Morgunblaðið - 27.03.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975
Gjaldskrá Rafmagnsveit-
unnar hækkar um 10%
Engin páskahrota?
SAMÞYKKT hefur verið heimild
til hækkunar gjaldskrár Raf-
magnsveitu Reykjavfkur frá og
með 1. aprfl næstkomandi um
10%. Er hækkunin veitt til þess
að mæta fyrirsjáanlegum
greiðsluhalla fyrirtækisins á ár-
inu 1975, en hann er áætlaður um
330 milljónir króna. Gengisbreyt-
ingin ein kostaði Rafmagnsveit-
una 140 milljónir króna og fór
hún fram á 21% hækkun miðað
við 1. marz síðastliðinn.
Steinar Berg Björnsson, skrif-
stofustjóri Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sagði í viðtali við
Mbl. i gær að eftir að búið er að
skera niður framkvæmdir og
annað án þess þó að segja upp
fólki vanti Rafmagnsveituna enn
170 milljónir króna til þess að
geta brúað bilið og verður fyrir-
tækið hugsanlega að taka þessa
upphæð að láni, svo að unnt sé að
halda áfram nýtengingum húsa,
Mokafli af
rauðmaga
Siglufirði, miðvikudag.
HÉR ER allt að fyllast af síld,
mátti lesa i Morgunhlaðinu f
gamla daga á sfldarárunum. En
nú hljóða fréttir héðan um að allt
sé að fyllast af rauðmaga, enda er
það svo. Margir bátar stunda nú
rauðmagaveiðar og er mokafli hjá
þeim og erfitt orðið að koma öll-
um aflanum frá. Einn rauðmaga-
kallanna sagði mér f morgun, að
bátarnir kæmu með hundruð
rauðmaga úr hverjum róðri, —
allt upp f 400—600 stykki. En
grásleppan er aftur á móti í treg-
ara lagi enn sem komið er.
sem verið er að reisa. Steinar
Berg sagði, að forráðamenn fyrir-
tækisins væru að sjálfsögðu mjög
uggandi yfir því að þurfa að taka
að láni svo mikla upphæð og með
því að fresta nauðsynlegri hækk-
un gjaldskrár væri í raun aðeins
verið að fresta vandamálunum
fram á næsta ár og auka vaxta-
byrði Rafmagnsveitunnar.
Hagur fyrirtækisins var mjög
góður árið 1970, en nú eru erlend-
ar skuldir Rafmagnsveitunnar
tæplega 8 milljónir dollara, sem
eru bein afleiðing þess að um-
beðnar gjaldskrárhækkanir hafa
ekki fengizt fyrr en allt of seint.
Vaxtabyrði fyrirtækisins er þeg-
ar orðin gífurleg og áætlað er að
það verði að greiða f afborganir
og vexti á árinu 1975 293 milljónir
króna. Eftir þessa 10% hækkun
er vaxtabyrðin orðin 14,5% af
nettótekjum stofnunarinnar og
þetta hlutfall eykst ef Rafmagns-
veitan er nú neydd til frekari
lántcku. Árið 1974 var fyrsta árið,
þar sem Rafmagnsveita Reykja-
víkur var rekin með halla, sem
nam 53 milljónum króna. Þess
ber að geta að í þessum tölum
hefur ekki verið gert ráð fyrir
neinum launahækkunum, sem nú
kunna að koma til framkvæmda.
UNNIÐ hefur verið áfram að gera
akfæra uppfyllingu úr Flatey á
AFLABRÖGÐ eru enn mjög
dauf vfðast hvar á landinu, að
minnsta kosti við suðurströndina.
Menn eru nú farnir að bíða eftir
hinni gamalkunnu páskahrotu,
en sumir eru farnir að verða
svartsýnir, þar sem ekkert hefur
Skjálfanda út í Hvassafell en þvf
verki hefur miðað fremur seint
vegna töluverðs sjógangs. Af
þeim sökum er enn ekkert farið
að eiga við áburðarfarminn f lest
skipsins.
1 gær var komið logn og bliða i
Flatey, þannig að allt benti til
þess að fljótlega yrði hægt að
ljúka við uppfyllinguna út að
skipinu og hefjast handa um
björgun áburðarins.
BRÆÐSLUSKIPIÐ Norglobal var
búið að taka á móti 71.300 tonn-
um af loðnu f gærmorgun, en
skipið er nú búið að vera 60 daga
á fsiandsmiðum. f upphafi var
ekki gert ráð fyrir að skipið yrði
lengur en 45 daga, en leigutíminn
hefur síðan verið framlengdur
vegna hinnar góðu loðnuveiði,
sem verið hefur.
