Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975 Blðm ® vikunnar Gemsufífill (Doronicum) Þegar líða fer á maímánuð og vel vorar, má mjög viöa í görðum sjá allstórvaxnar, blómsælar jurtir með fagur- gular körfúr. Yfirbragðið er glaðlegt og svo sannarlega eru þær upplífgandi á þessum árs- tíma., þegar flestar aðrar jurtir eru skammt á veg komnar ásinum lífsferli. Þetta er gemsufifill, sem stundum gengur undir nafninu austur- landafifill, afar harðgerð planta sem þrífst svo að segja við hvaða skilvröi sem er. Þó getur hún skemmst verulega ef hún lendir í miklum vor- hörkum eftir að blóm- hnapparnir fara að myndast og jafnvel getur þá farið svo að blómgunín farist alveg fyrir það árið. 1 slíkum hretum geta og blöð og leggir frostbrunnið en sem betur fer er afar sjald- gæft að slíkt komi fyrir. Gemsufífillinn vex mjög hratt og mörgum finnst hnausarnir verða óþarílega stórir og fyrir- fei'ðarmiklir og er þá ekki annað fyrir en að skipta þeim. Er það mjög auðvelt og þarf að gerast á þriggja til fjögurra ára.fresti. Ekkert mælir á móti því að láta gemsufífilinn mynda þyrpingar eða raðir, einkum ef um stórar lóðir er að ræða, því svo snemma vors eru ekki margar tegundir jafn viljugar að blómstra og gefa garðinum lif og lit. Algengasta tegundin sem hér er ræktuð (doronicum caucasicum) er 40 - 50 cm á hæð en til eru afbrigði sem ná allt að 1 metra hæð eða jafnvel enn meira og blómstra þau nokkru seinna. Standa þau blóm mjög lengi og eru hentug til afskurðar. Þá má geta þess að til eru svo smávaxin af- brigði að jafnvel má hafa þau í steinhæð. Þar sem gemsufífillinn blómstrar svo snemma er það eðli hans að visna fljótt. Er þvi gott að velja honum stað í ná- munda við stórvaxnar plöntur sem gætu þegar líður á sumar hulið visin blöðin að einhverju leyti /hl-Ab. ER ÉG frétti af því nýveriS, að Guðmundur Axelsson hygðist halda sjálfur myntuppboð. flaug mér I hug að nú þyrfti hann að lækka kúfinn á vinstri vasanum. Guðmundur er nefnilega einn sá mikilvirkasti myntsafnari þessa lands, og jafnvel þótt víðar væri leitað. Og Guðmundur þurfti auð- vitað ekki að fá neitt hjá neinum til að halda uppboð með 100 núm- erum, hann getur haldið mörg slik. Það er lika þess vegna að vel verður mætt hjá honum væntan- lega i Tjarnarbúð í dag, en upp- boðið hefst klukkan 2, því margt góðra gripa er i boði. Elztu peningarnir eru rómversk- ir, frá fyrstu, annarri og þriðju öld, e.Kr., denariusar og sestertiusar. Svo eru nokkrir sænskir peningar frá seinustu öld og einir 3 norskir. Margir danskir peningar, frá dögum Friðriks VI hinn elzti, svo frá timum Kristjáns 9., Friðriks 8. Kristjáns 10. og Friðriks 9., eru þarna á uppboðinu. Ég rakst nýlega á grein um Kristján 9. I Hjemmet. Var þar fjölskyldumynd, tekin á gullbrúð- kaupsdegi hans og Louisu drottn ingar 1892. Nú vill svo vel til, að peningur, 2 krónur í silfri, sem sleginn var af þessu tilefni. er á uppboðinu. Og ekki nóg með það, heldur eru 3 aðrir minnispeningar Kristjáns 9. með fjölskyldu sinni, dætrum, tengdasonum og öðrum ættmönnum þeirra hjónanna. Með því að skoða myndina og lesa síðan I textanum hverjir eru tengd- ir dönsku konungsfjölskyldunni, verður manni hugsað til þess, að Kristján 9. var ekki að ófyrirsynju oft nefndur afi Evrópu. Nú og hann lét sig ekki muna um það að koma hingað á þjóðhátíðarárinu 1874 og ferðast um landið. Hélt hann sig ríkmannlega (ætli ekki mætti kalla það konunglega) en var samt inn alþýðlegasti. Mér kemur i hug gamansaga, sem sögð er af kóngi. Hann var að spásséra i hallargarðinum við Amalienborghöll i Kaupmanna- höfn ásamt tengdasonum sinum eftir RAGNAR BORG tveim. Kemur þá að þeim sænskur túristi, sem skoðaði sig um. Hallaði undir flatt og skoðaði hallarveggina vendilega. Kristján 9. gengur til hans og spyr hann hvort hann þekki sig ekki. Sviinn neitaði þvi svo Kristján kynnir sig og segir hver hann er, en hinir 2, sem með honum voru kvað hann vera tengdasyni sfna Rússakeisara og Englandskonung. Svíinn lét nú ekki fara svona með sig, að gert væri grin að honum upp i opið geðið á honum og svaraði þvi „og ég er stórmógúllinn af Mongólíu" og