Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975 Loftbrúin til Phnom Penh AÐEINS eitt flugfélag heldur uppi farþegaflugi til umsetnu höfuðborgarinnar Phnom Penh, og það er kambódíska flugfélagið Air Cambodge. Engu að síður er Pochentong flugvöllur við höfuðborgina, sem svo til daglega liggur undir eldflaugaárásum kommúnista, upptekinn við að sinna bandarískum flutn- ingaflugvélum, sem sjá borg- arbúum fyrir vistum. Gömul Caravelle-þota Air Cambodge heldur uppi dag- legum ferðum til nærliggj- andi höfuðborga eins og Bangkok, Saigon og Singa- pore. Hún flýgur yfir Phnom Penh þegar hún kemur inn til lendingar á Pochentong, því yfir borginni sjálfri er minni hætta á eldflaugaárás. í að- fluginu snar-lækkar þotan flugið, og kemur inn í 45 gráðu horni. Strax eftir lend- ingu er Caravelle-þotunni ek- ið hratt inn í skýli úr skot- færakössum, sem fylltir eru af mold. Farþegarnir, sem oftast eru fáir til Phnom Penh, flýta sér síðan inn í flugstöðina. Biðstofan þar er venjulega þéttsetin evrópsk- um og víetnömskum fjöl- skyldum, sem fylgja ráðum sendiráða sinna um að fara frá Kambódíu. Úti á flugvélastæðinu, rétt hjá Caravelle-þotunni, má oft sjá risastóra DC8-þotu, merkta „Airlift International''. Flugvél þessi, sem getur bor- ið 45 tonn af varningi, er ein þriggja véla af þessari gerð, sem leigðar voru til tíu daga til að flytja vörur frá Thai- landi. Hefur leigutíminn nú verið framlengdur. DC8 þoturnar voru fengnar til viðbótar við Birdair, sem er einkaflugfélag Bandaríkja- mannsins Willis Bird. í upp- hafi var Bird með fimm C1 30 flutningaflugvélar, sem hann hafði á leigu frá bandariska flughernum. Nú er hann að fa sjö C130 til viðbótar. Get- ur hann þá flutt 20 farma til Phnom Penh daglega, en oft- ast er farmurinn hjá honum skotfæri. Auk ofangreindra flugvéla er á Pochentong flugvelli fjöldi véla af gerðunum DC3 og DC4. Þær eru í hópum við flugstöðina eins og dúfnager. Þessar flugvélar eru i eigu margra smáfélaga, sem flest voru mynduð í fyrra þegar rauðliðum Khmer Rouge tókst að loka sex helztu þjóð- vegunum til Phnom Penh. Þessi litlu flugfélög nutu stuðnings bandaríska sendi- ráðsins, sem sá um að þau fengu niðurgreitt eldsneyti. Þau fljúga ekki utan Kambódiu. Hlutverk þeirra er að ferja hrísgrjón og önnur matvæli frá svæðum stjórnar- hersins til Phnom Penh og frá höfuðborginni til svæð- anna úti á landsbyggðinni, sem enn eru í höndum stjórn- arhersins. Við síðustu könn- un voru þessi flugfélög orðin 29, og flest þeirra hagnast ríflega. KÍW/ atít THE OBSERVER Eftir Stewart Daiby Litlu flugfélögin hafa dreg- ið til sín fjölda ævintýra- manna. Margir flugmann- anna störfuðu áður hjá Air America, sem bandaríska leyniþjónustan CIA fjármagn- aði. Halda þeir mikið til á kaffiteríunni á Pochentong, ásamt kambódískum her- mönnum.sem jafnan ganga í skotheldum vestum á flug- vellinum. Eins og svo margir staðir aðrir í Phnom Penh hefur kaffiterían séð betri daga. Þar er alltaf mikill mann- fjöldi, flugmenn, fjölskyldur að biða komu ættingja, Viet- namar að kveðja, og blaða- menn að drekka í sig kjark áður en þeir stiga um borð i þotu Air Cambodge, því allt- af er hætta á eldflaugum. Ekki hefur kaffiterian upp á mikið að bjóða, og maður hefur það á tilfinningunni að bráðum verði þar ekkert á boðstólum. Það er í rauninni hálf grát- broslegt að flugvallarkaffiter- ian hafi upp á svo litið að bjóða, því Pochentong er nú lifæð Phnom Penh. Frá því um áramótin hafa Khmer Rouge safnað saman 1 0 þús- und manna her á bökkum Mekong-fljótsins, og nota tundurdufl, 107 millimetra eldflaugar og hríðskotabyss- ur gegn skipalestum, sem reyna að komast upp fljótið frá Saigon. Fljótið er vatnslit- ið á þessum árstíma, og rauðliðum hefur tekizt að sökkva að minnsta kosti 16 skipum. Aðeins einni skipa- lest tókst að komast til Phnom Penh á