Morgunblaðið - 14.02.1975, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975
Hægt að
flytja vegg-
skreytingar
Kjarvals
MENNTAMÁLARAÐUNEYTIÐ
væntir næstu daga greinargerðar
brezks sérfræðings um möguleika
á varðveizlu yeggskreytinga Kjar-
vals í vinnustofu meistarans í
Austurstræti. Svo sem kunnugt er
var brezki sérfræóingurinn, sem
starfar hjá brezka umhverfis-
málaráðuneytinu að viðgerð lista
verka, fenginn hingað til landsins
m.a. til að skera úr um hvort
þorandi væri að flytja vegg-
skreytingarnar af veggjum vinnu-
stofunnar í annan geymslustað.
Brezki sérfræðingurinn lét þau
orð falla við athugun sína á vegg-
skreytingunum, að ekkert væri
því til fyrirstöðu að flytja þær úr
stað og mun greinargerðin eink-
um snúast um hvernig bezt verði
staðið að því verki.
Firmakeppni TR
FIRMAKEPPNI Taflfélags
Reykjavíkur stendur yfir um
þessar mundir. Undankeppni er
lokið og hefst næst úrslitakeppni
22 fyrirtækja. 1 undankeppninni
urðu eftirtalin 10 fyrírtæki hlut-
skörpust: Híbýlaprýði, Þjóðvilj-
inn, Búnaðarbankinn, Skrifvélin,
Múli, hjólbarðaviðgerð, Form-
prent, Happdrætti Háskólans,
Happdrætti SlBS, Harpa og Nesti
við Elliðavog.
— LÍÚ
Framhald af bls. 36
Fundurinn lýsir því undrun sinni
yfir því, að þjóðinni skuli nú tjáð,
að gengisbreytingin sé gerð I
þágu útgerðarinnar.
Ef stjórnvöld bregða ekki hart
við og gera nú þegar óhjákvæmi-
legar ráðstafanir til að koma út-
gerðinni yfir rekstrarerfiðleika
hennar og tryggja rekstur henn-
ar, blasir við áframhaldandi tap-
rekstur með tiisvarandi og áfram-
haldandi skuldasöfnun, sem hlýt-
ur að leiða til stöðvunar og stór-
fellds atvinnuleysis um land allt.
— Rækjudeilan
Framhald af bls. 36
lenzkir fiskimenn selja afla sinn.
Þess konar afskipti eru þeirri sjó-
mannastétt, sem nú starfar í land-
inu, framandi og ógeðfelld. Þau
eru andstæð réttarvitund Is-
ienzkra sjómanna og þjóðarinnar
allrar og má því aldrei aftur upp
taka hér á landi.
3. Ef ríkisvaldið gerir ekki nú
þegar lát á aðför sinni gegn okkur
á Nökkvanum og gefur okkur frið
til að stunda atvinnu okkar, verð-
um við — hvað sem rétti okkar
lfður — neyddir til þess að leita
okkur annarrar vinnu, og útgerð-
in verður sjálfsagt að selja skipið
í burtu. Þar með missa 15—18
manns atvinnu við rækjuvinnsl-
una og bætast í hóp annars at-
vinnulauss fólks á staðnum eða
þeirra, sem að undanförnu hafa
orðið að fara burt I atvinnuleit.
Eins og nú er komið málefnum
þjóðarinnar, hljóta yfirvöldin að
hafa einhverjum þarfari verkefn-
um að sinna en að stöðva atvinnu-
fyrirtæki á sjó og í landi.
P.t. Reykjavík, 13. febrúar 1975,
Amundi Grétar Jónsson.
- Klofið í þrennt
Framhald af bls. 36
gengislækkun við núverandi
aðstæður.
Gylfi Þ. Gíslason, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins
hefur lýst yfir andstöðu við
gengisbreytinguna, þar eð hún
sé ekki lausn á þeim heildar-
vanda, sem við er að etja í efna-
hagsmálum. Hann sagði hins
vegar í ræðu á Alþingi sl. mið-
vikudagskvöld, að gengislækk-
un gæti verið nauðsynleg, ef
hún væri þáttur I heildarlausn
efnahagsvandans.
Karvel Pálmason formaður
þingflokks Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna lýsti á
Alþingi sl. miðvikudagskvöld
yfir andstöðu við gengislækk-
unina. Hann lýsti þeirri skoðun
flokks síns, að fara hefði átt
svonefnda niðurfærsluleið og
koma á skyldusparnaði.
