Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 23

Morgunblaðið - 01.05.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975 23 I anda fyrstu trygginga á Islandi: FORSENDUR FRUMVARPSINS I DYR- KEYPTRI REYNSLU ÞJÓÐARINNAR Athyglisverð yfirlýsing: verðmæti: Allar húseignir og lausafé, sem brunatryggt er hjá vátryggingarfélagi, sem starfs- leyfi hefir hér á landi. Vátryggingarupphæðir verði þær sömu og brunatryggingarfjárhæð- ir á hverjum tima. Viðlagatryggingin er fyrst og fremst trygging, er bætir meiri háttar tjón. Tjónsuppgjör á þvi ekki að vera daglegur viðburður, heldur vonandi undantekning. Eigin áhætta hinna tryggðu verð- ur því að vera all há. 1 7. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að hún verði 5% og ekki bætist tjón undir kr. 100.000.00. Tekjuöflun fer fram á þann hátt, að innheimt verður vægt ið- gjald af þeim verðmætum, sem tryggð eru. Lagt er til að iðgjalds- taxtinn verði 0.25 prómíil. Til samanburðar má geta þess, að ið- gjaldstaxti hjá tryggingarfélögum fyrir jarðskjálftatryggingu ein- göngu er frá 1 prómill. upp I 2.55 prómíll eftir gerð húsa og aðstæð- um. Er því augljóst, að iðgjaldi er mjög í hóf stilit. Þess ber og að geta, að þegar tryggingarsjóður stofnunarinnar hefir náð ákveð- inni upphæð, þ.e. 2 prómíll. af vátryggingarverðmætinu, lækkar þessi iðgjaldstaxti um helming og iðgjaldsinnheimta felluralveg nið ur, þegar upphæð hans hefir náð 3 prómill. eða 1.8 milljörðum króna, miðað við áætluð trygg- ingarskyld verðmæti í dag (600 milljarðar). Þá er að nefna mjög veigamikið atriði um framkvæmd tryggingarinnar. Sbr. 8. gr. frum- varpsins skal hagnýta tryggingar- kerfi starfandi vátryggingar- félaga. Vátryggingarfélögin sjái um innheimtu iðgjalds til viðlaga- tryggingarinnar um leið og þau innheimta brunatryggingarið- gjaldið. Þetta verður að telja mjög hagkvæmt og auðvelt i fram- kvæmd. Vátryggingarfelögin sjá á sama hátt um uppgjör á tjónum, hvert við sinn viðskiptamann, eins og um brunatjón væri að ræða. Að sjálfsögðu hefir stjórn stofnunarinnar yfirumsjón með þessari starfsemi, en þar sem ætl- ast er til að samið verði við Seðla- banka íslands um vörzlu sjóða og bókhald fyrir stofnunina, verður komizt hjá að ráða fast starfsfólk, sem að sjálfsögðu hefir veruiegan sparnað í för með sér. Áætlað er að heildárfjárhæð þeirra verðmæta, sem trygging þessi nær til verði um 600 milljarðar m.v. verðlag i dag. Há- marksbætur, sem tryggingunni er ætlað að ráða við eru 5 prómill. eða 3 milljarðar. Viðlagatrygging- in ber sjálf fyrstu 2 prómill. eða 1.2 milljarð í hverju tjóni, en það sem umfram er endurtryggir ríkissjóður. Þá er gert ráð fyrir að Viðlagatryggingin leiti endur- tryggingar hjá tryggingarfélög- um, innlendum eða erlendum, á hluta af eigin áhættu sinni, eink- um meðan verið er að byggja upp sjóði stofnunarinnar. Eins og áður er getið, var Við- lagasjóður stofnaður til þess að leysa tiltekin verkefni. Þegar þvi er lokið gera lögin ekki ráð fyrir Magnús bað um stuðning ALÞÝÐUFLOKKS og SJÁLFSTÆÐISFLOKKS við járnblendifrumvarpið I LOK umræðna á Alþingi um járnblendiverksmiðju i Hval- firði gaf Gilfi Þ. Gíslason, for- maður þingflokks Alþýðu- flokksins, athyglisverða yfirlýs- ingu, efnislega á þessa leið: Nokkrum mánuðum áður en Magjpús Gylfi Magnús Kjartansson lét af emb- ætti iðnaðarráðherra, og meðan hann hafði enn vonir um áframhaldandi ráðherradóm, kallaði hann á okkur Gunnar Thoroddsen, formenn þing- flokka þáverandi stjórnarand- stöðu, til fundar við sig á skrif- stofu sinni í Arnarhvoli. Er- indið var að ræða við okkur samninga við Union Carbide, sem þá voru á lokastigi. Mála- vextir voru þá þeir, að hann var orðinn í minnihluta í eigin þingflokki