Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975 19 Áður en píanóið kom til sög- unnar og varð hljómlistarmönn- um vinsælt viðfangsefni, jafn- framt þvf að verða almennt heim- ilishljóðfæri, hafði semballinn skipað þann sess f hartnær þrjár aldir. Mikill fjöldi þeirra tón- verka sem nútímafólk hefur alizt upp við, leikin á píanó, voru f raun og veru samin fyrir sembal — eða jöfnum höndum fyrir sembal og klavichord, sem segja má, að hafi staðið milli þessara tveggja hljóðfæra, en var píanó- inu skyldara að þvf leyti að þar eru strengirnir slegnir en á sembal kippir f strengina svo- framhaldsnáms í píanó- lelk - kom helm semballelkari nefndur kfll, lítill broddur úr fjöðurstaf, leðri eða plasti. A seinni tfmum hefur áhugi á semballeik og hinni gömlu semb- al músik farið hraðvaxandi og æ meiri tilhneigingar gætt til að fá þessu hljóðfæri aftur sinn fyrri sess, til dæmis f kammermúsik. Hafa vinsældir sembalsins fylgt f kjölfar aukins áhuga á barokk- músik, ekki sfzt meðal ungs fólks og nútímatónskáld hafa talsvert samið af músik fyrir þetta gamla hljóðfæri. tslendingar eiga einn sér- menntaðan einleikara f sembal- leik, Helgu Ingólfsdóttur, sem ár- ið 1963 fór utan til Þýzkalands til framhaldsnáms f pfanóleik eftir að hafa lokið einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Rögnvalds Sig- urjónssonar píanóleikara. Þegar hún kom aftur heim var það ekki sem píanóleikari heldur sembal- leikari — og síðustu árin hefur hún, auk þátttöku í hljómleika- haldi, miðlað öðrum af kunnáttu sinni og útskrifar fyrsta sembal- einleikarann frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík að vori. I dag, laugardag, heldur Helga einleikshljómleika í Austurbæj- arbíói á vegum Tónlistarfélags Reykjavíkur. Þar leikur hún á sitt eigið hljóðfæri, sem er dálítið skemmtilega til komið. Blaðamað- ur Morgunblaðsins frétti af þvi fyrir nær ári, að Helga hefði keypt þetta hljóðfæri frá Banda- ríkjunum allt í pörtum og maður hennar, Þorkell Helgason stærð- fræðingur sett það saman sjálfur með hinum prýðilegasta árangri. Þá stóðlil að forvitnast frekar um þetta og rabba við Helgu stundar- korn um nám hennar og starf, en af því varð ekki ýmissa hluta vegna fyrr en í síðustu viku, að við sóttum hana heim, þar sem þau hjón búa við Löngubrekku í Kópavogi. Semballinn stóð þar i stofu, langur og rennilegur, fagurgrænn að lit, lokið rauðmálað innan og rósaflúr fyrir ofan hljómborðið eins og vera ber, því að hljóðfæri þessi voru á sínum tima oft mjög skrautleg. Hljómborðið er tvö- falt, og svörtu nóturnar þær sem hvítar eru á píanóinu og öfugt. Hljóófærið er sérstaklega hljóm- fagurt og hljómsterkara en ég hafði búizt við. „Til eru tvær mismunandi gerð- ir af sembal,“ útskýrði Helga, „við getum kailað þær nútima- gerð og klassiska gerð. Nútíma- gerðin hefur til skamms tíma ver- ið mun algengari, enda eru þau hljóðfæri verksmiðjuframleidd, en síðari árin hefur klassíska gerðin unnið mjög á, og er nú í þann veginn að ná yfirhöndinni á sembalmarkaðinum. í Þýzkalandi lærði ég á nútimasembal, en að námi loknu tók ég þátt í sembal- keppni, sem þýzku útvarpsstöðv- arnar efndu til, og þar gátu þátt- takendur valið um þessar tvær