— Eignaupptaka
Framhald af bls. 2
ræða, sem sífellt ætti sér stað
við hverja nýja gengisskrán-
ingu, og væri óhæf gagnvart
starfsstétt, er sífellt væri
gengið á. Auk þess leiddi slfk
afstaða til þess, að vörubirgðir
hyrfu á fáum dögum úr
verzlunum sem kallaði á stór-
aukinn innflutning umfram
það sem vera þyrfti og fyrr en
ella. Verzlunarstéttin þyldi
ekki slfka eignaupptöku með
stuttu millibili.
— Frystihús
Framhald af bls. 3.
halda frystihúsinu gangandi og
vonaðist hann til að svo yrði
áfram. Aðspurður um hugsanleg-
ar skaðabætur vegna gallanna I
vélunum sagði Jóakim, að ekki
væri farið að kanna þau mál. Tog-
ararnir væru komnir úr ábyrgð,
en að hans mati ætti að vera hægt
að krefja hina japönsku framleið-
endur um skaðabætur vegna þess-
ara verksmiðjugalla. Loks tók
Jóakim það skýrt fram, að jap-
önsku togararnir hefðu yfirleitt
reynzt vel fram að þessu og engir
alvarlegir gallar komið fram fyrr
en nú.
— Danmörk
Framhald af bls. 1
vinnuvilja þingmanna til að koma
á meiri stöðugleika f dönskum
stjórnmálum. Hann lét einnig í
ljós von um að ríkisstjórnin geti
fengið meirihluta fyrir tillögum
sínum sem eiga að draga úr at-
vinnuieysi f landinu.
Sextán ráðherrar sitja í nýju
stjórninni. Aðeins tveir þeirra
hafa ekki gegnt ráðherrastöðu áð-
ur.
K.B. Andersen er utanríkisráó-
herra, Knud Heinesen er fjár-
málaráðherra, Per Hækkerup er
efnahagsmálaráðherra, Erling
Dinesen er vinnumálaráðherra,
umhverfismálaráðherra er Helge
Nielsen, Ivar Nörgaard markaðs-
málaráðherra og Norðurlanda-
málaráðherra, Egon Jensen er
innanríkisráðherra, menntamála-
ráðherra er Niels Matthiassen,
Eva Gredal er félagsmálaráð-
herra, Erling Jensen viðskipta-
ráðherra, dóms og varnarmálaráð-
herra er Orla Möller, kennslu-
málaráðherra er Ritt Bjerre-
gaard, skatta- og tollamálaráð-
herra er Svend Jakobsen. Nýju
ráðherrarnir tveir eru Jörgen
Peder Hansen, sem er kirkju-
málaráðherra og Grænlandsmála-
ráðherra, og Pojl Dalsager sem er
landbúnaðar- og sjávarútvegsráð-
herra.
— Kýpur
Framhald af bls. 1
milligöngu um framtíðarfyrir-
komulag á Kýpur.
I yfirlýsingu Karamanlis sagði
að augljóst væri að Kýpurstjórnin
hefði látið undan þrýstingi tyrkn-
eskumælandi manna áður og lagt
fram áætlun sína. Hefði verið
unnið samkvæmt henni hefði
verið von um frið á Kýpur og
lausn á deilunni.
Karamanlis var mjög hvassyrt-
ur þegar hann fordæmdi ákvörð-
un Kýpur-Tyrkja og sagði að hún
væri ólögleg og bryti alla alþjóða-
samninga og lög. Ljósara væri nú
en nokkru sinni áður að Grikkir
hefðu haft rétt fyrir sér þegar
þeir hefðu á sínum tfma sagt að
innrásin á Kýpur væri aðeins
gerð f einum tilgangi, þ.e. til að
hernema stóra hluta eyjarinnar
og breyta henni nánast í
tyrkneskt landsvæði. Gríska
stjórnin hefði síðan hún komst til
valda virt alþjóðalög og sýnt
fullan samkomulagsvilja og for-
dæmdi skilyrðislaust „hið nýja
tyrkneska valdarán og áskildi sér
allan rétt til aðgerða."
