Morgunblaðið - 01.05.1975, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
f
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
25555
flBIR
CARJJENTAL
FERÐABÍLAR h.f.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbilar — stationbilar —
sendibilar — hópferðabilar.
Hópferðabílar
8—21 farþega í lengri og
skemmri ferðir.
Kjartan Ingimarsson
Simi 861 55-3271 6-37400.
Afgreiðsla B.S.I.
HAFSKIF
SKIP VOR MUNU
LESTA ERLENDISÁ
NÆSTUNNI SEM HÉR
SEGIR:
HAMBORG:
Langá 28. april +
Selá 1 5. maí
Skaftá 21. mai +
Langá 26. maí +
ANTWERPEN:
Langá 2. mai +
Skaftá 1 6. mai +
Langá 29. mai +
FREKRIKSTAD:
Hvitá 1 2. maí
Hvitá 2. júni
KAUPMANNAHÖFN:
Langá 5. maí +
Hvitá 1 5. maí
Hvítá 4. júni
GAUTABORG:
Hvitá 1 6. mai
Hvitá 5. júni
GDYNIA/GDANSK:
Selá 1 7. mai
LE HAVRE:
Skaftá 1 3. mai +
+ Skip er munu losa og
lesta á Akureyri og Húsa-
vík +
HAFSKIP D.F.
HAFNARHUSINU REYKJAVIK
SIMNEFN!: HAFSKIP SIMI 21160
Fyrsti maí
í fyrra
Fyrsti maf I fyrra sat að völd-
um vinstri stjórn f landinu.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
fóru með yfirstjórn margra
þýðingarmestu þátta þjóðarbú-
skaparins: sjávarútvegsmál,
viðskiptamál, iðnaðar- og orku-
mál og heilbrigðis- og trygging-
armál. 1 lok ráðherraferils
Magnúsar Kjartanssonar og
Lúðvfks Jósepssonar var lítill
glæsibragur yfir þessum mála
flokkum. Rekstrarstaða f út
gerð og fiskvinnslu var þann
veg komin, að við blast
rekstrarstöðvun og atvinnu
leysi í þessum helzta atvinnu
vegi þjóðarinnar. Gjaldeyris
varasjóðurinn og stofnlánasjóð
ir atvinnuveganna voru upp
urnir. Algjör kyrrstaða rfkti f
orkumálum heilla landshluta.
Engin afgerandi spor höfðu
verið stigin f heilbrigðis- og
tryggingamálum. Það er
athyglisvert að skoða þennan
starfsárangur í Ijósi þeirrar
gagnrýni, sem blöð og talsmenn
Alþýðubandalagsins hvolfa nú
yfir landslýðinn.
Síðustu viðbrögð
vinstri stjórnar
Sé þeirri áróðurstýru, sem
Alþýðubandalagið heldur nú á
loft, beint að sfðustu viðbrögð-
um vinstri stjórnarinnar í efna-
hags- og kjaramálum, kemur
margt athyglisvert til skoðun-
ar:
0 Það var vinstri stjórnin, með
aðild Alþýðubandalagsins, sem
rauf tengsl kaupgjaldsvísitölu
og launa, og undirstrikaði þann
veg í verki, að svokallaðir
febrúarsamningar á sl. ári
hefðu reynst óraunhæfir.
0 1 umræðum um myndun
nýrrar vinstri stjórnar höfðu
foringjar Alþýðubandalagsins
fallist á allt að 17% gengis-
lækkun sem óhjákvæmilega
leið til að styrkja rekstrarstöðu
útflutningsatvinnuveganna.
0 1 sömu umræðum höfðu
Alþýðubandalagsmenn fallist á
verulega hækkun söluskatts.
Lækkun söluskatts varð ekki
sálhjálparatriði hjá þeim, fyrr
en staðið var upp úr ráðherra-
stólunum.
0 Þáverandi orkuráðherra
Alþýðubandalagsins hafði
samið frumvarp um verð-
jöfnunargjald á raforku, þ.e.
verulega hækkun raforkuverðs
til neytenda. Þetta gjald er nú
13% álag á söluverð hinna
ýmsu rafveitna f landinu.
