Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1975 1975 SÆBJÖRN VALDIMARSSON SIGURPUR SVERRIR PALSSON Stjörnubíó: Brúin yfir Kwai fljótið („The Bridge on the River Kwai“) Það þarf ekki að kynna svo ýkja mikið páska- myndina í Stjörnubíó. „B.Y.K.F." var frumsýnd þar fyrir sautján árum, við mikla lukku, og síðan hefur hún verió endur- sýnd í örfá skipti, i nokkra daga aðeins, hverju sinni. Nú býður kvikmynda- húsió uppá nýtt eintak (eopy), með íslenskum texta að auki, og er ekki nokkur vafi á því aó bæói þeir sem hafa séð BYKF áður, rifja nú upp góða endurminningu og eins þeir sem aldrei hafa séó hana nota tækifærið og njóta mjög svo vand- aórar skemmtunar. Á sínum tíma hlaut B.Y.K.F. sjö OSCARs- verðlaun, m.a. sem besta mynd ársins. Með aðal- hlutverkin fara Alec Guinnes, (frábær), William Holden og Jack Hawkins. Leikstjóri er David Lean. _________S.V. Gamla bíó: Flugvélarránið (Skyjacked) Páskamynd Gamla Bíós hóf göngu sína fyrir nokkru síðan, en þaó er ein af hinum mjög svo vinsælu ,,disaster“ mynd- um. Þessi fjallar, eins og nafnið bendir til um ránstilraun á Boeing 707 þotu. Leikstjóri F. er John Guillermin, en hann lauk fyrir nokkrum mánuóum síöan þeirri mynd þessarar gerðar, sem þykir bera af þeim öllum. Þaó er myndin THE TOWERING INFERNO, sem útnefnd er til sjö Háskólabíó: Pappfrsmáni (Paper Moon) bandarísk gerð 1973. Leik- stjóri: Peter Bogdanovich. Mið-vestur ríki Ameríku 1936. Moses Pray, svindlari og biblíusaii er á ieið gegnum smá- bæ og bregður sér til að vera við jarðarför gamallar ástmeyj- ar. En úr því að hann er á ferðinni er hann neyddur tíl að flytja dóttur hinnar látnu til ættingja hennar í fjarlægu þorpi, þar eð barnið á engan að lengur á þessum stað. Moses Pray er hins vegar ekkert gefið um svona sendiferðir og hugsar PÁSKA - MYNDIR Laugarásbíó: Airport 1975. Bandarísk, geró 1974. Leikstjóri: Jack Smight. 120 farþegar um boró í Boeing 747 á leið til Los Angeles, venjulegt áætlunarflug og far- þegarnir láta fara vel um sig. En skyndilega gerist þaó slys, aó lítil flugvél lendir framan á þotunni flugmennirnir láta lífið eóa helsærast og þotan er stjórnlaus. Reynt er að stjórna henni frá jörðu meó talsambandi við yfir- flugfreyjuna, og þó að þaó sé hægt aó vissu marki er ljóst að hún get- ur ekki Jent vélinni. Það er því gripió til þess ráðs, að reyna að koma flug- manni um borð f vélina og hér er trúlega mál að hætta að rekja afdrif hinna 120 farþega. Eldri myndin Airport (’69) er beint tengd þessari með einni persónu, Joe Patroni (George Kennedy) sem hefúr hækkað f stööu hjá þessu ágæta flugfélagi á þessum fimm árum. Airport er ein af hinum svonefndu ,,disaster“ kvikmyndum, sem nú eru að verða vinsælar og því tilvalið tækifæri til að sjá um hvaö þær snúast. kvik| fflUíll /ídOA Tónabíó: í leyniþjónustu hennar hátignar (On Her Majesty’s Secret Service) Bresk, gerð 1969. Leikstjóri: Peter Hunt. Eftir að hafa bjargað ungri stúlku, Tracy, tvisvar úr bráóum háska, fær James Bond þaó óvenjulega tilboð frá föóur stúlkunnar að giftast henni. Faóirinn, Draco, er hátt skrifaður í alþjóðaviðskiptum og lofar ýmsum upplýsing- um í kaupbæti um glæpa- manninn Blofeld, sem Bond á í höggi vió ein- mitt um þessar mundir. Draco gefur honum einnig upplýsingar um það, að Blofeld sé að reyna aðnælasér ígreifa titil og Bond hagnýtir sér þessa vitneskju, til aó kanna starfsemi Blofelds undir því yfirskyni að hann sé að kynna sér bakgrunn Blofelds, áður en hægt sé aó veita honum greifatitil. George Lazenby fer hér með hlutverk Bonds, en þetta var eina Bond- myndin, sem hann lék í. Þetta var jafnframt fyrsta myndin, þar sem Sean Connery fór ekki meö