Morgunblaðið - 17.05.1975, Side 1

Morgunblaðið - 17.05.1975, Side 1
48 SIÐUR OG LESBOK 110. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Útgöngubann er í Saigon Saigon, Bangkok 16. maí. STJÓRNVÖLD I Suður- Enn missa hægri menn völd í Laos Víetnam fyrirskipuðu i dag útgöngubann í Saigon frá miðnætti til dögunar og mun herinn taka fasta alla þá sem þetta bann brjóta án löglegrar undanþágu, að því er útvarpsstöðin í höfuðborginni skýrði frá í dag. Ástæðan fyrir út- göngubanninu var sögð vera nauðsyn á að tryggja „öryggi almennings og starfsfrið". Hátíðahöldin i borginni héldu áfram í gærkvöldi með flugelda- sýningum, flugsýningu norður-vietnamskra her- flugvéla og hanastélsveizl- um. Þá skýrði útvarpið í Hanoi frá því að ríkis- stjórnir Kanada og Dan- merkur hefðu viðurkennt hina nýju byltingarstjórn í Suður-Víetnam. BRtJÐULEIKUR — Thailenzkir stúdentar brenna brúðu, sem á að vera eftirlíking af Ford Bandaríkjaforseta, til að mótmæla notkun Banda- ríkjanna á thailenzkri herstöð við björgun kaupskipsins Mayaguez úr höndum Kambódíu- manna. Símamynd AP Yfirmaður flughersins neyddur til að segja af sér Vientiane 16. maí — Reuter. YFIRMAÐUR konunglega flug- hersins i Laos var í dag neyddur til að segja af sér. Um 100 flug- menn á aðalflugvellinum f Vientiane hðfu mðtmælaaðgerðir fyrir dögun þar sem þeir kröfðust þess að yfirmaður þeirra, Bouath- ong Phothivongsa hershöfðingi, yrði sviptur embætti. Dreifðu flugmennirnir bæklingum meðal vegfarenda þar sem hershöfðing- inn er sakaður um að hafa fyrir- skipað loftárás á Pathet Lao- yfirráðasvæði í trássi við vopna- hléið frá árinu 1973. Nokkrum klukkustundum sfðar afhenti hershöfðinginn lausnarbeiðni sfna. Þar með misstu hægri menn í Laos úr höndum sér eina af síðustu áhrifastöðum sínum í landinu, og stjórnmálaskýrendur telja að fleiri afsagnir séu á leið- inni frá hægri sinnuðum embættismönnum. Pathet Lao-hreyfingin, sem er undir forystu kommúnista, herðir þvi enn tökin í landinu eftir að völd hægri manna riðluðust um síðustu helgi eftir afsögn fjögurra ráðherra í samsteypustjórninni. Hins vegar ítrekaði hreyfingin enn i dag að hún hygðist halda i heiðri skilmála samkomulagsins frá 1973 um valdajafnvægi innan stjórnarinnar. Talið er þó, að komi nýir hægri ráðherrar i stað hinna, þá muni þeir verða úr hópi hinna áhrifaminni og muni ekki veita stefnu Pathet Lao-viðnám. Talsmaður Pathet Lao sagði i dag að hreyfingin stefndi að hagkerfi sem að hluta til yrði byggt á ríkis- rekstri og að hluta á einkafram- taki. I dag voru gerðar nokkrar minni háttar mótmælaaðgerðir í Vientiane gegn hægri mönnum, og i Savannakhet, sem er í 250 km fjarlægð suður af Vientiane, óskuðu þrír Bandarikjamenn eft- ir hjálp gegn uppvöðsluseggjum sem hafa haldið þeim þar frá því á miðvikudag. Hermdarverk á Ítalíu Róm 16. maí — AP ÖFGAMENN skutu og særðu lítil- lega stjðrnmálamann úr flokki Kristilegra demðkrata, gerðu árásír á flokksbækistöðvar og kveiktu í íbúð dómara f ofbeldis- öldu sem gekk yfir ltalfu i dag og gær, aðeins einum mánuði fyrir mikilvægar bæjar- og sveitar- Henry Kissinger um Mayaguezmálið á blaðamannafundi: „Ekki hægt að troða enda- laust á Bandaríkjunum” Washington, Bangkok og víðar 16. maí AP—Reuter. • HENRY Kissinger, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að björgun bandaríska kaup- skipsins Mayaguez hefði sýnt um- heiminum að það væru takmörk fyrir þvf hve lengi hægt væri að troða á Bandaríkjunum. Hins veg- ar báru bæði Kissinger og Ron Nessen, blaðafulltrúi Fords for- seta, til baka bollaleggingar um að beiting vopnavalds við að- gerðirnar hefði átt að sannastyrk Bandaríkjanna eftir ósigrana í Indókfna. „Við erum ekki að leita enn saknað og 22 væru særðir, þar af 3 alvarlega. 