá menningarmálanefnd kemur einnig tillaga um að Norðurlanda- ráð vinni að fjárstuðningi við nor- rænt íþróttasamstarf. Hugmyndin um norræna þýðingarmióstöð hef- ur og verið þar á dagskrá og er nýleg ákvörðun um framlag til þýðingabókmennta af einu nor- rænu máli á annað m.a. árangur þess. Af málefnum félagsmála- nefndar,“ hélt Ragnhildur áfram, „verða væntanlega talsverðar um- ræður um jöfn réttindi karla og kvenna. Sennilega afgreiðir þing- ið tillögu, sem komin er frá ís- landi um að í tilefni kvennaársins verði efnt tii farandsýningar um sögulega þróun þjóðfélagsstöðu kvenna á Norðurlöndum, alveg fram til okkar daga. Af öðru í sambandi við kvennaárið má nefna tillögu um samnorræna lög- gjöf um jafnrétti karla og kvenna og tillögu um stofnun jafnstöðu- nefndar, er hafi það verkefni að kanna ástand þessara mála á hverjum tima og gera ríkisstjórn- um landanna grein fyrir því. Enn má af verkefnum félagsmála- nefndar nefna framhaldsmennt- un norræns hjúkrunarfólks. Laganefndin hefur, auk nor- ræns lagasamstarfs á ýmsum svið- um, fjallað sérstaklega um upp- lýsingaskyldu um málefni Norð- urlandaráðs, bæði út á við og inn á við. Sérstök undirnefnd hefur unnið mikið starf í þessu og haft til athugunar hvernig haga skuli upplýsingastreymi með það fyrir augum, að hægt sé að gera allt starf innan ráðsins einfaldara og virkara. Ráðið þarf að gæta sín á Parkingsonslögmálinu, vera á verði gegn of mikilli skriffinnsku og vaxandi mannahaldi. Loks er það samgöngunefndin, — en af verkefnum hennar varð- ar Islendinga helzt tillagan um athugun á því að koma á ferjusigl- ingum milli Austurlands og Norð- urlanda. Vmis fleiri mál verða á dagskrá en hér hafa verið talin og að sjálf- sögðu er aldrei hægt að segja fyr- ir um hvað gerist. En þetta sýnist í fljótu bragði það sem helzt verð- ur í brennidepli," sagði Ragnhild- ur Helgadóttir að lokum. — mbj. Stutt spjall við Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóra Alþingis, og Ragnhildi Helgadóttur alþingismann um undirbúning þingsins og helztu viðfangsefni þess 1 mörgu er að snúast í Þjóðleik- húsinu þessa dagana vegna undir- búnings þings Norðurlandaráðs, sem þar hefst á morgun. Unnið hefur verið að þvl að koma þar fyrir þeim búnaði, sem nauðsyn- legur er þingsins vegna, húsgögn- um, sfmaútbúnaði, fjarskipta- tækjum og þar fram eftir götun- um. Að veruJegu leyti verður fyr- irkomulag með svipuðu sniði og sfðast, þegar þingið var haldið hér á iandi, það var þá einnig f Friðjón Sigurðsson, skrifstofu- stjóri Alþingis. Svo sem fram hefur komið í Morgunblaðinu verða erlendir fulltrúar á þinginu um 450. „Við höfum ekki endanlegar tölur,“ sagði Friðjón Sigurðsson, „nafna- listinn hefur tekið stöðugum breytingum og getur enn breytzt. Islenzku þátttakendurnir eru 65. Þingmenn eru 78 og ráðherrar geta oróið um 50, en auk þeirra eru ýmsir sérfræðingar og ritarar, fulltrúar frá skrifstofum ráðsins, til dæmis menningarmálaskrif- stofunni í Kaupmannahöfn, ráð- herraskrifstofunni f Oslo, skrif- stofu ráðsins í Stokkhólmi og starfsmenn úr öllum deildum ráðsins. Loks verða blaðamenn sennilega á annað hundrað." Að því er Friðjón Sigurðsson upplýsir koma flestir fulltrúa til landsins með leiguflugvélum í dag. Ekki hefur verið neinum erf- iðleikum bundið að sjá þeim fyrir gistingu. Friðjón sagði, að tala þingfulltrúa hefði verið áætluð ríflega i upphafi og þeim tryggð gisting þegar í ágúst sl. Breytingar i Þjóðleikhúsinu eru unnar undir stjórn skrifstofu Húsameistara ríkisins, að því er Friðjón sagði, „Húsameistara var falið þegar í desember sl. að yfir- fara