Talsmaður bandaríska utan-
rikisráðuneytisins sagði f kvöld að
bandaríska stjórnin væri að
kanna yfirlýsingu Kýpur-
Tyrkja og mundi í hvívetna fylgja
fyrri ásetningi um að reyna að
vinna að því að tryggja frið á
eynni og varanlega lausn á Kýpur
deilunni.
— 32-33
ráðherrar
Framhald af bls. 1
fiskimálaráðherra, Tor Halvor-
sen félagsmálaráðherra og Ing-
er Louise Valle dómsmálaráð-
herra. Og frá Danmörku koma,
eftir því sem segir I skeyti til
Morgunblaðsins í gær, K.G.
Andersen utanríkisráðherra,
Per Nörgaard, ráðherra utan-
ríkisviðskipta og norræna mál-
cfna, Orla Möller varnarmála-
ráðherra, Niels Matthiasen,
ráðherra menningarmála og
Egon Jensen innanrfkisráð-
herra.
Ekki var f gærkveldi vitað
með vissu hvaða danskir þing-
menn væru væntanlegir. Hins
vegar hafði borizt nafnalisti yf-
ir sænsku, finnsku og norsku
þingmennina og af þeim má
nefna norsku þingmennina Per
Borten, forseta Oðalsþingsins,
Finn Gustavsen, leiðtoga
norskra vinstri sósialista, Gutt-
orm Hansen, forseta Stórþings-
ins, Lars Korvald, fyrrverandi
forsætisráðherra, Hákon Kyll-
ingmark, Odvar Nordli og Káre
Willoch. Af sænskum þing-
mönnum skal getið Johannesar
Antonssons, núverandi forseta
Norðurlandaráðs, Arne Geijer,
forseta sænska verkalýðssam-
bandsins, Gunnars Helen og
Per Olofs Sundmans rithöfund-
ar. Og meðal finnsku þing-
mannanna eru Elsi Hetemáki,
Olavi Lahteenmáki og V.J.
Sukselainen, sem á sæti í for-
sætisnefnd Norðurlandaráðs.
— Tjón
Framhald af bls. 25
ingu æðarvarps þó að ýmsir telji
sig ná góðum árangri við fækkun
„vargfugla" með þessum lyfjum.
Margt virðist mótsagnakennt
þegar rætt er um áhrif hrafns og
svartbaks á æðarvarp og má í því
sambandi benda á aukningu
æðarvarps á Suðvesturlandi þar
sem mikið er af „vargfugli" en
hnignun æðarvarps viða á Vest-
fjörðum þar sem menn hafa náð
hvað mestum árangri við fækkun
ofangreindra fuglategunda.
Af þeim svefnlyfjum, sem
reynd voru til fækkunar hrafni og
svartbaki, reyndist efnið fenemal
best en chloralose óhæft sökum
kvalafulls dauða fuglanna.
Avertin reyndist ekki eins vel og
fenemalið, sérstaklega ef það var
látið i egg.
— Dagar í Vín
Framhald af bls. 16
Christian Friedrich Ludwig
Förster, sem ættaður var frá
Beirut. 1839 birti hann hug-
myndir sínar um Ringstrasse og
næsta nágrenni. En það var
ekki fyrr en tuttugu árum
seinna að hafist var handa um
framkvæmdir og þá varð
Förster andlegur faðir Ring-
strasse, ásamt ungverjanum
August Siccard von Siccards-
burg og Vínarbúanum Eduard
van der Nflll. Gatan, eitthvert
mesta stórvirki sinnar teg-
undar á öldinni sem leið, er eitt
af mörgum dæmum um, hve
máttug áhrif Vínar eru á lista-
menn, jafnvel þá sem koma
þangað fullþroska af öðrum
þjóðlöndum. Sömu sögu er að
segja um hljómlistina, Vínar-
klassfkina, Haydn og fleiri tón-
skáld sem komu til borgarinnar
við Dóná, þar gerðist eitthvað
svipað.
★ ★ ★ ★ ★
I Vínarsálinni gætir auð-
særrar tilhneigingar til svart-
sýni öðrum þræði og rætur
hennar má rekja til sögunnar,
búsifja sem kynslóð eftir kyn-
slóð hefur mátt þola af völdum
styrjalda, en andstæða þess er
þó miklu þyngri á vogarskál-
inni: barnsleg lífsgleði og óvið-
jafnanlegur hæfileiki til að lifa
fyrir líðandi stund. Græskulaus
gamansemi vakir í vitund
Vínarbúans — og hún tjáir sig í
orðum.
