Morgunblaðið - 15.03.1975, Page 8

Morgunblaðið - 15.03.1975, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAROAGUR 15. MARZ 1975 Hversu mikið gagn er að trimmi? Vöðvar og æðar breytast við trimm Trimin er í tizku. Það er víst óhætt að fullyrða Ef við viljum fylgjast með skokkum við um ná- grennið eða eigum alténd æfingar- hjól. Það er ekki eins áberandi, bæði þegar það er notað og ekki siður þegar það er ekki ! notkun, vegna þess að hjólið er þungt f vöfum. Og þetta er i tizku. Á þessa lund skrifar dr. med próf. N.H. Karup við Bispebjerg- sjúkrahúsið i Danmörku i bókaum sögn, sem birtist i vikuriti lækna- samtakanna. Til grundvallar þessum skrifum liggur sú nötur- lega staðreynd, að um það bil helmingur allra dauðsfalla er af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Og hlutfallið hækkar stöðugt. Ævin er að styttast Okkur hefur verið tjáð að fólk nái sífellt hærri aldri. Áætlaður meðalaldur hjá fullorðnum karl- manni á Vesturlöndum hefur þó stytzt um hér um bil átta mánuði síðustu 10—15 árin, vegna þessa sjúkdóms. Vaxandi fjöldi dauðsfalla af völdum hjartasjúkdóma helzt svo í hendur við það, að kröfur um líkamlega áreynslu minnka stöð- ugt. Fólk, sem vinnur svokallaða kyrrstöðuvinnu fær minna en lág- markshreyfingu og þeim fækkar sem vinna störf, sem reyna á líkamann. Þeir verða æ fleiri sem hreyfa sig varla meira en sem því nemur að stökkva inn i bílinn sinn og úr honum aftur. Um hjartað En hvaða gildi hefur trimm- hreyfingin? Eru sannanir fyrir samhengi milli kyrrsetulífs og vax- andi fjölda hjarta- og æðasjúk- Læknirinn hefur orðið r eftir ERIK MtÍNSTíJR dóma? Kemur líkamleg þjálfun að gagni sem fyrirbyggjandi ráðstöf- un og einnig sem eftirmeðferð við sjúklinga sem hafa fengið blóð- tappa. Fimmtiu lífeðlisf ræðingar og sérfræðingar i hjartasjúkdómum hafa setið á ráðstefnu í Kaup- mannahöfn til að fjalla um þessi vandamál. Fyrirlestrar þeirra og umræður eru nú komnar út i bókarformi hjá forlagi Munk- gaards og ber hún heitið „Coronary heart desease and physical fitness". Engin endanleg sönnun Karup prófessor dregur þá niðurstöðu af þessari stóru bók að enn sé ekki hægt að fullyrða að endanleg sönnun sé fyrir lækn- ingamætti hreyfingar og þjálfunar, hvort sem slikt er hugsað sem fyrirbyggjandi ráðstöfun eða endurhæfing eftir sjúkleika. En hann kemst að þeirri niðurstöðu að engu að siður sé margt sem mæli með þvi og rétt sé að hvetja til meiri likamsræktar og að slíkt hafi fyrirbyggjandi áhrif. Nú eru um tuttugu ár síðan menn veittu því athygli fyrsta sinni að æðakölkun var algengari dánarorsök hjá þeim sem hreyfðu sig litið en hjá þeim sem stunduðu störf sem kostuðu meiri áreynslu. En örðugt er að dæma um áhrif Þessar röntgenmyndir af hjartanu sýna er mótefni er sprautað inn í kransæðarnar. Á þeim sést munurinn á hjarta sem farið er að kalka og æðar að þrengjast (t.v.) og hins vegar heilbrigt hjarta þar sem blóðrásin er með eðlilegum hætti. hreyfingarleysis vegna þess hve margir þættir gripa inn i og hafa áhrif á þróun sjúkdómsins m.a. hár blóðþrýstingur, aukið fitu- magn i blóði, sigarettureykingar, sykursýki og óeðlilega mikill líkamsþungi. Hafa má áhrif á vöðvana og æðarnar Rannsóknir á síðustu árum benda engu að síður til að skortur á hreyfingu og þjálfun bjóði ákveðinni hættu heim. Rannsókn- ir hníga að því að breytingar á lifnaðarháttum gætu dregið úr hættu á hjartasjúkdómum allveru- lega. Menn hafa álitið að hin jákvæðu áhrif líkamsþjálfunar kæmu meðal annars fram örara blóðrennsli um æðar og að meira súrefni bærist til hjartans. En þessi kenning fær varla staðizt. Nú er skoðun sú almennari að áhrif likamsiðkunar komi ekki fyrst og fremst hjartanu sjálfu til góða, en hafi i för með sér breyt- ingar á vöðvabyggingu líkamans og áhrif á útvikkun og samdrátt æðanna. Efnaskipti vöðvanna Þjálfunin hefur í för með sér breytingu á lífefnafræðilegum lög- málum vöðvanna og áhrif á þau enzym, sem taka þátt í efnaskipta- starfi þeirra. Hjartað verður fyrir óeðlilegu álagi, þegar beitt er vöðvum, sem litt eða ekki eru þjálfaðir. Þvi meira sem maður verður að beita sér til að leysa af hendi verk, Framhald á bls. 29 Húsavík — SUS Er ríkisstjórnin á réttri leið Samband ungra sjálfstæðismanna efnir til almenns fundar á Húsavík um stjórn- málaástandið. Friðrik Zophusson, for- maður SUS mun hafa framsögu um ofan- greint mál. Að framsögu Friðriks lokinni verða al- mennar umræður. Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 16 n.k. í félags- heimilinu og hefst hann um kl. 1 4:30. öllum er heimil þátttaka Akranes Almennur fundur i sjálfstæðishúsinu Heiðarbraut 20 þriðjudaginn 18. marz kl. 8.30 síðdegis. Dagskrá: Efnahagsí og atvinnumál frummælandi Geir Hallgrimsson forsætisráðherra Öllum heimill aðgangur. Kaffiveítingar. Sjálfstæðisfélögin Akranesi. Aðalfundur í Sjálfstæðisfélaginu Snæfell, verður i Röst Hellisandi, sunnu- daginn 16. mars, kl. 14. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosningar. Stjórnin. Selfoss Sjálfstæðiskvennafélag Árnessýslu heldur bazar í sjálfstæðishúsinu Tryggvagötu 8, Selfossi sunnudaginn 1 6. marz kl. 2 e.h. Margt glæsilegra muna. Gerið góð kaup. Nefndin. Verkalýðsskóli Sjálfstæðisflokksins 20. — 23. marz n.k. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að halda i Reykja- vik Verkalýðsskóla Sjálfstæðisflokksins frá 20. — 23. marz. n.k. Megintilgangur skólans er að veita þátttakendum fræðslu um verkalýðshreyfinguna, uppbyggingu hennar, störf og stefnu og ennfremur þjálfa nemendur i að koma fyrir sig orði, taka þátt i almennum umræðum og ná valdi á góðum vinnubrögð- um í félagsstarfi. Meginþættir námskrár verða sem hér segir: 1. Saga verkalýðshreyfingarinnar. Leiðb.: Gunnar Helgason, ráðningarstjóri. 2. Meginstefna Sjálfstæðisflokksins og afstaða hans til verkalýðshreyfingarinnar. Leiðb.: Gunnar Thoroddsen, félagsmálaráðherra. 3. Fjármál og sjóðir verkalýðshreyfingarinnar. Leiðb.: Björn Þórhallsson, viðskiptafræðingur. 4. Vinnu löggjöfin og samningar. Leiðb.: Hilmar Guðlaugsson, múrari og Magnús Óskars- son, vinnumálastjóri. 5. Verkmenntun og endurmenntun á vegum verkalýðs- hreyfingárinnar. Leiðb.: Gunnar Bachmann, Kennari. 6. Launakerfi — Vísitölukerfi. Leiðb.: Magnús L. Sveinsson, skrifstofustjóri. 7. Starfsemi og skipulag verkalýðshreyfingarinnar og A.S.I. Leiðb.: Pétur Sigurðsson, alþingismaður. 8. Heilbrigði og öryggi á vinnustöðum. Leiðb.: Baldur Johnsen, yfirlæknir. 9. Stjórn efnahagsmála. Leiðb.: Jónas Haralz, bankastjóri. 1 0. Framtíðarverkefni verkalýðshreyfingarinnar. Leiðb.: Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður. 1 1. Framkoma í sjónvarpi. Leiðb.: Markús Örn Antonsson, ritstjóri. 1 2. Þjálfun í ræðumennsku, fundarsköpum o.fl. Leiðb.: Guðni Jónsson, skrifstofustjóri og Friðrik Sophus- son, lögfræðingur. Skólinn verður heilsoagsskóli meðan hann stendur yfir frá kl. 9:00 — 19:00 með matar- og kaffihléum og fer kennslan fram í fyrirlestrum, umræðum, með og án leiðbeinanda og hringborðs- og panelumræðum. Skólinn er opinn Sjálfstæðisfólki á öllum aldri, hvort sem það er flokksbundið eða ekki. Þátttökugjald hefur verið ákveðið kr. 2.500.000. Það er von skólanefndarinnar, að það Sjálfstæðisfólk, sem áhuga hefur á þátttöku i skólahaldinu, láti.skrá sig sem fyrst í sima 17100 eða 18192 eða i siðasta lagi mánudaginn 17. marz. Hafnarfjörður Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur fund mánudaginn 1 7. marz i sjálfstæðishúsinu kl. 8.30 Fundarefni: Sigurveig Guðmundsdóttir, formaður bandalags kvenna i Hafnarfirði mætir á fundinn. Kaffi. Reykjaneskjördæmi Bingó Sjálfstæðisfélag Vatnsleysustrandarhrepps heldur bingó í Glaðheimum, Vogum, sunnudaginn 16. marz kl. 8.30. Spil- aðarverða 12 umferðir. Góðir vinningar. Skemmtinefndin. Al bert Guðmundsson Isleifur Gunnarsson Hvar eru þingmenn Reykjavíkur? HEIMDALLUR S.U.S. í Reykjavik gengst fyrir almennum fundi um hagsmuni Reykjavikur á Alþingi. Fundurinn verður haldinn í Glæsibæ (niðri) þriðjudaginn 1 8. mars n.k. kl. 20.30. Framsögumenn á fundinum verða þeir Albert Guðmundsson alþm. og Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri. Öltum Þingmönnum Reykjavíkur er sérstaklega boðið á fundinn. Eru hagsmunir Reykjavikur Fyrir borð bornir á Alþingi ís- lendinga? Stjórnin. Hveragerði Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins Ingólfs í Hveragerði verður haldinn laugardaginn 15. marz kl. 16.00 í Hótel Hveragerði. Venjuleg aðalfundarstörf. Hreppsnefndarfulltrúar D-listans sitja fyrir svörum. Stjórnin. Fulltrúaráð Kjósarsýslu Aðalfundur fulltrúaráðs Kjósarsýslu verður haldinn að Hlé- garði, laugardaginn 15. marz kl. 14.00. Venjuleg aðalfundastörf. — Þingmenn kjördæmisins mæta á fundinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.