Morgunblaðið - 01.05.1975, Síða 40
ÆNGIR"
Áætlunarstaóir:
Blönduós — Siglufjöröur*J Gjögur — Hólmavik
Búðardalur — Keykhólar j Hvammstanjíi —
Flateyn—Bildudalur | Stykkishólmur —Rif
£2
Sjúkra- og leiguflug um allt land
Simar: 2-6060 & 2-60-66.
FIMMTUDAGUR 1. MAl 1975
nucivsmcnR
<gL*-w22480
Axarfjörður:
Rækjuveiðileyfi
veitt um helgina
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN
hefur óskað eftir því við sjávarút-
vegsráðuneytið, að rækjuveiðar
verði hafnar sem allra fyrst í
Axarfirði, en þar fundust eins og
kunnugt er ný rækjumið fyrir
skömmu. Mun sjávarútvegsráðu-
neytið úthluta veiðileyfum öðru
hvoru megin við helgina. Búizt er
við því að fyrst um sinn muni
innan við 10 bátar stunda rækju-
veiðar f Axarfirðinum og litið
verður á veiðar þeirra sem til-
raunaveiðar.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
enn ekki séð sér fært að opna
Grimseyjarsvæðið að nýju til
rækjuveiða en sem kunnugt er
varð að banna slíkar veiðar fyrir
rúmri viku vegna þess að of
mikill þorskur var i afla bátanna.
Hefur ráðuneytið látið kanna
svæðið af og til og hefur fram til
þessa reynzt svo mikill þorskur í
aflanum, að ekki þykir rétt að
leyfa rækjuveiðar fyrst um sinn.
Fjölmennt hjá sáttasemjara:
Matsveinar sömdu —
viðræður hjá öðrum
1 gær varð samkomulag milli
matsveina og veitingamanna á
sáttafundi hjá Torfa Hjartarsyni
sáttasemjara og voru samningar
undirritaðir í gærkvöldi. Þar með
varð ekki af 4ra daga verkfalli
matsveina sem boðað hafði verið
á miðnætti í gærkvöldi.
Flugfreyjur voru á fundi hjá
sáttasemjara í gær frá kl. 14,30 til
19,30, en lítið miðaði i samkomu-
lagsátt að sögn sáttasemjara. Er
fundur boðaður aftur með flug-
freyjum n.k. þriðjudag.
Þá var í gær samningafundur
með yfirmönnum á togurum og
verður aftur fundur með þeim
n.k. föstudag.
Flugmenn voru einnig á samn-
ingafundum í gær með flug-
félögunum og í gærkvöldi var
sáttafundur hjá sáttasemjara með
Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja
og vinnuveitendum.
Selt fyrir
24.3 millj.
í tveim söluferðum
Siglufirði, miðvikudag.
I GÆR seldi Siglufjarðartogar-
inn Sigluvík um 200 tonn af
ísfiski og heilfrystum fiski í
Grimsbý. Seldist aflinn á alls
16.4 milljónir króna. Meðal-
verðið fyrir aflann var 81
króna pr. kíló. Þetta var önnur
söluferð togarans erlendis í
þessum mánuði, en i fyrri ferð-
inni seldi hann í Ostende í
Belgíu rúmlega 100 tonna ís-
fiskafla fyrir 7,9 milljónir
króna. Þannig er söluverðmæti
aflans i þessum tveimur sölu-
ferðum alls um 24,3 milljónir
króna.
1 dag hefur verið hér mesta
leiðindaveður mjög mikil
bleytuhríð, eftir nótt meó
hörkufrosti. mj.
Scottice í
viðgerð á
laugardag
VIÐGERÐARSKIP til þess
að gera við sæsímastreng-
inn Scottice er væntanlegt
á laugardag á þann stað
sem strengurinn er slitinn,
en reiknað er með að það
taki a.m.k. nokkra daga að
gera við bilunina.
Ljósmynd Ól.K.M.
Fjórir jöklar
fram í vetur
hafa hlaupið
og sprungið
Jöklar hafa hlaupið fram i vet-
ur, þar á meðal hefur Hagafells-
jökull ( Langjökli hlaupið fram
Bíl stolið og
hann skemmdur
UM SÍÐUSTU helgi gerðist það í
Hraunbæ í Reykjavík, aó maður
nokkur skildi bfl sinn eftir fyrir
utan hús eitt við götuna að kvöldi
laugardagsins. Er. hann kom út
daginn eftir stóð bíllinn fyrir
utan húsið en ekki i því stæði sem
hann hafði skilið hann eftir í. Og
þegar hann fór að kanna málið
nánar kom i ljós, að undirvagn
bilsins var stórskemmdur. Var
greinilegt að einhver hafði tekið
bílinn traustataki um nóttina og
ekið honum yfir grjót og aðrar
vegaleysur. Bifreiðin er Ford
Cortina árgerð 1973, græn að lit
og ber einkennisstafina R-3504.