0 Bandaríkjastjórn greip einn- ig til viðskiptalegra refsiaðgerða gegn bæði Kambódiustjórn og Suður-Víetnamsstjórn í dag, og lýsti yfir almennu viðskiptabanni á löndin, „nema þar sem sérstak- ar mannúðarástæður koma til“. Hins vegar sagði upplýsingamála- og áróðursráðherra nýju stjórnar- innar f Phnom Penh, Hu Nim, f útvarpsávarpi að aðgerðir Banda- ríkjanna f Mayaguez-málinu væru „villimannlegar, brjálæðislegar, geðveikislegar og viðbjóðslegar árásaraðgerðir". Sagði ráðherr- ann að Kambódíustjórn hefði alltaf ætlað að skila skipinu og áhöfninni. Það hefði verið stöðv- að S kambódískri landhelgi eins og önnur skip, ekki sízt vegna þess að vitað hefði verið að það væri njósnaskip. Deilt hefur verið um það í dag hvort ástæða hafi verið til fyrir Bandarfkja- stjórn að senda herlið á vettvang þar eð ýmislegt hefði bent til að Kambódfumenn væru í þann veg- inn að láta skip og áhöfn laus. Hu Nim ráðherra ítrekaði í dag að svo hefði verið. En heimildir í Washington herma að þegar fregnin um að verið væri að sleppa Mayaguez barst til Kiss- inger hefði herliðið þegar verið á leiðinni á vettvang og of seint hefði verið að afturkalla útkallið. Þrátt fyrir bollaleggingar um | það hvort þessar aðgerðir hafi í raun og veru verið nauðsynlegar hafa þær almennt hlotið mikinn Framhald á bls. 47. stjórnarkosningar í landinu. 1 býtið í morgun kveiktu öfgamenn í Ibúð dómara eins í Tórínó með þeim afleiðingum að hún gjör- eyðilagðist og dómarinn og fjöl- skylda hans hlutu brunasár. Þá réðust fjórir menn inn í skrif- stofu eins af frambjóðendum Kristilegra demókrata f Mílanó, bundu og kefluðu fjóra starfs- menn, skutu flokksfulltrúa í fót- legginn og máluðu á vegginn stjörnu sem er tákn öfgaflokks sem nefnir sig „Rauðu fylking- una“. Rauða fylkingin lýsti sig einnig ábyrga fyrir svipuðum árásum á flokksskrifstofur Kristilegra demókrata á tveimur stöðum til viðbótar og íkveikju i níu bif- reiðum í eigu verkstjóra Fíat- verksmiðjanna og fleiri verk- smiðja i Tórínó. I kosningunum sem eiga að fara fram 15. júní vonast Kommúnistaflokkurinn á Italíu til að vinna mjög á, og þá einkum á kostnað Kristilega demókrataflokksins. Missa Bandaríkin síðasta bandamanninn í SA-Asíu? Kukrit Pramoi, forsætisráðherra — „slíkt má ekki gerast aftur“. að tækifærum til að sanna mann- dóm okkar," sagði Kissinger á blaðamannafundi, og Nessen sagði, að eini tilgangurinn með aðgerðunum hefði verið að frelsa áhöfnina og skipið. Kissinger kvað það hafa verið nauðsynlegt að grípa til vopnaðra aðgerða vegna þess að ekkert svar hefði borizt frá kambódískum stjórn- völdum þegar tilraunir til að leysa málið eftir diplómatfskum lciðum höfðu staðið i 60 klukku- stundir. Mayaguez var f kvöld á leið tíl Singapore með 39 manna áhöfn innanborðs. Skýrt var frá þvf af hálfu bandarfska varnar- málaráðuneytisins að einn Band- rfkjamaður hefði beðið bana við björgun áhafnar og skips, 13 væri Sendiherra Thailands í USA kvaddur heim Bangkok, Washington 16. mai — AP. 0 RÍKISSTJÖRN Thailands til- kynnti í dag að hún hefði kvatt sendiherra sinn f Washington heim til þess að mótmæla því að Bandarikjamenn notuðu Utapao- herstöðina, suðaustur af Bangkok sem stökkbretti fyrir björgun flutningaskipsins Mayaguez úr greipum Kambódíumanna að Thailendingum forspurðum. Yrðu allir efnahagslegir og hern- aðarlegir samningar milli Thai- lands og Bandaríkjanna teknir til endjurskoðunar, og sendiherrann myndi afhenda Bandaríkjastjórn mótmælaorðsendingu þar sem lýst væri þeirri skoðun, að með þvf að hafa bandaríska hermenn á herstöðinni f meir en heilan dag eftir að Kukrit Pramoj, forsætis- ráðherra, hafði formlega óskað eftir því að þeir færu, hefði sjálfsforræði Thailands verið óvirt. „Við munum ekki líða að slíkt hendi sig á ný,“ sagði for- sætisráðherrann við blaðamenn í dag. 0 Henry Kissinger, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í dag Framhald á bls. 47.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.