Morgunblaðið - 15.03.1975, Side 5

Morgunblaðið - 15.03.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975 5 Islenzk frímerkja- sýning í Gautaborg 1 tilefni tíu ára afmælis Isiandsklubben I Gautaborg var í aðalpósthúsi borgarinnar opnuð sýning á fslenzkum frímerkjum sl. miðvikudag og stendur hún yfir til 26. aprfl nk. 1 viðtali vió formann klúbbsins Axel Miltander, ritstjóra, tjáði hann blaðinu, að fjöldi gesta hefðu verið viðstaddir opnun sýn- ingarinnar og að hún hefði vakið mikla athygli og hlotið góða dóma, en sýningarefnið er úr einkasöfnum klúbbsfélaga og nafnið Islandsklubben ber það með sér, að félagarnir safna ein- vörðungu íslenzkum frímerkjum. Eins og getið var um f frí- merkjaþætti Morgunblaðsins 15. febrúar sl., var notaður sérstakur póststimpill í aðalpósthúsi Gauta- borgar á opnunardegi sýningar- innar og sýnir stimpillinn dag- setninguna 12.3. 1975 og mynd af Heklugosi. ISLflNÐ FRIMÁRKSUTSTÁLLNING OT-PtT . FRITT INIRAOfc ■ Kungsportsavenyn 12 • Styrkir til framhaldsnáms iðnaðarmanna erlendis. Menntamálaráðuneytið veitir styrki til iðnaðarmanna, sem stunda framhaldsnám erlendis, eftir þvi sem fé er veitt í þessu skyni á fiárlögum ár hvert. Styrkirnir eru eingöngu veittir til náms erlendis, sem ekki er unnt að eða námslánum úr lánasjóði íslenskra námsmanna eða öðrum sambærilegum styrkjum og/eða lánum. Heimilt er þó, ef sérstaklega stendur á, að veita viðbótarstyrki til þeirra, er stunda viðurkennt tækninám, ef fé er fyrir hendi. Styrkirnir eru eingöngu viettir til náms erlendis, sem ekki er unnt að stunda hér á landi. Skal námið stundað við viðurkennda fræðslustofnun og eigi standa skemur en tvo mánuði, nema um sé að ræða námsferð, sem ráðuneytið telur hafa sérstaka þýðingu. Styrkir greiðast ekki fyrr en skilað hefur verið vottorði frá viðkomandi fræðslustofnun um, að nám sé hafið. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. april n.k. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 1 1. mars 1975. SÉRKENNARANÁM í SVÍÞJÓÐ. Skólaárið 1975—76 mun væntanlega tveimur islendingum gefast kostur á námsvist i sérkennaradeildum við kennaraháskóla i Svíþjóð. Um er að ræða nám til undirbúings stuðnings- og sérkennslu fyrir nemendur, sem eiga við örðugleika að etja vegna aðlögunarvandkvæða eða fötlunar af einhverju tæi. Til inngöngu er krafist kennaraprófs, og yfirleitt er skilyrði að umsækjandi hafi gegnt fullu kennslustarfi um a.m.k. þriggja ára skeið. Þeir sem kunna að hafa hug á að sækja um námsvist samkvæmt framansögðu skulu senda umsókn til menntamálaráðuneytisins Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 1. april nk. á sérstöku eyðublaði, sem fæst i ráðuneytinu ásamt nánari upplýsingum um námssvið og inngönguskilyrði. Vakin skal athygli á, að eingöngu er um að ræða námsvist, en ekki styrk. Menntamálaráðuneytið, 1 1. mars 1975. Eigendur bandarískra véla, bíla