Vilhjálmur Ingvarsson hjá Is-
birninum sagði þegar Morgun-
blaðið hafði samband við hann í
gær, að bræðslan hefði gengið
framar vonum allan tímann og
veður verið einstaklega hagstætt.
Ef loðnuveiði leggst niður á
næstu dögum fer Norglobal strax
til Noregs, en ef veiðin heldur
Leiðrétting
I VIÐTALI við Jón Oddsson hrl. i
Mbl. fyrir skömmu var sagt að
þrjár aðgerðir f augum hefði mis
tekist. Hér var um misskilning að
ræða þvi umræddar aðgerðir
heppnuðust og kom í ljós, við þær,
að skipta þurfti um hornhimnur á
augum Jóns. Eru dr. med. Guð-
mundur Björnsson og aðrir hlut-
aðeigandi beðnir velvirðingar á
þessu.
bólað á aukinni fiskgengd. En vel
að merkja, þá er stærsti straumur
ekki fyrr en á föstudag og því
gæti fiskurinn komið enn.
Magnús Sighvatsson i Vest-
mannaeyjum sagði, þegar við
ræddum við hann, að mjög dauft
væri yfir vertíðinni í Eyjum. Afli
væri einstaklega lélegur hjá neta-
bátum, en trollbátarnir hefðu þó
fengið reytingsafla síðustu daga.
Hæsti báturinn, Þórunn Sveins-
dóttir, var i gær kominn með 505
lestir, en sá bátur sem er annar í
röðinni er aðeins með 400 lestir.
— Við bíðum aðeins eftir páska-
hrotunni, en þvi miður hefur ekk-
ert lagast í straumnum.
ÁSTANDIÐ I raforkumálum f
umdæmi Laxárvirkjunar hefur
heldur farið skánandi undanfarið
og í gær var gizkað á að raforku-
framleiðslan væri komin upp í
um 14000 kflówött eftir að hafa
fallið niður f 9 þúsund kw. þegar
áfram verður skipið hér fram yfir
páska. „Veiðin ræður öllu,“ sagði
Vilhjálmur.
INNBROT var framið f skipa-
smíðastöðina Stálvfk hf. f
Garðahreppi um sfðustu helgi.
Var stolið peningakassa úr
skrifstofu fyrirtækisins en f
honum voru verðmæt skjöl og
pappírar, 40—50 þúsund krón-
um f peningum, útfylltar ávfs-
anir að upphæð 210 þúsund
krónur og samþykktir vfxlar að
upphæð 560 þúsund krónur.
Þjófurinn eða þjófarnir
brutu upp útihurð og komust
inn f kyndiklefa skrifstofu-
byggingarinnar. Þaðan lá leið
þeirra f .nötuneyti á neðri hæð
og þaðan komust þeir upp f
skrifstofuna á efri hæð hússins.
Peningakassinn var geymdur í
herbergi með eldvarnarhurð úr
járni. Þessi hurð var brotin
upp.
Þremur óstimpluðum ávfs-
A viktinni f Keflavik fengum
við þær upplýsingar, að það væri
ekki hægt að tala um að fiskur
bærist á land. Aflinn hefði ekkert
aukist síðustu daga, en menn
lifðu enn í voninni. Hæsti bátur-
inn þar er Valþór með 400 lestir.
Sömu sögu er að segja frá
Grindavík. Þangað komu í fyrra-
dag 65 bátar með 410 lestir og var
Geirfugl hæstur eins og svo oft
áður með 27 lestir. Gísli lóðs var
með 20 lestir, en algengur afli var
4—8 lestir.
Grindavíkursjómenn hafa ekki
orðið varir við aukna fiskgengd
og heildaraflinn er svipaður þvi,
sem hann var á sama tíma í fyrra.
verst lét. Við eðlilegar kringum-
stæður afkastar Laxárvirkjun
hins vegar rfflega 19 þúsund
kflówöttum, að sögn Knúts
Otterstedt rafveitustjóra, þaivnig
að enn vantar talsvert upp á.
Umdæmi Laxárvirkjunar hefur
verið deilt niður í fjögur
skömmtunarsvæði, en i gær
þurfti ekki að taka öll svæðin út.
Að því er Knútur tjáði Morgun-
blaðinu í gær er enn töluvert kalt
fyrir norðan en veður stillt og
ekki sjáanlegt að nein ný krapa-
myndun muni eiga sér stað.
