Morgunblaðið - 01.05.1975, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975
28______________
Þórunn Þorgríms-
dóttir - Minningarorð
Þórunn Þorgrímsdóttir, fæddist
i Gautavík, á Berufjarðarströnd
21. 1 1885. Foreldrar hennar voru
hjónin Halldóra Sigurðardóttir og
Þorgrímur Þorláksson. Eignuðust
þau hjónin fjórar dætur, var Þór-
unn þeirra næst elzt.
Konu sína missti Þorgrimur að
fimmta barni, sem var drengur.
Dóu þau bæði, móðir og sonur.
Stóó Þorgrimur þá einn eftir með
dæturnar sínar fjórar, þá elztu
sex ára, en yngstu dótturina á
öðru ári. Auk barnanna varð Þor-
grímur að sjá farborða tveim
gamalmennum, tengdaföður sin-
um, blindum, og móður sinni ias-
burða. Lifsförunauturinn trausti
og trúi var horfinn, en ekki dugði
að láta reka undan straumnum.
Nú harðnaði barningurinn, en
Þorgreímur, sem þekktur var að
eljusemi og atorku, andæfði eftir
megni.
Rúmu ári seinna giftist Þor-
grímur ekkju, sem átti mörg börn,
kona þessi hét Guðrún og var
Marteinsdóttir. Guórún reyndist
bæði dugleg og stjórnsöm, sem
kom sér vel í lífsbaráttunni.
Sjö ára fór Þórunn að heiman
til vandalausra. Kom heim aftur
eftir tæp tvö ár, var heima um
stundarsakir, en fór svo að Strýtu
við Hamarsfjörð til hjónanna
Jóns Þórarinssonar og Olafar
Finnsdóttur, konu hans. I Strýtu
var Þórunn i þrjú ár. Rikarður
Jónssonílistamaðurinn þjóðkunni
kynntist Þórunni þá fyrst. Mynd-
aðist með þeim börnunum vin-
átta, sem entist báðum ævilangt.
Frá Strýtu fór Þórunn að
Steinaborg á Berufjarðarströnd.
Dvaldist þar hjá Þorsteini
Marteinssyni og konu hans,
foreldrum Marteins, sem var um
langt árabil kaupmaður á Búðum
við Fáskrúðsfjörð.
Frá Steinaborg fór Þórunn til
tengdaforeldra Marteins, að Hóli
við Stöðvarfjörð. Er þau hjón
brugðu búskap 'fór Þórunn til
Marteins kaupmanns og konu
hans, en þau bjuggu í Búðakaup-
túni sem fyrr segir. Hjá þessari
fjölskyldu var Þórunn rúma tvo
áratugi og batzt því fólki vináttu-
böndum, sem aldrei rofnuðu.
Þórunn giftist árið 1921 Snorra
Erlendssyni, trésmið á Fáskrúðs-
firði. Þau hjónin (Þórunn og
Snorri) bjuggu á Gestsstöðum í
Fáskrúðsfjarðarhreppi. Á Gests-
stöðum voru hjá þeim hjónum
faðir Snorra og stjúpa, bæði sjúkl-
ingar. Sjúkdómur sá, er konuna
þjáði, var mjög vandmeðfarinn.
Þurfti þar að viðhafa stökustu
gætni, árvekni og svo auðvitað
hreinlæti. Vökunætur yfir sjúkl-
ingunum urðu margar. Reyndi þá
á þrek og þolgæði húsfreyjunnar,
auk hins erilsama starfa sveita-
konunnar. Má nærri geta, að við
slíkar aðstæður, sem þá var um að
ræða á sveitaheimilum, hafi verið
við mikla erfiðleika að etja. Hér
er þvi um afrek að ræða, sem
aðeins varð unnið af þeim einum,
sem hafði fórnfúsa lund og ylrikt
hjarta, en þá kosti átti Þórunn
Þorgrímsdóttir i ríkum
mæli. Gamla konan lézt eftir
ellefu ára sjúkdómslegu. Maður
hennar (tengdafaðir Þórunnar)
lézt fjórum árum siðar. Ekki létu
þau hjónin Þórunn og Snorri hér
staðar numið við að likna og
hlynna að gamalmennum. Þrjú
vandalaus gamalmenni voru á
þeirra vegum um lengri og
skemmri tíma.
A Gestsstöðum fæddist einka-
dóttir þeirra hjóna. — Árið 1932
fluttist fjölskyldan út i Búða-
kauptún. Byggði Snorri þar hús,
sem þau bjuggu i unz dóttir
þeirra giftist. Fluttust þau þá með
Bergljótu dóttur sinni og Karli
Þórarinssyni, manni hennar,
suður i Borgarfjörð og seinna
austur i Árnessýlu.
Snorri Erlendsson andaðist á
heimili dóttur sinnar 18. 2 1966.
Ríkarður Jónsson (frá Strýtu)
minntist á Þórunni Þorgrimsdótt-
ur við þann, sem þetta ritar. Um-
mæli hans um Þórunni voru eink-
ar fögur og athyglisverð. Dáði
Ríkarður Þórunni af sinni al-
kunnu rökvisi. Lýsti kostum
hennar líkt og að framan er skráð.
