Morgunblaðið - 27.02.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.02.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1975 Jafntefli hjá Friðrik og Keres Moskvu, 26. febr. AP. JAFNTEFLI varð í biðskák Friðriks Ólafssonar og Pauls Keres frá Sovétrfkjunum á skákmótinu f Tallinn í dag, miðvikudag. Sömdu þeir jafn- tefli eftir 74 leiki. Tass fréttastofan segir að Friðrik hafi átt erfiða vörn gegn Keres en honum hafi tek- izt að koma í veg fyrir vinningstilraunir hans. Úrslit í öðrum biðskákum urðu þau, að sovézki skák- meistarinn Taimanov vann Espig frá Austur-Þýzkalandi, en gerði jafntefli við landa sinn Kyarner. Marovic frá Júgóslaviu vann Fernandez frá Kúbu og Rytov frá Sovét- rikjunum vann Kyarner. Stað- an er nú: Keres með 6V6 v, Spassky 5* lÆ v., Bronstein og Friðrik Olafsson hafa 5 vinn- inga hvor og Hort, Gipslis og Marovic 4V$ v. hvor. Búnaðarþingsfulltrúar: Fá 61þúsund krónur fyrir sautján daga ATHYGLI vakti f umræðum á Alþingi í fyrradag, er því var haldið fram að fulltrúar á búnað- arþingi fengju þingmannalaun á kostnað hins opinbera meðan þingið stæði yfir og svo gilti raun- ar einnig um fulltrúa á fiski- þingi. Taldi ræðumaðurinn, Gylfi Þ. Gfslason, þetta fráleita máls- meðferð og spurði hvaða rök væru fyrir því að íslenzka ríkið greiddi Búnaðarþingsfulltrúun- um alþingismannalaun fyrir þingsetuna. I tilefni af þessu sneri Morgun- blaðið sér til þeirra Halldórs Páls- sonar búnaðarmálastjóra, og Más Elíssonar fiskimálastjóra og leit- aði nánari stafestingar á því aó hér væri rétt með farið. Már Elís- son kvað svo ekki vera. Hann benti á að langfiestir þingfulltrú- Hans G. Andersen um fundi Evensen-hópsins: Ný ammomákverksimðja og nauðsynleg virkjun kosta 40 milljarða kr. Á FUNDI Búnaðarþings í gær flutti Runólfur Þórðarson, verk- smiðjustjóri Áburðarverksmiðj- unnar f Gufunesi, erindi um áburðarframleiðslu á tslandi. Það kom m.a. fram f erindi Runólfs að nú eru framleiddir í Gufunesi % hlutar þess áburðarmagns, sem notað er f landinu, en það byggist á innflutningi til blöndunar f verksmiðjunni. Með stækkun saltpéturssýruverksmiðju mætti framleiða allan þann áburð, sem þörf væri fyrir í landinu f dag, þ.e.a.s. með jafnhliða innflutn- ingi á ammoníaki, fosfór og kalf. Slík stækkun á saltpétursýru- verksmiðjunni og bætt hafnarað- staða í Gufunesi og aukið geymslurými er áætlað að mundi kosta rúmlega 1000 millj. króna. Það þarf tiltölulega litla orku eða aðeins 2 megawött til viðbótar, ef lagt væri í þessa framkvæmd. I sambandi við aukna ammoní- akframleiðslu kemur tvennt til greina. Miða framleiðsluna fyrst og fremst við innlenda notkun og þá nokkur ár fram í tímann. Ef afköstin yrðu þrefölduð frá því sem þau eru í dag, þyrfti um 30 mw til vióbótar í orku. Talið er að 1 mw þurfi til að framleiða eitt tonn af ammoníaki. Með þreföld- un á afköstum í Gufunesi þyrfti ekki aukinn mannafla, en fjár- festing gæti orðið 3500—4000 millj. króna. Hugsanlegt er einnig að byggja stóra ammoníaksverk- smiðju, en þá er staðarvalið ekki sjálfgefið, því aðrir staðir á land- inu koma fullt eins vel til greina eins og Gufunes. Algeng stærð á verksmiðjum erlendis er 800— 1000 tonna framleiðsla af ammon- íaki á dag. Orkuþörf fyrir 800 tonna verksmiðju er talin 400— Framhald á bls. 27 0 Utlánatakmark- anir enn í athugun ar á fiskiþingi væru jafnan