allt, sem til væri frá siðasta þingi og endurnýja búnað eins og þörf krefði. Við vissum að skammur tími yrði til undirbún- ings leikhússins sjálfs vegna starfs þess, og þvi þyrfti allt að vera tilbúið tímanlega. Síðustu vikurnar hefur verið unnið að þessu af kappi." Sem fyrr segir, er búizt við þingfulltrúum til landsins í dag og þá þegar hefjast undirbúnings- fundir, forsætisnefndin kemur saman svo og vinnunefnd þings- ins. Setning verður i fyrramálið kl. 10 og þingað allan laugardag og eftir hádegi á sunnudag. Fyrstu tvo dagana verða al- mennar umræður og viðfangsefni þá fjölbreytt, að því er Ragnhild- ur Helgadóttir alþingismaður, sem er einn af varaforsetum Norðurlandaráðs tjáði blaða- manni Morgunblaðsins, er leitað var upplýsinga hjá henni um helztu mál þingsins. „1 almennu umræðunum verða lagðar fram og ræddar skýrslur og greinar- gerðir hinnaýmsu nefnda, þ.e.a.s. forsætisnefndarinnar sem skipuð er einum þingfulltrúa frá hverju Norðurlandanna, ráðherranefnd- arinnar, sem allir ráðherrar ríkis- stjórna landanna geta átt sæti í, og undirnefndanna fimm, efna- hagsmálanefndar, laganefndar, menntamálanefndar, félagsmála- nefndar og samgöngumálanefnd- ar. Til grundvallar almennu um- ræðunum verður lögð skýrsla ráð- herranefndarinnar um norrænt samstarf á siðastliðnu ári. Þarna má fjalla um öll viðfangsefni þingsins en jafnframt verða ein- stök aðalmál rædd á fundunum eftir helgina. Sfmaklefarnir á ganginum framan við neðri svalir leikhússins eru sérstaklega ætlaðir blaðamönnum. Þjóðleikhúsinu og þótti gefast all- vel. Það er að vfsu nokkuð þröngt sums staðar, — „en þetta dugði þá og verður að duga núna,“ sagði Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, þegar blaðamaður Morgunblaðsins fékk f vikunni að ganga með honum um Þjóðleikhúsið og skoða að- stæðurnar. Helztu breytingarnar eru þær, að sögn Friðjóns, að þingið fær einnig til umráða hús- næði hjá Hæstarétti og Iðnaðar- ráðuneytinu. Fyrirkomulagið verður i stórum dráttum sem hér segir: í áhorf- endasalnum niðri hefur verið klætt yfir aðra hverja sætaröð samfelldum borðum þannig að fulltrúar hafi aðstöðu til skrifta. Það er hins vegar hvorki gert á neðri svölum, þar sem blaða- mönnum er ætlaður staður né á efri svölum, sem ætlaðar eru öðr- um áheyrendum. Á sviðinu verður forsætisnefnd- in og ræðustóll, en þar fyrir aftan verður aðstaða til fjölritunar. I herbergi inn af leiksviðinu verð- ur aðstaða fyrir forsætisnefndina að koma saman til fundar, þegar þess gerist þörf, en stærri fundir hennar verða í Arnarhvoli. I búningsherbergjum leikara og öðrum lausum vistarverum verða skrifstofur hinna ýmsu sendinefnda. I anddyrinu, frammi, verður af- greiðsla Pósts og Ferðaskrifstofu Islands, en póstafgreiðsla verður einnig í fatageymslunni í Þjóð- leikhúskjallaranum. Fyrir framan áhorfendasalinn niðri verður upplýsingastarfsemi alls konar og afgreiðsla á skjölum og ræðum. I Kristalssalnum verður að- staða fyrir blaðamenn og við fata- hengin þar uppi verða, annars vegar viðbúnaður Landssímans, símaklefar, fjarritarar og af- greiðsla, en hins vegar upplýs- ingastarfsemi. Á svæðinu aftan við sætaraðir á efri svölum verður aðalskjalasafn þingsins. 1 Þjóðleikhúskjallaranum verða veitingar eins og venjulega, nema hvað litli salurinn hefur verið stúkaður í tvennt og verður notað- ur fyrir skrifstofur. Hér má sjá hvernig áhorfendasalurinn niðri er útbúinn. Hér er verið að koma upp aðstöðu fyrir erlendu blaðamennina f Kristalssalnum. Þjóðleikhúsið búið undir að hýsa þing Norðurlandaráðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.