Morgunblaðið - 15.03.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975
13
Einvígið um
heimsmeistaratitil
kvenna í skák
Eins og skýrt var frá í þætti
hér f blaðinu fyrir skömmu
stendur nú yfir í Moskvu ein-
vigi um réttinn til þess að
skora á Nonu Gaprindaschvili,
heimsmeistara kvenna, í ein-
vígi um heimsmeistaratitilinn,
sem hún hefur haldið um
nokkurra ára skeið. Kepp-
endur I þessu einvígi eru þær
N. Alexandria og I. Levitina.
Þegar síðast var frá skýrt hafði
Levitina eins vinnings forystu,
en siðan snerist dæmið við
þegar Alexandria vann tvær
skákir i röð, þá 7. og þá 8.
Levitina vann síðan eina skák
og þrjár urðu jafntefli þannig
að eftir 12 skákir var staðan
jöfn 6:6. Við skulum nú lita á
7. skák einvfgisins, sem er
bæði skemmtileg og vel tefld.
Hvftt: N. Alexandria
Svart: I. Levitina
SIKILEYJARVÖRN
I. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — a6, 5. Rc3
— Rc6, 6. g3 — Dc7, 7. Bg2 —
Rf6, 8. 0—0 — Be7
(Annar góður möguleiki er
hér 8. — d6, 9. Hel — Bd7, 10.
Rxc6,bxc6, 11. Ra4 — Be7, 12.
c4 — 0—0,13. b3 o.s.frv.).
9. Hel — Rxd4, 10. Dxd4 —
Bc5, 11. Bf4!
(Sterkara en 11. Ddl — d6, 12.
Be3 — 0—0 o.s.frv.).
II. — d6,
(11. — Bxd4, 12. Bxc7 — Bxc3,
13. bxc3 er hagstætt hvftum).
12. Dd2 — Rg4,
(Algengast er hér 12. — h6, en
með þessum leik vill svartur
reyna að hagnýta sér að hvíti
hrókurinn er farinn af reitn-
um el).
13. He2 — Bd7?
(Hér var nauðsynlegt að hróka
stutt).
14. b4!
(Nú nær hvítur afgerandi yfir-
burðum).
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
14. — Bxb4, 15. Rd5! — exd5,
(Auðvitað ekki 15. — Bxd2, 16.
Rxc7+ — Kd8, 17. Rxa8 og
vinnur).
16. Dxb4 — 0—0—0,
(Eða 16. — Re5, 17. Bxe5 —
dxe5, 18. exd5 — a5, 19. d6 —
axb4, 20. Hxe5+ — Kd8, 21.
dxc7+ — Kxc7, 22. He7 og
vinnur).
17. Bxd6 — Dc4, 18. exd5. —
Dxe2,
(18. — Dxb4, 19. Bxb4 —
Hhe8, 20. Hael var álika von-
laust fyrir svartan).
19. Dc5+ — Bc6, 20. dxc6 —
b6, 21. Dxb6 — Dxf2+, 22.
Dxf2 — Rxf2. 23. Bf4!
(Nú fær svartur ekki varist
fæðingu nýrrar drottningar).
23. — g5,
(Örvænting; 23. — Rg4 dugði
ekki vegna 24. Hbl)
24. Bxg5 — Hdl+, 25. Hxdl —
Rxdl, 26. Bf4 — f5, 27. Bfl —
a5, 28. Be5!
(Mun sterkara en 28. Ba6 eins
og síðar kemur í ljós).
28. — Hf8, 29. Ba6+ — Kd8,
30. c7+ — Kd7, 31. c8D+ —
HxcS, 32. Bxc8 — Kxc8, 33.
Bd4
(Nú kemur gildi 28. leiks hvíts
glöggt I Ijós, svarti riddarinn
er fangaður).
33. — a4, 35. a3 og svartur
gefst upp.
M0RGUHBL&BIB
fyrir 50 árum
Símað er frá Palestínu, að Aröbum þar í landi sje meinilla
við hinn nýja háskóla Gyðinga. Eru þeir og mótfallnir þvi, að
þeir hverfi aftur til landsins, því þeir óttast undirokun. Skoða
Arabar landið sína eign, eftir margra alda dvöl sína í þvi.
Sanokrysintilraunirnar á Vífilsstöðum — Einn sjúklingurdó
núna rjett fyrir helgina, ótvírætt af völdum sanokrysinsins.
Einn af sjúklingunum hefur tekið óvæntum bata, þó alls ekki
fullum bata. Að sanokrysinið er mjög varasamt lyf — það
hafði öll alþýða fengið að heyra, áður en þessar tilraunir
byrjuðu.
Morgunblaðið mun bráðlega birta hæstu útsvörin, er lögð
hafa verið á i þetta sinn hjer i bæ. Hæsta útsvarið ber nú
Kveldúlfur. Hefir hann 125 þúsund krónur og vantar 4
þúsund til að það sje jafnhátt allri niðurjöfnunarupphæðinni,
sem lögð var á 1913
Sá, sem kaupir 1 bindislifsi, eina sokka eSa ein axlabönd. fær 1 flibba
einfaldan eða tvöfaldan í kaupbætir. — Guðm. B. Vikar, Laugaveg 5.
í gær tapaðist úr Landsbankanum að verslun Ásgeirs Gunnlaugssonar, 50
króna seðill i bláu umslagi. Skilist á A.S.Í.
Hreinlegan og vanan mann vantar til að skera tóbak. — Tóbakshúsið,
Austurstræti 1 7.