þessu ári, og það var í lok janúar. Matvælaskortur var enn ekki orðinn alvarlegur í fe- brúarlok, vegna þess að fyrir áramótin hafði tekizt að koma upp miklum varabirgð- um af hrisgrjónum, auk þess sem mikil grænmetisrækt er stunduð i Phnom Penh. Væri hinsvegar ekki um neina matvæla- og eldsneytisbirgð- ir að ræða, þyrfti að flytja 1.500 tonn af vistum til höf- uðborgarinnar daglega. Þetta magn skiptist þannig að 500 tonn þarf af hrís- grjónum, 300 tonn af elds- neyti, 200 tonn af öðrum nauðsynjum, og 500 tonn af skotfærum. Nú þegar skortir eldsneyti til að tryggja nægt rafmagn, og benzin til bif- reiða er skammtað mjög naumt. DC8 þoturnar og C130 vélarnar flytja nú daglega um 700 tonn af skotfærum til höfuðborgarinnar, en aug- Ijóst er að fáist leigusamning- ur vélanna framlengdur, verði þær einnig notaðar til matvælaflutninga. Vafasamt er þó að unnt verði að sjá Phnom Penh fyrir öllum nauðsynjum flugleiðis. Það tæki til dæmis 100 ferðir C130 flugvéla til að flytja 1.500 tonn. Tæknilega yrði það mögulegt, en kostnaður- inn yrði gífurlegur. Það eina sem þessir bandarísku stuðningsmenn Lon Nol stjórnarinnar geta gert er að halda loftflutning- unum áfram í lengstu lög, og vona að að minnsta kosti einni skipalest takist að brjót- ast upp Mekong fljótið. Ein skipalest gæti flutt höfuð- borginni vistir til hálfs mán- aðar. Horfurnar á því að Me- kong-fljótið opnist og skipa- lest nái upp til Phnom Penh eru vægast sagt mjög litlar, Rauðliðar hafa komið sér mjög vel fyrir á fljótsbökkun- um, og allar tilraunir stjórnar- hersins að undanförnu til að hrekja þá þaðan hafa runnið út í sandinn. Minnkandi matarbirgðir og orkuskortur blasa nú við íbú- um Phnom Penh. Það verður því sennilega vaxandi um- ferð um Pochentong flugvöll- inn meðan unnt verður að halda honum opnum. Vistum varpað niöur í fallhlífum til afskekktrar herstöðvar. Sumarbústaðaland Til sölu sumarbústaðaland 1 hektari eignaland 20 km frá Reykjavík. Skipti koma til greina á góðum bíl verð 500—600 þús. Upplýsingar í síma 72596 eftir kl. 7 á kvöldin. Reykjavík-Kaupmannahöfn Gott húsnæði i Kaupmannahöfn óskast í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð í Reykjavík síðari hluta næsta sumars u.þ.b. 1 mán. Tilboð sendist Mbl. f. 1. apríl merkt Sumar 9686. Atvinna 20 ára gömul stúlka óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Er vön afgreiðslustörfum. Meðmælí fyrir hendi, ef óskað er. Vinsam- lega hringið i sima 50363. Til sölu er 314 tonna dekkuð trilla. Þarfn- ast viðgerðar á vél og dekki. 40 grásleppunet fylgja. Upplýsingar i sima 95-5453. Kanarieyjaferð Til sölu farseðill til Kanarieyja. Selst með afslættí. Uppl. í sima 99-3246. Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Sími 53044. Keflavik Til sölu glæsileg 2ja herb. nýleg íbúð. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik, simi 92- 3222. Hver er stúlkan sem um miðjan þennan mánuð átti fertugsafmæli (eða 24 eða 25 ára afmæli) og vill skrifast á við ógiftan, efnaðan menntamann með hjónaband fyrir augum. Svar (ásamt mynd sem verður endur- send) sendist Sunder-ThG Póst- hólf 1 1 59, Reykjavik. vcRKimmiu CHotXJB r\ Fóöur HAGSTÆTT VERÐ Þær svíkja ekki bandarísku fóöurvörurnar WAYNE fóöur BLÖNDUR LU0jc etUBGMSO® Hann er víöa — en ekki í nýja Globus-fóðrinu frá ALLIED MILLS í Bandaríkjunum Allied Mills er meðal stærstu fóðurvörufyrirtækja þar í landi og framleiðir aðeins úrvals fóður HLAÐIÐ ORKU Leitið upplýsinga — Pantið strax 1 Alltafgreitt ísterkumtrefjaplastsekkju Höfúm til afgreiðslu nú þegar A kúafóðurblöndu með 15% meltanlegu hrápr 100 FE/ 100 KG Maisinnihald 51% B kúafóðurblöndu með 12% meltanlegu hrápr 100 FE/100 KG Maisinnihald 61% Eldissvínafóður með 1 3% meltanlegu hrápr 100 FE/ 1Ö0 KG G/obus? LÁGMÚLI 5, SÍMI 815 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.