Morgunblaðið - 27.02.1975, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1975
Dalvíkingar vilja
nýjan skuttogara
Inúk vel tekið
á Norðurlöndum
UTGERÐARFÉLAG Dalvíkinga
hf. hefur lagt inn umsókn til
rfkisstjórnarinnar um leyfi til
kaupa á nýjum skuttogara aó
svipaðri stærð og togarinn Björg-
vin, sem er f eigu félagsins.
Björgvin er 407 bróttólestir að
stærð og 46 metra langur. Tilboð
hafa borizt frá tveimur norskum
skipasmfðastöðvum og er kaup-
verð áætlað um 420 milljónir á
núgildandi gengi.
Frá þessu er skýrt i blaðinu
íslendingi á Akureyri fyrir
stuttu. Kemur það fram i samtali
sem blaðið á við Hilmar Daníels-
son stjórnarformann Otgerðarfé-
lags Dalvíkinga hf., að ástæðan
fyrir væntanlegum skuttogara-
kaupum sé óvissa sem ríki um
áframhaldandi útgerð Aðalsteins
Loftssonar á skuttogaranum
Baldri, sem er af stærri gerðinni,
um 1000 tonn, en útgerð hans
mun hafa gengið erfiðlega.
Frystihús KEA hafi tekið við
öllum afla hjá Björgvin og Baldri
og það skapað samfellda vinnu.
Björgvin geti ekki einn haidið
frystihúsinu gangandi með afla
sínum og þvf sé nauðsynlegt að fá
nýjan skuttogara af minni gerð-
inni ef útgerð Baldurs verður
hætt og hann seldur frá Dalvik.
Athugað var hvort innlendar
skipasmíðastöðvar gætu tekið að
sér smíði togarans, en hún leiddi í
ljós að enginn þeirra gat afgreitt
togarann nægilega fljótt fyrir
félagið, segir í frétt Islendings.
Rekstur togarans Björgvins
gekk nokkuð vel sl. ár. Afli tog-
arans 11 mánuði ársins var 3000
tonn að verðmæti 82 millj. króna.
Er sú útkoma í góðu meðallagi af
togara af hans stærð að vera. Ut-
gerðarfélag Dalvfkinga er í eigu
sveitarfélagsins, Kaupfélags Ey-
firðinga og Björgvins Jónssonar.
EINS OG áður hefur verið getið
fór leikflokkur á vegum Þjóðleik-
hússins nýiega til Norðurland-
anna og sýndi inúk I f jórum borg-
um.
Alls urðu sýningar 13 á 11
dögum, 5 f Stokkhólmi, 2 f Vasa, 3
f Þrándheimi og 3 I Kaupmanna-
höfn.
Inúk hefur hlotið mjög lofsam-
lega dóma í blöðum, t.d. segir
Hufvudstadsbladet i Finnlandi,
að leikurinn hafi verið svo hríf-
andi og nýstárlegur, að áhorf-
endur hafi setið sem steini losnir
þar til lófatakið fyllti salinn.
Svenska Dagbladet segir, að sýn-
ingin hafi endurspeglað ljóðræna
viðkvæmni, um leið og
miskunnarlaus hreinskilni hafi
verið notuð til að koma boðskap
leiksins á framfæri.
Þá segir Politiken að hér hafi
verið um að ræða yfirlætislausan
en óvenjulegan leikviðburð, sem
hafi verið gott dæmi um hvernig
hægt sé að nota nútímaleikhús.
Inúk er árangur samstarfs leik-
aranna fimm, Brynju Benedikts-
dóttur, Helgu Jónsdóttur, Ketils
Larsen, Þórhalls Sigurðssonar og
Kristbjargar Kjeld, sem fóru til
Grænlands ásamt Haraldi Ölafs-
syni til að safna efni f leikinn.
Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir. 1 leikför hópsins til
Norðurlandanna var Sveinn
Einarsson fararstjóri. Nú hefur
komið til mála, að farið verði með
Inúk á leiklistarhátið í Frakk-
landi í vor, auk þess sem óskað
hefur verið eftir fleiri leiksýn-
ingum á Norðurlöndunum.
NýaLssinnar skora á
alþingismenn að fella
fóstureyðingarfrumvarpið
MBL hefur borizt eftirfarandi
áskorun til alþingismanna, sam-
þykkt á félagsfundi Nýalssinna 5.
febrúar s.l.:
„1. Fundurinn samþykkir að
skora á alþingismenn að fella
frumvarp það, sem nú er til með-
ferðar á alþingi um greiðari að-
gang að framkvæmd fóstureyð-
inga en verið hefur hingað til.
