Morgunblaðið - 01.05.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.05.1975, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAI 1975 1» mat Runólfur Pétursson: Nýjan vísitölugrund- völl fyrir 1. júní nk. á að væri í gildi til að tryggja kaupmátt launa væri stór þáttur i þeim efnahagsörðugleikum sem þjóðin hefur átt við að striða und- anfarin ár. I því sambandi er það sérstaklega athyglisvert, að á sið- ast liðnu ári þegar verðbólgan reis hærra en nokkru sinni fyrr og mældist 51%, þá var kaup- gjaldsvisitalan bundin frá 1. júni og reiknaðist aðeins 6.18% á tiu mánuði ársins en auk þess komu 3.500.- kr. launajöfnunarbætur á laun undir 50.000.- kr. á þrjá sið- ustu mánuði ársins. Varla er skýr- inganna á slíkri óðaverðbólgu að leita til svo lágrar kaupgjaldsvisi- tölu. Einnig er þvi jafnan haldið fram, að verkalýðshreyfingin semji um svo há grunnlaun, að þjóðfélagið standi ekki undir þeim. Hefur þessu til dæmis margsinnis verið haldið fram í ræðu og riti eftir febrúarsamn-. ingana 1974. Staðreyndin er samt sú, að launataxtar verkalýðsfélag- anna í dag, sem gilda fyrir stærst- an hluta allra launþega eru á bil- inu 42.000.- tii 60.000.- kr. á mán- uði með vísitöluuppbót og 3.500,- + 4.900.- kr. launajöfnunarbótum. A sama tíma reiknar Hagstofan' að vísitölufjölskyldan þurfi yfir 80.000.- kr. á mánuði til að lifa af. Ég held að það sé kominn tími til að menn átti sig á því, að það eru ekki laun hins almenna laun- þega sem eru að sliga þjóðfélagið. Þeir erfiðleikar, sem þjóðin á nú við að etja í efnahagsmálum verða ekkí leystir með því að ganga frekar á kjör launþega. Af- koma heimilanna er nú í mikilli hættu, ef ekki tekst að snúa þeirri öfugþróun við sem ríkt hefur allt of lengi í efnahagsmálum þjóðar- innar. Það sem nú er brýnast og allir launþegar í landinu leggja aðal- áherzlu á á hátíðisdegi sínum 1. maí, er að allir hafi næga atvinnu og kaupmáttur launa aukist sam- kvæmt því sem samið var um á s.l. ári. Launþegar hafa ætið sýnt það, að þeir skorast ekki undan því að taka á sig nauðsynlegar byrðar þegar erfiðleikar steðja að þjóðínni eins og nú. Þeir gera sér grein fyrir þvi að atvinnuvegirnir þurfa að búa við eðlilegan rekstr- argrundvöll. Slikt verður ekki tryggt með sifelldi skerðingu á kaupmætti launa. Gera verður kröfu um að ýtrustu hagkvæmni og sparnaðar sé hvarvetna gætt í atvinnurekstri landsmanna og ekki hvað síst hjá hinu opinbera, sem sífellt tekur meira til sin úr vösum skattborgaranna. Ég óska öllum launþegum heiila á þessum árlega hátíðisdegi þeirra. I dag er 1. maí, baráttu- og hátíðisdagur verkalýðshreyf- ingarinnar. A þcssum degi ættu allir iaunþegar að standa saman á verðinum um bætt kjör hinna vinnandí stétta, en þvi fer fjarri að svo sé nema í orði, þá er það hagsmunaþólitíkin sem látin er ráða i alltof rikum mæli. Og hinn mikli stéttarigur hinna ýrasu hagsmunahópa kemur i veg fyrir að málefnin fái farsæla lausn. Við þurfum öll fæði og klæði burt séð frá þvi hvaða störf við innum af hendi. Kaupmáttur launa hefur verið að rýrna nær þvi í hverri viku frá því að síðustu samningar voru gerðir i febrúar 1974, og enn dynja yfir verðhækkanir. Að undanförnu hafa menn spurt sjálfan sig: hverjum er Hersir Oddsson: Lannagap ÞAÐ sem mér er efst i huga nú á 1. mai er staða opinberra starfs- manna meðal annarra launþega- hópa, launakjör starfsmanna ríkis og sveitarfélaga eru nú, eins og reyndar svo oft áður, ekki í sam ræmi við það sem gerist á hinum frjálsa vinnumarkaði. A timum þegar ákvæði um verðlagsupp- bætur á laun eru sniðgengin og i stað þeirrar gerðar aðrar ráðstaf- anir til að halda kaupgjaldi og verðlagi í skefjum þá hefur það alltaf sýnt sig að slíkar ráðstafan- ir koma með fullum þunga hjá opinberum starfsmönnum en vigta oft vægara hjá ýmsum öðr- um launþegahópum. Það er eins og við vitum, ekki óalgengt að launasamningar frjáisa vinnu- markaðarins séu yfirborgaðir, þetta á bæði við á þrengingartim- um og þá ekki síður þekkt fyrir- brigði á þenslutimum, fylgir þá i Hersir Oddsson, fyrsti