Lundin sver sig í ætt við
landslagið og náttúruna, sem er
vissulega snar þáttur þessarar
opnu og dásamlegu borgar;
maður greinir ekki hvar borgin
endar og sveitin tekur við. Allt
rennur einhvern veginn saman
í eitt. Fjöllin eru rani háfjalla
Evrópu, og sléttlendið nær svo
langt sem augað eygir — og
miklu lengra — alla leið til
Ungverjalands. Stórfljótið sker
landið. Fjöll — slétta — vatn,
það eru ekki andstæður, heldur
frumþættir náttúrunnar.
Eg hef hvergi í heiminum séð
jafnmargar manneskjur gefa
jafnmörgum betlurum jafn-
marga skildina, öryrkjum og
öðru óhamingjusömu fólki. Oft
er maður f vafa um hvor muni
fátækari, gefandinn eða
þiggjandinn, og f Vfn er líru-
kassamaðurinn og fiðlarinn á
götunni.
Frh. sfðar.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
starf væri fyrir höndum, þegar
hann hefði lokið fundum sínum
að þessu sinni.
I Israel segja fréttastofnanir að
þar sé ekki gert ráð fyrir neinum
teljandi breytingum á ástandi
vegna milligöngu Kissingers. Þá
er haft fyrir satt að Kissinger hafi
látið þau orð falla að þær viðræð-
ur sem hann stendur nú í séu þær
erfiðustu sem hann hafi tekið
þátt f fram til þessa, en þetta er
nú 10. ferð hans til Miðaustur-
landa.
Athygli vakti i Bandaríkjunum
í dag að Adlai Stevenson, öld-
ungadeildarþingmaður réðst í dag
harkalega á Kissinger og sagði
hann vera að spilla áliti Banda-
ríkjanna út á við vegna persónu-
legrar framagirni hans og væri
hann að gera Bandaríkin að
aumkunarverðum og hjálparvana
risa.
Stevenson hefur þar með bætzt
i hóp þeirra sem hafa gagnrýnt
Kissinger mjög harkalega upp á
síðkastið, en þekktastur þeirra
sem áður höfðu gagnrýnt er
Henry Jackson. Ford forseti hef-
ur lýst andúð sinni og fyrirlitn-
ingu á gagnrýni þessari.
— íþróttir
Framhald af bls. 35
Hálflelkur
34. 15:8 Björn
35. Viðar 16:8
36. 16:9 Björn (v)
36. Vlðar 17:9
38. Olafur 18:9
38. 18:10 Björn
39. Olafur 19:10
39. 19:11 Arni
40. Arni 20:11
41. Viðar 21:11
42. 21:12 Halldór
43. Olafur 22:12
44. 22:13 Magnús
46. 22:14 Björn (v)
47. Gunnar 23:14
47. 23:15 Halldór
48. 23:16 Kristmundur
49. 23:17 Arni
52. Gunnar 24:17
52. 24:18 Halldór
53. Gunnar 25:18
53. 25:19 Arni
56. Þórarinn 26:19
56. Jón Gestur 27:19
58. 27:20 Georg
59. 27:21 Þór
60. Arni 28:21
60. 28:22 Georg
60. Þórarinn 29:22
Mörk FH Gunnar Einarsson 7,
Árni Guðjónsson 5, Ólafur Einars-
son 5, Þórarinn Ragnarsson 4,
Viðar Símonarson 3, Guðmundur
Stefánsson 2, Sæmundur Stefáns-
son 1, Jón Gestur Viggósson 1,
örn Sigurðsson 1.
Mörk Gróttu: Björn Pétursson
8, Halldór Kristjánsson 6, Arni
Indriðason 3, Georg Magnússon 2,
Magnús Sigurðsson 1, Kristmund-
ur ÁSmundsson 1, Þór Ottesen 1.
Brottvfsanir af velli:
Sæmundur Stefánsson, FH, i 2
mín.
Misheppnuð vítaköst: Björn
Pétursson átti vítakast í stöng á
41. mín. og Guðmundur Ingi-
mundarson varði vítakast Ölafs
Einarssonar á 55. mín.
Dómarar: Björn Kristjánsson
og Óli Olsen. Þeir höfðu góð tök á
leiknum og dæmdu vel. — stjl.
— Breskur
efnahagsvandi
Framhald af bls. 13
og sömu sögu er að segja um
markaði víðsvegar í Evrópu.
