Morgunblaðið - 08.03.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975
17
Mynd þessi var tekin f Pnom Penh höfuðborg Kambodfu í átökunum þar nýlega. Borgarbúar ieita
skjóls undan eldflaugaárásum skæruliða.
Ford leggur að þinginu
að styðja Kambódíu
Washington, 7. marz.
Frá blaðam. Mbl.
Geir H. Haarde.
FORD Bandarfkjaforseti hélt f
gær áfram herferð sinni til að fá
þingið f Washington til að fallast
á áframhaldandi fjárveitingar til
aðstoðar Kambodiu. Á blaða-
mannafundi sem forsetinn hélt,
margftrekaði hann þá afstöðu
Bandarfkjastjórnar að umbeðin
222 milljón daia aðstoð sé nauð-
synleg, eigi Kambodia ekki að
falla f hendur kommúnistum.
Ford varð greinilega að leggja
mjög hart að sér við að svara
spurningum fréttamanna sem
sjaldan áður hafa gert honum
jafnerfitt fyrir á blaðamanna-
Handteknir úti fyrir skrifstofu
ísl. sendiráðsins í Stokkhólmi
Stokkhólmi, 7. marz AP — NTB
SÆNSKA lögreglan neitar með
öllu að gefa nokkrar upplýsingar
um Japanina tvo, sem handteknir
voru á miðvikudagskvöldið, þar
sem þeir voru að taka myndir og
gera teikningar af byggingunni
við Kommendörsgatan 35. Þar
hafa sex sendiráð aðsetur sitt, þar
á meðal fslenzka sendiráðið.
Haft er eftir góðum heimildum,
að lögreglan viti ekki ennþá hvort
mennirnir höfðu uppi ráðagerðir
um skemmdarverkastarfsemi i
Sviþjóð. Það eina, sem vitað er, er
að þeir komu til Sviþjóðar frá
Noregi fyrir um það bil viku og
höfðu þá fölsk vegabréf. Á gisti-
húsinu, þar sem þeir dvöldust I
Stokkhólmi kölluðu þeir sig
Kazoo Watanalo og Ryoji Yone-
jama, og báðir voru sagðir fæddir
árið 1951. En þegar leitað var
upplýsinga hjá japanska sendi-
ráðinu í Stokkhólmi kom í ljós, að
þetta voru ekki rétt nöfn.
Mennirnir komu i bílaleigubíl
frá Noregi. Þegar þeir voru hand-
teknir, sátu þeir í bílnum úti fyrir
sendiráðabyggingunni og voru i
óða önn að draga upp skissur af
byggingunni. Höfðu þeir þá þegar
tekið hundruð mynda af húsinu
og hefur sænska lögreglan unnið
af kappi að athugun, bæði á ijós-
myndavélum þeirra, filmum og
teikningunum.
Sænska lögreglan er sögð efins
I, að menn þessir tilheyri
japönsku skæruliðasamtökunum
Rauða hernum, þeir eru alla vega
ekki á skrá japanska sendiráðsins
yfir þá, sem eftirlýstir eru á
Norðurlöndum vegna meiritrar
aðilar að þessum samtökum.
Að sögn lögreglunnar verða
engar frekari upplýsingar gefnar
um mál þetta fyrr en á mánudag.
Mennirnir voru yfirheyrðir í dag
Danska þingið ræðir
stjórnarfrumvörp um
íhlutun í vinnudeilur
Kaupmannahöfn, 7. marz.NTB
FYRSTÁ umræða f Þjóðþinginu
danska um sjö lagafrumvörp
rfkisstjórnarinnar um deilurnar
á danska vinnumarkaðinum gaf
alis ekki ijósa vfsbendingu um
niðurstöðu málsins og er jafn
Brezkir þing-
menn sveltir
kynferðislega
London, 7. marz.
Reuter. NTB.
CHARLES Irving, 48 ára gamali
þingmaður brezka lhaldsflokks-
ins, hefur lýst þvf yfir að annrfki
brezkra þingmanna sé svo mikið
og þungbært að enginn tími sé
aflögu fyrir þá tii að stunda nauð-
synlegt og eðlilegt kynlff. Segir
hann að vinnudagur þingmanna
sé iðulega frá klukkan tíu að
morgni og fram til klukkan þrjú,
fjögur á nóttu og sfðan bætir
hann við: „Eg verð að viðurkenna
hreinskilnislega að ég er ekki sá
eini sem er langsoltinn að þessu
ieyti." Hann kvaðst vera að íhuga
að stofna samtök til að berjast
fyrir að fá lagfæringu á vinnu-
tfma þingmanna, svo að einhver
stund yrði aflögu til kynlffs.
