Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 22
♦ I ♦ >
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975
Hafnfirzkar konur fagna
Gullskipið
frumsýnt á
Akureyri
Skopleikurinn „Gullskipið" eftir
Hilmi Jóhannesson verður frum-
sýndur hjá Leikfélagi Akureyrar
annað kvöld.
Leikendur eru 11 að tölu, en
leikstjórn annast Eyvindur Er-
lendsson. Leiktjöld hefur Jón
Þórisson gert.
Myndin hér að ofan er af
Kjartani Ólafssyni í hlutverki
sínu í leiknum, en Kjartan á 40
ára leikafmæli um þessar mundir.
Smábarna-
skóli í
Stykkishólmii
Stykkishólmi, 28. apríl.
í VETUR hafa st. Fransiskussyst-
ur á sjúkrahúsinu 1 Stykkishólmi
starfrækt leik- og smábarnaskóla
til mikils hagræðis fyrir húsmæð-
ur sem vinna úti. Er þetta skóli
fyrir börn á aldrinum 2 til 7 ára. I
vetur voru í skólanum 15 börn 2
ára, 32 börn 3—5 ára og 43 börn
5—7 ára. Börnin eru 1 skólanum
frá kl. 10 að morgni til 5 á daginn.
Þeim er kennt allskyns föndur og
mikil rækt lögð við kristin fræði
og að ala hið góða og fagra með
þeim. Kennslutæki eru mjög ein-
föld, myndir við barnahæfi og allt
þannig gert að allir hafa áhuga og
reyna að gera sitt besta og er
undraverður árangur sem náðst
hefir. Það sást best á sýningu
barnanna sem systurnar héldu s.l.
laugarda^ 26. apríl, enda vakti
hún verðskuldaða aðdáun þeirra
sem komu að líta á hana. Starf
systranna á þessum vettvangi er
ómetanlegt fyrir Stykkishólm og
ibúa hans. Áhugi þeirra til að
vekja hið fagra og sanna með
börnunum strax i frumbernsku
og stjórn þeirra á stórum hópi er
til fyrirmyndar. Tvær reglusystur
stjórna skólanum og hafa svo ung-
ar stúlkur sér til aðstoðar.
Sérstaka aðdáun vakti hvað 2
ára börn gátu gert og sýnir það að
snemma má beygja krókinn og
sérstaklega þegar að er hiúð sem
hér er gert. Hafi systurnar þökk
fyrir dugnað sinn og árvekni.
— Fréttaritari.
Varla staett
fyrir roki
Bæ, Höfðaströnd, 30. apríl.
MIKIÐ veður hefur gengið hér
yfir undanfarinn sólarhring.
Fyrst af norðaustri með snjókomu
og. 10—11 stiga frosti. Nú er aftur
orðið frostlftið eða frostlaust, en
varla stætt fyrir roki. Menn eru
uggandi um vorgróður, sem kom-
inn var. Töluverð eftirspurn er
eftir heyfóðri, og því óvenjugjafa-
frekur hefur veturinn verið eða
víða frá þvi í september og hross
óvenjumikið á gjöf.
Grásieppu- og rauðmagaveiði
hefur verið töluverð, en nú má
búast við miklum skaða á netum
eftir þetta stórveður.
Bj örn
kvennaári
HAFNARFJARÐARKONUR
halda kvennaáriö hátíðlegt, að
því er segir í fréttatilkynningu
frá Bandalagi kvenna í Hafnar-
firði. Er ætlunin að halda virðu-
lega veizlu f Skiphóli sunnudag-
inn 4. maí kl. 3.30, sem Ifka er
almennur bænadagur. Er þangað
boðið konum f Hafnarfirði og sem
búið hafa í Hafnarfirði, auk þess
sem helztu kvennasambönd í
nágrenninu hafa lofað að þiggja
boð Hafnfirðinga.
I veizlunni, þar sem verða góðar
veitingar, munu hafnfirzkar kon-
Fyrirlest-
ur fransks
afbrota-
fræðings
ÞRIÐJUDAGINN 6. maí kl. 20.30
verður fluttur fyrirlcstur i
Franska bókasafninu, Laufásvegi
12. Jacques Arnal talar um afbrot
og afbrotamenn.
