Morgunblaðið - 15.03.1975, Síða 16

Morgunblaðið - 15.03.1975, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975 Utgefandi Framkvaemdastjóri Ritstjórar Ritstjómarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgraiBsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn GuSmundsson. Bjöm Jóhannsson. Arni GarSar Kristinsson. ABalstrnti 6, sfmi 10 100. ABalstraeti 6. sfmi 22 4 80. Hafréttarráðstefna Sam- einuðu þjóðanna hefst á ný í Genf á mánudag. Miklar vonir hafa verið bundnar vió þessa ráð- stefnu, þar sem mikill meirihluti þátttökuríkj- anna hefur lýst yfir stuðn- ingi við meginregluna um 200 mílna efnahagslög- sögu. En þrátt fyrir þessar aðstæóur er full ástæóa til þess aó sýna hæfilega bjartsýni nú vió upphaf þessa hluta ráóstefnunnar. Ljóst er, að ryója þarf mörgum steinum úr vegi áður en samkomulag getur náóst um þá meginreglu, sem flestar þjóðirnar virð- ast þó fylgja. Hvað sem nióurstöóum þessarar ráóstefnu líður, mun ríkisstjórnin taka endanlega ákvörðun aö henni lokinni um útfærslu fiskveiðilandhelginnar í 200 sjómílur á þessu ári. Það er yfirlýst stefna, sem ekki veróur hvikaó frá. Á hinn bóginn veróa menn að gera sér grein fyrir, að það mun kosta haröa baráttu aó fylgja fram rétti okkar til 200 sjómílna fiskveiói- lögsögu gagnvart öórum þjóðum. Aö vísu er traust- ari grundvöllur fyrir út- færslu í 200 sjómílur nú en út í 50 sjómílur fyrir þrem- ur árum, svo ör hefur þró- unin verið í átt til víóáttu- mikillar efnahagslög- sögu. En vió veróum aó varast að láta þessa hag- stæðu þróun villa okkur sýn og telja eftirleikinn auóveldari en efni standa til. í samtali við Morgun- blaðið í gær leggur Hans G. Andersen, sendiherra og formaöur íslenzku sendi- nefndarinnar í Genf, áherzlu á, að við upphaf ráðstefnunnar sé rétt aó sýna hóflega bjartsýni um árangur. Sendiherrann bendir á, að enn liggur fyr- ir mikill fjöldi tillagna, þó aó verulegur árangur hafi oróió á fundum ráðstefn- unnar í Caracas aö því er varðar fækkun á þeim val- kostum, sem settir hafa verió fram. Þá er einnig ljóst, að á Evensenfundun- um svonefndu hefur oröið verulegur árangur í við- leitni þátttökuríkjanna við að ná samkomulagi um einn texta fyrir hvert atr- iói, sem um er fjallaó. En þrátt fyrir þessa hagstæóu framvindu málsins til þessa, er meö öllu útilokað að hafa uppi spádóma um endanlega niðurstöðu þess hluta ráðstefnunnar, sem nú er að hefjast. Varaformaóur banda- rísku sendinefndarinnar á hafréttarráðstefnunni hef- ur lýst yfir því, að hann sé mjög bjartsýnn á, að 200 sjómílna efnahagslögsagan verði samþykkt á Genfar- ráðstefnunni. Þessi bjart- sýni Bandaríkjamanna mun vera sprottin af því, að þeir hafa á Evensen- fundunum náó fram því, sem þeir sætta sig við. Þeir vilja þannig fallast á, að erlendar þjóðir fái í sinn skerf þann hluta fiskstofn- anna innan 200 sjómílna lögsögunnar, sem strand- rikin geta ekki sjálf nýtt, og þeir vilja ennfremur fallast á, að gerðardómur skeri úr ágreiningi, sem upp kunni að rísa vegna þessa. Bandaríkjamenn eru reiðubúnir að staö- næmast viö þennan áfanga. Með hliósjón af þessum aö- stæóum er von aó Banda- ríkjamenn