Morgunblaðið - 14.02.1975, Side 21

Morgunblaðið - 14.02.1975, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 í nóvembermánuði síðastliðn- um var haldin fyrsta Matvælaráð- stefna Sameinuðu þjóðanna og fór hún fram í Rómarborg. Tilefni ráðstefnunnar er sá gífur- legi matvælaskortur, sem nú rfkir í veröldinni og sem horfur eru á að verði enn alvarlegri ef róttæk- ar ráðstafanir verða ekki gerðar án tafar til stóraukinnar matvæla- framleiðslu. Þeirri áskorun var á ráðstefn- Áburðarverksmiðjan f Gufunesi. Hún framleiðir nú aðeins helming þess áburðar, sem Islendingar þurfa á að haida. hinn helminginn þarf að flytja inn — nú á sexföldu verði. Ljósm.: Mats Wibe Lund. 21 verkfræðideild Landsvirkjunar að ónotað afl f heild verði 191 megavött árið 1979 og 230 mega- vött 1980. Hér er hins vegar hvergi reiknað með því afli, sem fyrirhugaðar Norðurlands- og Austurlandsvirkjanir munu fram- leiða, en ljóst er að forsenda bygg- ingar þeirra er að kaupendur fáist að orkunni — í mynd stór- iðju við áburðarframleiðslu eða á öðrum sviðum. Gunnar G. Schram prófessor: íslenzk stóriðja í barátt- unni gegn matvœlaskortinum unni beint til allra þjóða heims, en þó fyrst og fremst til hinna vestrænnu iðnaðarþjóða, að þær könnuðu til þrautar allar leiðir til aukinnar fæðuframleiðslu f lönd- um sínum svo hungurvofunni yrði bægt frá dyrum tuga þjóða í Afrfku og Asíu. Þeirri áskorun var vitanlega einnig beint til okkar íslendinga, en íslenzkur fulltrúi sat ráðstefnu þessa, svo sem kunnugt er, og greindi skil- merkilega frá störfum hennar í fjölmiðlum eftir heimkomuna. Það er þess vegna ekki óeðli- legt að við íslendingar, sem aðrar grannþjóðir okkar í austri og vestri, veltum því fyrir okkur um þessar mundir hvað sé hér helzt til ráða, hvort við getum lagt hér þyngri lóð á vogarskál lífs og dauða en okkur er nú tækt. Skal nú vikið að einum kosti í þessum efnum, sem ég tel þess virði að kannaður verði til hlítar á næst- unni af íslenzkum sérfræðingum og íslenzkum stjórnvöldum. Það er barnalærdómur, að und- irstaða lífsins er gróðurmáttur jarðar. Matvælaframleiðslan stendur í beinu hlutfalli við þann gróðurmátt, og þar eru þrfr þættir mikilvægastir; jarðvegur, vatn og áburður. Þessir þættir eru af skornum skammti víða í þróunar- löndunum, en þó keyrir um þver- bak nú síðustu misserin að því er varðar áburðarskort. Kemur þar tvennt til, sívaxandi mannfjölgun í þeim löndumm sem sízt eru und- ir það búin að brauðfæða þegna sína svo sæmilegt geti talizt, og svo hitt, að olíukreppan hefur haft þau áhrif að framleiðslu- aukning tilbúins áburðar hefur nær stöðvast. Að dómi sérfræð- inga FAO er hér um eitt alvarleg- asta vandamálið að ræða í bar- áttunni við hungrið í heiminum f dag. Glæstar vonir voru um skeið bundnar við hina svonefndu „grænu byltingu“ í akuryrkju, þar sem tókst að fimmfalda uppskeru hverrar ekru lands með nýjum fræafbrigðum. En hér fylgdi sá böggull skammrifi að til þess þurfti mjög að auka áburðar- notkunina. Nú skortir áburðinn og vellir hinnar grænu byltingar hafa f mörgum þjóðlöndum breytzt í sviðna akra, þar sem vart finnst stingandi strá og helztu kennileitin eru skinin bein þess búsmala, sem þar áður gekk. Það þarf þess vegna engan að undra þótt ein helzta ósk Matvælaráð- stefnunnar í Róm hafi verið sú, að þær þjóðir heims, sem til þess kunna ráð, stórykju áburðarfram- leiðslu sína, svo hér mætti skipta sköpum. t nýrri skýrslu Aburðar- nefndar FAO er frá því greint að árin 1975—1976 muni skorturinn á köfnunarefnisáburði í veröld- inni nerha 1,1 miilj. lesta. Ef lengra er skyggnzt er gert ráð fyrir að árin 1980 — 1981 muni skorturinn verða um 7 milljónir lesta. Notkun þessarar tegundar