Morgunblaðið - 08.03.1975, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975
Haldið af strandstað
Skipverjar af Isleifi búa sig undir að ganga 7 km leið f björgunarskýlið
á Ingóifshöfða eftir að hafa verið f gúmmfbátnum daglangt f fárviðr-
inu. Einn skipverja sést róta sandi að bátnum til að festa hann f
rokinu.
Neðri mynd: Skipverjar leggja af stað eftir sandinum til Ingólfshöfða,
en á leiðinni höfðu þeir 12 vindstig f fangið, gadd og gekk á með
hrfðarkófí. Eins og fram hefur komið f Mbl. var það feikilega erfið
ganga. Ljósmyndir Kári Birgir.
ísleifur
Kaupstefna
— Hvassafell
Framhald af bls. 36
lestir að stærð. í skipinu eru 1100
tonn af áburði. Sem kunnugt er
strandaði Hvassafellið í Finn-
landi um 20. janúar, en eftir
bráðabirgðaviðgerð þar var því
siglt til Þýzkalands þar sem fulln-
aðarviðgerð fór fram og kostaði'
hún að sögn Hjartar 25 millj. kr.
Frá Þýzkalandi hélt skipið til Hol-'
lands og tók áburðinn, sem það
var að flytja til hafna landsins er
slysið átti sér stað.
Hér fer á eftir frétt um strandið
frá fréttaritara Mbl. á Húsavík:
Hvassafell, vöruflutningaskip
SÍS, strandaði við Flatey á Skjálf-
anda um kl. 5 í morgun. Skipið
var á leið frá Akureyri til Húsa-
víkur og var væntanlegt hingað
að bryggju um kl. 7. Afgreiðslu-
maður skipsins, Skúli Jónsson,
var mættur á afgreiðslunni kl.
6,25 í morgun, en þar er örbylgju-
stöð, svo að hann kallaði í skipið
til þess að fá vítneskju um frekari
komutíma þess. Fékk hann þá
strax svar og þær upplýsingar að
skipið væri strandað austanvert
við Hnísuvik, sem er norðan á
Flatey. Höfðu þeir á Hvassafelli
árangurslaust reynt að ná sam-
bandi við Siglufjarðarradíó, en
loftnet skipsins höfðu slitnað svo
að þeir náðu ekki sambandi, þvi
að Siglufjörður hefur ekki ör-
bylgjustöð. Skúli hafði strax sam-
band við Siglufjarðarradíó, sem
náði sambandi við m.s. Dagný og
um hana náði það sambandi við
hið strandaða skip, en á milli þess
og Siglufjarðar eru mjög há fjöll.
Eru því loftskeytaskilyrði mjög
erfið.
Framkvæmdastjóra Slysavarna-
félagsins, Hannesi Hafstein, var
þegar tilkynnt um strandið og
eftir að aðstæður höfðu verið
athugaðar var björgunarsveitin á
Húsavík kölluð út en hér var þá
norðaustan stórhríð og mikill
sjór, en samt fóru tveir bátar með
björgunarsveitina, m.b. Jón Sör,
54ra tonna bátur, skipstjóri Pétur
Olgeirsson, og m.b. Svanur, 35
lesta bátur, skipstjóri Ingvar
Hólmgeirsson, sem er uppalinn í
Flatey og staðháttum mjög kunn-
ugur. Um leið fór björgunarsveit-
in Strákur frá Siglufirði með m.s.
Drang sem staddur var á Siglu-
firði, en veðurtepptur á leið til
Grímseyjar. Um klukkan 12 voru
Húsavíkurbátarnir komnir að
Flatey, en þá braut alveg fyrir
innsiglinguna og ófært að komast
í land, en björgun talin óhugsandi
nema frá landi. Lónuðu bátarnir
svo þarna í eina klukkustund og
biðu lags og rétt fyrir klukkan 13
komust þeir heilir og höldnu inn
fyrir brotið. Þegar inn fyrir var
komið var sjólag sæmilega gott og
engir örðugleikar að komast í
land. Drang var þá snúið við til
Siglufjarðar.
Hófust þá þegar björgunar-
aðgeróir, og var skotið línum frá
Hvassafelli í land og um klukkan
16 var búið að bjarga 11 mönnum.
Átta voru þá eftir um borð og
vildu þeir bíða og sjá hvað gerðist
meó flóðinu, sem er um klukkan
20. Er komast átti frá Flatey í
kvöld, þurfti að fara fyrir ljósa-
skipti, vegna brims og var þá
ákveðið að Jón Sör færi með þá
ellefu skipverja, sem komnir voru
í land, til Húsavíkur. Mennirnir,
sem eru um borð, eru ekki taldir í
hættu. Björgunarsveitarmenn
standa við strandstað og hafa
stöðugt samband við skipið, en
hafast annars við í húsi á eynni.