frá Reykjavík og af Suðurnesjum og fengju þeir engan ferðastyrk greiddan né dagpeninga. Hinir sem væru lengra að komnir fengju aftur á móti eðlilega greiddan ferðakostnað og þing- fulltrúarnir fengju síðan greitt vinnutap vegna þingsetunnar, en þar væri um að ræða ákveðna fasta upphæð. Már sagði, að fiski- þing kostaði hið opinbera engar stórar upphæðir, það stæði aðeins i 6 daga og þinghaldið væri þar að auki greitt að þriðjungi af sjávar- útveginum sjálfum. Halldór Pálsson búnaðarmála- stjóri upplýsti, að búnaðarþing hefði árið 1973 kostað 1.7 milljón- ir króna og í fyrra hefði það kost- að 2.1 milljón króna. Tölur fyrir yfirstandandi þing liggja enn ekki fyrir. Alls áttu um 25 fulltrúar sæti á búnaðarþingi í fyrra en sjálft þingið stóð í 17 daga. Reikna má með 2 dögum í ferðalög og jafnvel þrjá fyrir þá lengst að komnu, þannig að reikna má með að um 20 dagar hafi farið í þingið í fyrra fyrir hvern þingfulltrúa. Að sögn Halldórs fengu þingfulltrúar Framhald á bls. 27 Hannes afhend- ir trúnaðarbréf HANNES Jónsson afhenti forseta ríkisráðs Rúmeníu, Nicolae Ceausescu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Rúmeníu með aðsetri í Moskvu hinn 25. febrúar sl. „Gagnlegir - en engin endanleg niðurstaða” hve naumur tími væri til stefnu. Olafur Jónsson, framkvæmda- stjóri VSl, kvað báða aðila hafa gert grein fyrir sínum sjónarmið- um á fundinum'með sáttasemjara og andrúmsloftið hefði verið gott á milli aðila, eins og jafnan fyrr i þessum samningaviðræðum. SÁTTAFUNDUR — Sátta- semjari ríkisins hélt fyrsta fund sinn með aðilum vinnu- markaðarins i gær: F.v. Skúli Pálmason, formaður vinnumálasambands Sam- vinnufélaganna, Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri VSl, Jón H. Bergs, formaður VSl, Torfi Hjartarson, rikis- sáttasemjari, Björn Jónsson, forseti ASÍ, Björn Bjarna- son í Iðju og Benedikt Dav- íðsson, formaður Sambands ísl. byggingarmanna. Forsvarsmann bankanna hafa haft til umræðu undanfarið út- lánamál bankanna og þá einkum samræmdar aðgerðir hvað snertir takmörkun útlána. Eftir því sem Mbl. hefur fregnað er að vænta einhverrar niðurstöðu i þeim efn- um nú alveg á næstunni. AKURNESINGAR hafa nú tekið til sýningar „Ertu nú ánægð kerling?" — revfuna sem sýnd var í Þjóðleikhúskjallaranum til skamms tfma við góðar undirtektir. Verður hún frumsýnd í Bfóhöll- inni f kvöld kl. 21. Leikstjóri er Jón Júlfusson, en yfir 20 manns taka þátt í sýningunni. Næsta sýning verður annað kvöld, en ætlunin er að sýna revfuna einnig um nágrannabyggðirnar. fyrsta í gær ur í upphafi og kvað þau störf sem Evensen-hópurinn hefði þeg- ar innt af hendi mundu geta spar- að tíma þegar til ráðstefnunnar í Genf kæmi. Ekki væri heldur óeðlilegt að mun skemmri tima tæki að ná samkomulagi milli 25 aðila en 150 auk þess sem hver togaði í sinn spotta á hinum form- legu fundum ráðstefnunnar og þar færi jafnan mikill tími í karp og málalengingar. Annars kvað Hans G. Andersen Evensen-hópinn hafa með ýmsa aðra þætti hafréttarráðstefnunn- ar að gera en einungis efnahags- lögsöguna, svo sem landhelgi, landgrunnið, fiskveiðar í úthaf- inu, og reyndar kvað Hans gert ráð fyrir að Evensen-hópurinn næði til allra þátta hafréttarráð- stefnunnar áður en lyki, þar á meðal mengunar í sjó. Sr. Jóhann til Hafnar Sr. Jóhann Hlfðar hefur verið ráðinn prestur meðal Islendinga