„Þetta þokast því allt í áttina,"
sagði Knútur,“ en vert er að hafa
í huga að það eru álagsþungir
dagar framundan."
anaheftum var stolið með sam-
tals rúmlega 100 blöðum. Eitt
heftanna var frá Landsbankan-
um, 45 blöð, sfðasta númerið
896605. Eitt var frá (Jtvegs-
bankanum, 41 blað, sfðasta
númerið 231359. Loks var hefti
frá Iðnaðarbankanum, 19 blöð,
sfðasta númerið 37531. Þrfr
samþykktir víxlar voru í kass-
anum, einn stflaður á Þóri hf.,
að upphæð 400 þúsund, einn á
Bátalón hf„ að upphæð 100 þús-
und krónur. Þá voru f kassan-'
um 20 útfylltar ávfsanir á ýmsa
aðila, samtals að upphæð 210
þúsund krónur.
Það eru tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar f Hafnarfirði, að
ef einhverjír geta gefið upplýs-
ingar f þessu máli hafi þeir
samband við lögregluna f Hafn-
arfirði sem fyrst.
m.j.
er 96 síður í dag,
blað I og II
I blaði I er meðal annars efnis:
Myndasyrpa frá Hafnarfirói á öðrum og þriðja áratugnum
(bls. 10).
Að eyða heilum degi í eina ljósmynd. Björn Vignir ræðir við
Hjálmar Bárðarson siglingamálastjóra (bls. 12).
A bls. 16 eru páskamyndir bíóanna og á bls. 28 og 32 eru
messurnar yfir hátíðina og listar yfir fermingarbörn.
Ingólfur Guðbrandsson skrifar um Handel og Messías (bls.
18).
1 tilefni kvennaárs (20).
Friðurinn sem aldrei varð. Grein um Kambódíu (22).
Jóhannes Helgi: Bók er milljón (24).
Á bls. 25 skrifa þeir Valtýr Pétursson og Bragi Ásgeirsson um
myndlist.
Sjónvarp og útvarp um páskana er á bls. 35.
Biaðll
Bls.
50 — Vonleysi verkakvenna var átakanlegt. Margrét Bjarnason
ræðir við Jóhönnu Egilsdóttur.
52 — Islendingur í Poznan eftir Guðmund Halldórsson.
54 — Engin della stendur undir nafni. Árni Þórarinsson ræðir
við Ömar Ragnarsson.
58 — Lifandi mynd kviknaði út úr járnahrúgunni. Ingvi Hrafn
heimsækir Sigurð Steinsson.
60 — Sigtryggur Sigtryggsson spjallar við Torfa Jónsson varð-
stjóra um vísna- og spakmælasöfnun.
62 — Kom huggari, mig hugga þú ... Jóhanna Kristjónsdóttir
skrifar um Þormóðsslysið 1943.
64 — Staðfestu jarðarkaupin með handsali ... Örn O. Johnson
forstjóri talar um búskap við Magnús Finnsson.
82 — Búðarstúlka í Reykjavík hér áður fyrr. Viðtal við Elísa-
betu Árnadóttur eftir Elínu Pálmadóttur.
85 — Þetta var mikið „streð“ fyrir mannskapinn. Björgunar-
málin eru á dagskrá í grein Þórleifs Ölafssonar.
88 — Þú hefur ekki verið lánlaus,drengur minn. Árni Johnsen
ræðir við Helga S. Eyjólfsson.
94 — I súðarherbergi með olíuvél. Jónína Þorfinnsdóttir og
Ragnar Edvardsson segja Áslaugu Ragnars frá lifs-
reynslu sinni.
Þá er „páska-auki“ f blaði II með efni úr Lesbók.
Til Golgata í páskaleyfinu, þýdd saga; Alfreð Flóki mynd-
skreytti (bls. 65).
Páskadraumur eftir Þuríði J. Árnadóttur (66).
Kvennasögur eftir Steinunni Sigurðardóttur (67).
Páskar i Borgarfirði. Ljóðaflokkur eftir Jóhann Hjálmarsson
með myndskreytingu Alfreðs Flóka (68).
List og umhverfi eftir Níels Hafstein (69).
Grjótaþorpið. Texti og teikningar eftirGísla Sigurðsson (70).
Tvö ljóð eftir Ingimar Erlend Sigurðsson (76).
Örlög þín ráðast við fæðinguna, þýdd grein (76).
Hvassafell:
Enn ekkert átt
við áburðinn
Norglobal búið að taka
á móti 71 þús. lestum
Verður fram yfir páska ef eitthvað veiðist
Betra ástand í raf-
orkumálum nyrðra
STORÞ J OFNAÐ-
UR í STÁLVÍK HF.