Jacques Arnal er kunnur
afbrotafræóingur, ekki aðeins i
heimalandi sínu, Frakklandi,
heldur einnig víða um lönd. Hann
er lærður maður í lögfræði og
stjórnmálafræði og hefur gegnt
ábyrgðarstöðum innan frönsku
lögreglunnar. Meðal annars hefur
hann stjórnað sókn gegn alþjóð-
legum fíknilyfjahringum og náð á
þvi sviði árangri, sem mikla
athygli hefur vakið.
J. Arnal hefur helgað sig rit-
störfum, og árið 1965 fékk hann
opinber verölaun fyrir bók sina
„Lokuð skjalasöfn". Hann á mikl-
um vinsældum að fagna sem
fyrirlesari og keraur hingað — á
vegum Alliance Francaise— úr
fyrirleslraför um Bandaríkin.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
Framhald af bls. 1
FÖGNUÐURISAIGON
1 Saigon fögnuðu borgarbúar
innrásarliðinu, sem ók inn í borg-
ina í jeppum og herbílum og for-
ingjar kommúnista tóku við
stjórn útvarpsstöðvarinnar og
lásu þar upp eftirfarandi tilkynn
ingu: „Við fulltrúar frelsisherja
Saigon lýsum þvi formlega yfir,
að Saigon hefur verið algerlega
frelsuð og við tökum við skilyrðis-
lausri uppgjöf Minhs forseta fyrr-
verandi stjórnar."
Engar óeirðir né skemmdar-
verk voru unnin i borginni, nema
á bandaríska sendiráðinu og öðr-
um bandarískum byggingum svo
og ibúðum Bandaríkjamanna, en
æstur múgur fór rænanúi og rupl-
andi um þær og kveikt var í mörg-
um þeirra.
Aðeins tvær vikur eru frá því
að Kambódía féll í hendur komm-
únista og ástandið í Laos, þriðju
þjóðinni, sem aðild átti að
Parisarsamkomulaginu 1973, er
afar ótryggt og fregnir tíðari um
átök milli herja hægri manna og
kommúnista, en þessir aðiljar
hafa starfað saman I samsteypu-
stjórn frá því að Parísarsam-
komulagið var undirritað. Ýmsar
aðrar þjóðir í Asiu endurskoða nú
afstöðu sína til Bandaríkjanna og
hefur Marcos, forseti Filipseyja,
lýst því yfir að hann hafi nú
til endurskoðunar samkomu-
lag um bandarískar herstöðvar á
Filipseyjum. Stjórn Thailands
reynir nú af fremsta megni
að forðast að styggja
hina nýju valdhafa Rauðu
Khemeranna í Kambódiu og hef-
ur gefið til kynna, að hún vilji að
bandaríska herliðið í Thailandi
verði flutt á brott á næsta ári.
Hefur stjórnin fyrirskipað flótta-
fólki frá S-Vietnam að yfirgefa
landið þegar í stað og hefur veitt
ur flytja ljóð, ávörp og tónlist,
innblásið af anda þeim sem í
Hafnarfirði ríkir.
Ný stjórn hefur verið kosin i
bandalagið. Formaður er Sigur-
veig Guðmundsdóttir, varafor-
maður Sjöfn Magnúsdóttir, gjald-
keri Soffía Stefánsdóttir, ritari
Erna Fríða Berg, Meðstjórnandi
Ásthildur Ólafsdóttir og vara-
menn Jóhanna Helgadóttir og
Þórunn Jóhannsdóttir. Endur-
skoðendur eru Ágústa Kristjáns-
dóttir og Ragnheiður Svein-
björnsdóttir og varaendurskoð-
andi Dagbjört Sigurjónsdóttir.
Færeysk
bókasýning
NU stendur yfir færeysk bóka-
sýning í útibúi Borgarbókasafns-
ins í Bústaðakirkju. Eru þarna til
sýnis flestar færeyskar bækur
sem eru fáanlegar á færeyskum
bókamarkaði og allmargar fleiri.