Þetta stafar vafalaust hvort-
tveggja af hækkuðum rekstrar-
kostnaði bifreiða samfara
hækkun bensínverðs og jafn-
framt af þeimsökum að erlend
ar bifreiðir, t.a.m. japanskar,
hafa orðið mun ódýrari i inn-
kaupum en brezkar. Þetta á
einnig við um aðrar greinar
létt- og þungaiðnaðar og ógnar
mjög afkomu brezka þjóðarbús-
ins, jafnframt því að stuðla að
röskuðu jafnvægi vinnumark-
aðsins.
En hverjar eru orsakir þess-
arar þróunar brezkra efnahags-
mála? Andstæðingar rfkis-
stjórnarinnar skella skuldinni
á það, sem þeir kalla óábyrga
stjórn og stefnumörkun henn-
ar á efnahagssviðinu. Edward
Heath sagði á fundi með hægri
sinnuðum verkalýðsfélögum
ekki alls fyrir löngu, að stjórn
Verkamannaflokksins væri á
margan hátt svipuð læknum
miðalda í vinnubrögðum, þ.e.,
að hún notaði ávallt sömu lækn-
ismeðferðina, og hún væri blóð-
taka. Þvf er ekki að neita, að
almenningur hefur orðið illa
úti sökum sivaxandi verðbólgu,
og að framtíðarhorfur eru ugg-
vænlegar. A hinn bóginn ber
þess að geta, að uppruni núver-
andi efnahagsástands á á marg-
an hátt rætur sfnar að rekja til
stjórnarsetu Ihaldsflokksins,
sem einmitt af þessum sökum
beið kosningaósigur snemma á
siðastliðnu ári.
Það var í stjórnartíð Ihalds-
flokksins, sem Bretland gerðist
aðili að Efnahagsbandalagi Evr
ópu. Þessi innganga i Efna-
hagsbandalagið hefur löngum
verið pólitískt þrætuepli al-
mennings, og nú þegar á ógæfu-
hliðina hefur sigið, hafa ýmsir
orðið til að kasta sökinni á veru
Bretlands í Efnahagsbandalag-
inu. Þær raddir gerast æ há-
værari er krefjast úrsagnar úr
bandalaginu og í neðri málstofu
þingsins hefur þessi krafa hlot-
ið verulegan hljómgrunn, eink-
um meðal þingmanna Verka-
mannaflokksins. Ákvörðun um
slíka úrsögn verður þó einungis
tekin með þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem væntanlega verð-
ur gengið til í júní nk., þannig
að líkur benda til að um endur-
nýjaða afstöðu Breta til banda-
lagsins verði að ræða á árinu.
Það má ugglaust til sanns
vegar færa, að vera Bretlands f
Efnahagsbandalagi Evrópu
hafi ekki orðið þjóðinni jafn
gæfurfk og til var ætlazt. A
hinn bóginn er það fásinna að
ætla, að sá efnahagsvandi sem
við er að etja, sé að verulegu
leyti sprottinn af inngöngu
Bretlands i bandalagið. Eigin-
legra orsaka síversnandi þróun-
ar brezkra efnahagsmála er
hvort tveggja að ieita í Bret-
landi sjálfu, svo og i þeirri þró-
un alþjóðlegra efnahagsmála,
er ýmsir hafa viljað kenna við
nýja heimskreppu. Þannig virð-
ist brezkt efnahagskerfi ekki
enn hafa fyllilega rétt úr kútn-
um eftir langvarandi og víðtæk
verkföll í árslok 1973 og árs-
byrjun 1974. Þá má að nokkru
leyti rekja orsakir þessa til
rangrar stefnumótunar Verka-
mannaflokksins f efnahagsmál-
um, sem m.a. hefur komið fram
í versnandi rekstrarafkomu
þjóðnýttu iðngreinanna. A hinn
bóginn hefur hækkandi hrá-
efnaverð á heimsmarkaði, olíu-
kreppan ofl. orðið til að gera
Bretum erfiðara um vik. En á
meðan stjórnmálamenn og hag-
fræðingar deila um markmið og
leiðir til að koma þjóðarskút
unni að nýju á réttan kjöl, virð-
ist Bretland sökkva æ dýpra í
ólguhaf verðbólgunnar.
Gfsli Ág. Gunnlaugsson.