Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 1
40 SIÐUR
„Við stefnum aðeins að sátt-
um til að bjarga lífi fólksins”
sagði Minh forseti S-Víet-
nams í uppgjafarræðu sinni
Lengsta stríði nútímasögu
lokið með sigri kommúnista
Saigon, Washington, París og víðar 30. apríl AP—Reuter.
SAMBANDSLAUST hefur verið við S-Vfetnam frá þvf um kl. 11.00 að
fsl. tíma f gærmorgun, miðvikudag, eftir að stjórn S-Víetnam gafst
skilyrðislaust upp fyrir innrásarsveitum kommúnista og var þar með
endi bundinn á 35 ára strfð, lengsta strfð f nútímasögu. Fregnir af
ástandinu f landinu eru þvf ákaflega óljósar, en þær fregnir, sem
bárust fyrstu klukkutímana eftir að Saigon féll, bentu tii þess að
Saigonbúar hefðu fagnað innrásarmönnum og að aðeins hefði komið
til óverulegra átaka hermanna kommúnista og örfárra flokka stjórnar-
hermanna, sem börðust til síðasta manns.
Bandarísk þyrla lenti á þaki
sendiráðsbyggingar Bandaríkj-
anna f Saigon 10 mfnútum fyrir
miðnætti f gær og sótti síðustu
Bandaríkjamennina. sem eftir
voru f landinu, 11 landgönguliða,
sem höfðu varið brottflutning
sendiráðsstarfsmanna. Rúmum
þremur klukkustundum sfðar eða
um kl. 03.00 las Duong Van Minh,
forseti landsins frá því á laugar-
dag, upp tilkynningu, þar sem
hann lýsti þvf yfir, að Saigon-
stjórnin gæfist skilyrðislaust
upp og hann væri tilbúinn til að
afhenda fulltrúum Viet Cong öll
völd f hendur. Jafnframt skoraði
hann á hermenn S-Vfetnams, að
hætta bardögum og afhenda inn-
rásarmönnum vopn sfn. Hann
skoraði á kommúnista að hætta
skothrfðinni þannig að hægt væri
að framkvæma valdaskiptinguna
sem fyrst og koma f veg fyrir
óþarfa blóðbað eins og forsetinn
orðaði það. Sfðan sagði hann:
„Við stefnum aðeins að sáttum
fólksins og samvinnu, til þess að
bjarga Iffi fólksins.“ Minh forseti
hafði strax eftir valdatöku sfna
farið fram á vopnahlé víð N-
Vfetnam og Viet Cong, en þvf var
kuldalega tekið.
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjaanna, sagði á
fundi með fréttamönnum i
Washington í dag, að hann hefði
vitað frá því á laugardag, að
Saigon myndi falla, en að upp-
gjöfin hefði komið fyrr en hann
hefði átt von á. Kissinger sagðist
hafa búizt við að Saigonstjórnin
myndi geta samið um uppgjöfina,
en ekki að hún yrði að lýsa henni
yfir svo til fyrirvaralaust og skil-
yrðislaust.
Útvarpið i Hanoi skýrði frá falli
Saigon örfáum mínútum eftir að
Minh forseti flutti ávarp sitt með
eftirfarandi tilkynningu: „Fáni
Ky, fyrrum forsætisráð-
herra S-Vietnams, fiúði
Saigon f hópi hinna sfðustu f
gær og sést hér við komuna
um borð f bandarfska skipið
USS Blue Ridge undan
ströndum S-Vietnams. Ky
flutti fyrir nokkrum dögum
ræðu á fjöldafundi f Saigon,
þar sem hann kallaði alla
föðurlandssvikara, sem yfir-
gæfu land sitt.
byltingarstjórnar S-Vietnams var
dreginn að húni yfir forsetahölj-
inni í Saigon kl. 11.30 árdegis“
(3.30 ísl. tima). Við þessa tilkynn-
ingu þusti fólk í Hanoi út á götur
borgarinnar og faðmaðist í gleði-
vímu yfir sigrinum að sögn
júgóslavnesku fréttastofunnar
Tanjug.
