Morgunblaðið - 01.05.1975, Síða 25

Morgunblaðið - 01.05.1975, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975 25 Bjarni Helgason: Athugasemdir við villandi viðtal um áburðarverð og tilraunastarfsemi Að undanförnu hafa lærðir menn og leikir í vaxandi mæli haidið þvi fram, að áburðar- notkun bænda væri fjarri allri skynsemi, þvi að það skipti engu máli, hvað áburðurinn kostaði, — allt kæmi það til baka eftir ein- hverjum leiðum, — styrkjaleið- um. Búf járáburðinn virðast marg- ir álíta fara meira og minna for- görðum, og ef ekki öðru visi, þá beint í bæjarlækinn. Hvað er nú hæft í þessu? Eitt er víst, að áburðarnotkun bænda almennt er ekki eins röng og margur heldur, og hitt, að íslenzk náttúra kallar á meiri áburðar- notkun hlutfallslega en gerist með grannþjóðunum. A síðastliðnu hausti skipaði landbúnaðarráðherra hina svo- kölluðu áburðarnefnd til að kanna áhrif hinna gífurlegu verð- hækkana á erlendum áburði á is- lenzkan landbúnað og almennt efnahagslíf. Það var hlutverk mitt i þeirri nefnd að kanna hvaða ályktanir mætti draga af þeim áralöngu tilraunum með tilbúinn áburð, sem verið hafa á tilraunastöðvunum samfleytt i allt að 20 ár. Niðurstöðurnar birt- ust I nefndarálitinu og voru í stuttu máli: Áburðarnotkun bænda eins og hún er að meðaltali samkvæmt skýrsium hefur, a.m.k. að undanförnu verið mjög nálægt þvi hámarki, sem hagkvæmast má telja frá fjárhagslegu sjónarmiði. Með þvi að um meðaltal er að ræða, verður óhjákvæmilega aó gera ráð fyrir, að einhverjir kunni að hafa notað meiri áburð en ástæða var til, og einnig eitt- hvað minna en það, sem bezt hefði gefið af sér i fjárhagslegu tilliti. Umræddar niðurstöður hvila að sjálfsögðu á því, hver hey- uppskeran hefur verið í hinum tilteknu tilraunum og meðaltali uppskerunnar um fyrrgreint 20 ára skeið. Eini áþreifanlegi mæli- kvarðinn til að meta verðmæti þessarar uppskeru er söluverð heysins á hverjum tíma, og eini örugglega áþreifanlegi kostnaðar- mælikvarðinn er verð áburðarins á verzlunarstað. Fleiri þættir koma að sjálfsögðu inn í þetta dæmi, svo sem vinna bóndans við áburóardreifingu, fjármagns- kostnaður, áhrif tíðarfars á nýtingu áburðarins o.fl., en vægi hvers þessara þátta er ekki unnt að meta með neinni fjárhagslegri vissu. — En sem sagt: niðurstaða þessi um áburðarnotkun bænda og hver hagkvæmni hennar hafi verið fyrir bóndann, hvilir á rann- sóknum undanfarinna ára, og get- ur reyndar ekki hvílt á neinu öðru. Að sjálfsögðu hefði mátt reikna út eins og hagfræðingar vilja, hvert heyverðið þyrfti að verða á næstkomandi hausti og þá einnig afurðaverð til bænda. Að sjálf- sögðu hefði orðið að miða við væntanlega heyuppskeru. Þvi miður er ekki unnt að miða við neitt annað. En heldur virðist það fáfengilegt að miða við uppskeru, sem enginn veit, hver getur orðið, sérstaklega þegar haft er í huga, að uppskeran af einum og sama blettinum getur sveiflast milli 16 og 80 hestburða af hektara, allt eftir því hvernig tiðarfarið er. Slika útreikninga geta þeir gert, sem gaman hafa af, en ekki kallar þetta á neinar nýjar tilraunir, hvað sem liður viðtali Elínar Pálmadóttur við forstöðumann Rannsóknastofnunar land- búnaðarins í Mbl. 24. þ.m. undir fyrirsögnini: „Áburðartilraunir þarf að endurskoða vegna stór- hækkaðs áburðarverðs" I umræddu viðtali er m.a. að þvi látið liggja, að áburðartilraunir undanfarinna ára hafi verið gerðar án tillits til hagkvæmnis- sjónarmiða, og sagt fullum fetum, að „tilraunir þessar, svo og leið- beiningar um áburðargjöf væru miðaðar við allt annað áburðar- verð, 3—4 sinnum