i þessu máli, sem hann persónulega og þáverandi rikisstjórn vildu tryggja fram- gang i þinginu. Leitaði hann eftir stuðningi okkar við erindi, er hann hugðist senda U.C., þar sem fram átti að koma að tryggt væri, að i byrjun næsta þings yrði þingmeirihluti fyrir lög- gjöf til staðfestingar á samn- ingsgerð um járnblendiverk- smiðjuna, sem þá lá fyrir i grundvallaratriðum eins hún nú er. Ég tjáði ráðherranum, i umboði þingflokks Alþýðu- flokksins, að við myndum styðja þetta mál. Þessari stefnu er Alþýðuflokkurinn enn trúr og í því efni breytir það engu, þö frumvarpið sé nú fram borið af öðrum iðnaðarráðherra en þeim, sem þá leitaói eftir stuðn- ingi Alþýðuflokksins við það. Snúningur Magnúsar í málinu, sem snúizt hefur gegn eigin afkvæmi, er svo annar kapituli, sem segir meir en margur hygg- ur. Matthías Bjarnason, tryggingamálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi til laga um Viðlagatrygg- ingu íslands í efri deild Alþingis í gær. Rúm þingsíðunnar leyfir því miður ekki birtingu ræðu ráðherrans í heild, sem æskilegt hefði verið, en hér fara á eftir meginatriði úr ræðu hans: séum betur undir það búnir að mæta slikum tjónum. Sú aðferð að setja lög um bætur og fjáröfl- un í hvert sinn, er tjón ber að höndum, er afar seinvirk og þung I vöfum. Auk þess, sem hætt er við að einstaklingur, sem einn og sér verður fyrir tjóni af völdum náttúruhamfara, eigi ekki eins greiðan aðgang að fá bætur á þessum grundvelli, eins og þegar stærri atburðir gerast, en tjón hans er þó jafn tilfinnanlegt. Ég ákvað þvi að skipa nefnd til þess að gera tillögur um þessi mál.“ Ráðherrann gerði siðan grein fyrir skipan og störfum nefndar- innar. Efni frumvarpsins: Síðan sagði ráðherra: „F'rumvarpið gerir ráð fyrir þvi, að sett verði á fót stofnun er nefnist Viðlagatrygging íslands og skal hún tryggja gegn tjóni af völdum eftirtalinna náttúruham- fara, sbr. 4. gr. frumvarpsins: eld- gosa, jarðskjálfta, snjóflóða og skriðufalla. Nefndin taldi ekki ráðlegt að innifela í tryggingu þessari tjón af völdum ofviðra, vegna hinna mörgu vandamála, sem kynnu að koma upp í sam- bandi við skilgreiningu á slíkum tjónsatburðum, enda munu slíkar tryggingar orðnar all almennar einar sér eða sem liður i húseigendatryggingu. í 5. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir, að tryggingarskyld séu eftirtalin Aðdragandi „Nauðsyn trygginga hefir verið okkur Islendingum ljós um lang- an aldur. Við búum i harðbýlu landi — landi elds og Isa — eins og það oft er orðað. A þjóðveldis- öldinni giltu innan hreppanna ákveðnar reglur um samhjálp eða samábyrgð íbúa hreppsins, þegar bær brann eða búfé fórst. Þessi samtrygging lagðist þó af þegar við misstum stjórnarfarslegt sjálfstæði okkar, eins og kunnugt er. í nútíma þjóðfélagi eru hvers- konar tryggingar taldar æ nauð- synlegri. Það hefir á síðustu ára- tugum orðið ný og mikil aukning verðmæta hér á landi, bæði i byggingum og lausafé. Eignatjón- ið, þegar út af ber, verður þvi æ stærra og tilfinnanlegra. Eldgosið í Vestmannaeyjum er okkur öll- um I fersku minni og hið mikla eignatjón er þar varð. Og svo urðu í desember sl. hinir sviplegu at- burðir I Neskaupstað, er snjóflóð- in lögðu helztu atvinnufyrirtæki staðarins í rúst í einni svipan og tóku um leið stóran toll í manns- lífum. Með lögum nr. 4 frá 27. marz 1973 var Viðlagasjóður stofnaður, en hlutverk hans er að bæta tjón vegna eldgossins í Vestmannaeyj- um og var tekjuöflun við það eitt miðuð. Eftir snjóflóðin í Neskaup- stað kom upp svipuð staða — stór- tjón var orðið — atvinnulif heils bæjarfélags lá í rústum. Stjórnar- völd tóku málið upp á sína arma á sama grundvelli og Vestmanna- eyjatjónið og Alþingi samþykkti lög, þar