Framhald á bls. 22
Gffurleg eyðilegging varð f Saigon áður en borgin féll, eftir eldflaugna- og stórskotaliðsárásir kommún-
ista. Hér sjást rústir kirkju einnar f borginni og er krossinn það eina sem uppi stendur.
Dansað í Peking og Hanoi
„Sár persónuleg reynsla”
segir Kissinger um Igktirnar í S-Víetnam
Singapore, Peking,
Washington, 30. apríl
REUTER — AP.
MIKILL fögnuður varð f Peking
og Hanoi, þegar fregnir um upp-
gjöf Saigonstjórnarinnar bárust
þangað. 1 Peking þustu sendiráðs-
starfsmenn kommúnistarfkjanna
út á götur, syngjandi og dansandi
og skutu upp flugeldum. Sama
gerðist í Hanoi og þar grétu menn |
af gleði. Stjórnir ýmissa
nágrannarfkja létu f ljós ánægju
yfir að styrjöldinni skyldi lokið
en f Washington voru menn held-
ur daufir f dálkinn. Gerald Ford,
forseti Bandarfkjanna, sagði, að
mál þetta markaði þáttaskil f
bandarfskri reynslu og Kissinger,
utanrfkisráðherra sagði, að það
sem undanfarið hefði gerzt í
Víetnam væri sér sár persónuleg
reynsla.
1 yfirlýsingu, sem Bandarikja-
forseti birti um það sem gerzt
hafði í Saigon, sagði meðal ann-
ars, að með brottflutningi siðustul
Bandarikjamannanna frá borg-l
inni hefði verið mörkuð þáttaskil
í bandarískri reynslu. Skoraði
hann á bandarísku þjóðina að
forðast ásakanir út af því, sem
gerzt hefði i fortiðinni — lita
heldur fram á við og taka saman
höndum i baráttu fyrir þeim
margvislegu markmiðum, sem
hún ætti sameiginleg og til starfs
að þeim mörgu verkefnum, sem
hún ætti óleyst. Skömmu eftir að
yfirlýsing Fords hafði berið birt,
kom Kissinger fram í sjónvarpi
þar sem hann gaf stutt yfirlit yfir
atburðarásina sióustu daga.
Aðspurður, hvort fall Saigon-
stjórnarinnar mundi skerða
möguleika hans til að standa að
milliríkjasamningum i framtíð-
inni, sagóist Kissingers sennilega
ekki manna dómbærastur á áhrif
S-Víetnams á framtið sína. „En
það sem undanfarið hefur gerzt
hefur verið sársaukafull reynsla",
sagði hann.
Peter Griffiths, fréttaritari
Reuters í Peking, skrifar, aó sendi
fulltrúar bráðabirgðabyltingar-
stjórnarinnar i S-Víetnam hafi
þust út í garðinn úti fyrir sendi-
ráði þeirra í Peking og hrópað
fréttina um uppgjöf Saigon-
stjórnarinnar, sem sióan hafi
breiózt út eins og eldur i sinu.
Innan skamms hafði fjöldi sendi-
manna kommúnistaríkjanna safn-
azt saman á götunni fyrir framan
bygginguna, þar sem þeir sungu
og dönsuðu, .jafnvel kínversku
verðirnir sem allajafna eru held-
ur brúnaþungir, segir Griffith,
„lögðu frá sér byssurnar og klöpp-
uðu saman lófunum“.
„Við höfum beðið þessa lengi,
lengi,“ sagði einn af s-viet-
namísku sendimönnum og minnti
á, að liðin væru 50 ár frá þvi Ho
Chi Minh stofnaði samtök bylt-
ingarsinnaðrar vietnamískrar
æsku, sem varð síðan kjarni
Framhald á bls. 19
Sjá greinar um
ástandið í S-Kóreu,
Laos, Thailandi,
Singapore og
Malaysíu á bls. 16.
Bls. 18: Síðustu
stundir stríðsins,
samtal við frú
Binh, utanríkis-
ráðherra bylt-
ingarstjórnar
kommúnista. Blóð-
bað í S-Vietnam?
Ennfremur fleiri
fréttir á bls. 19.