hlutverk Bonds, en hann lék svo aftur í einni mynd, áður en Roger Moore tók við. Hafnarbíó: MAKLEG MALAGJÖLD (told Sweat). Páskamyndin i Hafnarbíói i ár veröur harðsoðin frönsk- bandarísk sakamálamynd, með harðjaxlinum Charles Bronson, James Bronson, Jill Ireland (kona Bronson í einkalífi) og síðast en ekki síst Liv Ulmann í aðalhlutverkum. Ulmann er orðin sannkölluð „súper- stjarna" fyrir vestan aðall. vegna myndarinnar SCENES FRAM Á MARRIGE, e. Berg- man sem hér var sýnd í fimrn sjónvarpsþáttum, svo og fyrir sjónvarpsþættina „VESTUR- FARARNIR“, en með frábær- um leik sínum i þeim, vann hún ófá hjörtu hér norður í kuldan- um. Reyndar tók einn afburða- maður til viðbótar þátt í kvik- myndatökunni, það var einn fremsti „stunt“ — ökuþór heims, en hann situr undir stýri i langri og rosalegri aksturs- keppni í myndinni. Leikstjór- inn er Terence Young, en hann ér m.a. ábyrgur fyrir James Bond myndunum DR. NO, FRAM RUSSIA WITH LOVE OG THUNDER BALL. Austurbæjarbíó: GILDRAN (The Mackintosh man) Hér er á ferðinni nýjasta mynd hins síunga meistara John Huston, sem annað slagið yljar kvikmyndahúsgestum um hjartaræturnar með afburða- myndum, en er nokkuð mistæk- ur þess á milli. Huston, sem verður sjötugur að ári, lætur enn engan bilbug á sér finna, er bæði að vinna að kvikmynd og eins hefur hann verið upptek- inn af og til i aðalhlutverki myndar annars meistara, þ.e. THE OTHER SIDE OF THE WIND, eftir Orson Welles. Og við skulum bara vona að páska- myndin sýni betri hlið Hustons. þá þarf engum að leiðast. GILDRAN, en það er nafnið á íslensku þýðingunni á metsölu- bók Desmond Bagiey, fjallar um njósnaflækjur stórveld- anna. Með aðalhlutverkin fara þau Paul Newman og Dominique Sanda, sem er upp- rennandi frönsk kvikmynda- stjarna. Kvikmyndatakan er í öruggum höndum Oswald Morris, B.S.C. S.V. mátt sinn og megin og eftir óhappið er hann trúr þessum hugmyndum og hvetur menn til að fylgja sér upp á við, að skrúfu skipsins, sem muni vera eina leiðin út. Lítill hópur far- þega fylgir honum í veikri von um björgun. The Poseidon Adenture er fyrsta meiriháttar „disaster“ myndin, eða stórslysamyndin, sem kemur á markaðinn og 1972 var hún mest sótta myndin í Bandaríkjunum; þessar vin- sældir hrundu síðan af stað þeirri flóðbylgju „disaster“ mynda, sem von er á í náinni framtíð. OSCARsverólauna í ár, og þykir sigurstrangleg- ust, ásamt GODFATHER PART II. Það má því reikna meó að Guillermin sýni einhver tilþrif hér, enda naut myndin vinsælda á er- lendri grund. Með aðalhlutverk fara þau Charlton Heston, en hann viróist ómissandi í þessum myndum, Yvette Mimieux, James Brolin og Walter Pidegon. S.V. sér að losna undan þessu á ein- faldan hátt, en hún er hörð i horn að taka sú litla og gefur honum hvergi eftir. Myndin lýsir síðan ferðalagi þeirra á ákvörðunarstað, hvernig þau afla sér viðurværis á vafa- saman hátt, og hvernig þau verða smám saman samrýndari og háðari hvort öðru. Telpan er leikin af Tatum O’Neal, dóttur Ryan O’Neal, og hlaut Oscars- verðlaun í fyrra, sem besta leik- kona í aukahlutverki. Eftir Peter Bogdanovich hafa áður verið sýndar hér myndirnar What’s up Doc? og The Last Picture Show. Poseidon slysið (The Poseidon Adventure). Banda- rfsk, gerð 1972. Leikstjðri: Ronald Neame. Lúxusfarþegaskipið „S.S. Poseidon” er i sinni síðustu ferð, þegar jarðhræringar í Miðjarðarhafinu koma af stað fjallhárri flóðbylgju, sem hvolfir skipinu. Áður hafa nokkrir farþeganna verið kynntir fyrir áhorfendum, sem fyigjast síðan með martröð þeirra eftir að skipinu hvolfir. Séra Scott (Gene Hackman) hafði áður boðað mönnum trú á Nýja bíó:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.