og tækja Vanti yður varahluti með hraði í bandarískt hannaðar vélar, tæki og bíla, þá getum við útvegað fáanlega hluti á skemmsta mögulega tíma. Allison, GM, Cummins, IH, Caterpillar, Clark, Timken, Bower, Terrington, Eaton, Ford o.sv.frv. Steypustöðin h. f., sími 33600. GETIÐ ÆTÍÐ TREYST GÆÐUM ROYAL LYFTIDUFTS Felagslif □ Gimli597531 77 =2 Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Hafsteinn Björnsson miðill heldur skyggnilýsingafund á vegum félagsins í Félagsbíói Keflavík, miðvikudaginn 19. þ.m. kl. 20.30. Stjórnin. Skrifstofa félags einstæðra foreldra er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 3—7. Aðra daga kl. 1—5. Ókeypis lögfræðiaðsfoð fyrir félagsmenn fimmtudaga kl. 10—12, simi 1 1822. Sunnudagaskóli Fellaskóla kl. 10.30. Séra Lárus Halldórsson. Snjóþotukeppni Dróttskátar — snjóþotukeppni verður haldin um helgina og hefst við gamla M.R. skálann i Hveradölum i dag kl. 15.00. D.S. Fjölmennið. D.S. Póseidon. Hjálpræðisherinn Flóamarkaður i dag kl. 10—12 Sunnudag kl. 11, helgunarsam- koma. Kl. 14 sunnudagaskóli. Kl. 20.30 hjálpræðissamkoma. Verið velkomin. Kvenfélag Neskirkju býður eldra fólki i sókninni i siðdegiskaffi i félagsheimilinu sunnudaginn 1 6. marz að lokinni guðsþjónustu i kirkjunni sem hefst kl. 2. Verið velkomin. Nefndin. K.F.U.M og K., Hafnarfirði Sunnudagurinn 16. marz: Barnasamkoma kl. 10.30. Öll börn velkomin. Almenn samkoma kl. 8.30. Allir velkomnir. Ræðumaður: Ástráður Sigurstein- dórsson, skólastjóri. Mánudagskvöldið 17. mars: Fundur í unglingadeildinni kl. 8. Opið hús kl. 7. Drengir 1 2 — 1 6 ára velkomnir. FERÐAFELAG ISLANDS Sunnudagsgöngur 16/3 kl. 9.30 Göngu- og skíðaferð um Kjöl. Verð 800 krónur. Kl. 13. Norður af Skálafelli. Verð 400 krónur. Brottfararstaður B.S.f. Ferðafélag íslands. Slysavarnardeildin Fiskaklettur, Hafnarfirði heldur aðalfund miðvikudaginn 1 9. marz kl. 8.30 i húsi félagsins. Stjórnin. Kvenfélag Laugarnessóknar Við bjóðum öllu eldra fólki i sókn- inni til kaffidcykkju i Laugarnes- skólanum sunnudaginn 16. þ.m. kl. 3 að lokinni messu. Verið velkomin. Kirkjudagur Grensássóknar sunnudagskvöld 16. marz n.k. i Safnaðarheimilinu. KVÖLDVAKA: efni m.a.: Kór Hvassaleitisskóla, Sigurlaug Guðmundsdóttir les frumórt kvæði leikþáttur:.Æskulýðsfélag Grensás, ræða: Guðmundur Einarsson, framkv.stj. Hjálparst. Kirkjunnar, Kirkjukór Grensássóknar. Almenn- ur söngur. Allir velkomnir. Sóknarprestur. Heimatrúboðið Almenn samkoma að Óðinsgötu 6A á morgun kl. 20.30. Sunnudagaskóli kl. 14. Verið velkomin. þaömunar um minna! Litavers lága veró á öllum vörum ERTU AÐ BYGGJA? VILTU BREYTA? ÞARFTU AÐ BÆTA? Allt til að fegra heimilið, teppi, gólfdúkar, veggfóður og málning. Lítið við í Litaveri, það hefur ávallt borgað sig. GRENSÁSVEGI 18-22-24 MÁLNING, VEGGFÓÐUR, DÚKAR SÍMI 30280, 32262 —TEPPI 30480.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.