Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 5

Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975 Á hverjum degi er Bibliufræðsla f einhverri mynd. Sumarbúðir Þjóðkirkjunnar Nú er um það bil mánuður þar til Sumarbúðir þjóðkirkjunnar hefja starfsemi sína. Að þessu sinni verða þær starfræktar í öll- um landsfjórðungum, Holti í Öndundarfirði, Vestmannsvatni í Aðaldal, Eiðum í Suður- Múlasýslu og Skálholti í Biskups- tungum. Sumarbúðir Þjóðkirkjunnar bjóða upp á skemmtilega og gagn- lega veru fyrir börn á aldrinum 7—12 ára. Úti við er nágrenni sumarbúðanna skoðað og farnar gönguferðir, og stundaðar ýmsar íþróttir eða leikir eftir því sem börnin vilja og aðstæður eru fyrir hendi á hverjum stað. Inni við er lögð stund á ýmis þroskandi verk- efni, börnin sjá sjálf að verulegu leyti um kvöldvökur, og eru þá æfð leikrit, helgileikir, sagðar sögur og lesnar og ýmislegt fleira. Á hverjum degi er svo einnig fræðslustund í Biblíusögum eða Biblíulestur. Hver dagur í sumar- búðunum býður því upp á þrosk- andi og stælandi verkefni til líkama og sálar. 1 Skálholti verður hafður á sami háttur og í fyrra, að hverri sókn i Reykjavík og Snæfellsnesi og Suðurnesjum er gefinn kostur á einni viku til að senda sín börn og komast 60 að í einu. Sóknar- prestar eða fulltrúar þeirra munu síðan reyna að heimsækja börnin í sumarbúðirnar. Ef sóknirnar ná ekki að fylla flokkana fyrir 10. maí verður fyllt í þá með al- mennri innritun. Hún fer fram á skrifstofu æskulýðsfulltrúa Þjóð- kirkjunnar. Upplýsingar um sumarbúðir þjóðkirkjunnar í öðr- um landshlutum er að fá hjá við- komandi söknarprestum. Þjóðin sameinist í bœn um frið á jörð I FRÉTTATILKYNNINGU frá Biskupsstofu er minnt á að hinn almenni bænadagur er á sunnu- daginn kemur — 4. maí. Hefur biskup Islands óskað eftir því, að þjóðin sameinist þann dag í bæn um frið á jörð. Um þetta segir biskup: „Þrátt fyrir það, sem gert hefur verið til þess að draga úr spennu milli stórvelda er vígbúnaðar- kapphlaup þeirra í algleymingi. Njósnadufl fylla höfin, gervi- hnettir eru hvarvetna á gægjum í geimnum og birgðir morðtækja hrúgast upp. Æ fleiri valdhafar geta nú ógnað með gereyðingar- vopnum. Hermdarverk öfga- og oíbeldismanna og gífurmæli óhlutvandra lýðskrumara minna á, hvað í vændum gæti verið. Vér skulum því á þessum bænadegi samhuga og með kristnum bræðr- um og sytr'um allra landa biðja Guð að frelsa oss frá illu. Vér skulum minnast þeirra, sem hafa þolað hryllilegar hörmungar styrjaldar eða eiga þá skelfingu yfir sér vofandi. Vér skulum biðja Guð að styrkja allan góðan vilja og láta vit og góðfýsi, réttlæti og sanngirni ráða í viðskiptum manna. Vér skulum biðja Guð vors lands að gefa islenzku þjóð- inni aukinn styrk og þroska i fylgd friðarhöfðingjans sanna, Jesú Krists." Sýning á léttbyggingum TILRAUNASTOFNUN burðar- forma opnar sýningu á morgun kl. 18 undir nafninu Léttbygging ’75 — að Hamragörðum, Hávalla- götu 24. Sýningin verður opin dagana 2.—11. maí frá 14—22. Á sýningunni eru líkön, teikningar og ljósmyndir af um 40 létt- byggingum og auk þess sýnd gerð geómetriskra bygginga og fleira. Dagana 4., 6., 8. og 10. mai kl. 20.30 verða sýndar og skýrðar lit- skyggnur um efnin: Erlendar létt- byggingar almennt; Olympiu- tjöldin; Metastandt-kerfið og Space structures research centre; Islenzkar léttbyggingar. Tilraunastofa burðarforma tók til starfa 1973. Hún hefur einbeitt sér að hönnun léttbygginga fyrir íslenzkar aðstæður og er árangur tveggja ára starfs tilraunastof- unnar sýndur nú. Stofnandi til- raunastofunnar, Einar Þorsteinn Ásgeirsson, nam arkitektúr í Hannóver 1963—69 og var við framhaldsnám i léttbyggingum hjá prófessor Frei Otto við Háskólann í Stuttgart 1969—71. Aðalfundur Starfsmanna- félags ríkisstofnana Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning: Aðalfundur Starfsmannafélags ríkisstofnana var haldinn 28. apríl s.l. Á fundinum var m.a. kosin stjórn fyrir næsta starfsár. Allar tillögur trúnaðarmannaráðs um stjórnarmenn voru samþykkt- ar og hlutu þær 75,7% greiddra atkvæða. Formaður var kosinn Einar Ölafsson, ÁTVR, með 649 atkvæð- um, en Jóhann Guðmundsson, Landspítalanum, fékk 178 at- kvæói. I aðalstjórn voru eftirtald- ir félagsmenn kosnir: Agúst Guð- mundsson, Landmælingar Is- lands, 646 atkv., Erla Valdimars- döttir, Landspítalinn, 622 atkv., Guðbjörg Sveinsdóttir, Land- spítalinn, 607 atkv., Guðmundur Sigurþórsson, Innkaupastofnun ríkisins, 590 atkv., Ölafur Jó- hannesson, Veðurstofa islands, 616 atkv., og Sigurður Ö. Helga- son, Tollstjóraskrifstofan, 628 atkv. I varastjörn voru kosnir: Framhald á bls. 22 Námskeið í félagarétti I FRÉTT frá Lögfræðingafélagi Islands, sem Morgunblaðinu hef- ur borizt, kemur fram, að félagið gengst fyrir námskeiði í félaga- rétti að Flúðum í Hraunamanna- hreppi laugardaginn 3. maí n.k. Á námskeiðinu munu flytja er- indi: Jónatan Þórmundsson prófessor, Hrafn Bragason borgardómari, Brynjólfur Kjartansson hdl., Stefán Már Stefánsson borgardómari, Skúli J. Pálmason hrl., Már Pétursson héraðsdómari og Skarphéðinn Þórisson cand. jur. Þátttöku ber að tilkynna til Páls Skúlasonar á morgun, föstudag, frá kl. 13 til 17. Hann veitir ennfremur allar nán- ari upplýsingar. Lögbanniá „Þjófinn” mótmælt FÉLAG íslenzkra rithöfunda hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: Félag íslenzkra rithöfunda mót- mælir lögbanni á útvarpslestri á skáldsögu Indriða G. Þorsteins- sonar, Þjófur í paradís, skáldsögu sem verið hefur á almennum markaði í um það bil átta ár, án þess nokkur hafi séð ástæöu til aó leggja á hana lögbann fyrr en nú. Félagið lýsir yfir furðu sinni á því: að hægt skuli vera að leggja lögbann á flutning listaverks að svo löngum tíma liðnum að fyrn- ingarréttur t.d. skuli ekki vernda höfund og verk hans gegn svo úrtímabærri aðför að umhugs- unartimi ákæruaðilja skuli svo takmarkalaus að ekki skuli þurfa nema hundrað þúsund krónur til að stöðva flutning á listaverki að kröfu aðilja sem engan þátt eiga í sköpun listaverks. I þessu sambandi vaknar sú spurning, hvort hér sé framkomin aðferö sem beita mætti höfunda sem skrifuðu óæskilegar bækur, að dómi hagsmunahópa, einstakl- inga og jafnvel rikisvalds. Félag islenzkra rithöfunda varar alvarlega við slíkri aðför að frjálsri listsköpun i landinu, sem gæti orðið bókmenntum þjóðar- innar til ófyrirsjáanlegs tjóns, auk þess að skaða hagsmuni rit- höfunda, þeirrar stéttar i landinu sem sizt er launuð. Kynningardagur unglingareglunnar er á sunnudaginn HINN árlegi fjáröflunar- og kynn- ingardagur Unglingareglunnar verður n.k. sunnudag, 4. maí. Þá verða eins og venjulega seld merki og bókin Vorblómið til ágóða fyrir stúkustarfsemina víðs vegar um landið. Merkin kosta 50 krónur en Vorblómið kostar að- eins 200 krónur. Kemur bókin nú út í 12. skipti og á þessum árum hefur hún aflað sér vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Misskilningur JON Sigurðsson, fyrrverandi borgarlæknir, óskar að láta þess getið, að fullyrðing sú, sem höfð er eftir honum i Morgunblaðinu i gær um að ástand matvöru á markaði í Reykjavík sé betra og jafnvel miklum mun betra en hjá öðrum þjóóum sé ranglega eftir honum höfð. Það sé alls ekki á sínu færi né annarra að dæma um það. Jón segist þvi ekkert hafa um þetta sagt. Hér var átt við aðstæður til framleiðslu á matvælum. Þær eru sízt verri hér en i erlendum borg- um almennt, sumt er þar betra en hins vegar er hér minna af mjög slæmum stöðum. Þá má geta þess að Skúli Johnsen borgarlæknir er nú kominn heim úr leyfi. NYKOMIÐ DRAGTIR ÚR RIFFLUÐU FLAUELI HERRAFÖT ÚR RIFFLUÐU FLAUELI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.