Á sjötugsafmæli sínu bauð
Rikarður Þórunni og lét hana
sitja næsta sér sem heiðursgest
Hélt hann gjöfunum frá Þórunni
hátt, svo allir viðstaddir mættu
sjá svo þjóðlegar gjafir. Gjaf-
irnar, sem Ríkarður sýndi, voru
þessar:
Sortulitaðir sauðskinnsskór
með eltiskinnsbryddingum og
rósaíleppum. Þelbandssokkar og
útprjónaðir vettlingar. Allt unnið
af Þórunni sjálfri, hvert handtak.
Slikar gjafir kunni Ríkarður vel
að meta, ekki sízt þegar gjafirnar
voru svo vel unnar, að unun var á
að horfa. Þess má og geta að þetta
var sjötíu og þriggja ára kona,
sem verkið vann. Kona, sem um
ævina hafði unnið á öðrum
vettvangi en hannyrðanna.
Rikarður er sjálfur heimildar-
maður minn fyrir gjafafrásögn-
inni. Áttatiu og þriggja ára fékk
Þórunn heilablæðingu. Eftir það
hnignaði heilsu hennar svo, að
hún gat ekki lengur gripið til
uppáhalds handiðju sinnar, sem
var útprjónið. Til þeirrar iðju
hneigðist hugur hennar, þótt
annað yrði ævistarfið. Attatíu og
átta ára fékk Þórunn heila-
blæðingu i sjöunda sinn og eftir
það var hún vanmáttug sem barn.
Nú er þessi merka ágætiskona
horfin héðan. Þórunn Þorgríms-
dóttir dó á heimili dóttur sinnar,
Lindarbæ i Ölfusi. Leið út af eins
— Ljós og
skuggi
Framhald af bls. 20
verSur að fara varlega i allt slíkt,
það er alltaf viss hætta á þvi að
andlit leikaranna fletjist út. Sjálf-
ur nota ég eins fáa Ijóskastara og
mér er frekast unnt. Það krefst
auðvitað miklu meiri natni og ná-
kvæmni, en árangurinn verður
alltaf þess virði."
+ ENGILBERTA ÓLAFfA SIGURÐARDÓTTIR, frá Vestmannaeyjum, Skúlagötu 76, Reykjavík er lézt í Borgarspítalanum 26. þ.m., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 2 maí kl 3 Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hínnar látnu láti Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra njóta þess Fyrir hönd systkina og annarra ættingja Guðjón Atli Arnason. + Eiginkona mín, marIa guðmundsdóttir frá Bildudal, Skipholti 6, Reykjavik, er lézt í Landakotsspítalanum 27. april s.l. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardaginn 3. mai kl. 10.30. Guðbjartur Ólason.
t Móðir okkar, GUÐFINNA ÁRNADÓTTIR. Kleppsvegi 134, andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 30 apríl Árni Guðmundsson, Gísli Guðmundsson, Unnur Guðmundsdóttir Proppé. + Þökkum af alhug, auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför INGVARS ÞÓRÓLFSSONAR frá Birtingarholti, Vestmannaeyjum. Börn, tengdabörn og barnabörn.
Móðir okkar, ^^"l" JÓHANNA SVEINSDÓTTIR frá Hringsdal, verður jarðsungin frá Bíldudalskirkju laugardaginn 3 maí kl. 2 e h. Gíslina Haraldsdóttir, Rögnvaldur Haraldsson, Steinar Haraldsson, Guðrún Árnadóttir, + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, VALGARÐS STEFÁNSSONAR, stórkaupmanns, Akureyri. Ragnheiður Valgarðsdóttir, Henning Nielsen, Guðrún Valgarðsdóttir Frosti Sigurjónsson, Valgerður Valgarðsdóttir, Gisli J. Júliusson.
+ Þökkum af alhug auðsýnda samúð og aðstoð, við andlát og jarðarför HAFSTEINS VILBERGS VILBERGSSONAR, Lækjargötu 20. Hafnarfirði. Hansina Kolbrún Jónsdóttir Jón Fannar Hafsteinsson, Kristin Marianna Hafsteinsdóttir, Sigríður Fanney Björnsdóttir, Vilberg Jónsson. + Þökkum innilega samúð og hlýjar kveðjur við andlát og útför móður minnar og tengdamóður SIGURLAUGAR PÁLSDÓTTUR, Sörlaskjóli 22. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Vilberg Guðmundsson.