Það eru tilmæli rannsóknarlög-
reglunnar að þeir sem einhverjar
upplýsingar hafa fram að færa í
máli þessu hafi strax samband við
lögregluna.
um allt að einum kflómetra.
Einnig hafa tveir jökulsporðar
vestan í Höfsjökli hlaupið svo og
Köldukvfslarjökull f Vatnsjökli.
Frá þessu skýrði Sigurður Þór-
arinsson á fundi Jöklarannsókna-
félagsins og sýndi myndir úr flug-
ferð til að kanna þetta, sem sýndu
að við framhlaupið hafa jökul-
sporðarnir ýfzt mjög og eru mjög
sprungnir.
Hinn 8. febrúar varð Pétur Þor-
leifsson þess var aó Hagafells-
jökull eystri hafði gengið mikið
fram. En þegar Sigurður Þór-
arinsson og fleiri flugu þar yfir 8.
marz virtist hann hættur og hefur
jökulröndin ekki breytzt síðan.
Þrjú sovézk rannsóknaskip til íslands:
Var jökullinn við Hagavatn þá
karsprunginn og hafði lækkað, en
brúnin nokkuð há. Verður fyrsta
ferð jöklarannsóknafélagsins i
vor þangað til að kanna aðstæður
og mæla framhlaupið.
Þann 22. febrúar varð þess vart
að Kvíslarjökuli og Blöndujökull,
sem ganga vestur úr Hofsjökli
norðarlega, höfðu hlaupið fram
og verður þaó einnig kannað
nánar i sumar, þegar þangað verð-
ur fært.
Köldukvíslarjökull i Vatnajökli
hefur hlaupið um 6. janúar tals-
vert mikið fram og er hann
karsprunginn. Flogið var yfir
hann og framhlaupið skoðað úr
lofti.
Tvö koma beint frá flotaæfíng-
unum við Noregsstrendur!
SOVÉTRIKIN hafa farið fram á
það við íslenzk yfirvöld að þrjú
svonefnd rannsóknaskip frá
Sovétríkjunum fái að koma í
íslenzka höfn og hefur það leyfi
verið veitt. Mun fyrsta sovézka
skipið koma til hafnar á morgun,
föstudag, og vcra til þriðjudags 6.
maí en n.k. mánudag 5. maf koma
tvö sovézk skip til viðbótar og
verða þau hér fram á föstudaginn
9. maf. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem Morgunblaðið
hefur aflað sér, er yfirlýstur til-
gangur Sovétmanna með komu
þessara þriggja skipa hingað að
taka vatn og vistir og gefa áhöfn-
um skipanna tækifæri til hvfldar.
Morgunblaðinu er kunnugt um;
að tvö þessara skipa tóku þátt í
hinum umfangsmiklu sovézku
flotaæfingum, sem stóðu f sfðustu
viku á N-Atlantshafi og koma
beint hingað frá þeim umsvifum.
Skipið, sem kemur hingað á föstu-
dag, nefnist Passat og er nefnt
rannsóknaskip og mun vera um
4000 tn að stærð. Hin skipin tvö,
sem tóku mjög virkan þátt í
sovézku flotaæfingunum undan
Noregsströndum eru nefnd haf-
rannsóknaskip og tilhcyra
sovézka flotanum. Samkvæmt
upplýsingum Mbl. munu skipin
Kildin og Mars vera um 1500 tn.
að stærð.
Næst má svo búast við að
Tungnaárjökull fari að hlaupa
fram, sagði Sigurður Þórarinsson,
en það er sá jökull í Vatnajökli,
þar sem jöklamenn komast inn á
jökulinn úr Tungnaárbotnum og
yrði sú leið þá ófær í nokkur ár
vegna sprungna. En hugur er i
rannsóknamönnum að fá nýjar
mælingar á þennan jökul, áður en
það verður.
Margir jökulsporðar eru þeirr-
ar náttúru að hlaðast upp af ein-
hverjum ókunnum ástæðum, og
siðan koma þessi flykki skríðandi
fram á láglendið og sprynga mikið
í átökunum.