gerðir. Ég hafði þá aldrei fyrr séð klassísku gerðina en hún er ná- kvæm eftirlíking af því hljóðfæri, sem notað var á barokk-tímanum. Þetta kom mér á óvart, og það olli mér dálitlum vonbrigóum að upp- götva.að ég hafði alls ekki verið að læra á það hljóðfæri, sem gömlu meistararnir höfðu samið verk sín fyrir. Klassíska gerðin reyndist miklu hljómbetri og skemmtilegri og áslátturinn allt annar og léttari. Þegar þetta gerðist vorum við búsett í Boston og svo skemmti- lega vildi til, að þar er einn bezti smiður klassískra sembala i heim- inum, Frank Hubbard að nafni. Við komumst að því, að h.ann væri nýbyrjaður að selja efni og teikn- ingar til smiði á klassískum semb- ölum. Vió ákváðum að prófa að kaupa svona hljóðfæri og Þorkell smiðaði það svo samkvæmt leið- oeiningum og teikningum sem fylgdu. Þetta var geysimikið og seiniegt verk — en ég á það sem sagt honum að þakka að geta spilað á klassiskan sembal; ég hefði vart haft tök á að kaupa hann tilbúinn, því að svona hljóðfæri kostar i dag l‘/i—2 milljónir króna.“ „Þetta er raunar fyrsti klassiski semballinn, sem til íslands kem- ur,“ hélt Helga áfram, „þvi að bæði mitt gamla hljóðfæri og sembalarnir i Barnamúsikskólan- am og útvarpinu eru af nútíma- gerð. En nú er annar kominn upp, nemandi minn, Elin Guðmunds- dóttir, sem tekur væntanlega ein- leikarapróf i vor, keypti lika svona hljóðfæri og faóir hennar setti það saman. Semballeikurinn fyrst aukagrein Eg spurði Helgu, hvernig það hefði borið við, að hún hvarf frá píanóleik og sneri sér aó sembal- leik. I „Það vareittsinnskömmu eftir að vió hófum nám í Þýzkalandi, að ég hafði orð á þvi við Þorkel. hversu hrifin ég væri af þessu hljóðfæri. Ég hafði verið að hlusta á semballeik í skólanum þennan dag en þar kynntist ég hljóðfærinu fyrst að ráði. Hugur- inn er nú svo opinn fyrir öllum nýjum áhrifum, þegar maður kemur utan til náms svona ungur, en ég hafði alltaf haft ákaflega jgaman af barokkmúsik. Þorkell |stakk þá að mér þeirri hugmynd jað taka semballeik sem aukagrein ji dálítinn tíma með pianóinu og sjá hvernig mér líkaði. Smám saman fór ég svo að taka sembal- inn fram yfir píanóió og fyrr en varði var hann orðinn aðalvið- fangsefnið. Ég hélt píanónáminu þó áfram, eftir sem áður, enda skylda fyrir semballeikara bæði að læra á píanó og klavichord. Hljómleikar |í Boston Þegar Helga hafði lokið einleik- 'araprófi á sembal, frá Tónlistar- háskólanum i Múnchen 1968, lá leið_ þeirra hjóna til Boston, þar sem Þorkell stundaði nám við Massachusettes Institute of Tech- nologi i þrjú ár. Þar hélt Helga tvenna sjálfstæða hljómleika, fyrst i salarkynnum MIT og siðan ;í listasafni í Boston, Gardner Mus- eum. „Stofnandi þessa safns var auð- ug kona, Isabella Gardner að nafni, sem hafói dálæti á gömlum *s*«. málverkum, húsgögnum og postu líni, “ sagði Helga. „Hún hafði Iátið eftir sig sjóð, sem ætlaður var m.a. til að styrkja hljómlistar- menn til tónleikahalds í safninu. Þarna gat maður farið ókeypis á tónleika nokkrum sinnum í viku. Hátalari var í hverju herbergi í safninu og gátu gestir hvort held- ur þeir vildu gengið um og skoðað safnmuni meðan þeir hlustuðu eða setiö í hljómleikasalnum. Þetta var afskaplega skemmtilegt