séu bjartsýnir um árangur af þessum hluta ráðstefnunnar. íslendingar hljóta á hinn bóginn aó leggja afdráttar- laust á það áherzlu, að strandríkin sjálf hafi óskerta lögsögu yfir fisk- veiðum innan 200 sjómílna og þau meti sjálf, hvort um umframmagn er aó ræða og hvernig það verður nýtt. Við ætlum okkur með öórum orðum að ná mun lengra en Bandaríkjamenn og getum af þeim sökum ekki verið jafn vongóðir um árangur eins og þeir. Næstu vikur skera úr um það, hvort takast muni að ná bindandi samkomulagi um óskilyrtan rétt strand- ríkjanna yfir 200 sjómíl- um. 1 nefndu viðtali segir Hans G. Andersen m.a.: „Nú þegar við höldum til Genfar má minnast þess, að ísland hefur ekki nema eitt atkvæði á ráðstefnunni af eitt hundrað og fimmtíu, en við höfum trú á því aó með starfi undanfarinna ára hafi verió lagður grundvöllur að því, aö okk- ar hagsmunum veröi borg- ió, þegar upp verður staðið. En aö mínu áliti munu lín- ur ekki skýrast nægilega fyrr en á síðari hluta Gen- farráóstefnunnar.“ Víst er að það mikla starf, sem unnió hefur verið til þess að ná samkomulagi um al- þjóólegar réttarreglur á þessu sviði, styrkir aðstöðu okkar í þeirri baráttu, sem nú hefur staðið svo til óslit- ið í hart nær þrjá áratugi. Viö hljótum því að leggja ríka áherzlu á að ná kröf- um okkar fram í Genf, en um leió verða menn að gera sér grein fyrir, aö hér er um mjög flókið úr- lausnarefni að ræóa og mikið verk er enn óunnió. Hafréttarráðstefnan í Genf Stundaði snyrtingu undir handleiðslu lækna á spítala GUNNHILDUR Gunnarsdótlir starfaói scm snyrfisérfræðing- ur vió húósjúkrahús Christian- Albrechts háskóla i Kiel í Þýzkalandi, þegar fréttamaóur Mbl. hitti hana fyrst. Þar vann hún vió snyrlimeóhöndlun húó- sjúkdóma undir handleióslu læknanna. Þar sem slíkt starf mun óþekkt hér, notuóum vió takila rió til aó spyrja Gunn- hildi nánar um þaó, þegar vió hittum hana um daginn hér í Reykjavík, þar sem hún var aó opna snyrtistofu, ú'tlit í Garða- stræti 3. Aóur en Gunnhildur fór aó vinna vió húósjúkrahúsið, hafói hún stundað nám í Kieler Fachschule fúr Kosmetik í eitt ár. En sérgreinar í þeim skóla fara fram í þessu húðsjúkra- húsi. Eftir að Gunnhildur hafði sótt skyldunámskeið í sjúkra- húsinu véfurinn 1972 og orðið efst á prófinu, var henni boðin föst staða í sérstakri snyrtideild í sjúkrahúsinu, þar sem fram fer svonefnd „medizinsche Kosmetik". I sjúkrahúsi háskól- ans vann hún svo vió snyrtingu og meðhöndlun húósjúkdóma undir handieióslu læknanna frá haustinu 1972 til ársloka 1974. En hún og maður hennar, Karl Johann Ottosson, fluttu heim í vetur, eftir að hann hafði lokið prófi í hagfræði. — Þarna er mjög stórt sjúkrahús fyrir húð- og kyn- sjúkdóma, enda kemur þangað fólk úr öllu Norður-Þýskalandi, sagói Gunnhildur til skýringar. 