Irving var kosinn á þing fyrir
hálfu ári. Hann er piparsveinn og
segir að síðan hann var kosinn á
Framhald á bls. 20
og unnið verður að rannsókn
málsins um helgina, að því er
AP-fréttastofan hefúr' eftir
lögregluforingjanum Olof
Fraanstedt. Samkvæmt sænskum
lögum getur lögregla þar í landi
handtekið útlendinga, ef hún hef-
ur grun um, að þeir séu tengdir
skæruliðasamtökum og að sögn
Hans Holmers yfirmanns sænsku
öryggislögreglunnar, er ógerlegt
að útiloka að svo kunni að reynast
um þessa menn.
Auk íslenzka sendiráðsins eru í
byggingunni að Kommendörsgat-
an 35 skrifstofur sendiráðs
Bangladesh, Líbanons, Sómalíu,
Uruguay og Austurríkis.
Israelska sendiráðið er þar
skammt frá, en japanska sendi-
ráðið I öðrum borgarhluta.
óljóst og áður, hvort þau nái fram
að ganga eða ekki.
Umræðan hófst klukkan sjö f
kvöld að staðartfma og var henni
iokið kl. 21, miklu fyrr en búizt
var við.
Fyrir utan talsmenn
Sósíalistfska þjóðarflokksins,
kommúnista og vinstrisósíalista
voru allir ræðumenn sammála
um, að þjóðþingið yrði að grípa í
taumana til að koma i veg fyrir
stórátök á vinnumarkaðinum, en
ekki voru allir á einu máli um
ágæti frumvarpa stjórnarinnar.
Henning Christophersen, formað-
ur Vinstri, sagði, að þau væru
fljótfærnisleg og alls ekki í
tengslum við þarfir efnahagslífs-
ins. Mogens Glistrup frá Fram-
faraflokknum vísaði frumvörpun-
um á bug en Hilmar Baunsgaard
frá róttækum vinstri lýsti sig sam-
mála því, að tekið væri í taumana.
Kjeld Olesen úr flokki jafnaðar-
manna sagði, að þau átök sem
fyrirsjáanleg væru á danska
vinnumarkaðinum gætu orðið
meiri en nokkur dæmi væru til
um i Danmörku. Hann lagði
áherzlu á, að frumvörp stjórnar-
innar þýddu ekki, að flokkur hans
væri í grundvallaratriðum and-
vígur frjálsum samningsrétti.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um íhlutun í deilurnar höfðu í för
með sér vfðtæk verkföll í Dan-
mörku í gær og í dag söfnuðust
um 2—3000 manns úti fyrir
Kristjánsborgarhöll. Markmið
stjórnarinnar er, að frumvörp
hennar verði afgreidd i þinginu á
mánudag.
Rostropovich:
ÓGERNINGUR AÐ
STARFA í SOVÉT
París, 7. marz. NTB.
SOVEZKI sellóleikarinn og
hljómsveitarstjórinn Mstislav
Rostropovich, sem hefur búið I
útlegð sfðan f maí f fyrra, hefur
sagt að hann hafi orðið að hverfa
úr ættlandi sfnu, vegna þess að
stjórnvöld f Sovétrfkjunum hafi
gert honum ókleift að starfa að
listsköpun sinni.
Segir hann i bréfi til Parísar-
blaðsins Le Monde, en með því er
hann að svara sovézka stærðfræð-
ingnum Saferevich, að honum
hafi verið kastað út úr upptökusal
þar sem hann hafi verið að taka
upp óperu Puccinis, Tosca, en þar
söng kona hans Galina aðalhlut-
verkið. Siðan hafi honum verið
neitað um ieyfi til að fara til
Parisar í janúar.í fyrra til að
halda hljómleika, en þar átti hann
að leika ásamt Yehudi Menuhin
og Wilhelm Kemf. „Sendu stjórn-
völd skeyti til Menuhins þar sem
sagt var að ég yrði að hætta við
ferðina vegna veikinda, þrátt
fyrir að ég var við hestaheilsu,"
segir hann. 1 viðtali því við
Saferevich, sem Rostropovich er
Martha gefur yfirlýsingu:
Ford náðar sak-
bominga og fer frá
Rostropovitsj
að svara, hélt sá fyrrnefndi því
fram að margir af helztu lista-
mönnum Sovétríkjanna hefðu
farið illa að ráði sfnu með því að
hverfa frá Sovétríkjunum.
Boston, 7. marz. Reuter.
MARTHA Mitchell, þekktur orð-
hákur og fyrrverandi eiginkona
John Mitchell, fyrrv. dómsmála-
ráðherra Bandarfkjanna sem nú
hefur verið dæmdur f fangelsi
vegna Watergatemálsins sagði f
dag að hún spáði þvf að Gerald
Ford myndi náða Watergatesak-
borningana og segja sfðan af sér
og láta Nelson Rockefeller taka
við stjórninni.