Er meginhluti bókanna í eigu
Borgarbókasafnsins. Þó hafa
nokkrar barnabækur verið fengn-
ar að láni frá Landsbókasafninu í
Færeyjum.
Einnig eru þarna til sýnis þær
bækur færeyskra höfunda sem
þýddar hafa verið á íslenzku.
Rétt er að vekja sérstaklega at-
hygli á færeysku barnabókunum,
sem hafa verið lítt þekktar hér á
landi til þessa. En Færeyingar
eiga ágæta barnabókahöfunda,
svo sem Steinbjörn B. Jacobsen,
Chr. Höj o.fl. og ekki síður at-
hyglisverða myndskreytendur
barnabóka, svo sem Elinborg
Lutzen, Bárð Jacobsen, Zakarias
Heinesen, Fridu í Grjótinum o.fl.
Eru á sýningunni verk eftir alla
þessa listamenn.
Einnig mætti vekja athygli á
færeysku ritsafni um listir, Fra
Færeöerne — Ur Föroyum, sem
komið hefur út í nokkrum heft-
um.
A sýningunni eru myndir af
nokkrum færeyskum rithöfund-
um og fáeinar landslagsmyndir
frá Færeyjum o.s.frv. Sýningin
stendur yfir út næstu viku.
flóttamönnum frá Kambódiu
mánaðafrest til að koma sér úr
landi. Einnig hefur stjórnin lýst
þvi yfir að flugvélar og önnur
farartæki, sem flóttamenn noti til
að koma sér til Thailands, verði
afhent stjórnum landanna, fari
þær fram á það.
STEFNA FRIÐAR OG
HLUTLEYSIS
Fulltrúar byltingarstjórnar
kommúnista, Viet Cong, I Paris
sögðu á fundi með fréttamönnum
þar í borg i dag, að hin nýja stjórn
S-Vietnams myndi fylgja stefnu
friðar og hlutleysis í utanríkis-
málum og væri reiðubúin til að
þiggja skilyrðislausa efnahagsað-
stoð frá hvaða landi sem væri.
Þrátt fyrir harkalega árás á
Bandaríkin lýsti Dinh Ba Thi,
sendiherra, því yfir, að allir út-
lendingar í Saigon yrðu undir
vernd ríkisstjórnarinnar. Hann
sagði einnig að stjórn sin væri
reiðubúin til að taka upp stjórn-
málasamband við allar stjórnir
heims án tillits til stjórnmálakerf-
is eða þjóðfélagshátta, á grund-
velli gagnkvæmrar virðingar fyr-
ir sjálfstæði og fullveldi. Hin nýja
stjórn myndi stuðla að friðsam-
legri sameiningu landsins og ein-
ingu þjóðarinnar. Hann sagði að
með uppgjöf Saigonstjórnarinnar
væri bundinn endi á árásarstefnu
bandarískra nýlendusinna, sú
stefna hefði í reynd algerlega
mistekizt. S-Vietnam væri nú
frjáls og óháð þjóð og hinu
heilaga takmarki Ho Chi Minb,
fyrrum forseta N-Vietnams hefði
endanlega verið náð. Hér væri um
að ræða gífurlega mikilvægan
heimssögulegan sigur, sigur í
þágu friðar, sjálfstæði þjóða og
réttar allra þjóða heims. Að lok-
um þakkaði hann stuðning allra
kommúnistarikjanna.
ENN BARIZT í NOKKR-
UM HÉRUÐUM
Foringjar Viet Cong gáfu í dag
hermönnum sínum strangar fyrir-
skipanir um að vernda líf og eigur
erlendra manna i Saigon, að því
er sagði í fréttum í útvarpinu i
Hanoi. Utvarpið sagði einnig að
hermenn sigurliðsins væru önn-
um kafnir við að af afvopna her-
menn S-Vietnams og brjóta á bak
aftur mótspyrnu einstakra her-
flokka. Einnig skoraði útvarpið á
stórnarhermenn í nokkrum hér-
uðum umhverfis Saigon að gefast
upp og bendir það til, að enn sé
barizt á nokkrum stöðum, hugsan-
lega þar sem ekki hefur tekizt að
koma boðum til hermanna um
uppgjöfina.
