Morgunblaðið - 01.05.1975, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975
Björgvin
Björgvinsson
Landsliðsmaðurinn góðkunni f
handknattleik, Björgvin
Björgvinsson, lék með Eiðaskóla-
piltum f Vormóti Austra f hand-
knattleik sem fram fór um sfð-
ustu helgi. Auk Eiðamanna tóku
lið Austra og Þróttar þátt ! mót-
inu. Fyrst sigruðu Eiðapiltar
Austra 17—13, og voru sfðan
komnir vel á veg með Þrótt, er
Björgvin var tekinn úr umferð.
Við það skipuðust veður f lofti og
Þróttur sigraði að lokum f leikn-
um 26—22. í sfðasta leik móts-
ins vann svo Þróttur Austra
22—20.
Þá er nýlega lokið Austurlands-
móti f körfuknattleik. Eiðaskóli
sigraði, Höttur á Egilsstöðum
varð f öðru sæti, Fáskrúðsfirðing-
ar i þriðja sæti. Austri á Eskifirði f
fjórða sætinu og lið frá Breiðdals-
vík lenti f fimmta sæti.
María
Viggósdóttir
Hin unga skiðastúlka úr KR,
Maria Viggósdóttir, hreppti ann-
að sætið í firmakeppni Skfðaráðs
Reykjavíkur, sem fram fór I Blá-
fjöllum sunnudaginn 20. april s.l.
við hin ákjósanlegustu skilyrði.
Tóku 104 fyrirtæki þátt f keppn
inni, og var keppt með forgjafar-
fyrirkomulagi. Sigurvegari varð
Steinþór Skúlason sem keppti
fyrir verzlunina Útilif. Maria
keppti fyrir Rafborg. I þriðja sæti
varð Sindrasmiðjan sem Helgi
Axelsson keppti fyrir, en siðan
komu Stáliðjan, Radfóvinnustofa
Þorsteins og Vilbergs,
Skóverzlunin Rima, Þ. Jónsson
og Co., Iðntækni, Sjóvá, Skáta-
búðin, Rafeindaiðjan og verk-
fræðistofa Jóhanns Indriðasonar.
Lilja
Guömundsdóttir
L..ja Guðmundsdóttir, ÍR, sem
dvalið hefur við störf og æfingar i
Sviþjóð í vetur, tók þátt f vfða-
vangshlaupi f Norrköping fyrir
skömmu og bar þar sigur úr být-
um. Mikill fjöldi þátttakenda var f
hlaupinu, þannig að afrek Lilju er
hið ágætasta. Tfmi hennar var
15:08.0 mfn., en sú er varð f
öðru sæti hljóp á 15:09,0 mfn. Er
greinilegt að Lilja er Ifkleg til
afreka á hlaupabrautinni f sumar.
GÚSTAF FÓR UTAN
MEÐ SAMÞYKKI
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá Ólafi
Sigurgeirssyni, formanni lyft-
ingadeildar KR:
„Vegna furðulegra skrifa é
íþróttasíðum dagblaðanna út af
þátttöku Gústafs Agnarssonar í
Norðurlandameistaramótinu í
lyftingum, sem haldið var í Sví-
þjóð vill formaður lyftingadeildar
KR taka eftirfarandi fram:
Gústaf fór utan í fullu samráði
við formann lyftingadeildar KR,
þar sem keppnisstað hafði verið
breytt.
Ástæður þær sem lágu fyrir
samþykkt Norðurlandasambands-
ins hafa alls ekki komið fram og
verið mjög rangtúlkaðar af for-
manni LSl og fjölmiðlum. For-
ráðamönnum NS var tilkynnt að
flugmannaverkfall væri yfirvof-
andi og myndi standa fjóra sólar-
hringa. Höfðu þeir því samráð sin
á milli og samþykktu að ekki
kæmi til greina að fresta mótinu,
og yrði því lokaákvörðun um stað-
setningu mótsins að vera tekin
fyrir kl. 10.00 á miðvikudags-
morgun, þar sem með skemmri
fresti væri ekki hægt að skipu-
leggja mót á nýjum stað. Reyndu
þeir því að hafa samband við
framkvæmdaaðila mótsins á Is-
endurskipulagðar vegna þessara
breyttu aðstæðna.
Þegar NS fékk fréttir um að
flugmannaverkfallinu væri aflétt
á fimmtudag var annar fundur
haldinn þar sem öllum bar saman
um að ókleift væri að færa
keppnisstaðinn einu sinni enn,
þar sem endurskipulagning ferða
yrði of tímafrek.
