Morgunblaðið - 08.03.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.03.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975 3 Kaupstefnan Islenzkur fatnaður: Það er auðséð að nemendur Hótel- og veitingaskólans una sér vel við eldhússtörfin, en myndin var tekin þegar undirbúningur fyrir mat- reiðslusýninguna stóð sem hæst. Matreiðslusýning í Sjó- mannaskólanum í dag MATREIÐSLU- og framreiðslu- sýning fer fram I Sjómannaskól- anum f dag og hefst hún kl. 10.30. Það eru nemendur í Hótel- og veitingaskóla tslands, sem standa fyrir sýningunni, en mestan hluta kostnaðarins ber Sláturfélag Suðurlands, sem verður með sýn- ingu á afurðum I húsnæði skólans um leið. Það helzta, sem sýnt verður, er sænskt kalt borð, kjötskurður, hvernig matreiða á nokkra heita rétti, borðskreytingu, framreiðsla logandi rétta og blómaskreyting- ar. Nemendur munu annast útskýr- ingar og svara spurningum gesta auk þess sem sýndar verða kvik- myndir og skýringamyndir. Gest- um verður gefinn kostur á að fá sér léttar máltiðir allan daginn, og er verði veitinganna stillt í hóf. Elhús skólans verður opið gest- um. Að sögn þeirra, sem að sýning- unni standa, er tilgangurinn tvi- þættur, — annars vegar sá að veita nemendum þjálfun í starfi og að kynna starfsemi skólans al- menningi. Það er von kennara og nem- enda, að sýningargestir hafi bæði gagn og gaman af því, sem fram fer á sýningunni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Isienzk iista- verk á uppboði í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn, 7. marz. Frá Braga Kristjónssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. LISTAVERKAUPPBOÐ Arne Bruun-Rasmussen í Breiðgötu í Kaupmannahöfn hefur dagana 11.—14. marz næstkomandi uppboð á myndlist frá þessari öld: málverk, höggmyndir, grafík og keramik. Meðal heimsþekktra lista- manna eru Asger Jorn, Riehard Mortensen, Appel, Georges Braque, Bernard Buffet, Marc Chagall, Salvador Dali, Max Ernst, Giacometti, Káthe Koll- witz, Matisse, Picasso, Vasarely, Jacques Villon, Leger og margir fleiri. i þessum góða félagsskap er m.a. að finna verk eftir þrjá íslenzka myndlistarmenn: Olíumálverk eftir Júlíönu Sveinsdóttur, 54x65 cm að stærð. Málverkið er í skrá upp- boðsfirmans sagt vera frá Vest- mannaeyjum, en þar mun vera um misskilning að ræða. Mats- verð listaverksins er d.kr. 5000 (l'sl. kr. u.þ.b. 150.000) Listaverk eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara; skorið í tré. Nafn listaverks þessa er Móðir og barn og var það sýnt árið 1944 á sýningunni i Char- lottenborg. Aætlað söluverð listaverksins er að áliti fyrir- tækisins d.kr. 7000 (fsl. kr. u.þ.b. 210.000). Olíumálverk eftir Gunnlaug Blöndal: Gladíólur í grænum vasa á borði 61,5x46 cm. Áætlað verð málverksins er d.kr. 8000 (ísl. kr. u.þ.b. 240.000). Ofan á verð á uppboðum þessum, sem fram fara hjá virt- asta fyrirtæki Danmerkur, bæt- ast 30% þóknun og söluskattur. Islenzk málverk eru stundum á uppboðum f Kaupmannahöfn og hefur verð þeirra farið mjög hækkandi undanfarið. T.d. má geta þess, að málverk eftir þá Ásgrím Jónsson og Jón Stefáns- son voru s.l. vor seld á upp- boðum þessum og var verð þeirra frá d.kr. 7000—25000. Er það fyllilega sambærilegt við verð, sem fæst fyrir mörg lista- verk heimsþekktra listamanna á sömu uppboðum. Voru mál- verk þessi eftir Asgrím og Jón Stef. þó alls ekki meðal úrvals- verka þeirra. Vaxandi áhuga gætir í Danmörku á íslenzkri list. Hefur áhugi þessi enn sem komið er einkum beinzt að hinum eldri málurum, en í seinni tíð hafa danskir lista- verkasafnarar lagt sig nokkuð eftir verkum yngri myndlistar- manna, einkum þeirra, sem hér hafa verió búsettir: Alfreðs Flóka, Tryggva Ölafssonar og Vilhjálms Bergssonar. 