70 ÞUSUND flótta-
MENN HJA BANDA-
RlKJAMÖNNUM
Bandarísk herskip héldu í dag
áfram björgunaraðgerðum sínum
undan ströndum S-Vietnams, þar
sem þúsundir flóttamanna voru
um borð í bátum og prömmum og
allskonar fljótandi útbúnaði.
Herma fregnir að herskipin hafi
nú alls tekið þannig um borð um
18 þúsund flóttamenn og hafa þá
Bandaríkjamenn tekið upp á sína
arma um 70 þúsund s-vietnamska
flóttamenn. I yfirlýsingu Banda-
ríkjastjórnar fyrir nokkrum vik-
um var gert ráð fyrir að s-
vietnamskir flóttamenn yrðu alls
um 200 þúsund, en þeirri tölu
tókst ekki að ná sökum þess hve
Saigon féll miklu fyrr er ráð hafði
verið fyrir gert.
Viðbrögð bandarísks almenn-
ings við falli S-Vietnams voru
mjög á þá leið, að fólki virtist
létta við að stríðinu væri loks
lokið, en ýmsir létu I ljósi ótta vð
þá ákvörðun Bandríkjastjórnar |
að flytja tugir þúsunda S-
Vietnama til Bandaríkjanna, þar
sem þar væri þegar fyrir mikið
atvinnuleysi. Nokkrir þingmenn
gagnrýndu Ford forseta fyrir að
leggja svo mikla áherzlu á að1
bjarga S-Vietnömunum, en forset-
inn svaraði gagnrýninni gegnum
blaðafulltrúa sinn með eftirfar-
andi yfirlýsingu: ,,„Ég Iét flytja
fólkið úr landi til að bjarga lífi
þess og ég er stoltur af því.“
Fréttamenn segja að forsetinn
hafi verið mjög daufur í dálkinn.
Fyrsta landið til að viðurkenna
hina nýju stjórn S-Vietnams var
Malaysia, en íkjölfarið fylgdu
Thailand, Laos, Sviþjóð og Finn-
land og búizt er við að fjöldi til-
kynninga um viðurkenningu
verði birtar á morgun. Komm-
únistar hafa þegar breýtt um
nafn á Saigon og skýrt hana Ho
Chi Minh borg, til heiðurs hinum
látna leiðtoga sinum, en því nafni
hafa þeir raunar nefnt borgina
um árabil.
♦ » »
— Þrengsli
Framhald af bls. 2
holtsskóla, en sá tími, sem þar
hefur verið til umráða, fellur
mjög illa að stundaskrá Hvassa-
leitisskóla, þannig að skóladag-
urinn er sundurslitinn, auk
þess sem nemendur fá ekki
fulla leikfimikennslu sam-
kvæmt námsskrá. Yngstu nem-
endurnir hafa ekki sótt leikfimi
utan Hvassaleitisskóla, heldur
fer kennslan fram í stofu, þar
sem einnig fer fram teikni- og
tónlistarkennsla. Böð eru þar
engin.
Handavinnustofa drengja er
engin í skólanum. Kennsla fer
fram i almennri kennslustofu,
þar sem bráðabirgðaaðstaða er
fyrir hendi en fulltrúi öryggis-
eftirlitsins hefur lýst því yfir
að kennsla við þær aðstæður,
sem þar eru, sé varhugaverð.
Auk þess, sem hér er talið,
vantar ýmiss konar sérkennslu-
húsnæði. Leshjálparkennsla
fer t.d. fram í 12 fermetra her-
bergi, sem þiljað hefur verið af
á gangi milli 1. og 2. áfanga
skólans. Þar er mikill umgang-
ur og ónæði, sem gerir kennslu
illmögulega.
Á fundinum kom fram, að
áform um að ljúka við Hvassa-
leitisskóla hafa verið uppi mörg
undanfarin ár, gert hefur verið
ráð fyrir framkvæmdum við 3.
áfanga, en síðan hefur jafnan
verið fallið frá því að veita fé til
byggingarinnar.
Skólastjóri og kennarar telja
ástandið hafa verið óviðunandi
svo lengi, að ekki verði öllu
lengur hjá því komizt að bæta
úr því.