lægra en nú er og við uppgjör á þeim ekki hugsað um ábúrðarnotkun". — Þetta er alveg dæmalaus misskilningur. Aburðarverð hefur reyndar sifellt verið að hækka á því 20 ára timabili, sem tilraunirnar hafa staðið. En svo er fyrir að þakka, að umræddar tilraunir eru ekki miðaðar við einn áburðarskammt, heldur eru reyndir fleiri áburðar- skammtar til að sjá, hvaða upp- skeru þeir muni gefa hver fyrir sig og hver áhrif þeirra eru við langvarandi notkun sem likast þvi, er gerist i venjulegu túni. Og það er einmitt þetta, að um fleiri áburðarskammta er aó ræða, sem gerir kleift að kanna, hvar hin hagkvæmustu mörk hafa legið hverju sinni, þegar tekið er tillit til áburðarverðs annars vegar og söluverðs á heyi hins vegar. I þessu sambandi má benda á, að verð á heyi hefur algjörlega verið háð framboói og eftirspurn, sennilega ein af fáum vöru- tegundum, sem svo er enn ástatt um. Heyverðið hefur til þessa ekki verið háð hinum skipulags- bundnu hagstjórnartækjum nútímans, nefndunum og ráðun- um, sem sifellt eru að gera áætl- anir og taka ákvarðanir um verð á varningi, sem ekki er búið að afla, sbr. fiskverð o.fl. Það er kannski von, að þeim sem lifa og hrærast i slíkum áætlanagerðum út í óviss- una, reynist erfitt að átta sig á, þegar lögmálið um framboð og eftirspurn fer allt í einu að ráða á innlendum markaði. Nei, — áburðartilraunir sem þessar þarf ekki að endurskoða vegna breytinga á áburðarverði, — það eru aðeins ný sjónarmið um túlkun, sem geta komið upp varðandi notkun á niðurstöðun- um. Hins vegar má fullyrða, að án umræddra tilrauna hefðum við vafalitið staðió eins og glópar, og ekkert getað dæmt um, hvaða skynsemi væri f núverandi áburðarnotkun bænda. Sem betur fer hafa úrtöluraddirnar, sem talað hafa gegn langtimatilraun- um, enn sem komið er, ekki feng- ið að ráða ferðinni i tilrauna- málum íslenzkrar jarðræktar, og vonandi verður það aldrei. En ég kemst ekki hjá því að telja það furðulegt viðhorf og vafasamt hrós i garð okkar, er staðið höfum fyrir jarðræktar- tilraunum i þágu landbúnaðarins undanfarin ár og áratug, þegar sjálfur forstöðumaður Rannsóknastofnunar land- búnaóarins segir í umræddu Morgunblaðsviðtali: „Niðurstað- an er sú, að þetta verður allt að gera upp aftur. Við eigum tölu- vert af tilraunum. Fyrst yrði þvi að endurreikna allt, sem við höf- um og gera upp tölulega meó nýj- um forsendum, m.a. tölvuvinnu. Við yrðum að setja krónutöluna inn i og reikna út hagkvæmn- ina . .. “ Svo mörg voru þau orð. Maður skyldi halda, að ekkert af þessu hafi verið gert hér áður, eða að hverju er verið að drótta? Aður en svona yfirlýsingar eru gefnar, verða menn að hafa kynnt sér, þótt ekki nema Iitillega, hvað áður hafi verið gert. Ennfremur sagði i viðtali þessu: „Það er erfitt að gera sér grein fyrir þvi, hve mikið gæti sparast með þessu, þó hægt sé að slá föstu, að mikið mætti auka nýtinguna á áburðinum." Gott Fjölbreytt starf Krabbameins- félags íslands Aðalfundur Krabbameinsfélags Islands var haldinn 18. aprii s.l. Aður en aðalfundurinn hófst flutti Páll Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri, yfirgripsmikið og fróðlegt erindi um skipun heilbrigðismála í hinum ýmsu þjóðlöndum heims. I þvi sambandi ræddi hann þýð- ingu frjálsra félagasamtaka i heil- brigðiskerfinu. Þá flutti Guðmundur Jóhannes- son, yfirlæknir, skýrslu um starf- semi leitarstöðva á vegum Krabbameinsfélags Islands og deilda þess. I leitarstöðvunum fer fram hópskoðun kvenna, sem ekki hafa sjúkdómseinkenni og miðast skoðunin við það að finna krabbamein á byrjunarstigi i leg- bol og