varaforseti B.S.R.B. sumum tilefllum annað með, en það er hve mikið skal „gefa upp“. Opinberir starfsmenn eru í hópi þeirra fjölmörgu sem greiða skatta og skyldur i hlutfalli við raunveruiegar tekjur sinar og eru ánægðir með það, bara að þeir þyrftu ekki að verða varir við í eins ríkum mæli og verið hefur síðustu áratugi að sumir virðast komast léttara frá þessum hlutum en aðrir. Það eru gerðar si auknar kröfur á hendur riki og sveitarfélögum, verkefnin vaxa stöðugt og til þess að skattþegninn geti treyst því að verkefnunum séu góð skil gerð, þá þurfa ríkisstofnanir og sveit- arféiög að hafa á að skipa hæfasta starfskrafti sem völ er á hverju sinni. Það tekst þegar samræmi er milli launa þeirra sem starfa hjá þvi opinbera og þeirra sem starfa þessi mikla kjararýrnun að kenna? Höfum við lifað við falskan kaupmátt undanfarin ár og nú komið að skuldadögunum? Þetta slær mig þannig að það hafi verió vegna úrræðaleysis fyrrverandi ríkisstjórnar, sem virðist ekki hafa hugsað í alltof mörgum tilfellum nema um liðandi stund. Þá hefur ekki bætt úr það mikla ósamkomulag sem virðist hafa ríkt innan hennar, og þeir menn er sátu í fyrrverandi ríkisstjórn rugluðu sífellt saman hagsmunum fólksins og sinum eigin stjórnmálaskoðunum, hún réð ekki við málefnin og því fór sem fór. Og þess vegna eru at- vinnuvegirnir og heimilin nú rek- in með tapi. Nú þarf verkalýðshreyfingin sem ein heild að taka höndum saman og finna lausn til úrbóta. á frjálsa vinnumarkaðinum, þeg- ar slíkt samræmi er ekki fyrir hendi myndast launagap og dýr- mætur starfskraftur sem hlotið hefur starfsreynslu og þjálfun segir upp störfum og tekur ráðn- ingu annarsstaðar þar sem betur er launað. Riki og sveitarfélög geta ekki lengur við það unað að stofnanir þeirra séu eins og upp- eldisstofnanir fyrir starfskraft sem síðar hverfur á braut að feng- inni starfsþjálfun. Ég er þó síður en svo að segja að engar hreyfing- ar eigi að eiga sér stað, það getur alltaf verið heilbrigt og gagnlegt að skipta um starfsvettvang, en ekki má vera um einstefnu að ræða í þessum málum frekar en öðrum. Ég hef ef til vill geymt kjarna málsins þar til síðast, en hann er sá að opinberir starfsmenn hafa ekki sama vopn og aðrir til þess að berjast fyrir sínum kjörum og á ég hér við verkfallsréttinn, það eru engin rök fyrir þvi að starfs- mönnum ríkis og sveitarfélaga sé siður treystandi fyrir verkfalls- rétti en öðrum launþegum, enda hafa starfsbræður þeirra á norð- urlöndunum almennt nú þegar öðlast þennan rétt. Ég vil leyfa mér að vona að þeir sem nú halda um stjórnvölinn skoði hug sinn gaumgæfilega og gangi til móts við óskir opinberra starfsmanna og efni þau ioforð, um fullan samningsrétt til handa starfsfólki sínu, sem eitt sinn voru gefin, en fyrrverandi ríkisstjórn entist ekki tími til að efna. 1. maí rifjar verkalýðshreyfing- in upp atburði liðins árs, leitast við að átta sig og tekur mið. Vrnsir segja nú, að enginn vandi sé i efnahagsmálum þjóðar- innar og að ástandið sé betra en oftast áður. Þetta kann að vera rétt, en mestu varðar jafnan til hvors vegar breytzt hefur. Undan- farin nær 2 ár hefur farió versn- andí en ,'ikiegt er að fljótlega fari að miða fram á við að nýju. Kjarasamningarnir í febrúar 1974 voru gerðir af nokkurri bjartsýni en vist er að þeir voru ekki orsök þeirrar verðbólgu, sem síðan hefur flætt yfir, enda þótt Kristján Ottósson, formaður Félags blikksmiða. Á síðustu ráðstefnu A.S.I sem haldin var á Hótel Loftleiðum s.l. vetur var samþykkt að ná aftur kaupmætti launa í áföngum, og með því yrði tryggt að ekki kæmi til atvinnuleysis. Visitölunni verður að breyta frá Hátíðisdagur verkafólks er i dag, raunar er 1. mai ekki lengur aðeins dagur verkafólksins held- ur launþega almennt. Á þessum degi eru lifskjörin i sviósljósinu, því að höfuðviðfangsefni samtaka launþega er að afla launþegum kjarabóta. Bráðabirgðasamkomulag það Runólfur Pétursson, formaður Iðju. stjórnmálamenn margir hverjir klifi jafnan á þvi. Tæpt ár er nú liðið síðan þeir, sem ólmast mest gegn