í Kaupmannahöfn frá 15. aprfl næstkomandi og til næstu þriggja ára. Sr. Jóhann hefur undanfarin ár verið sóknarprestur í Nes- kirkju. Skýrslugjöf á sáttafundinum SATTASEMJARI ríkisins hélt fyrsta fund sinn með fulltrúum Alþýðusambands tslands og Vinnuveitendasambandi lslands kl. 2 í gær og stóð fundurinn í tvo og hálfan tima. Sagði Torfi Hjart- arson sáttasemjari, að tyrsti fund- urinn hefði að mestu leyti snúist um skýrslugjöf, þar sem aðilar hvor f sínu Iagi og sameiginlega gerðu grein fyrir stöðunni. Björn Jónsson, forseti ASÍ, sagði að þeir fulltrúar ASÍ hefðu gefið sáttasemjara skýrslu um stöðu samningamála á þessum fundi. Engin ákvörðun hefði ver- ið tekin um næsta fund aðilanna, enda kvað Björn liklegt að sátta semjari þyrfti að ráðfæra sig við þriðja aðila þessarar vinnudeilu — ríkisstjórnina — áður en hann boðaði aðila aftur á fund. ASl hefur boðað til ráðstefnu 3. marz nk. og bjóst Björn við að hún yrði næsti þáttur þessa máls nema al- gjörlega ný viðhorf sköpuðust, sem aldrei væri að vita þó að það gæti varla talizt liklegt vegna þess Þessir fundir hafa verið mjög gagnlegir, enda þótt ekkert end- anlegt hafi komið út úr þeim,“ sagði Hans G. Andersen, sendi- herra í samtali við Morgunblaðið um árangurinn af fundum Even- sen-hópsins í New York dagana 10.—21. febrúar sl. Þessari nefnd var ætlað að samræma mismun- andi kröfur og sjónarmið ólfkra hagsmunahópa meðal þátttöku- ríkja hafréttarráðstefnu Samein- uðu þjóðanna, og var nefndinni komið á fót óformlega, ef svo má segja, en í samráði við forseta ráðstefnunnar f Caracas. 1 henni eiga sæti formenn 25 sendinefnda eða einungis sjötti hluti sendi- nefnda allra þátttökuríkja á ráð- stefnunni, og var Hans G. Ander- sen einn þeirra. Reglulegir fundir voru haldnir af þessum hópi meðan á Caracas- ráðstefnunni stóð, svo aftur í New York um mánaðamótin október- nóvember, nú aftur í New York og fundum verður svo haldið áfram meðan Genfarráðstefnan stendur yfir en hún hefst 17. næsta mánaðar. Hans G. Andersen sagði, aó á öllum þeim fundum sem hingað til hefðu verið haldnir innan Ev- ensen-hópsins hefði hugtakið 200 mílna efnahagslögsaga verið lagt til grundvallar en síðan væri ver- ið aó forma og móta ýmsar grein- ar i kringum það. Engin endanleg niðurstaða væri þó komin í þess- um efnum og þessu starfi yrði haldið áfram á Genfarráðstefn- unni. Sagði Hans að menn yrði að hafa það hugfast, að ekki legóu allir sama skilning í hugtakið 200 mílna efnahagslögsaga, en full- trúar ýmissa ríkja gætu hins veg- ar lýst því yfir að þeir væru til- búnir að fallast á þetta grund- vallarhugtak svo fremi að tillit væri tekið til þessara eóa hinna hagsmuna viðkomandi ríkja. „Vandinn er því að finna sam- nefnara hinna ýmsu sjónarmiða innan þessa grundvallarhugtaks," sagði Hans. Hann lét vel yfir störfum nefndarinnar, eins og fram kem- Varðskipið Týr í reynsluferð HIÐ nýja varðskip Týr mun fara í fyrstu reynslusiglingu á laugardaginn, að sögn Péturs Sigurðssonar, forstjóra Land- helgisgæzlunnar. Skipið er væntanlegt heim frá Dan- mörku um miðjan næsta mán- uð. Nokkrir skipsmanna eru þegar farnir utan, þar á meðal skipherrann, Guðmundur Kærnested. Nokkrir fara út um þessa helgi, en flestir fara utan að sækja skipið þegar það verður tilbúið til heimsigling- ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.