1 sjúkrahúsinu er snyrtistofa og þangað senda Jæknarnir sjúkl- inga, ef þeir telja eftir rann- sókn að eitthvað sé hægt að gera fyrir þá. þar. Og þeim fylg- ir að sjálfsögðu kort með fyrir- mælum um það hvað eigi aó gera og hvaða krem eða meóul eigi að nota. Þar gat verið um að ræða margs konar kvilla i húðinni, í andliti, á höndum og fótum eða til dæmis á baki og bringu, eins og algengt er hjá unglingum. Til dæmis notuðum við rafmagnstæki á fótasár. Til okkar voru sendir sjúklingar úr sjúkrahúsinu sjálfu og eins þeir, sem komu í göngudeildina með margvísleg vandamál. Þessi tilhögun er til mikils hag- ræðis fyrir læknana, sem ekki hafa tima til að hreinsa húðina, nudda hana, kreista bólur og þess háttar. Þeir fylgjast svo meó sjúklingunum og líta á árangurinn vikulega eða’mán- aðarlega, eftir því sem við á. Sjúkrahúsið veitir þetta sem læknisþjónustu og borgar hana sem slíka. — Ef nýtt krem kom á mark- aðinn, var það einnig sent til prófunar í háskólasjúkrahúsið, hélt Gunnhildur áfram. Þar voru gerðar ofnæmisprófanir og við tókum það til neytenda- prófunar. Létum fólk reyna það og fylgdumst með því hvernig það reyndist. — Eins kom oft til okkar fólk, sem hafði átt í einhverjum erfiðleikum meó snyrtivörur, virtist hafa ofnæmi fyrir þeim eða eitthvað slíkt. Við gerðum þá prófanir og veittum ráð. Þarna i sjúkrahúsinu höfðum við allar þýzkar snyrtivöruteg- undir og nokkuð af innfluttum snyrtivörum. En þar sem við seldum ekkert, þá höfóum við óbundnar hendur með aó ráð- leggja hvað'a merki bezt hent- aði og leiðbeindum fólki um það, hvað ætti best við hvern og einn. Því má skjóta hér inn i, að í meðmælum frá lækninum dr. Proppe, segir að Gunnhildur hafi góða þekkingu á lífeðlis- fræði yfirhúðarinnar, greini vel mismunandi næmi og þekki hættur ofnæmis. En Gunnhild- ur tók fram, að snyrtifræðing- unum við sjúkrahúsið væri kennt að greina sjúkdóma og lögð mikil áherzla á að þeir hefðu vit á að senda sjúkling- ana til læknisins, þegar þeir sæju merki um þá, en snerta ekki við þeim á eigin spýtur. Til dæmis mega þeir aðeins slípa yzta borð húðarinnar, en senda sjúklinginn ávallt til læknis, ef slípa þarf dýpra. En oft fólu læknarnir þeim að slípa yfir- borð húðarinnar vegna sveppa- sjúkdóma. Ekki kvaðst Gunnhildur hafa haft samband við nokkurn lækni hér né vita hvort þeir vildu nýta slíka þjónustu. Af sömu ástæðu hefði hún engin meðul undir höndum á snyrti- stofu sinni hér. En hún kvaóst hafa tekið heim með sér nudd- tæki, gufudreifara með súr- efnislampa til sótthreinsunar og fá slípivél fyrir grófa húð. Eins kvaðst hún hafa valið sér snyrtivörur, sem hún þekkir vel og það merki, sem lætur sýnishorn. — Það er nauðsyn- legt að geta gefið fólki kost á að reyna vöruna, sem maóur er að ráðleggja því, áður en það er búið að verzla fyrir háar upp- hæðír, sagði hún til skýringar. Annars finnst mér snyrtivörur alls ekki dýrar hér, þær eru a.m.k. mun ódýrari en í Þýska- landi. — Mér fannst ákaflega gam- an að fá tækifæri til að starfa með læknunum í sjúkrahúsinu í Kiel. Þeir rannsökuðu af hverju gallarnir í húðinni stöfuðu í hverju tilfelli og mað- ur sá árangur af starfi sínu. Það var til dæmis mjög skemmtilegt að sjá muninn á unglingum, sem voru allt að því hættir að þora að líta upp, en fengu sjáls traustið aftur við að losna við bólurnar, sagði Gunnhildur að lokum. —E.Pá. BU8IWS OW l«W0* Gunnhildur Gunnarsdóttir í sn.vrtistofu sinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.