2. Fundurinn litur svo á að
fóstureyðing skuli aðeins fram-
kvæmd í neyðartilfellum að
læknisfræðilegu mati (til dæmis
til þess að bjarga lífi móðurinnar,
eins og gert hefur verið hingað til
hér á landi), en alls ekki af félags-
legum ástæðum, eins og til dæmis
vegna fátæktar, aldurs, ósam-
komulags foreldra eða eigin geð-
þótta móðurinnar, eins og sumir
mæla meó. 1 stað þess að grípa til
þess neyðarúrræðis sem fóstur-
eyðing er, ættu menn að beina
orku sinni að þvi að bæta aðstöðu
þeirra mæðra sem illa eru settar.
3. Fundurinn telur að fóstur-
eyðing sé illt verk, ekki aðeins
vegna þess að þar er verið að
stytta æviskeið einstaklings, sem
þegar hefur eignast sitt sérstaka
svipmót, heldur einnig vegna
þeirra skaðlegu áhrifa, sem slíkt
kann að hafa á framlíf fóstursins.
Þvi verður ekki lengur neitað, að
fullgild vísindaleg og heimspeki-
leg rök eru nú komin fram fyrir
framlifi einstaklingsins á öðrum
hnöttum að Ioknu lifi hér á jörð.
Og alþingismenn geta ekki leyft
sér að setja lög, sem gætu skaðað
framlíf manna, án þess að hafa
áður kynnt sér rökin í því máli.“
FÁEINIR BÍLAR TIL GAZ-24
AFGREIÐSLU STRAX.
Á GAMLA VERÐINU
Ásetlaö verö meö ryövörn
831.675
góölr greiösluskllmólar
Bifrei
Biíreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
Sudurlandsbraut 14 - llrykjavik - Simi 38600
Óska eftir að kaupa
netaútbúnað á einn bát strax.
Uppl. í síma 92-2707 eftir kl. 7 á kvöldin.
Hestamannafélagið
Fákur
FRÆÐSLU-
OG MYNDAKVÖLD
verður haldið í félagsheimili Fáks fyrir unglinga
mánudaginn 3. marz kl. 8.30. Sýnd verður
kvikmynd af hestum. Rætt um meðferð hesta.
Þeir sem ætla að vera í reiðskála Fáks eru
sérstaklega boðið ókeypis aðgangur.
Allir velkomnir.
Skemmtinefnd Fáks.
Bifvélavirkja,
vélvirkja
eða mann vanan viðgerðum á vörubílum
og þungavinnuvélum óskast strax.
Upplýsingar í síma 52050.
Ýtutækni h. f.
Kerfisfræðingur
— Programmer
Óskum að ráða kerfisfræðing og / eða
programmer, er hafi reynslu í einhverju
eða öllum eftirfarandi forritunarmálum:
Basic, — Fortran, — Assembler, — PL1
— Cobol.
Til greina kemur að ráða tækni- eða
verkfræðing er hafi reynslu í kerfissetn-
ingu.
Starfið hefzt á námskeiði og kynningu
erlendis.
Umsóknir sendist Morgunblaðinu fyrir 3.
marz 1975 merkt: K-8824.
Skrifstofustarf
Stúlka óskast nú þegar til almennra skrif-
stofustarfa við stofnun í Reykjavík. Góð
vélritunarkunnátta áskilin.
Umsókn, er greini nafn, aldur, menntun
og fyrri störf, sendist blaðinu merkt:
,,almenn skrifstofustörf — 661 9".
Framtíðarstörf
Plastprent h.f. óskar að ráða karlmenn,
27—40 ára, til starfa við nýja verk-
smiðju. Hér er um vaktavinnu að ræða og
krefst starfið áhuga og þekkingu i með-
ferð véla. Reglusemi skilyrði.
Umsækjendur þyrftu að eiga bifreið.
Umsækjendur komi til viðtals kl. 1 0—1 1
og 1 4 — 1 6 næstu daga.
Plastprent h. f.
Skrifstofustörf
Vantar stúlku eða karlmann til skrifstofu-
starfa við vinnulaunaútreikning og bók-
hald. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Reglu-
semi áskilin.
Upplýsingar í síma 86431.
Laus staða
Dósentsstaða í stærðfræði í verkfræði- og
raunvísindadeild Háskóla íslands er laus
til umsóknar. Dósentinum er einkum ætl-
að að starfa á sviði tölfræði.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Umsækjendur um stöðu þessa skulu láta
fylgja umsókn sinni ítarlega upplýsingar
um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið,
ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil
sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
20. febrúar 1975.