Morgunblaðið - 27.02.1975, Side 12

Morgunblaðið - 27.02.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1975 S j ávarútvegsr áðherr a: Verðákvörðun míðist við gæði afla til vinnslu KARVEL Pálmason (SFV) kvaddi.sér hljóðs utan dagskrár í neðri deild Alþingis sl. mánudag, vegna verðákvörðunar á steinbít, og spurði sjávarútvegsráðherra: 1) hvort honum hafi verið kunn- ugt um þessa verðákvörðun, áður en hún var tekin, 2) hvort hann hafi samþykkt eða staðfest ákvörðunina og 3) ef svo væri ekki, hvað hann hyggðist gera í málinu? Kjartan Ólafsson (K) kom sfð- an í ræðustól, með hliðstæða spurningu, þess efnis, hvað ráð- herra hyggist gera til að koma í veg fyrir stöðvun línubátaflotans á Vestfjörðum? IVIatthías Bjarnason (S) sjávar- útvegsráðherra sagði m.a., aðekki væri í verkahring sjávarútvegs- ráðherra að staðfesta ákvörðun verðlagsráðs sjávarútvegsins né I valdi hans að breyta henni og vitnaði til viðkomandi laga þar um um starfssvið ráðsins. Las hann síðan skýringu Verðlagsráðs á þessari ákvörðun og gerði grein fyrir störfum nefndar, sem fyrrv. sjávarútvegsráðherra skipaði, og reglugerð sem hann gaf út á sinni tfð, þar sem m.a. segir, að steinbit- ur megi ekki nema meiru en 5% af afla úr hverri veiðiferð á tíma- bilinu 1/11—15/3 ár hvert. Hann hafi breytt þessari reglugerð og stytt fyrrgreint tímabil um hálfan mánuð. Síðan gerði ráðherra grein fyrir skýrslu Fiskifélags Islands um steinbítsafla báta í Vestfirðinga- fjórðungi á þessum árstíma, þar sem segir að hann hafi verið óverulegur á undanförnum árum í janúarmánuði og fram eftir febrúar og naumast vinnsluhæf- ur. Reynslan hafi orðið önnur nú f ár, þar sem steinbítur hafi gengið fyrr á mið vestra og reynzt gott hráefni. Persónulega sagðist ráðherra Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra. vera andvígur verðákvörðun, sem bundin væri til svo skamms tíma, að sínu mati ætti hún að miðast við tímabilið allt og gæði aflans, að hann væri hæfur til frystingar. Þingsályktunartillaga: Áhrif hafíss á vöruflutninga fyrir Norðurlandi Lárus Jónsson (S) flytur þings- ályktunartillögu um ofanskráð efni, sem hér fer á eftir ásamt greinargerð: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta kanna afleiðing- ar truflana á vöruflutningum til byggðarlaga á Norðurlandi, ef hafís kynni að leggjast þar að landi, og gera áætlun um hvernig bregðast skuli við slíkum vanda. Jafnframt er rikisstjórninni falið að kanna á hvern hátt unnt er að bregðast við hafískomum, ef stór- fyrirtækjum yrði valinn staður á Norðurlandi. GREINARGERÐ Hafískomur að Norðurlandi hafa sem betyr fer verið fátíðar á þessari öld og' siglingar til norð- lenskra byggðarlaga því lítið truflast af þessum sökum. Engu að síður er það skoðun flm., að til þurfi að véra áætlun um hvernig bregðast skuli við slíkum vanda, ef svo vildi til að hafís legðist að Norðurlandi og truflaði samgöng- ur. Fyrir nokkrum árum starfaði stjórnskipuð nefnd að athug- unum á þessu máli og má vafalítið styðjast allverulega við skýrslur hennar á þessu sviði. Síðari hluti tillögunnar er fram kominn af því marggefna tílefni, að embættis- og stjórnmálamenn, sem fjalla um staðarval stórfyrir- tækja, t. d. orkufrekra stóriðju- fyrirtækja, virðast flestir hverjir haldnir þeirri skoðun að staðarval slíkra fyrirtækja sé útilokað á Norðurlandi sökum hafíshættu. Flm. telur að hér sé um vanhugs- un og vanþekkingu að ræða og vill freista þess með þessum til- löguflutningi að fá því framgengt að umsögnum kunnáttumanna á þessu sviði verði safnað saman og opinber grein gerð fyrir líkum á hafiskomum við Norðurland, svo MMnGI og margvíslegum möguleikum á því að bregðast við slíku þannig að ekki komi til truflana á rekstri stórfyrirtækja, sem