núverandi rikisstjórn, stóðu að því að banna með lögum greiðslu verðbóta á laun. Siðan hafa þær ekki verið greiddar, en ofurlítið var þó lag- fært með láglaunabótunum sl. haust og svo aftur með samkomu- laginu nú í lok marz. Framundan eru kjarasamn- ingar, en þá verður að leggja á það mesta áherzlu að finna við- miðun til verðtryggingar kaup- gjalds, sem ekki verði rofin úr tengslum, hvenær sem stjórn- völdum býður svo við að horfa. því sem nú er og fá raunhæfari mælieiningu fyrir kaupgjald og þjóðarbúið í heild. Verðtrygging lífeyrissjóða hlýt- ur að vera krafa í komandi samningum, þar eiga allir að sitja við sama borð. Vandinn er mikill og á mörgum sviðum. Á þessum degi verður manni ætíð hugsað til brautryðjandanna, sem ruddu veginn í áttina að betri lifskjörum launþegans. Þeirra sterkasta vopn var samstaðan innan félags sem utan, en nú eru tímarnir breyttir, fólk mætir vart á félagsfundi sem haldnir eru til að taka ákvarðanir um verkfalls- boðun jafnt sem aðrar mikilváeg- ar ákvarðanir er félagsfundir verða að afgreiða þó fámennir séu. Ekki veit ég hvað veldur. Er fólk félagslega vanþroskað nú á tímum eða er það vinnan sem drepur allt félagslíf, menn hafa ekki lengur tima fyrir persónu- legar þarfir, fjölskylduna né verkalýðsf élagið ? Á þessu þarf*að verða breyting. Að lokum vil ég óska íslensku verkalýðshreyfingunni til hamingju með daginn og allra heilla á ókomnum timum. sem náðist 26. mars og gildir til 1. júni, er að vonum mikið rætt meðal launþega. Þær 4.900 kr. sem náðist samkomulag um hrökkva skammt þegar litió er á þær gifurlegu verðhækkanir sem dynja yfir launafólk nú þessa daga. Það hlýtur því að vera aðal- krafan 1. maí að það náist sam- komulag fyrir 1. júní um' nýjan visitölugrundvöll, ef ekki næst samkomulag um þessa sjálfsögðu kröfu þá verður enginn friður á vinnumarkaðinum og er því mikið í húfi að það mál leysist fyrir 1. júní. Mikið hefur verið rætt um störf 9 manna nefndar A.S.I. sem fór með samningaumboð fyrir flest verkalýðsfélög A.S.I. Ég vil taka skýrt fram að ég bar fullt traust til þeirra manna, þeir gerðu ekki annað en að framkvæma það sem baknefnd A.S.I. fól þeim að gera. Að lokum, ef friður og samstarf kemur i stað ófriðar og sundrung- ar, er enginn efi á því, að þróttur atvinnulifsins mun stóraukast og lifskjörin batna eftir því. Það er ekki hægt að hugsa sér betri ósk launþegum til handa á þessum hátíðisdegi. Bjiirn Þórhallsson, formaður Landssambands verzlunarmanna. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld nær alltaf átt nokkurn þátt í gerð kjarasamninga, og mætti ætla að það yki lýkur á að þeir fengju að efnast án afskipta. Svo hefur þó ekki orðið. Miklu varðar að samkomulag við stjórnvöld, sem tekió er tillit til við gerð kjarasamninga, sé haldið fullkomlega. Þrátt fyrir góðan vilja forsætisráðherra brást þetta nú að nokkru þegar við afgreiðslu á efnahagsmála- frumvarpi rikisstjórnarinnar var gengið gegn einróma óskum samninganefndar ASI um aðferð til almennrar lækkunar skatta. Þetta mál verður ekki rakið frekar hér, en ekki eru þessi vinnubrögó likleg til að greióa fyrir samstarfi alþýðusam- takanna og stjórnvalda. Líklegast hafa þarna verið að verki iakari öfl stjórnarsamstarfsins og sumir þeir sem sjáifskipaðir hafa talið sig eiga að hafa vit fyrir verka- lýðnum. Alþýðusamtökin hafa markað þá hyggilegu stefnu að vinna upp í áföngum kjaraskerðinguna, sem orðið hefur á sl. ári. Eftir þessu verður stýrt í þeim samningavið- ræðum, sem nú eru um það bil að hefjast. Það er mikið gleðiefni, að allir launþegar skuli nú ganga sameiginlega til 1. maí hátíða- halda og skyggir þar lítió á, þótt nokkrir menn hafi ekki fengið hamið flokksofstæki sitt, en sómi hinna er meiri, sem umbera þennan bjálfaskap og meta meir samstöðuna, sem áreiðanlega er vilji nær allra launþega. Til hamingju með daginn, Is- lendingar! Kristján Ottósson: Vísitölukerfinu verður að breyta Björn Þórhallsson: Kaupmáttur endur- heimtur í áf öngum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.