Björgunarskýlið, sem neyðarstöð
Slysavarnafélagsins var í, brann
fyrir nokkru eins og áður hefur
verið getið í fréttum.
Nú með flóðinu brýtur á skip-
inu og ljósavélar þess ganga ekki
nema til klukkan ellefu i kvöld,
því að þá munu þær missa kæli-
vatnið út aftur um leið og fjarar
út — eins og gerðist i dag.
Um kl. 21 í gærkvöldi kom Jón
Sör með skipbrotsmennina 11 til
Húsavíkur og heilsaðist öllum vel.
Leiðrétting
Í FRÁSÖGN Morgunblaðsins af vali
unglingalandsliðsins I handknattleik
í gær var farið rangt með nafn eins
leikmannsins. Sá er Kristján Sig-
mundsson, markvörður úr Þrótti. Eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar.
Framhald af bls. 36
þannig að stefnið vísi á haf og
munu jaróýturnar aðstoða við það
verk. M.a. munu þær ryðja upp
varnargarð fyrir ofan ísleif, sem
á að stöðva brimrennslið upp fjör-
una þannig að meiri sjór flæði
undir skipið. Skammt fyrir utan
Isleif á strandstað er flakið af
brezka togaranum Lord Stanhop,
sem strandaði þarna 1963 og varð
til. Er reiknað meó að flakið valdi
ekki vandræðum, því ef ísleifur
næst á flot á straumurinn að bera
hann vestur með ströndinni og þá
sleppur hann við flakið af Lord-
inum. 1 dag kl. 3—4 er háflóð á
strandstað, en hagstæðara hefði
verið að reyna að draga bátinn út
í nótt leió, þvi þá var flóðið 40 sm
hærra, en það verður í dag.
• ♦ •----
— 9 ára
Framhald af bls. 36
veginn þegar bifreiðin var stödd á
móts við hús númer 122. Kvaðst
ökumaðurinn hafa snarhemlað,
en ekki geta afstýrt slysinu. Lenti
stúlkan á hægra framhorni bif-
reiðarinnar, kastaðist langan spöl
og skall á götuna.
Ökumaðurinn kvaðst hafa ekið
á 45 kílómetra hraða er slysið
gerðist. Hemlaför bifreiðarinnar
mældust rúmir 20 metrar á þurru
malbikinu. Þegar bifreiðin var
slóar látin hemla á 45 kílómetra
hraða mældust hemlaförin rúmir
8 metrar.
Baader-Meinhof
félögunum vísað
frá Jemen
V-Berlín, 7. marz NTB
Fimmmenningarnir úr Baader —
Meinhof samtökunum, sem látnir
voru lausir úr fangelsi á dögun-
um til að bjarga lffi v-þýzka
stjórnmálamannsins Peter
Lorenz, hafa fengið boð um það
frá yfirvöldum Jemen að verða
brott úr landinu. Sendiherra
Jemens f Austur-Berlfn skýrði frá
þessu 1 kvöld f yfirlýsingu, þar
sem sagði, að stjórn Jemens hefói
neitað að veita þeim landvistar-
leyfi til langframa. t hópnum eru
þrjár konur og tveir karlar. Ekki
er vitað hvenær þau eiga að fara
eða hvert þau geta farið.
Framhald af bls. 3.
væri nú í þann mund að hefjast.
Þá hefði ríkisstjórnin lofað að
beita sér fyrir því að aðeins yrði
greiddur helmingur söluskatts í
tolli af vélum og tækjum fram-
leiðsluiðnaðarins frá áramótum
1975.
1 lok ræðu sinnar lét Davíð Sch.
Thorsteinsson þá skoðun sína í
ljós, að skilningur stjórnvalda á
því að grundvöllur hins íslenzka
veiferðarþjóðfélags væru fram-
leiðsluatvinnuvegirnir þrír, fisk-
veiðar, fiskiónaður og fram-
leiðsluiðnaður, og því aðeins væri
þess að vænta að þjóðin kæmist út
úr vítahring verðbólgu og gengis-
fellinga, að landinu væri stjórnað
af mönnum sem skildu þetta
grundvallaratriði.
Eins og fyrr segir lýkur kaup-
stefnunni í dag. í tengslum við
hana var haldin tízkusýning á
fimmtudaginn og munu birtast
myndir frá henni i blaðinu síóar.
— Ford styður
Framhald af bls. 1
var sfðasta vígi stjórnarhersins
við neðanvert Mekong-fljót, fyrir
sunnan ferjubæinn Neak Luong.
