Morgunblaðið - 14.02.1975, Page 32

Morgunblaðið - 14.02.1975, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1975 hún, eða því hefndir þú þín ekki á honum? Ormur kvað það ekki sæma, að menn erfðu slíkt lengi. Þá skal ég ekki vera búin að gleyma því í kvöld, sagði Ingveldur, enda er mér það ekki minni skömm en þér sjálfum, því það er eins og ég hafi aldrei tímt að gefaþér að éta. Ekki töluðu þau mæðgin meira um þetta að því sinni. Á meðan þeir sveinarnir glímdu, höfðu þeir bænd- urnir haldið áfram að draga úr réttinni, og var nú komið að því, að þeir þar af næstu bæjunum dragi sitt fé; dróu þeir jafnan síðastir, en þeir, sem voru lengst að, drógu fyrst. Sá maður var þar við réttina, er Ásbjörn hét, er svo var glöggur á fé, að hann þekkti hverja kind, ef hann hafði séð hana einu sinni áður; hann vissi og, hvaða mark hver maður átti í hinum tveimur næstu sýslum; hann stóð jafnan í miðjum réttardyrum og skoðaði hverja kind, sem dregin var, og sagði, hver átti, og rengdi hann enginn maður; og kæmi einhvern tíma nokkur ágreiningur milli manna um mörk, var hann látinn skera úr þrætunni, því menn vissu, að Ásbirni bar saman við markabækurnar. Gengu menn nú fast að að draga, eftir að bændaglímunni var lokið. Þessa kind veit ég ekki, hver á, sagði Ásbjörn og þuklaði um eyrun á einni tvævetlu. Kallið þið á hreppstjórann i Tungu; það er allt undir því komið, hvort hér hefur verið biti, en eins er og þarna sé HÖGNI HREKKVÍSI bris á eyranu, piltar, eða hvað segir þú Jón á Lækjamóti? Yfirmarkið er hreppstjórans í Tungu, blaðstýft framan bæði og fjöður aftan vinstra, en sé þarna biti aftan hægra, þá á hann Jón á Gili hana; en metféskepna er það, hver sem hana á, hvar er hreppstjórinn? Hér er ég, eða hvað er þér á höndum núna, Ásbjörn minn? Eigið þér þessa tvævetlu, signor Bjarni? Það veit ég ekki, ef að markið mitt er á henni, þá á ég hana, annars ekki. Hér er nokkur vafi á; þarna eru blaðstýfingarnar og fjöðrin, en skoðið þér nú sjálfir! Hérna er eins og einhver ben hafi verið á eyranu líklegast biti, en illa er hann gerður, og þá á hann Jón á Gili hana; því, eins og þér munið, er markið ykkar eins, nema það sem hann brá bitanum út af, þegar hann kom hérna í sveitina. Ég þori ekki að segja neitt um það, Ásbjörn minn, það er bezt að kalla á fleiri til að dæma um það mál; sækið þið hann Guðmund smala og hann Jón á Gili sjálfan, því ekki vil ég mér sé eignað annað en það, sem ég á. Þá var farið eftir þeim Guðmundi og Jóni, og kom Guðmundur fyrr. Þekkir þú þessa tvævetlu, Gvendur? sagði Ás- björn, á hreppstjórinn hana? Guðmundur skoðaði tvævetluna í krók og kring, en sagði síðan, að þar um gæti hann ekki sagt með neinni vissu. Æ, hvaða smali er það, skrattinn sá arna, að þekkja ekki kindurnar hans húsbónda síns, sagði Ásbjörn; mér er þó skapi næst að halda að hann eigi hana; það er eins og mér sýnist að ég hafi séð þessa kind áður, þegar ég kom fram að húsunum þar í Tungu í vetur, en ekki þori ég að sverja það, held ég, nei, ekki þori ég að sverja það, og siðan þetta bris, sem þarna er á eyranu. í þessum svifunum kom Jón á Gili þar að og skoðaði markið og segir; Mér sýnist enginn vafi þurfa að vera á um hana, markið mitt er á henni, ég á hana. Og ekki er það nú skýrt á henni, markið þitt, en hitt er það, ef þú þekkir hana og þorir að sverja þér hana, sagði Ásbjörn. Hvort sem heldur væri, sagði Jón, þar sem markið mitt er á henni; ég á ekki svo margt féð, að ég ætli að láta hunda draga það af mér sem ég á. Nær er mér þó að segja, að þú eigir ekkert í henni. Rétt í þessu kom Sigriður litla frá Tungu hlaup- andi þar að, sem þeir voru að þrefa um tvævetluna, og kallaði, áður en hún kom til þeirra: Æ, þarna er hún Kolla mín blessuð komin af fjallinu! Hvar sér þú hana? sagði Bjarni. Hérna! Þetta er hún Kolla mín, ég þekki hana. Er þetta hún Kolla þín? gall Ásbjörn við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.