MATSEÐILL
VIKUNNAR
Umsjon:
Hanna Guttormsdóttir
mAnudagur
Fiskhringur með grænmetisjafningi,
júlíönnusúpa.
ÞRIÐJUDAGUR
Steiktar kjötbollur,
brún sósa,
hrátt salat,
kakósúpa með tvíbökum.
MIÐVIKUDAGUR
Soðinn rauðmagi (sjá uppskrift),
sítrónusósa eða karrýsósa,
appelsínur.
FIMMTUDAGUR
Kjöt í karrý með hrísgrjónum,
hrísgrjónaábætir (sjá uppskrift).
FÖSTUDAGUR
Medistapylsur með lauk, eplum og sveskj-
um,
sveskjugrautur.
LAUGARDAGUR
Kryddsíld með köldu kartöflusalati (sjá
uppskrift),
Rúgbrauð og smjör
súrmjólk með kornflögum.
SUNNUDAGUR
Blómkálssúpa (sjá uppskrift),
nautasteik,
franskar kartöflur,
hrátt salat,
kremhringur (sjá uppskrift).
SOÐINN RAUÐMAGI
2 rauðmagar
Hreinsið hveljuna, ef á að borða hana.
Hellið yfir fiskinn sjóðandi vatni, og
skafið, þangað til allar körtur eru farnar.
Skerið uggana og hausinn af. Takið inn-
yflin út, og hirðið lifur og svil. Skerið
rauðmagann í sneiðar. Sé hveljan tekin af,
skal það gert á eftirfarandi hátt: Skerió
rauf meðfram hryggnum, og rífið hvelj-
una af frá hrygg aó kviði. Skerið síðan
hausinn, uggana og sogskálina af. Slægið
fiskinn. Látið 2 msk. salt, 1 msk. edik,
6—8 piparkorn, 1 lárviðarlauf og 1 lítinn
lauk í hvern lítra af vatni. Suðutími um 5
mín., en fer eftir þykkt fiskstykkjanna.
Berið soðinn rauðmaga fram með soðnum
kartöflum og ediki.
9
KRYDDSÍLD MEÐ KÖLDU
KARTÖFLUSALATI
1 egg
100 g majones
V4 dl. rjómi
1 lítill laukur
2 tsk ensk sósa
1 msk tómatkraftur
um 250 litlar, soðnar kartöflur
2 kryddsíldarflök, sem legið hafa í ediks-
legi
graslaukur eða steinselja
Harðsjóðið eggið. Þeytið rjómann, og
blandið í majónesinn ásamt rifnum lauk,
enskri sósu og tómatkrafti. Skerið kartöfl-
urnar í sneiðar, og leggið þær á fat. Hellið
majonesinum yfir. Skerið síldina í bita, og
leggið þá yfir. Saxið eggið og stráið þvi á
milli sildarbitanna. Stráió saxaðri stein-
selju eða graslauk yfir.
HRÍSGRJÓNAÁBÆTIR
V41 mjólk
60 g hrísgrjón
1 tsk vaniljudropar
6—10 möndlur, ef vill
1 msk sykur
3 dl rjómi
Sjóðið úr mjólkinni og hrísgrjónunum, og
kælið hann (nota má afgang af hrísgrjóna-
graut). Afhýðið möndlurnar, saxið þær,
og látió. út í grautinn ásamt sykri og
vaniljudropum. Þeytið rjómann, og bland-
ið honum varlega saman við. Berið ávexti í
sykurlegi, frosna ávexti, saftsósu eða þ.h.
með hrísgrjónaábæti. Abætinn má búa til
úr soðnum hrísgrjónum (2 dl hrísgrjón, 3
dl vatn), en þá þarf að láta 2 blöð af
bræddu matarlími saman við.
BLÓMKÁLSSÚPA
l'A 1 soð (t.d. kjötsoð og soð af blómkál-
inu)
25 g smjörlíki
25 g hveiti
salt
1 eggjarauða
1—2 msk rjómi
1 lítið blómkálshöfuð
Skiptið blómkálshöfðinu i skúfa, og sjóðið
þá í 10—15 min. Sjóðið kjötsoðió og bland-
ið þvi saman við blómkálssoðið. Jafnið
með mjölbollu. Saltið. Hrærió eggjarauðu
og rjóma saman í súpuskálinni. Hellið
heitri súpunni út i smám saman. Látið
blómkálið út i súpuna og látið blómkálið
út í súpuna og látið suðuna koma upp.
Berið fram blómkálssúpu með hveiti-
brauðsneiðum, hnúðum eða þ.h.
KREMHRINGUR
6—8 blöð matarlím
2 egg
40 g sykur
1 tsk vaniljusykur eða — dropar
4 dl mjólk
1 dl rjómi
Leggið matarlímið i bleyti í kalt vatn.
Þeytið eggjarauðurnar með sykrinum.
Látið suðuna koma upp á mjólkinni, og
hellið henni smám samgn út í eggjarauð-
urnar. Kreistið vatnið úr matarlíminu, og
látið það bráðna í heitu kreminu. Kælið
kremið og hrærið í því við og við. Blandið
þeyttum eggjahvítum og þeyttum rjóma
varlega saman við, er það fer að þykkna.
Hellið kreminu í skál eða hringmót, sem
hefur verið skolað úr köldu vatni. Hvolfið
hringmótinu, og berið kremhringinn fram
með niðursoðnum ávöxtum eða þ.h.