Gerðu skæruliðar stanzlausar
sprengjuárásir á stjórnarliðið unz
það hörfaði og er nú búizt við árás
þeirra á Neak Luong. Tíu kíló-
metrum fyrir sunnan Phnom
Penh var áfram haldið bardögum
um bæinn Prek Phnew, sem
skæruliðar réðust á sl. fimmtu-
dag. Þá skutu þeir átta eldflaug-
um að höfuðborginni í dag og
særðist einn maður.
í fréttum frá S-Vietnam í dag er
greint frá hörðum bardögum, þar
sem við áttust þúsundir stjórnar-
hermanna og skæruliða. Reyndu
stjórnarliðar að opna mikilvægan
þjóðveg á miðhálendinu, en Sai-
gon-stjórnin segir, að N-
Vietnamar séu að skera á mikil-
væga samgönguæó þar og sé það
liður í undirbúningi meiri háttar
sóknar á þeim slóðum.
Sendinefndir frá Sovétríkj-
unum og Kína hafa heimsótt
Hanoi síðustu daga og telja vest-
rænir fréttamenn í Saigon það
vísbendingu um endurnýjaðan
áhuga þessara stórvelda á átök-
unum í Indo-Kína.
— Uppsagnir
Framhald af bls. 2
mörgum yrði sagt þar upp, en
þegar hefðu 6 til 7 menn fengið
uppsögn. Kvað hann það í raun
ekki vera mikinn fjölda, þegar
það væri haft f huga að á launa-
skrá fyrirtækisins væri 90 manns.
Ástæðurnar kvað hann vera, að
bílasala hefði dregizt stórlega
saman í desember, janúar og
febrúar og nú síðast væru menn
farnir að draga við sig viðgerðir á
bflum sínum.
Sagði hann, að sagt hefði verið
upp viðgerðarmönnum og skrif-
stofufólki, einkum mönnum á
söluskrifstofu, þar sem vinna
hefði stórminnkað við samdrátt í
bflasölu.
— Brezkir
þingmenn
Framhald af bls. 17
þing hafi hver konan eftir aðra
gefist upp á honum vegna þess
þær geti ekki unað við hve vinnu-
tími hans sé mikill og bitni harka-
lega á honum og þeim.
Anne Winerton sem er gift öðr-
um íhaldsþingmanni hefur lýst
því yfir að hún telji að kvartanir
af þessu tagi eigi vissulega rétt á
sér og svo virðist sem fleiri muni
taka í sama streng segja frétta-
stofur.
- Vilja
leiðtogafund
Framhald af bls. 1
Brtissel eða Bonn en vestur-þýzka
stjórnin mun h.afa áhuga á þvf, að
hann verði í Bonn, þar sem hún
vilji gjarnan sýna þar með, að
V-Þjóðverjar séu fullgildur aðili
að bandalaginu, 30 árum eftir lok
heimsstyrjaldarinnar siðari, og
jafnrétthár öðrum aðildarríkjum.
í aðalstöðvum NATO f Bríissel
er sú skoðun ríkjandi, að öryggis-
málaráðstefnunni muni ljúka
með leiðtogafundi, þar sem æ
fleiri NATO-ríki muni láta undan
Sovétmönnum í þvi efni. Af hálfu
vestrænna ríkja hefur því verið
haldið til streitu, að þvf aðeins sé
ástæða til að ljúka ráðstefnunni
með leiðtogafundi, að verulegur
árangur hafi náðst þar varðandi
aukið upplýsingastreymi milli
ríkja austurs og vesturs og aukna
ferðamöguleika fólks landanna í
milli.
Öryggisráðstefnan verður eitt
af aðalumræðuefnunum á leið-
togafundi aðildarríkja Efnahags-
bandalags Evrópu, sem haldinn
verður í Dublin, höfuðborg ír-
lands i næstu viku.
— Minning
María
Framhald af bls. 27
hennar sem hjálpuðu. Atti hún þá
eitt barn, um 2 ára, Þorvald Garð-
ar alþingismann og annað,
óskírða stúlku Kristjönu er hlaut
nafn föður sfns. Álltof fáa daga
varð sambúð þeirra, við Dalssjó,
en gleðilegir og kær er minningin
að koma þreyttur utan af „Fjör-
um“, og fá að þiggja gistvináttu
þeírra, á nótt sem degi. Og þeg-
arallt varfarið af jjrundinni, hún
húsið hennar með börnin, til Flat-
eyrar, sat maður hnfpinn, þyrstur
og þreyttur af göngunni, jafnvel á
hornsteinum horfna hússins
hennar. Mariu og Kristjáns. Og á
Flateyri áttum við, fjölskyldan
frá Hrauni, sömu ástúð að mæta,
jafnt yngri sem eldri. Sama munu
margir Ingjaldssandsmenn geta
sagt. Svo oft vildu þær systur,
María og Elísabet prófastfrú frá
Holti, mæta mund móður okkar
og systrum, að bær lögðu leið sína
heim til hennar, út á Sand, erfiða
leið. Mun þessi vináttu Maríu og
móður okkar Hraunsbarna, hafa.
valdið því, að Þorvaldur Garðar
var 7 sumur hjá móður minni f
fóstri og hjálpardrengur. Og þeg-
ar þetta allt er liðið hjá, myndin
farin af tjaldinu, stendur minn-
ingin ein eftir, indæl og blfð, þvi
hvar er kærleikurinn meiri i lífi
mannanna en hjá sannri og göf-
ugri móður og mæðrum. Fagurt
lff er liðið. Fagrir dagar, gera
„fagran dag á morgun“.