þar kynni að vera valinn staður. Viðreisnarstjórnin skipaði á sínum tíma nefnd í samræmi við ákvæði samnings ríkisstjórn- arinnar og Alusuisse, sem skyldi kanna kosti þess að velja álveri stað á Norðurlandi. Þessi nefnd skilaði áliti árió 1972. Hún komst að þeirri niðurstöðu að engin tæknileg hindrun fælist í staóar- vali slíks fyrirtækis við Eyjafjörð sökum hafíshættu. Nefndin rök- SENDIFERÐABIFREIÐ Til sölu Volkswagen rúgbrauð árgerð 1 970. Bifreiðin er til sýnis á venjulegum vinnutíma við vörugeymslu okkar. Eggert Kristjánsson & Co. h. f., Sundagörðum 4. studdi þetta álit sitt í stórum dráttum eins og hér segir, sbr. fylgiskjal I hér á eftir: 1. Unnt er að gefa út hafísspár í nóvember ár hvert, sem gilda fram í september á næsta ári. Þessar spár er unnt að leiðrétta mánaðarlega í samræmi við ríkj- andi vindátt. 2. Myndir frá gervihnöttum er ný og áhrifarík aðferð til þess að fylgjast með hreyfingu hafíss. 3. Jafnvel þótt hafís leggist að landi er hann yfirleitt ekki svo þéttur að sérstaklega útbúin skip geti ekki komist Ieiðar sinnar í gegnum hann með eða án að- stoðar flugvéla. A fylgiskjali II er sýnt hversu fá ár hefur sést til hafíss á þessari öld í hólfum, sem ná á haf út frá Vestfjörðum, fyrir Norðurlandi og ,suður með Austfjörðum: Nitjánda öldin er mesta hafísöld í sögu þjóðarinnar og er glöggt að sióustu áratugi hefur reynslan oróið gjörólík, þannig að segja má að síðan 1910 hafi ekki komið hafis við Norðurland, sem hugs- anlegt er að trufli siglingar, nema árið 1968. A því ári urðu þó engar truflanir á siglingu gæsluskipa við Norðurland að sögn forráða- manna Landhelgisgæslunnar. Vilji menn samt sem áður tryggja sig gegn náttúrufyrir- brigðum eins og hafís, sem hindr- að gæti siglingar með sérstökum skipum, sem sjáifsagt væri að grípa til fyrir stórfyrirtæki á Norðurlandi í hafísárum, er enn fremur ljóst að unnt er að gera ráð fyrir því að birgja sig vel upp meó hráefni, þegar hætta er talin á hafís, skv. ;spám sérfræðinga. Fullyrða má að slíkar öryggisráð- stafanir geta tæpast ráðið úrslit- um um rekstur stórfyrirtækja sem hugsanlega yrði valinn stað- ur á Norðurlandi. Þá sagði ráðherra orðrétt: Það, sem hefur gerzt, er það, að fiskvinnslustöðvarnar á Vest- fjörðum eða á norðanverðum Vestfjörðum, sem taka við þess- um fiski, á ísafirði, Bolungarvík, Súgandafirði, Flateyri og Þing- eyri, hafa samþ. fyrir sitt leyti að greiða það verð sem var á haust inu, svo að útreikningar hv. þm. Kjartans Ölafssonar eru þvf al- gjörlega út í hött. Verðið á s.l. haustí var 19,05 kr. fyrir slægðan steinbít með haus og fyrir óslægð- an 16,80 kr. Verðið á árinu 1974 var aftur 17,15 kr. frá áramótum og 15,15 kr. af óslægðu frá ára- mótum og til 31. ágúst. En hækk- aði þegar ný ríkisstjórn tók við um 11%, um 19,05 og 16,80, eins og ég sagði áðan. Auk þessa kem- ur uppbót á línufisk allan, þar með steinbít. Þessi uppbót á línu- fisk var á árinu 1974 — 31. ágúst — 75 aurar, greiddir af fisk- vinnslustöðvum, og 40 aurar, greiddir af ríkissjóðL_Erá 1. sept. til áramóta hækkaði þetta fram- lag frá fiskvinnslustöðvum um 10 aura eða úr 75 aurum í 85 aura, en ríkishlutinn var óbreyttur 40 aur- ar. Frá áramótum breytist þetta framlag á þann veg, að hluti fisk- vinnslunnar er nú kominn í eina krónu, hækkar úr 85 aurum í 1 kr., en hlutur ríkissjóðs hækkar úr 40 aurum í 60 aura, eða um 50%. Þetta verður líka að taka með í reikninginn. Það er engin deila um það, hvað fiskverðið verður eftir 1. marz, en það sem ég hef mestar áhyggjur af, er hvað verðið á steinbít er lágt, en ekki þetta sem hér er um að ræða, því að þetta er auðvelt að brúa á svo margan hátt. Ég hef haft það til athugunar núna und- anfarna daga, að það verði