sem Viðlagasjóði er falið að bæta þessi tjón og fleiri, en fjár aflað með hækkun á sölu- skatti, sbr. lög nr. 5 frá 28. febrú- ar sl. Stjórnarvöld og Alþingi hafa þvi ótvírætt sýnt, að fullur vilji er fyrir hendi að bæta slik áföll. Mér var þó ljóst, þrátt fyrir ofangreinda afgreiðslu þessara mála, að nauðsynlegt væri að við Þjóðminjavernd: Húsfriðunarsjóður Vilhjálmur Iljálmarsson, menntamálaráðherra, mælti fyrir stjórnarfrumvarpi i n.d. Alþingis í gær til breytinga á lögum um Þjóðminjasafn Islands. Mergur- inn málsins í frumvarpinu er sá, að stofnaður verði húsfriðunar- sjóður, er ríkissjóður greiði í kr. 20,00 af hverjum þegni þjóð- félagsins og sveitarfélögin jafn- háa upphæð. Þetta myndi gera rúmar 8 m. kr. á ári, sem myndi bæta að nokkru aðkallandi fjár- þörf starfandi húsfriðunarnefnd- ar. 1 lok máls sins sagði ráðherra orðrétt: „Það er trú margra, að ls- lendingar hafi lítt eða ekki átt.sér umtalsverða húsagerðarlist á liðn- um öldum, og jafnvel allt fram undir okkar daga. Þetta er mikill misskilningur. Unnið hefur verið rnikið starf við undirbúning og ritun sögu um húsageróarlist á Islandi. Mun sú saga hnekkja rækilega þessum hugniyndum, sem ég áðan nefndi. Væri betur að útkoma þess rits drægist ekki úr hömlu, og það mætti sjá dags- ins ljós á húsafriðunarárinu. Er enginn vafi á því, að útkoma þess mun mjög glæða skilning íslendinga á nauðsyn þess að varðveita merkilegar minjar um húsagerðarlist Islendinga á liðn- um tima.“ Matthfas Bjarnason, trygginga- ráðherra. frekari starfsemi hans. Það má þvi telja eðlilegt, að Viðlagatrygg- ingin yfirtaki eignir og skuldir Viðlagasjóðs með þeim hætti, er um getur I 21. gr. frumvarpsins. Viðlagatryggingin er hrein eignatrygging, eins og bruna- trygging. Það er staðreynd, að margskonar óbeint tjón hlýzt af þegar byggingar og tæki brenna, sama gildir að sjálfsögðu um tjón á þessum eignum af völdum náttúruhamfara. Rekstur fyrir- tækja raskast, framleiðsla minnk- ar eða leggst niður, fólk missir atvinnu og fleira mætti telja. Við- lagatryggingunni er ekki ætlað að bæta slík óbein tjón. Minna má á, að búnaðardeild Bjergráðasjóðs veitir lán og styrki vegna ýmissa óbeinna tjóna á landbúnaði. Hin almenna deild Bjargráðasjóðs ætti á sama hátt að geta hlaupið hér undir bagga, þar eð með til- komu þessarar tryggingar er vitað að mjög mun létta á henni á þvi sviði, sem viðlagatryggingin nær til.“ Tjónavarnir. í lok máls sins sagði ráðherr- ann: „Að lokum vil ég nefna, að sam- kvæmt 19. gr. frumvarpsins er stjórn stofnunarinnar heimilt að veita styrki til framkvæmda, sem ætlað er að varna tjóni af völdum náttúruhamfara. Er hér að sjálf- sögðu fyrst og fremst átt við varn- ir gegn snjóflóðum, skriðuföllum og flóðum. Eg tel þetta mjög já- kvætt og veigamikið atriði, ef með varnaraðgerðum yrði hægt að forða eignatjóni og jafnvel mannslífum." AlÞinCI Sauð- naut FRUMVARP til laga um inn- flutning og eldi sauðnauta, scm landbúnaðarnefnd flytur, kom til atkvæða i neðri deild Alþingis í gær, eftir 2. um- ræðu. Frumvarpið felur í sér heimild til Búnaðarfélags ls- lands til innflutnings og eldis sauðnauta í einangraðri stöð og síðar stöðvum, eins og nán- ar er á kveðið um í frumvarp- inu. Frumvarpið var samþykkt til 3ju urnræðu i deildinni. Þaó, sem vakti athygli, er nafnakall var viðhaft um til- teknar frumvarpsgreinar, var, að meiri hluti deildarmanná sat hjá við atkvæðagreiðsluna eða var fjarverandL 15 þing- menn greiddu fruntvarps- greinunum atkvæði (2.-5. gr ), 2 mótatkvæði, 11 sátu hjá og 12 voru fjarstaddir. 23 af 40 þingdeildarmönnum sátu þvi hjá eða voru fjarverandi, sem ekki lýsir sérlegum áhuga á málefninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.