Innilega kveð ég frú Maríu
Einarsdóttur og bið henni bless-
unar Guðs og óska börnum og
ættmönnum hennar sömu vernd-
ar.
Guðmundur Bernharss.
frá Ástúni. Ingjaldssandi.
— 12 fórust
Framhald af bls. 1
að athuga, að hraðlestin milli
Miinchen og Ingolstadt var rétt
ókomin. Strætisvagninn ók inn á
teinana og skipti það engum tog-
um, hraðlestin ók á hann miðjan
með 120 km hraða. Brak úr lest-
inni og strætisvagninum dreifðist
yfir stórt svæði meðfram járn-
brautarlínunni, þar sem lestin
dró strætisvagninn næstum eins
kílómetra leið meðfram henni.
Tveir vagnar af sjö í lestinni fóru
af spori, en enginn farþega lestar-
innar varð fyrir meiðslum.
— 5 lík
Framhald af bls. 1
Kröfur gerast æ háværari f ísra-
el um hefndaraðgerðir gegn
skæruliðum, en gert er ráð fyrir,
að Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra bfði með þær þar til útséð
er um árangur af ferð Henrys
Kissingers, utanrfkisráðherra
Bandarfkjanna, til landanna við
Miðjarðarhafsbotn. Er hann
væntanlegur til Egyptalands í
nótt. Af hálfu ísraels er í dag lögð
áherzla á, að þeir hafi ekki ástæðu
til að ætla, að Egyptar hafi átt
nokkurn hlut að árás skærulið-
anna í Tel Aviv.
Kissinger kom við í London og
BrUssel á leið sinni og ræddi m.a.
f dag við Harold Wilson, forsætis-
ráðherra Bretlands og Dimitrios
Bitsios, utanrfkisráðherra Grikk-
lands.
— Kambódía
Framhald af bls. 17
að tilraunir Bandaríkjanna til að
koma á samningum hefðu mis-
tekizt, þar á meðal sex umleitanir
sem hann hefði beitt sér fyrir
eftir að hann varð forseti. Lét
forsetinn f ljós þá von að áfram-
haldandi fjárhags- og hernaðarað-
stoð núna mundi geta tafið fram-
gang herja kommúnista þar til
rigningartíminn hæfist í lok júní,
en þá mætti frekar búast við
árangri af samningaumleitunum.
Þess má geta að mikil og al-
menn andstaða er í Bandaríkjun-
um gegn frekari aðstoð við stjórn
Lon Nol í Kambodiu og er af
mörgum talið ólíklegt að þingið
samþykki frekari fjárveitingar til
landsins. Ford sagði sjálfur i gær-
kvöldi, að hann teldi líkurnar fyr-
ir því að aðstoðin fengist vera 50 á
móti 50.
Fundur Fords með frétta-
mönnum í gærkvöldi var sá ellefti
sem hann hefur haldið frá því
hann varð forseti í ágúst sl.
Fundurinn var liður í meiri
háttar herferð til að fá þingið og
almenning á band forsetans i
Kambodiumálinu. Ford hefur
gripið til þess ráðs að halda 'marga
blaðamannafundi og ræður á
opinberum vettvangi og höfða
með þeim hætti beint til kjósenda
vegna þeirra erfióleika sem hann
á við að etja í þinginu í öllum
mikilvægustu málum. Andstöðu-
flokkur Fords, Demókrata-
flokkurinn, hefur mikinn meiri-
hluta í báðum deildum þingsins
og getur farið sínu fram að miklu
leyti án vilja Fords. Þingió hefur
þannig tafið eóa fellt mörg mál
sem Ford hefur beitt sér fyrir.
Mikil barátta á sér nú stað f
Washington um hvar hió raun-
verulega vald liggur, hjá forsetan-
um eða þinginu.
Á blaðamannafundinum í gær
minntist Ford lftillega á efna-
hagsmál og hvatti þingið til að
hraða afgreiðslu skattalækkana
þeirra, sem hann hefur farið fram
á til að auka heildareftirspurn og
koma efnahagnum þannig úr
lægðinni.