Alþýðubandalagið hafði,
ýmist með beinum stjórnar-
aðgerðum f vinstri stjórninni
eða f viðræðum um myndun
nýrrar vinstri stjórnar, viður-
kennt viðblasandi vanda í at-
vinnu- og efnahagslffi þjóðar-
innar. Það hafði stigið fyrstu
skrefin f eða fallist á þau Sir-
ræði, sem f aðalatriðum hefur
verið fylgt til að koma f veg
fyrir stöðvun atvinnuveganna
og atvinnuleysi í landinu. Öll
stóru orðin, sem nú eru sögð af
talsmönnum þess, verða því
jafnóðum innantóm og ómerk, f
Ijósi þeirra eigin gerða og
ákvarðana. Fólk er hvorki svo
gleymið né skilningssljótt, að
það sjái ekki í gegnum þann
loddaraleik, sem kommúnistar
sviðsetja nú eins og þeir hafi
aldrei nálægt þessum málum
komið.
Guðfaðirinn
Norðlendingar, Austfirðing-
ar og Vestfirðingar gengu bón-
leiðir til búðar frá fyrrverandi
orkuráðherra öll vinstri stjórn-
arárin, þrátt fyrir verulegan
orkuskort f þessum landshlut-
um og þrátt fyrir margföldun
olfuverðs til dieselstöðva
þeirra; er sáu þeim fyrir veru-
legum hluta tiltækrar raforku.
Allan þennan tíma sat orkuráð-
herra Alþýðubandalagsins að
samningum um járnblendi-
verksmiðju í Hvalfirði. Það
mál er út af fyrir sig spor fram
á við i íslenzku atvinnu- og
efnahagslffi og væri naumast
veruleiki f dag án þess undir-
búnings, sem öll orka ráðherr-
ans fór í hans ráðherraár. Af-
staða hans innan stjórnar og
utan til þessa máls, sem hann
telst óumdeildur guðfaðir að er
dæmigerð fyrir Alþýðubanda-
lagið. I þvf speglast og áréttast
það skoðanahringl og sú tæki-
farissinnaða afstaða til
mála, sem mótar stefnu þess,
eftir því hvort foringjar þess
eiga kost á ráðherrastólum eða
ekki. Alþýðubandalagið getur
naumast iogið sig frá ábyrgð
vinstri stjórnaráranna. Það
ætti að minnast hinna gömlu
spakyrða: „Að Ijúga að öðrum
er ljótur vani, en ljúga að sjálf-
um sér hvers manns bani.“
Hjálparstarf
í hafnarbæ í
S-Víetnam
Hont Thap Tu-stræti,i Saigon,
klukkan tiu að morgni. Sfðustu
fjórtán vörubifreiðar og bllaleigu-
bilar Rauða krossins eru farnir frð
aðalstöðvunum. Ferðinni er heitið
til hafnarbæjarins Vung Tau, f 135
km fjarlægð, þar sem um 50.000
flóttamenn hafast við. Daginn
áður kom þangað skip með 6.000
manns og 50 lík. Álfka mikill fjöldi
kemur til bæjarins á hverjum degi.
Hjálparaðgerðir Rauða krossins
að þessu sinni miða að þvf að
koma eins miklum vistum og
hjálpargögnum og eins fljótt og
kostur er til 35.000 manna sem
þegar hefur verið komið fyrir f Chi
Linh, nálægu þorpi, þar eru búðir
með nfu hópum flóttamanna og f
hverjum hóp eru 3.000 til 5.000
manns. „Við verðum að láta liggja
milli hluta hvort einhverjir fái
meiri skammt en þeim ber og
reyni jafnvel að selja eitthvað af
þvf sem þeir fá," segir yfirmaður
aðgerðanna. „Ástandið er svo
hörmulegt að við hugsum um það
fyrst og fremst að tryggja það að
birgðirnar berist til þeirra."
Mörg hundruð flóttamannafjöl-
skyldur hafa enn ekki fengið þak
yfir höfuðið. Annar helzti til-
gangur hjálparaðgerða Rauða
krossins er að drei.fa 1350 tjöld-
um sem eru gjöf frá vestur-þýzka
Eftir
Antoine
Bosshard
Rauða krossinum. Margir flótta-
menn hafa reynt að fá sér þak yfir
höfuðið hvar sem nokkurt skjól er
að finna — f kofum sem eru f
niðurníðslu, kofaskriflum sem þeir
hafa klambrað saman og tjöldum.
Ennþá er veðrið nógu gott til þess
að fólkið getur hafzt við úti á
vfðavangi en regntíminn hefst eft-
ir einn mánuð og þá verða tjald-
stæðin eitt moldarsvað. Þá veit
heldur enginn með vissu hvað
verður orðið um fólkið.
