Morgunblaðið - 08.03.1975, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975
Frá skákmót-
inu í Tallinn
Þegar þetta er ritað er lokið 12
umferðum af fimmtán á skákmót-
inu í Tallinn í Eistlandi og er
staðan þannig: 1. Paul Keres
(Sovétr.), 9,5 v., 2. Friðfik Ólafs-
son 8,5 v., 3. D. Bronstein
(Sovétr.). 8 v., 4. W. Hort
(Tékkósl.) 7,5 v., 5.-6. B.
Spassky og A. Gipslis (Sovétr.) 7
v., 7.—8. Marovic (Júgósl.) og
Espig (A.-Þýzkal.) 6,5 v., 9. Lom-
bardy (U.S.A.) 6 v., 10. Taimanov
(Sovétr.) 5,5 v., 11. Nei (Sovétr.)
5 v., 12.—13. Rytov (Sovétr.) og
Rantanen (Finnl.) 4,5 v., 14.—15.
Kjarner (Sovétr.), Lengyel
(Ungvl.) og Hernandez (Kúba)
3,5 v.
Frammistaóa Friðriks Olafsson-
ar er með miklum glæsibrag og
má hiklaust reikna með því að
hann hafni í einu af allra efstu
sætunum. Ekki hefur mér tekizt
að afla frétta af töfluröó kepp-
enda, en eftir þvi sem ég kemst
næst á Friðrik eftir að tefla við þá
Bronstein, Gipslis og Hernandez.
1 þessum þætti skal ekki fjölyrt
um frammistöðu einstakra kepp-
enda, en um mótió í heild verður
fjallað þegar endanleg úrslit
liggja fyrir.
Engar skákir hafa mér enn bor-
izt frá Taliinn, en nokkrar stöður
hef ég séð. I 2. umferð tefldi
Friðrik við Boris Spassky og hafði
hvítt. Eftir 34. leiki hvíts kom
þessi staða upp:
Staðan virðist jafnteflisleg, en
Spassky tókst að skapa sér nokkra
vinningsmöguleika og nú skulum
við sjá, hvernig skákin tefldist:
34. — b4!
(Við fyrstu sýn gæti þessi leikur
virzt ósköp sakleysislegur, en
hvitur á nú úr vöndu að ráða. 35.
Rxa4 — Ha6, 36. b3 — bxa3 væri
svörtum í hag; og eftir 35„.axb4 —
Bxb4 stæöi svartur einnig mun
betur að vígi).
35. Rdl — b.'í!
(35. — bxa3, 36. bxa3 — Bxa3, 37.
Ha2 hefði auðvitað ekkert að
segja, en nú verður hvítur að tefla
mjög nákvæmt).
36. IId4 — Bf6, 37. Hxa4 — Hcl,
38. Rf2 — Bxb2, 39. Kd3
(Nú virðist jafnteflið blasa við).
30. — Bc3!
(Nei takk. Hvítur má auðvitað
ekki drepa hrókinn vegna 40. —
b2 og vinnur).
40. Ha8+ — Ke7, 41. Ha7+ —
Kd6, 42. Hb7 — Hbl, 43. e4 — f6,
(Ekki 43. — b2, 44. Ke3 og hvítur
heldur jöfnu).
44. Hb6+ — Kc7, 45. Hb5! — Bd4,
46. Rc5!
(Skemmtileg skiptamunsfórn,
sem þvingar fram jafntefli).
46. — Kc6
(Svartur á ekkert betra).
47. Rxh3! — Kxb5, 48. Rxd4+ —
Kc4, 49. Rxe6 — g6, 50. Rf8 — f5,
51. exf5 — gxf5, 52. Rg6 — Kd4,
53. Kg2 — Kd5, 54. Kh3 — Hb2,
55. Re5 og hér sættust keppendur
á jafntefli.
M0S6DRBLABIB
fyrir 50 árum
ÍSAFIRÐI — Tekjuskattur var nýlega lagður á hjer kr.
27,700. í fyrra var lagt á kr. 18,000.
Fiskreiti, mjög stóra, er enska útgerðarfjelagið Hellyer að
láta gera í Hafnarfirði.
Græna gyðjan heitir mynd, sem Gamla Bíó sýnir um þessar
mundir. . . Mynd þessi er víða áhrifamikil, en það merki-
legasta við hana er það, að sá sem leikur aðalhlutverkið, er
lifandi eftirmynd Jónasar frá Hriflu í öllu útliti, og þarf hann
þá ekki frekari lýsingar við.
Sakamálarannsókn hefir dómsmálaráðuneytið skipað að
höfða gegn Alþýðublaðinu fyrir guðlast, sem stóð í einni
aðsendri grein í því fyrir skömmu. Málið er komið til bæjar-
fógeta, og hefir ritstjóri Alþýðublaðsins sagt til um höfund
greinarinnar, og heitir hann Brynjólfur Bjarnason, og mun
vera stúdent. . . Ummæli þau, sem valda sakamálsrannsókn-
inni, eru þessi um guð. . . „Þó að allir eiginleikar hans sjeu
útskýrðir ítarlega og menn gangi þess ekki gruflandi, að hann
sje ekki annað en öfundsjúkur harðstjóri og óþokki".
3—4 herbergi með eldhúsi og stúlknaherbergi óskast til leigu.
Tilboð sendist blaðinu.
Nýir
bílar
frá
Ford
Þó kostnaður vi8 að koma með nýjar gerðir bila á markaðinn sé nú
gífurlegur, hefur það ekki aftrað Ford i Bretlandi frð að koma með algjörlega
nýja gerð af einum mest selda bil sinum, sem er Escort.
Boddýið er algerlega nýtt en er byggt utan um nokkurn veginn sömu
gömlu „mekanisku" hlutina. Ford reiknar með að einfaldleiki og sparneytni
séu mikilvægustu atriðin í nýjum bíl í dag. Það sem hefur tekist að gera er að
skapa meira rum, stærri gluggafleti, aukin þægindi, meira úrval tegunda og
þýðari gang að þvi er þeir segja. Billinn verður fyrst seldur i Bretlandi 19.
mars og liklegt er að hann berist hingað með vorinu.
Það er um hvorki meira né minna en nitján mismunandi gerðir að ræða.
Munurinn liggur aðallega i mismunandi vélum og auknum eða minnkuðum
þægindum. Allar eru vélarnar 4ra strokka. Sú minnsta er 1098 rúmsm. en sú
stærsta og kraftmesta er 1840 rúmsm. Escortinn i sinni fyrri mynd var orðinn
7 ára gamall og nokkuð gamaldags á sumum sviðum og verður þvi spennandi
að sjá nýja bilinn. Um verðið er varlegast að spá engu þvi það er erfitt hér,
enda ekki komið endanlegt verð á hann i Bretlandi enn.
br.h.
og Chrysler.
Lúxusbíllinn
Ford Escort
Ghia,
4ra dyra
Nýi
Escortinn,
2ja dyra
Chrysler Cordoba er nýr bíll frá Chrysler í Bandaríkjunum. Hann er í sama stærðarflokki og
Mercury Monarch. Cordoba er viðurkenndur sem stæling á Chevrolet Monte Carlo, nema hvað
Cordoba er minni og á að vera aðlagaðri bílamarkaðinum nú um stundir.
tfHMrVMV.'