17 framleiðendur sýna vor- og sumarfatnaðinn KAUPSTEFNAN Islenzkur fatn- aður stendur nú að Hótel Loft- leiðum. Hún var opnuð s.l. fimmtudag og lýkur í dag. Þetta er f f jórtánda sinn, sem slfk kaup- stefna er haldin, en hún er aðeins opin kaupmönnum, innkaupa- stjórum og öðrum þeim aðilum, sem starfa að sölu fatnaðar. Sautján fyrirtæki taka þátt f kaupstefnunni að þessu sinni og er sýndur vor- og sumartízkufatn- aður, sem von bráðar verður kom- inn í verzlanir. Davíð Sch. Thorsteinsson, for- maður Félags fsíenzkra iðnrek- enda flutti ræðu við opnun kaup- stefnunnar. I henni kom m.a. fram, að á s.l. ári nam útflutning- ur ullar- og skinnavöruiðnaðarins rúmlega 1.200 milljónum króna. Davíð sagði, að á sama ári virtist gjaldeyrissparnaður vegna fata- iðnaðarins nema rúmum 850 milljónir króna, en hefði allur fatnaður, sem keyptur var á árinu 1974 verið framleiddur hér á Jeppi stór- skemmdur eftir veltu STÓR amerfskur jeppi valt á Háaleitisbraut laust f.vrir klukkan 17 i gærdag. Bíllinn var á leið suður Háaleitisbrautina. Þegar hann var kominn suður fyrir Hvassaleiti, á móts við Brekkugerði, missti bílstjórinn stjórn á jeppanum, en á þessum kafla mjókkar Háaleitisbrautin í eina akrein. Valt bíllinn, rakst á ljósastaur og hafnaði loks á hjól- unum. Bifreiðarstjórinn var einn í bílnum og slapp hann ómeiddur, en bifreiðin er mikið skemmd. Grunur leikur á að bíllinn hafi verið á töluvert mikilli ferð. Alvarlegt vinnuslys: Steyptur veggur féll yfir mann ALVARLEGT vinnuslys varó í Kvistalandi i Foss- vogshverfi í Reykjavík um klukkan 14.30 í gærdág. Veggur úr strengjasteypu féll ofan á tvítugan pilt og hlaut hann alvarleg meiðsli. Hann var fluttur á slysadeild Borgarsjúkra- hússins og þaóan á gjör- gæzludeild sjúkrahússins og liggur hann þar nú. Hann er þó ekki talinn í lífshættu. meiðsli hans voru þó ekki full- könnuð þegar Mbl. hafði síðast fregnir. landi, hefðu sparazt 600 milljónir króna í gjaldeyri að auki. I ræðu sinni minntist Davið á loforð, sem þáverandi ríkisstjórn gaf íslenzkum iðnaði í sambandi við inngöngu Islands i EFTA og sagði hann stjórn Félags isl. iðn- rekenda álíta, að um svo stórkost- legar vanefndir hefði orðið að ræða, að ekki yrði við unað, og þvi hefði það verið, að iðnrekendur hefðu farið þess á leit við núver- andi ríkisstjórn i september s.l. að sótt yrði um framlengingu aðlög'* unartíma Islands að EFTA og EBE um þrjú ár. Helztu ástæður fyrir þessu kvað Davíð vera verðstöðvanir, sem staðið hafa nær óslitið frá 1. nóv. 1970 og til þessa dags, vanefndir á EFTA-loforðunum, gengisbreyt- ingar á íslenzkri mynt með til- færslum til þeirra greina atvinnu- lífsins, sem gengið er einkum miðað við og 20% innflutnings- skatt, sem enn væri lagður á allar vélar og tæki framleiðsluiðnaðar. Þá greindi hann frá viðræðum við ríkisstjórnina vegna þessarar málaleitunar, en þar kom fram, að ríkisstjórnin taldi ekki stætt á því að framlengja aðlögunar- tímann að EFTA og EBE um þrjú ár, en hins vegar hefði því verið heitið að gerð yrði úttekt á stöðu framleiðsluiðnaðarins og áhrifum EFTA-aðildarinnar á hann, og sagði Davið, að þessi rannsókn Framhald á bls. 20 Snjóflóða- söfnunin 30 milljónir SNJÓFLÓÐASÖFNUNIN vegna þeirra sem urðu fyrir ástvina- missi á Neskaupstað nam ( gær 30.059.067 krónum. Stærstu gefendur frá því er síðast var skýrt frá heildarsöfn- unarfjárhæð eru: starfsfólk Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi og í Reykjavík, 166.500 krónur, Starfsmannafélag KEA, 261 þúsund krónur, Kaupfélagið Hringurinn, 100 þúsund krónur, og Grafiska sveinafélagið og Hið islenzka prentarafélag, 100 þús- und krónur. Þá hefur Institut Raoul Follerau sem vinnur að málefnum holdsveikra fyrir milli- göngu franska sendiráðsins gefið 348.500 krónur. Gunnlaugur Blöndal: Gladiólur 1 vasa Þar sem slysið gerðist er verið að reisa einingarhús í strengja- steypu. Inni í húsinu var veggur úr sama efni, en hann var ekki fullfrágenginn heldur tyllt með fleygum. Þegar slysið gerðist var verið að dæla pússningasandi inn í húsið. Myndaóist mikill titr- ingur i húsinu og þessi titringur hefur líklega valdið því að vegg- urinn féll. Pilturinn var að vinna nálægt veggnum. Tók hann ekki eftir því þegar veggurinn fór af stað. Vinnufélagi hans varð hins vegar var við það og hrópaði til hins að gæta sin. Hörfaði hinn þá undan veggnum og ætlaði að reyna að komast inn í annað her- bergi og forða sér þannig. Það tókst hins vegar ekki og féll veggurinn á manninn og kom mesta höggið á brjóstkassann. Hlaut hann þar mest meiðsli, en Sýningu Ástríðar Ander- sen lýkur á sunnudagskvöld GÓÐ AÐSÓKN hefur verið að málverkasýningu Ástríðar Andersen að Hamragörðum við Hávallagötu, en þar sýnir hún 50 olíumálverk, flest frá síð- ustu árum. Sýningunni lýkur nk. sunnudagskvöld, 9. marz. Hún verður opin um helgina, kl. 14—22, bæði laugardag og sunnudag. Sigurjón Ólafsson: Móðir og barn. Tré

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.