Alls komu eitt hundrað sjálf-
boðaliðar undir tvftugsaldri frá
Saigon til Vung Tau til að aðstoða
30 unga starfsmenn Rauða kross-
ins sem þar voru fyrir og hafa haft
umsjón með búðum 4.500 flótta-
manna I nokkra daga. Þeir hafa
meðferðis 35 lestir af hrísgrjónum
sem verður að skipta milli flótta-
mannanna á tveimur dögum. Hver
flóttamaður fær 500 grömm af
hrfsgrjónum á dag. Þar við bætast
240 kassar af niðursoðnu kjöti,
24 dósir I hverjum, sem er gjöf
flóttamannaaðstoðar Sameinuðu
þjóðanna. Hver fjölskylda fær eina
niðursuðudós sem verður að
nægja henni f einn dag. Loks
verður dreift 1 50 kössum af þurr-
mjólk. f hverjum kassa eru 48
dósir.
Aðgerðunum verður haldið
áfram á morgun og þá koma vöru-
bílarnir með svefndýnur (handa
þeim sem hafa engin tjöld), matar-
potta, vatnsfötur. Sjálfboðaliðarn-
ir gista allir i bænum og hjálpa til
við dreif inguna á morgun.
Sfðan fara hjálparsveitir Rauða
krossins til fleiri flóttamannabúða.
Ein þeirra er í Phuoc Tuy en þang-
að eru komnir 10.000 flóttamenn.
Loks fara þær til eyjunnar Phu
Quoc undan strönd Kambódfu þar
sem stjórnin hyggst koma fyrir
þúsundum manna. Nú þegar eru
40.000 manns á eynni og 10.000
til viðbótar bfða um borð f skipum.
f ástandi sem þessu virðist yfir-
leitt hægt að kaupa matarbirgðir á
staðnum og að vegasamgöngur
séu f lagi. Helzta vandamálið er
vatnsskortur. Nokkrir brunnaf eru
f búðunum en vatnið er óhæft til
neyzlu nema það sé soðið fyrst og
smithætta er mikil. Finna verður
aðra lausn til að útvega þessum
mikla fjölda fólks nægilegt vatn.
Til dæmis má útvega vatnstanka-
bfla og vatnshreinsunartæki.
Matardreifing í hafnarbænum Vung Tau, sem er aðalhöfn Saigon. Hann hefur
verið í hættu síðan annar hafnarbær nokkru norðar, Ham Tan, féll á
þriðjudaginn. Sagt var frá hjálparstarfi þar f fyrri greih um starf Rauða
krossins í Suður-Víetnam.
Frá Tafl- og
bridgeklúbbnum
Þegar tveimur umferdum er
lokið I barometerkeppninni hjá
okkur er staða efstu para þcssi:
Björn Kristjánss — ÞArrtur Ellass 209
Bernhardur Guðmundsson
— Júlíus Guðmundsson 180
Baldur Asgeirsson —
Zóphónfas Benediktsson 154
Gunnlaugur Óskarss —
Ragnar Óskarss 148
Högni Torfas — Þorvaldur Valdimarss 125
Eiríkur Hejgason—Sigurjón Helgas 114
Sigurbjörn Ármannss —
Þórarinn Ámas 106
Arnar Ingólfss — Magnús Eymundss 103
Haukurlskass — Karl Ádolphss 67
Árni Guðmumiss — Margrét Þórðard. 62
Spilarar eru beðnir að athuga
vel að ekki verður spilað í kvöld
— þriðja umferðin verður spil-
uð á laugardaginn kemur kl.
13.30. Spilatf er i Domus Medica
að venju.
XXX
Frá bridgefélagi Suður-
nesja
Síðustu keppni vetrarins sem
var einmenningskeppni er nú
lokið. Spilað var í þrjú kvöld —
í þremur riðlum og spiluðu
efstu pörin í úrslitariðli síðasta
kvöldið.
Röð paranna f riðlinum varð þessi:
Helgi Jóhannsson 83 — Logi Þormóðs-
son 77 — Óskar Pálsson 75 — Kolbeinn
Pálsson 74 — Haraldur Brynjólfsson 72 —
Guðmundur Ingólfsson 67 — Gunnar
Jónsson 65 — Gunnar Sigurjónsson 65 —
Elías Guðmundsson 60 — Hafsteinn Ög-
mundsson 53 — Birgir Scheving 52 —
Sigurður Þorkelsson 49.
Árshátið félagsins verður á
laugardaginn kemur í Festi i
Grindavík og hefst kl. 20 með
borðhaldi. Þá verða veitt verð-
laun fyrir keppnir vetrarins.
Væntanlegir gestir hafi sam-
band við Val Simonarson i sima
1246.
Þess má einnig geta að félag-
ið fyrirhugar að spila í sumar.
A.C.R