+ Þökkum af alhug öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför, mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EIRÍKS PÉTURS ÓLAFSSONAR Réttarholtsvegi 27. Margrét 0. Hjartar, Þórður Eiríksson, Lissy Halldórsdóttir, Margrét Eiriksdóttir, Eirikur Þorvaldsson, Edda Eiriksdóttir Smith, Gunnar G. Smith, Sigriður, Björk og Sæunn Eiriksdætur og barnabörn + Við þökkum alla þá samúð sem okkur hefur verið sýnd og þá virðingu sem vottuð hefur verið minningu BRYNJÓLFS JÓHANNESSONAR leikara við andlát hans og útför. Guðný Helgadóttir. Birgir Brynjólfsson Kristjana Brynjólfsdóttir Bjarni Björnsson Anna Brynjólfsdóttir, Sigfús Daðason Helga Brynjólfsdóttir, Hrafn Túlinius barnabörn og barnabarnabörn.
og ljós að dóttur sinni aðsjáandi.
Jarðnesku lifi Þórunnar var
lokið. Lifskveikurinn var út-
brunninn. Eins og nærri má geta,
stundaði Bergljót móður sina í
veikindum hennar af slikri nær-
gætni og ástúð, að fátitt er.
Sannaðist þar „að sjaldan fellur
eplið langt frá eikinni".
Karl Þórarinsson tengdasonur
Þórunnar var henni hlýr og sýndi
henni alúð og umhyggjusemi.
Dótturbörnin öll voru ömmu
sinni ástúðleg, enda átti hún ekki
annað skilið. Nú er hún horfin af
sviði jarðlífsins þessi góða og
merka kona.
Lögmálsorðin „Eins og þú sáir,
eins munt þú og uppskera" munu
ná til þin, vina mín, sem og allra
annarra. En ég hygg, án efa, að þú
hafir góðu einu niður sáð.
Uppskeran hlýtur þvi að vera góð.
Til þin, Bergljót, manns þins,
barna ykkar og annarra venzla-
manna hinnar horfnu heiðurs-
konu vil ég segja þetta: Guðs frið-
ur og blessun fylgi ykkur öllum.
Þið eigið öll góðar minnar um,
mikilhæfa ágætis konu.
Blessuð sé minning hennar.
Þórarinn Elís Jónsson.
Þórunn verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju á morgun kl.
13.30.
Nykvist rennir nú I gegnum
fjölda kvikmynda frá árunum eftir
1920, bregður upp lýsingunni og
ræðir þær skoðanir og aðferðir
sem lágu að baki hverri stefnu.
Loks staðnæmist hann við Citizen
Kane.
„Ég man hvilik opinberun þessi
mynd var fyrir okkur alla. Allar
reglur og kröfur voru brotnar
miskunnarlaust. Andlit hurfu i al-
gert myrkur. Menn gengu inn og
út úr svörtum skuggum. Ljósinu
var ausið á alla vegu yfir mynd-
rýmið til að ná sem breiðustum
fókus. Stundum var eins og hug-
takið fókus hyrfi, og glös eða smá-
dót sem lá fremst i myndfletinum
var jafnt i fókus og fólk lengst i
burtu. Það tók mig langan tima að
átta mig á þessari mynd. En ef við
berum hana saman við Ingeborg
Holm sjáum við að myndin er
sniðin út frá svipaðri grundvallar-
reglu; hver myndarvélarhreyfing
og klipp hefur vaxið út úr efninu.
— Hins vegar hefur afstaðan til
Ijóssins gerbreytzt. Ljósið er hér
notað sem meðal til að stýra inn-
taki leikrýmisins. Andlit sem
hverfa í svartan skugga og dökkir
fletir sem gleypa Ijósið hafa sína
þýðingu fyrir efnið, undirstrika að-
alatriði, fella smáatriðin út. Geng-
ið er út frá heilu myndrými og
síðan leikið I þessu rými með til-
styrk Ijóssins. Hin óliku myndrými
búa yfir föstum ákveðnum karakt-
er sem Ijósið skapar. — Enn i dag
hefur naumast nokkur kvikmynd
unnið eins nákvæmt með Ijós og
skugga. Citizen Kane var áratug-
um á undan samtímamyndum sin-
um."
Þegar við höfðum lokið við að
lýsa nokkur atriði úr mynd Wells
var klukkan orðin tólf. Yfir hádeg-
ismatnum sagði Nykvist mér frá
fslandsferð sinni og þegar hann
vann við kvikmyndun Sölku Völku
eftir Halldór Laxness, en sú saga
biður næstu greinar.
— Fjölbreytt
starf
Framliald af bls. 25
starf í þágu krabbameinsfélag-
anna og tóku fundarmenn undir
það með lófataki. I stað frú Sig-
ríðar var Vigdís Magnúsdóttir,
forstöðukona Landspítalans,
kosin í stjórnina. Auk framan-
greindra skipa nú stjórn Krabba-
meinsfélags Islands eftirtaldir
menn: Hjörtur Hjartarson, for-
stjóri, gjaldkeri; Jónas Hallgrims-
son, yfirlæknir, ritari; meðstjórn-
endur: Helgi Elíasson, fyrrv.
fræðslumálastjóri, dr. med. Frið-
rik Einarsson, yfirlæknir, Er-
lendur Einarsson, forstjóri, Ölaf-
ur Örn Arnarson, læknir, og
Matthías Johannessen ritstjóri.
utfaraskreytingar
Groöurhúsið v/Sigtun simi 36J70