og notalegt. Húsið er í feneyskum stíl og úti fyrir stór og mikill blómagarður, umlukinn hárri girðingu." Eftir heimkomuna hélt Helga hljómleika í Norræna húsinu og síðan hefur hún, sem fyrr segir, stundað kennslu jafnframt hljóm- leikahaldi ásamt öðrum, en hún er m.a. félagi I Kammersveit Reykjavíkur, sem hefur átt skemmtilegan þátt i tónlistarlifi höfuðborgarinnar í vetur. Þar á svo sannarlega ekki við sú stað- hæfing, sem oft má heyra, að ungt fólk nú á dögum nenni ekkert á sig að leggja nema fyrir peninga. Kammersveit Reykjavíkur hefur fjórum sinnum haldið hljómleika á sl. ári, fyrst á Kjarvalsstöóum og siðan í samkomusal menntaskól- ans í Hamrahlið og þrátt fyrir mjög mikla aðsókn að öllum hljómleikunum hefur enginn hljóðfæraleikaranna fengið sína vinnu greidda. „Þetta er allt sjálf- boðavinna," sagði Helga, „en við höfum haft fyrir kostnaði og það er hugsanlegt, að hvert okkar fái í sinn hlut um fimm þúsund krón- ur við uppgjör í vor.“ Fyrstu byrjend- ur á sembal I tónlistarskólanum í Kópavogi hefur Helga fyrstu byrjendurna i semballeik en til þessa hafa semb alleikarar yfirleitt lært fyrst á píanó eða orgel. „Það er spenn- andi segir hún, að sjá hvernig þetta reynist og hvort þeir þurfa að læra lika á pianó. Ég býst við að þess reynist þörf, m.a. vegna þess, að nútímatónskáld eru farin að semja svo mikið fyrir sembal og með þvi að læra eingöngu sembaltæknina af barokkmúsik fellur niður meira en heil öld, 19. öldin, — og sú tækni sem kom með rómantisku tónskáldunum. Hún var um margt frábrugðin þeirri tækni, sem tíökazt hafði fram á þann dag, tökum menn eins og Chopin og Liszt. Ég held, að pianónám sé nauðsynlegt til að hafa þetta allt á valdi sínu og fullnægja þannig þeim tækni- og leikkröfum, sem nútimatónskáld gera.“ Aðspurð, hvort íslenzk tónskáld hefðu samió eitthvað fyrir sembal sagði Helga, að Hafliði Hallgríms- son væri að semja verk fyrir sig um þessar mundir. „Hann samdi annað verk í fyrra fyrir sembal og strengjatríó og það flytjum við hjá Kammersveit Reykjavíkur á tónleikunum í apríl nk. Eitthvað held ég að Þorkell Sigurbjörnsson hafi skrifað fyrir sembal og önnur hljóðfæri en ég þekki þau verk ekki né önnur, ef til eru islenzk. Ég spurði Helgu, hvort hún hefði ánægju af því að leika nú- timamúsik og hún svaraði: „Já afskaplega. Mér finnst það hafa reglulega hressandi áhrif á mig að breyta yfir í nútímamúsik öðru hverju. Ánnað mál er, að ég hef svo rnikið að gera við gömlu verk- in, mér hefur ekki gefizt tími til að kynna mér nærri því alla þessa tónlist. Athugaðu að, músik er skrifuð fyrir sembal í heilar þrjár aldir og það eru til ógrynni af skemmtilegum og forvitnilegum viðfangsefnum frá þessum tirna. Nú er líka uppi svo mikil og sterk barokkhreyfing; alltaf er verið að gefa út ný og ný verk, sem aldrei hafa sézt fyrr og feiknin öll leikin á hljómplötur. Hér heima virðist líka vaknandi áhugí áþessari mús ik og viðtökurnar sem Kammer- sveitin hefur fengið, sýna, að hún á sér hljómgrunn. Þetta er tónlist- arliður, sem til þessa hefur verið vanræktur, en við höfum fullan hug á að bæta þar úr.“ Helga Ingólfsdóttir við hljóðfæri sitt. — mbj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.