Er því ljóst, að ekki er við neinn
að sakast og eru þvi allar dylgjur
um svik Gústafs Agnarssonar við
íslenzkan málstað út í hött, og eru
eingöngu tilkomnar vegna
húgaróra manna sem ekki gerðu
sér grein fyrir staðreyndum máls-
ins eða lagalegum sjónarmiðum.
Ölafur Sigurgeirsson.
Bæjakeppni
FYRIRHUGAÐ or. a8 Vestmanna
eyingar og Breiðablik úr Kópa-
vogi heyi bæjakeppni f Vest-
mannaeyjum í dag. Hefst leikur-
inn klukkan 14. Leikurinn átti að
fara fram sumardaginn fyrsta en
var þá f restað vegna veðurs. Skúli óskarsson — vonsvikinn eftir misheppnaða lyftu f jafnhöttun á mötlnu í Laugardalshöll
------------------------------------------- um s.l. helgi.
Fimm NL-met í Stokkhólmi
landi á miðvikudag, en vegna bil-
ana á sæsímastrengnum
„Skottice" var ekki hægt að hafa
fjarskiptasamband við lsland.
Vegna þessa höfðu þeir samband
við skrifstofu Loftleiða ytra, og
fengu þær upplýsingar að umrætt
flugmannaverkfall væri skollið á
og myndi standa i fjóra sólar-
hringa. NS ákvað því einróma að
færa mótið til Stokkhólms, um
annað væri ekki að ræða. Voru
þvi ailar ferðir íþróttamanna
AF úrslitum Norðurlandamótsins
í lyftingum f Stokkhólmi má Ijóst
vera að hefðu Islendingar sent
þangað það lið sem búið var að
velja til keppni á mótinu, hefði
uppskera þess í verðlaunum orðið
mjög góð. Hefði allt gengið sæmi-
lega má ætla að Sigurður Grétars-
son hefði hlotið bronsverðlaun f
dvergvigt, Kári Elfasson brons-
verðlaun f fjaðurvigt, Guðmund-
ur Sigurðsson silfurverðlaun I
milliþungavigt, og Hreinn
Halldórsson bronsverðlaun í yfir-
þungavigt. Sem kunnugt er hlaut
Gústaf Agnarsson silfurverðlaun
f þungavigtarflokknum, en þar
hefði Óskar Sigurpálsson átt góða
möguleika á bronsverðlaununum.
Árangur á Stokkhólmsmótinu
var mjög góður, en hæst ber þó
árangur norska Olympiu-
meistarans Leifs Jensens sem
lyfti 155,0 kg í snörun og 200 kg í
jafnhöttun eða samtals 355 kg. Er
þarna um að ræða Norðurlanda-
met bæði í snörun og jafnhöttun í
léttþungavigtarflokknum og er
árangur Jensens aðeins ör-
skammt frá heimsmetinu. Þá setti
Veikki Kontinen nýtt Norður-
landamet í fluguvigtarflokknum
(samanlagt), Bo Giliusson frá
Svíþjóð bætti metið í samanlögðu
í dvergvigtarflokknum og Jouko
Leppá frá Finnlandi setti nýtt
Norðurlandamet í jafnhöttun í
yfirþungavigtarflokknum með
því að lyfta 220 kg. Helztu úrslita
í mótinu urðu annars þessi.
Haraldur Kornelfusson — á möguleika á að bæta þremur Islandsmeistaratitlum f hið mikla safn sitt á
meistaramótinu um helgina.
Hlýtur Haraldur þr já titla
á badmintonmeistaramótinu
ISLANDSMÓTIÐ f badminton
hefst f Laugardalshöllinni kl.
15.00 í dag og fer þá frarn undan-
keppni í einliðaleik. Mótinu verð-
ur svo fram haldið á laugardag og
sunnudag og fara þá fram úrslita-
leikirnir. Mikil þátttaka er f
mótinu, eða alls um 80 manns frá
TBR, KR, Val, TBS, IA, BH og
UMFN.
AHir beztu badmintonmenn
landsins eru meðal þátttakenda,
ef Reynir Þorsteinsson, KR, og
Sigurður Haraldsson, TBR, eru
undanskildir. Má búast við jafnri
og skemmtilegri keppni i mótinu,
þótt búast megi við að erfitt muni
reynast að ná titlinum af Haraldi
Kornelíussyni i einliðaleik. Hann
hefur sýnt það og sannað á þeim
mótum sem haldin hafa verið i
vetur, að hann er enn bezti bad-
mintonleikmaður landsins, og
hlaut t.d. tvo Reykjavíkur-
meistaratitla í Reykjavíkurmót-
inu á dögunum. I undankeppn-
inni á morgun mætir Haraldur
Kornelíusson Sigurgeiri Erlends-
syni frá Siglufirði i fyrsta leik, en
alls eru keppendur í einliðaleik
karla 18 talsins.