— Chicago
Tribune
Framhald af bls. 2
Sovétríkjunum hafi aukizt úr
4,5% gjaldeyristekna i 11,2%
og að þessa stundina skuldi Is-
lendingar Sovétríkjunum um
10 milljónir dollara eða um
1500 milljónir íslenzkra króna
og segir blaðið að skuld þessi
verði að greiðast í Bandaríkja-
dölum.
— S-Kórea
Framhald af bls. 16
fyrir þremur árum, mátti á ýmsu
skilja að Kínverjar virtust stefna
eftir friðarbraut, sem lýsti sér
meðal annars í að hvetja til að
Norður-Kóreumenn og Norður-
Víetnamar héldu sér i skefjum.
Þetta er nú að engu orðið og
kannski hefur þessi kenning
aldrei staðist í Indókina. En
spurningin hlýtur að vera hvort
hún stenst í Kóreu. Það gæti farið
að koma í ljós á næstu vikum.
— Ragnhildur
Framhald af bls. 2
lenda eins og á mörkum ýmissa
stofnana, milli þeirra eða jafnvel
utan við þær vegna þrengsla og
skorts á möguleikum í þeim stofn-
unum, sem fyrir eru.
Önnur eru bæði vangefin og
auk þess mjög fötluð og vanheil
að öðru leyti, að þau þurfa mikla
hjúkrun og sérstæða umönnun.
Vegna þessara einstaklinga þyrfti
t.d. verulega að efla og bæta
hjúkrunardeild Kópavogshælis.
Auk þessara ráðstafana er þörf
á að gefa vaxandi gaum ráðstöf-
unum til kennslu og þjálfunar við
hæfi hinna ýmsu hópa vangef-
inna og fjölfatlaðra og kappkosta,
að nútímaþekking nýtist þeim til
nokkurs þroska.
— Aðalfundur
Framhald af bls. 5
Elías Jónsson, Vegageró ríkisins,
639 atkv., Guðrún Ágústsdóttir,
Hjúkrunarskóli Islands, 635 atkv.
og Þórólfur Jónsson, Rafmagns-
veitur ríkisins, 592 atkv. Tillögur
um aðra stjórnarmenn fengu
179—222 atkv.
— Thailand
Framhald af bls. 16
liðsafli frá bandarískum her-
stöðvum í landinu verði á braut
innan árs. I ræðu, sem varnar-
málaráðherrann hélt nýlega
sagðist hann „ekki koma fyrir sig
hve hárri upphæð Bandaríkja-
menn vörðu til hernaðaraðstoðar
við Thailand“ á sl. ári.
Malaysia og nokkur önnur lönd
í Suðaustur-Asíu virðast ætla að
fylgja fordæmi Thailands, hvað
snertir flóttamenn frá Indókína.
Flugvélar og aðrir farkostir sem
flytja fljóttamenn verða kyrrsett-
ar og hefur þegar reynt á þetta
varðandi litla báta, sem komu frá
Vung Tau til Singapore. Þó mun
nokkur hópur Suður-Víetnama
hafa fengið hæli, að minnsta kosti
um sinn, á norðurhluta Borneo.
Malaysiumönnum mun verða
þetta flóknara, þegar i hlut eiga
flóttamenn frá Kambodiu. All-
stório-hópar þeirra komust með
einhverjum ráðum í gegnum
Thailand og niður í Kelantan-
hérað á austurströnd Malaysiu.
Þessir flóttamenn eru
Múhammeðstrúar og það bryti í
bága við yfirlýsta stefnu stjórnar-
innar að gera þá afturreka.
I stuttu máli sagt: nú er það
alvörupólitík sem gildir. Nú verða
mannúðarhugmyndir látnar
víkja. Fyrri skilningur á hugtaki
um sameiginlegu öryggi þessara
landa verður endurskoðaður.
Þetta eru viðbrögð grannríkja
Víetnama. Viðbrögðin eru einnig
og ekki hvað sizt að hlúa að sínum
eigin vörnum og reyna að sjá eig-
in hagsmunum sem bezt borgið.
Víetnamstríðinu lokið