leghálsi. Hefur þetta verið eitt af aðalverkefnum Krabba- meinsfélags Islands undanfarin ár. Með aðstoð deilda Krabba- meinsfélags Islands viðs vegar um landið hefur tekizt að koma á slikum hópskoðunum um allt land og er öllum konum á aldrinum 25—70 ára gefinn kostur á þessari rannsökn annað hvert ár. Leitin að krabbameini á byrjunarstigi í leghálsi og legbol byggist að veru- legu leyti á frumurannsókn. Á árinu 1974 voru skoðuó 12827 frumusýni í þessum tilgangi. Allmiklar umræður urðu um er- indi þeirra Páls og Guðmundar og tóku ýmsir fulltrúa, sem mættir voru til aðalfundar Krabbameins- félags tslands, þátt í þeim. I skýrslu formanns Krabba- meinsfélags Islands, sem flutt var á aðalfundinum, kom fram, að Hrafn Tulinius læknir hefur verið ráðinn yfirlæknir að krabbameinsskráningunni, en hann hefur undanfarið starfað við Alþjóðakrabbameinsstofnun- ina í Lyon. Krabbameinsskrán- ingin hefur nú starfað i 20 ár og hefur á þessum tíma safnast mikill efniviður til úrvinnslu og upplýsingar um hinar ýmsu teg- undir krabbameins á Islandi. Verður aðalverkefni Hrafns til að byrja með að vinna úr þessum gögnum. Samband krabbameinsfélaga á Norðurlöndum hélt sinn árlega fund i Stokkhólmi 1974. I sam- bandi við þann fund var haldið læknaþing, sem fjallaði um grein- ingu krabbameins með ónæmisað- ferðum. Formaður gat þess i skýrslu sinni að Gunnlaugur Geirsson læknir hefði á s.l. ári verið ráðinn til þess að hafa yfirumsjón með frumurannsóknum í Leitarstöð Krabbameinsfélags Islands i Reykjavik. Gunnlaugur hefur hlotið sérmenntun i meinafræði og frumurannsóknum í Banda- rikjunum og bindur Krabba- meinsfélagið miklar vonir við það að takast megi að veita honum aðstöðu til þess að byggja upp frumurannsóknir hér á landi til aðstoðar við greiningu á krabba- meini í fleiri liffærum, svo sem lúngum, maga, þvagfærum og brjósti. Þing Alþjóðasambands krabba- meinsfélaga (International Union Against Cancer) var haldið I Florens á Italiu í október s.l„ og var það hið 11. í röðinni. Prófess- or Ölafur Bjarnason mætti á þing- inu sem fulltrúi Krabbameins- Ólafur Bjarnason félags Islands. I sambandi við Alþjóðaþingið höfðu krabba- meinsfélögin á Norðurlöndum sameiginlega útstillingu, sem sýndi I fáum, skýrt afmörkuðum dráttum, aðalatrióín í starfsemi félaganna. Fræðslustarfsemin hefur svo sem undanfarið að mestu verið i höndum Reykjavikurdeildarinn- ar og hefur fyrst og fremst snúist um áróður gegn tóbaksreykingum og almenningsfræðslu um skað- semi þeirra. Krabbameinsfélag Reykjavikur hefur unnið ötullega að fjársöfnun og afhenti for- maður þess dr. Gunnlaugur Snæ* dal á aðalfundinum ávisun að upphæó 4,2 milljónir sem árstil- lag til Krabbameinsfélags Is- lands. Krabbameinsfélag Reykja- víkur er stærsta og öflugasta deildin innan Krabbameinsfélags lslands og var framlag þess næst- hæsti tekjuliður Krabbameinsfé- lags Islands á árinu 1974. Hæsti tekjuliður Krabbameinsfélagsins var opinber styrkur sem á árinu 1974 nam rúmlega 6,8 milljónum. Á fjárlögum fyrir árió 1975 hefur styrkur þessi verið hækkaður verulega og er stjórn félagsins ■ Sigríður J. Magnússon þakklát fyrir þann skilning sem Alþingi og fjárveitinganefnd hafa sýnt fjárþörf félagsins og starf- semi þess i þágu heilbrigðismála. Hefði þessi hækkun ekki komið til hefði félagið orðið að draga saman seglin á ýmsum sviðum sökum fjárskorts. Vegna herferðar samstarfs- nefndar um reykingavarnir í fjöl- miðlum undanfarið samþykkti fundurinn einróma að senda nefndinni eftirfarandi kveðju: „Aðalfundur Krabbameinsfé- lags Islands haldinn 18. april 1975 sendir samstarfsnefnd um reyk- ingavarnir kveðjur sínar og þakkar nefndinni fyrir hina ötulu baráttu gegn sigarettureykingum og áhugaverðar ábendingar til al- mennings i fjölmiðlum undanfar- ið.