1 A-flokki karla keppa 26 í ein-
liðaleiknum, og þar má búast við
harðari baráttu en í meistara-
flokknum. 1 þessum flokki keppa'
margir mjög efnilegir badminton-
menn og harðir keppnismenn,
þannig að örugglega verður ekk-
ert eftir gefið.
I tvíliðaleik karla eru 10
keppendur, og verða þeir Harald-
ur Kornelíusson og Steinar
Pedersen að teljast líklegir sigur-
vegarar, en þeir eiga fyrsta leik
gegn Siglfirðingunum Sigurði
Steingrímssyni og Sigurgeiri
Erlendssyni.
I tvenndarkeppninni má svo
búast við mikilli og skemmtilegri
baráttu, milli Steinars og Lovísu
annars vegar og Haralds og
Hönnu Láru hins vegar. Steinar
og Lovísa urðu Reykjavikur-
meistarar á dögunum eftir
skemmtilegan og spennandi úr-
slitaleik, og má ætla að þau
Haraldur og Hanna Lára geri sitt
til þess að svara fyrir þann ósigur.
Sem fyrr greinir hefst mótið kl.
15.00 f dag, og á laugardaginn i
tviliðaleik og tvenndarkeppni.
Urslitaleikirnir verða síðan á
sunnudag og hefst keppni þá kl.
14.00.
Fluguvigt:
Veikko Kontinen, Finnlandi
( 90,0—112,5)202,5 kg.
Juha Lassila, Svfþjóð
( 77,5— 90,0) 167,5 kg.
Dvergvigt:
Ko (íiliusson, Svíþjóó
(100,0—120,0) 220,0 kg.
Viljo Issakainen, Finnlandi
( 87,5—107,5) 195,0 kg.
Frank Schneider, Danmörku
( 70,0— 90,0) 160,0 kg.
Benny Hansen, Danmörku
( 72,5— 85,0) 157,5 kg.
Fjaðurvigt:
Arne Norrback, Svfþjóð
(100,0—140,0) 240,0 kg.
Uolevi Kahelin, Finnlandi
( 90,0—130,0) 220,0 kg.
Jakob Hansen, Danmörku
( 85,0—120,0) 205,0 kg.
Léttvigt:
Juhani Salakka, Finnlandi
(115,0—145,0)260,0 kg.
Enno Magi, Svfþjóð
(115,0—137,5) 252,5 kg.
Millivigt:
Arvo Ala Pöntio, Finnlandi
(137,5—177,5) 315,0 kg.
Varny Ba>rcntsen, Danmörku
(122,5—157,5)280,0 kg.
Asbjörn Johnsen, Noregi
(122,5—150,0)272,5 kg.
Benny Rahnqvist, Svfþjóð
(120,0—150,0)270,0 kg.
Frode Pedersen, Danmörku
(100,0—125,0)225,0 kg.
Léttþungavigt:
Leif Jensen, Noregi
(155,0—200,0)355,0 kg.
Juhani Avellan, Finnlandi
(155,0—185,0) 340,0 kg.
Stefan Jakobsson, Svíþjóð
(145,0—167,5) 312,5 kg.
Krling Johnsen, Danmörku
(127,5—160,0)287,5 kg.
Milliþungavigt:
Jaako Kailajarvi, Finnlandí
(157,5—185,0)342,5 kg.
(iunnar östby, Noregi
(142,5—175,0)317,5 kg.
Rolf Larsen, Noregi
(135,0—175,0)310,0 kg.
Þungavigt:
Hannu Saarelainen, Finnlandi
(155,0—192,5) 347,5 kg.
Gústaf Agnarsson, Islandi
(152,5—190,0)342,5 kg.
Ingvar Asp, Svfþjóð
(145,0—195,0)340,0 kg.
Preben Krebs, Danmörku
(140,0—190,0) 330,0 kg.
Yfirþungavigt:
Jouko Leppá, Finnlandi
(160,0—220,0)380,0 kg.
Roland Svensson, Svfþjóð
(165,0—205,0)370,0 kg.
Aage Mölstad, Noregi
(125,0—180,0) 305,0 kg.