breytt lögunum um útflutningsgjaldið á þann veg, að magnkvótinn í stein- bít í útflutningi fari i sama flokk og karfa vegna þess verðhruns, sem orðið hefur á steinbít, eins og gert var þegar breytt var með karfa og ufsaflök. Gylfi Þ. Gfslason (A) sagði það rétt, að ekki væri á valdi ráðherra að staðfesta eða samþykkja ákvörðun verðlagsráðs, né breyta henni. Hinsvegar hefði ráðinu orðið á mistök, sem leiðrétta þyrfti með einum eða öðrum hætti. Lúðvík Jósepsson (K) sagði ívitnaða reglugerð, sem hann hefði gefið út, hafa að meginefni fjallað um möskvastærðir botn- vörpu og þorskfisknetja og lág- marksstærðir fisktegunda. Við sig hefði aldrei verið sérstaklega rætt varðandi magnhlut steinbíts 1 lönduðum fiskafla. Kjartan Ólafsson (K) fagnaði ummælum ráðherra, þess efnis, að vinnslustöðvar myndu áfram greiða sama verð fyrir steinbít, er hæfur væri til frystingar, og gilt hefði á sl. hausti. Matthías Bjarnason (S) lagði fram reglugerð, undirritaða af Lúðvík Jósepssyni, þar sem skýrt er tekið fram, að hluti steinbíts i lönduðum afla, tiltekinn árstíma, megi ekki fara yfir 5%. Sumir framangreindra þing- manna tóku margsinnis til máls og urðu þessar steinbítsumræður hinar hörðustu á köflum, en al- mennt létu þingmenn í ljós ánægju með það, að fiskvinnslu- stöðvar á Vestfjörðum greiddu áfram haustverð fyrir vinnslu- hæfan steinblt, þó að lágmarks- verð í ákvörðun Verðlagsráðs væri mun lægra. Páls Þorbjörnssonar minnzt á Alþingi 1 UPPHAFI fundar á Alþingi f fyrradag mælti Asgeir Bjarnason forseti sameinaðs Alþingis eftir- farandi minningarorð um Pál Þorbjörnsson fyrrum alþingis- mann: Páll Þorbjörnsson skipstjórí og fyrrverandi alþingismaður varð bráðkvaddur í heimabæ sfnum, Vestmannaeyjum, síðastliðinn fimmtudag, 20. febrúar, 68 ára að aldri. Páll Þorbjörnsson var fæddur 7. október 1906 í Vatnsfirði í Norður-lsafjarðarsýslu. For- eldrar hans voru Þorbjörn héraðslæknir á Bíldudal Þórðar- son bónda á Neðra-Hálsi í Kjós Guðmundssonar og kona hans, Guðrún Pálsdóttir prófasts og alþingismanns f Vatnsfirði Ólafs- sbnar. Hann hóf ungur sjó- mennsku úr heimabyggð sinni og vann sjómannsstörf lengstum á árunum 1920—1932. Gagnfræða- prófi við Menntaskólann í Reykja- vík lauk hann utanskóla vorið 1922, var við nám í Stýrimanna- skólanum f Reykjavík veturinn 1929—1930 og lauk þaðan farmannsprófi vorið 1930. Eftir það var hann um skeið stýri- maður hjá Skipaútgerð rfkisins. Árið 1932 fluttist hann til Vest- mannaeyja og gerðist þar kaup- félagsstjóri og sfðar skipstjóri og útgerðarmaður. Síðustu árin stundaði hann umfangsmikil kaupsýslustörf, rak heildsölu- og smásöluverslun með veiðarfæri og aðrar útgerðarvörur. Páll Þorbjörnsson átti sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja á árunum 1934—1950 og gegndi öðrum trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið. Landskjörinn alþingismaður var hann eitt kjör- tímabil 1934—1937, sat á fjórum þingum. Hann var í stjórn Síldar- verksmiðja rfkisins 1935—1937 og yfirskoðunarmaður ríkisreikn- inga 1936—1937. Víst má telja, að ungum hafi Páli Þorbjörnssyni staðið opnar ýmsar leiðir til frama. Hann valdi sér sjómennsku að ævistarfi og vann flest störf sfn í tengslum við sjósókn og siglingar. Á Alþingi átti hann sæti í sjávarútvegs- nefnd, og ræður hans á þingi fjöll- uðu flestar um þau málefni. Á heimsstyrjaldarárunum var hann löngum f siglingum, og auðnaðist honum þá að bjarga mörgum mannslífum úr sjávarháska. I vestmannaeyjum átti hann heimili í rúma fjóra áratugi við miklar athafnir og umsvif og þar féll hann frá skyndilega. Ég vil biðja háttvirta alþingis- menn að minnast Páls Þorbjörns- sonar með því að rísa úr sætum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.