áburðar er í veröldinni f dag 43 milljónir lesta, en þörfin er áætluð 1980—1981 59 milljónir lesta, og er þar um að ræða 63% aukningu frá árunum 1972—1973. Þetta breiða bil verður vitan- lega ekki brúað nema með mikilli aukningu áburðarframleiðslu bæði i þróunarlöndunum og ekki síður í iðnaðarlöndunum, þar sem enn er að finna óbeizlaðar orku- lindir. Ljóst er að nokkur hvöt til slíkra framkvæmda er olíu- kreppan en sökum hennar hefur verðlag á tilbúnum áburði marg- faldast í verði að undanförnu. Má geta þess að í Bandaríkjunum eru uppi ráðagerðir um byggingu átta nýrra köfnunarefnisáburðar- verksmiðja næstu fimm árin, sem samtals munu geta framleitt um 2 millj. lesta áburðar þegar þær eru komnar i gagnið, en sú fram- kvæmd dugir þó hér hvergi nærri til. Sem dæmi um verðhækkun áburðarins er þess getið f fyrr- greindri skýrslu að verðið á köfn- unarefnisáburði hafi fjór- til fimmfaldast síðan 1972 og sé nú 443—673 dollarar lestin miðað við hreint köfnunarefni. Þar sem ekki sé fyrirsjáanleg nein fram- leiðsluaukning í veröldinni fyrr en í fyrsta lagi 1976, megi búast við því að þetta verð hækki enn frá því sem nú er. Ef við lítum í þessu efni til okkar eigin áburðar- framleiðslu, þá eru í landinu framleidd um 40.000 lestir árlega af áburði, en ársneyzlan er hins verugar um 60.000 lestir f dag. Verður þess vegna að flytja inn verulegt magn og sýna verðbreyt- ingarnar þar þessa sömu mynd. Verðið á innfluttu ammoníaki, sem er uppistaðan f köfnunar- efnisáburðinum (82% hreint köfnunarefni), hefur hækkað frá árinu 1972 úr 70 dollurum lestin í 422 dollara lestin, eða um það bil sexfaldast á þessu skamma tíma- bili. Við má hér bæta að skv. fregn f Mbl 11. febrúar s.l. hefur áburðarverð til íslenzkra bænda hækkað um 150% eða 1,2 milljarða kr. frá því í fyrrasumar. Það er þess vegna ekki nema eðlilegt að fram hafi nýlega komið hugmyndir um könnun á stækkun Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi, með það í huga að hún geti fullnægt okkar eigin þörfum án nokkurs innflutnings — unnið köfnunarefni úr loftinu fyrir atbeina íslenzkrar raforku, en ekki treyst á erlenda orkugjafa í þessu efni, sem margfaldast hafa f verði síðustu misseri. En eigum við að láta þar staðar numið? Kemur ekki til greina þegar rætt er um stóriðju á Islandi að hugsa út fyrir hring áls, salts og málmblendis og hyggja að því hvort ekki gæti einnig verið skyn- samlegt að nýta orku hinna nýju virkjana, sem nú eru f bígerð einnig til áburðarframleiðslu í stórum stíl — þeirrar framleiðslu- vöru, sem einna mest skortir í heimi hungursins í dag? Ef litið er til hugsanlegrar íslenzkrar stóriðju á sviði áburðarframleiðslu yrði að dómi fslenzkra sérfræðinga tvímæla- laust hentugast að binda hana einvörðungu við framleiðslu á ammoníaki, sem er megin uppi- staðan í köfnunarefnisáburðin- um sem fyrr segir. Er það vegna þess að úr því efni er unnt að framleiða önnur áburðarefni sem síðan má blanda saman við fosfór og kalí og mynda þannig þær áburðartegundir, sem henta bezt í þeim löndum, sem áburðurinn er seldur til. Raunar er ammoníakið notað sums staðar til áburðar án þess að það sé blandað öðrum efnum, t.d. f Danmörku þar sem það er víða borið beint á akra. Þar að auki myndi hrein ammoníak- framleiðsla hér á landi hafa tvo aðra kosti. Ekki þarf að flytja inn nein erlend hráefni til gerðar þess. Og hitt er ekki siður mikil- vægt að framleiðsla á ammoníaki er algjörlega laus við alla mengun, sem fylgdi hins vegar framleiðslu sumra tegunda áburðar. Hér yrði því um fullkom- lega mengunarlausa stóriðju að ræða og má ætla að sumum þyki slíkt nokkurt keppikefli. Við má hér einnig bæta, að þótt hér sé fyrst og fremst verið að ræða