Hún sagði að þetta væri að visu
aðeins persónuleg skoðun sín, og
fundi, eftir að hann varð forseti.
Ford sagði að margar ástæður
lægju að baki þess að nú væri
nauðsynlegt að veita meira fé til
Kambodiu. 1 fyrsta lagi væri um
að ræða beina aðstoð við fólkið i
landinu, sem byggi við ótrúlegar
hörmungar. í öðru lagi mundi
aukin aðstoð stuðla að því að hægt
yrði að ná pólitísku samkomulagi
í landinu og í þriðja lagi væri um
að ræða orð og æru Bandaríkja-
stjórnar, þvi nú reyndi á hvort
orðum hennar væri treystandi og
hún kæmi þeim til hjálpar sem
heitið hefði verið stuðningi.
Ford lagði áherzlu á að ekki
yrði um það að ræða að neinn
bandarískur liðsafli yrði sendur
til Kambodiu. „Bandarískri þátt-
töku í Indókína er lokið," sagði
Ford. „Allar okkar liðs sveitir
hafa snúið heim“. Ford sagði enn-
fremur aö blóðbaðinu í landinu
myndi ekki ljúka ef bandarísk
aðstoð yrði ekki veitt, heldur
mundi sú ákvörðun verða til að
herða árásaraðilann. Sagói Ford
Framhald á bls. 20
hún tjáði einnig það álit sitt að
Ford myndi ekki bjóða sig fram
árið 1976. Martha sagði þetta á
blaðamannafundi sem hún hélt í
tilefni af því að hún á að koma
fram i ákveðnum sjónvarpsþætti.
Er hún var innt eftir þvi, hvaðan
hún hefði upplýsingar sínar sagði
hún að þetta hefði allt verið fyrir-
fram skipulagt í stjórnartíð
Nixons og samningar ýmiss konar
verið gerðir. Sagðist hún vita
sumt af þvi en hún ætlaði ekki að
skýra frá því nánar.
Kosningaaldur
18 ár á Ítalíu
Rómaborg, 7. marz. Reuter.
ÍTALSKA þingið hefur stað-
fest lagafrumvarp, sem lækkar
kosningaaldurinn i landinu
niður í átján ár. Kjörgengi fá
menn þó ekki fyrr en 21 árs
gamlir. I nefnd italska þings-
ins er um þessar mundir unnið
að þvi að undirbúa að kjör-
gengisaldur verði einnig
lækkaður.
Nýr ráðherra
Washington, 7. marz. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Banda-
ríkjaþings staðfesti i dag út-
nefningu John Dunlops sem
atvinnumálaráðherra í stjórn
Geralds Fords forseta. Hann
tekur við starfinu af Peter
Brennan, sem sagði þvi lausu.
Dunlop er sextugur að aldri og
var prófessor i hagfræði við
Harvard Háskóla. Hann hefur
einnig starfað mikið að efna-
hagsmálum, m.a. meðan Nixon
var forseti.
Kekkonen enn
til Sovét
Helsinki, 7. marz. Reuter.
URHO Kekkonen Finnlands-
forseti fer í óopinbera heim-
sókn til Sovétríkjanna n.k.
fimmtudag aó þvi er skýrt var
frá í Helsinki í gærkvöldi.
Kekkonen mun dveljast i land-
inu í tvo eða þrjá daga og ræðir
við helztu ráóamenn Sovét-
rikjanna. Kekkonen hefur þri
vegis farið í opinberar heim
sóknir til Sovétrikjanna en
aðrar ferðir hans þangað eru
nú rösklega 20 talsins.
Stjórnmálasam-
band Colombiu
og Kúbu
Havana, 7. marz. Reuter.
COLOMBIA hefur tekið á ný
upp stjórnmálasamband vió
Kúbu og var tilkynning þessa
efnis birt í höfuðborgum
beggja rikjanna samtímis.
Segir þar að vonandi verói
þetta Suður Amerikurikjum
til hagsbóta og einingar.
Einnig verða tekin upp
verzlunarvióskipti og fljótlega
veróur skipzt á sendiherrum,
Colombia sleit stjórnmála-
samskiptum við Kúbu þann 9.
desember 1961. Milligöngu um
að samskipti yrðu tekin upp á
ný hafði svissneska stjórnin.
Colombia, Venezuela og Costa
Rica gáfu út um það yfirlýs-
ingu i nóvember sl. aó þau litu
ekki lengur svo á að Kúba væri
sú ógnun við vesturhvel jarðar
og áður hefði verið.