“ Við stjórnarkosningu var prófessor Olafur Bjarnason endurkjörinn formaður félagsins. Frú Sigríður J. Magnússon, sem setið hefur i stjörn frá stofnun Krabbameinsfélags Islands, baóst eindregið undan endurkosningu. Þakkaði formaður frú Sigriði fyrir llennar mikla og fórníúsa Framhald á bls. 28 væri, ef vinur minn reyndist sannspár í þessu efni, en menn skyldu hafa það i huga, að það, sem mestu ræður um nýtingu áburðarins hér á landi, er tiðar- farið. Svo að ég nefni annað dæmi til viðbótar því, sem ég benti á i upphafi um áhrif tíðarfarsins á uppskeruna, skal á það bent, að árið 1958 fengust 88 hestburðir heys af hektara í tiltekinni tilraun, tveimur árum síðar varð uppskeran hins vegar aðeins 41 hestburður. Svo vilja menn gera áætlanir á grundvelli svona sveiflna, — það mundi vera verra en i útgerð. En fyrir þá, sem ekki vita betur, má nefna, að allt frá þvi kringum 1960 hefur þeim bænd- um, sem þess hafa óskað, verið sérstaklega leiðbeint varðandi áburðarnotkun á grundvelli jarð- vegsefnagreininga, og hefur það verið gert i nánu samstarfi við viðkomandi héraðsráðunauta. Við þessar leiðbeiningar hefur verið reynt að taka tillit til ólíkra jarð- vegsgerða, ræktunarsögu, o.fl., og inn i þetta hefur einnig fléttast notkun búfjáráburðar. 1 mörgum tilfellum hafa þessar leiðbein- ingar einungis orðið til þess að staðfesta það, sem bændurnir sjálfir hafa verið búnir að finná út, og það út af fyrir sig getur verið gagnlegt. I öðrum tilfellum hefur verið unnt að benda á atriði til lagfæringar en hins vegar hefur ekki alltaf verið unnt að fara eftir slikum ábendingum sökum þess verzlunarmáta, er til skamms tíma hefur tíðkazt hér með tilbúinn áburð. Hitt er svo auðvitað annað mál, að alltaf má gera meira, og það er einmitt það, sem þarf. Það þarf að auka og efla þaó, sem fyrir er án þess að gera litið úr því og án þess að tala eins og ekkert hafi verið gert nema hálfgerð vitleysa. Þótt einhverj- um þyki lítið bera á tilraunastarf- semi landbúnaðarins og vilji jafn- vel eigna henni fátt, er það engu að siður staðreynd, að hún hefur skapað grundvöll og treyst grund- völlinn að mörgu þvi, sem talið er til framfara i islenzkum land- búnaði. Betlistafur og glamur á henni hins vegar að vera fjarlægt. Að lokum skal bændum bent á það, þegar aðrar upplýsingar eru ekki fyrir hendi, t.d. úr jarðvegs- efnagreiningum, og enginn búfjáráburður er tiltækur, að 100—120 kg af hreinu köfnunar- efni (N), um 60 kg og P2 05 og 50—70 kg K2O á hvern hektara túns er það áburðarmagn, sem enn er skynsamlegt að nota þrátt fyrir hækkað áburðarverð. Er þá miðað við meóaluppskeru síðast- liðinna 20 ára. Ef einhver er svo lánsamur að geta með aðstoð tölvu eða völvu séð fyrir tíðarfar og sprettu á þessu sumri, er auðvitað sjálfsagt fyrir viðkom- andi að nota áburðinn sinn í sam- ræmi við það. Jafnframt vil ég vekja athygli þeirra, sem aka áburðinum i plastpokunum i stæður beint út á túni, að breiða vel yfir stæðurnar, ef þær þurfa eitthvað að standa. Plastpokarnir eru yfirleitt með örsmáum loft- götum og þvi ekki vatnsþéttir eins og margur heldur. Þannig má kannski hindra það, að einn og einn poki fari forgöróum, en pok- inn kostar alla vega eitthvað nálægt 1500 krónum fyrir utan niðurgreiðsluna. Á þessu hefur ekki verið vakin næg athygli á undanförnum árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.