um ammoníakframleiðslu til áburðar, þá er þetta efni eitt hið mikilvæg- asta, sem notað er f margskonar öðrum iðnaði i veröldinni m.a. plastiðnaði, og veitir sú staðreynd vitanlega nokkra markaðstrygg- ingu í þessari framleiðslugrein. Því er ekki að leyna að hér er um orkufreka stóriðju að ræða. Til framleiðslu á hverri lest af ammoníaki á dag þarf 0,5 mega- vatt raforku. Ef gert væri ráð fyrir verksmiðju, sem væri rúm- lega átta sinnum stærri en Áburðarverksmiðjan er í dag og framleiddi um 200 lestir af ammoníaki á dag myndi því þurfa til þess orku, er samsvaraði 100 megavöttum. Sú orka yrði vitan- lega að koma frá hinum nýju virkjunum sem fyrirhugaðar eru, frá Hrauneyjarfossvirkjun, sem ráðgert er að framleiða muni 170—200 megavött, eða frá hinum nýju Norðurlands- eða Austur- landsvirkjunum, þegar þær hafa tekið til starfa. Ætla má að stærri verksmiðja yrði rekstrarlega hagkvæmari, en það atriði hlýtur að ráðast af framboði raforkunnar. t þessu sambandi má geta þess að gert er ráð fyrir þvi að árleg afkastageta málmblendiverk- smiðju þeirrar sem nú er ráðgerð, verði í upphafi 47.000 lestlir á ári, en orkuþörfin 68 megavött til þeirrar framleiðslu. Þá hafa í um- ræðum um það mál komið fram fróðlegar upplýsingar frá verk- fræðideild Landsvirkjunar um ónotaða orku á næstu árum miðað við núverandi kerfi að viðbættri Sigölduvirkjun, og er þá tekið til- lit til orkusölu til málmblendi- verksmiðjunnar og áætlaðrar viðbótarhúshitunar. Önotuð orka yrði samt sem áður 120 megavött 1977 og 102 megavött 1978. Með tilkomu Hrauneyjarfossvirkjunar eykst þessi tala í 223 megavött 1979. Ef Norðurland verður tengt við Landsvirkjunarkerfið áætlar Hér skal því bætt við, að sú tegund stóriðju, sem hér er rætt um, hlýtur fyrst og fremst að byggjast á hagkvæmu verði íslenzkrar raforku, sem væri sam- keppnisfært við aðrar orkulindir, svo sem jarðgas, en það er nú f vaxandi mæli notað við áburðar- framleiðslu í þeim löndum, sem hafa yfir þvi að ráða og þar sem það reynist ódýrari orkugjafi en raforkan. Þannig hyggjast nú Norðmenn nota hinar nýju jarð- gaslindir sínar á hafsbotni m.a. til áburðarframleiðslu og hverfa frá notkun raforku vegna þess hve jarðgasið reynist þeim ódýr orku- lind. En hafa ber í huga að það eru ekki nema fáeinar þjóðir, sem ráða yfir gas- og olíulindum, svo raforkan er hér enn mikilvæg undirstaða og kemur þá til sam- keppnisaðstaða okkar varðandi orkuverðið. Um fjármögnun íslenzkrar stóriðju á sviði áburðarfram- leiðslu skal ekki fjölyrt á þessu stigi, enda yrði slik könnun einn meginþáttur þeirrar athugunar, sem hér er lagt til að framkvæmd verði. En Ijóst er að alþjóðlegar lánastofnanir munu telja fram- kvæmdir, sem miða að því að efla matvælaframleiðslu veraldar, æskilegri fjárfestingu en margt annað sem eftir er sótt. Þá má og benda á það, að ef efnt verður til íslenzkrar stóriðju á sviði áburðarframleiðsu verður kostn- aðurinn við nauðsynlega stækkun Áburðarverksmiðjunnar í Gufu- nesi um a.m.k. helming aðeins lítið brot af því sem hann ella yrði, þar sem megin framleiðslu- efni áburðarins, ammoníakið, yrði fengið frá hinni nýju verk- smiðju. Er þá komið að lokum þessara hugleiðinga. Kjarni þeirra er sá,. að æskilegt og sjálfsagt sé að kanna ítarlega hvort skynsamlegt sé að hefja framkvæmdir á því sviði stóriðju, sem hér hefur verið um rætt. Það verður vitanlega ekki gert nema í ljós komi .að á þennan hátt verði orka fallvatna okkar, hinna nýju virkjana, nýtt á arðbæran hátt. En verði sú niður- staðan er torvelt að gera sér í hugarlund framkvæmd sem mannfólkinu í veröld okkar yrði að meira gagni, eins og málum er nú komið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.