hafði sig síðan á brott. Nú þetta var nú útúrdúr þvi ekki er enn upptalið allt, sem er á uppboði Guðmundar Axelssonar i dag. Þar eru nefnileaa margir is- lenzkir peningar, mynt, brauð- og vörupeningar, medaliuro.fi. Þarna eru 10 eyringar og 25 eyringar sem vont er að ná i. Það er sam- merkt með þessum peningum og hlutum öllum, að þeir eru i afar háum gæðaflokki. Þarna er „þikki túkallinn" frá 1966. gull- peningurinn frá 1961, Jón Sigurðsson, einnig minnispening- ur Sigurðar Nordal, myntsett frá 1 922 — 1975 i fiokki 1. Einnig er þarna að finna seðla frá 1,2. og 3. útgáfu Landsbankans. Islands- bankaseðla frá 1904 og 1920, og fyrstu og þriðju útgáfu Lands- sjóðsseðla og krónuseðla ríkis- sjóðs, fyrstu og aðra útgáfu. Þessi upptalning gefur til kynna, að þarna er geysilega margt góðra gripa og þarna geta allir komið og keypt, þvi eins og að ofan segir, er uppboðið opin- bert. um hvítasunnuna Messur DOMKIRKJAN. Hvítasunnu- dag: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Öskar J. Þorláksson dómprófastur. Hátíðarguðs- þjónusta ki. 2 síðd. Séra Þórir Stephensen. Annar hvítasunnu- dagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 árd. NESKIRKJA. Hvítasunnudag- ur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Skírnarguðsþjónusta kl. 3.15 síd. Annar hvítasunnudag- ur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra Frank M. Halldórs- son. LAUGARNESKIRKJA. Hvíta- sunnudagur: Messa kl. 2 síðd. Annar hvítasunnudagur: Messa kl. 11 árd. — Athugið breyttan messutíma. Séra Garðar Svav- arsson. KIRKJA ÓHAÐA SAFNAÐ- ARINS. Hvítasunnudagur: Há- tíðarmessa kl. 11 árd. Séra Emil Björnsson. HATEIGSKIRKJA. Hvíta- sunnudagur: Lesmessa kl. 10 árd. Séra Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2 siðd. Séra Jón Þor- varðsson. Annar hvítasunnu- dagur: Messa kl. 2 síðd. Séra Arngrimur Jónsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL. Hvitasunnudagur: Guðsþjón- usta i Breiðholtsskóla kl. 11 árd. Séra Lárus Halldórsson. Arbæjarprestakall. Hvitasunnudagur: Hátíóar- guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Guðmundur Þorsteinsson. FlLADELFlA. Hvitasunnudag- ur: Safnaðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd. Annar hvitasunnudag- ur: Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd. Einar Gíslason. LANGHOLTSPRESTAKALL. Hvítasunnudagur: Hátíðar- guðsþjónugta kl. 2 síðd. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Annar hvítasunnudagur: Guðs- þjónusta kl. 11 árd. Séra Áre- líus Níelsson. FRlKIRKJAN Reykjavik. Hvítasunnudagur: Hátíðar- messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. HALLGRlMSKIRKJA. Hvita- sunnudagur: Hátíðarmessa kl. 11 árd. Séra Ragnar Fjalar Lár- usson. Hátiðarmessa kl. 2. Séra Karl Sigurbjörnsson. Annar hvítasunnudagur: Messa kl. 11 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárus- son. GRENSÁSSÓKN. Hvítasunnu- dagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 árd. Annar hvítasunnudag- ur: Messa á Borgarspítalanum kl. 10 árd. Séra Halldór S. Grön- dal. DOMKIRKJA krists kon- UNGS Landakoti. Hvitasunnu- dagur: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30. BÚSTAÐAKIRKJA. Hvíta sunnudagur: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 2 síðd. Annar hvíta- sunnudagur: Barnasamkoma kl. 11 árd. Séra Ólafur Skúla- son. ELLIHEIMILIÐ GRUND. Hvítasunnudagur: Messa kl. 10 árd. Séra Magnús Guðmunds- son fyrrv. prófastur. FELLA OG HÓLASÓKNIR. Hvítasunnudagur messa í fella- skóla kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjartarson FÆREYSKA SJÓMANNA- HEIMILIÐ. Hvítasunnudagur: Samkoma kl. 5 síðd. Þetta verð- ur síðasta kristilega samkoman að þessu sinni. Jóhann Olsen forstöðumaður. KOPAVOGSKIRKJA. Hvíta- sunnudagur: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 2 siðd. Séra Þorbergur Kristjánsson. Annar hvíta- sunnudagur: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 2 síðd. Séra Árni Páls- son. KÓPAVOGSHÆLIÐ NÝJA. Hvítasunnudagur: Guðsþjón- usta kl. 3.30 síðd. Séra Árni Pálsson. GARÐAKIRKJA. Hvítasunnu- dagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson. HAFNARFJARÐARKIRKJA. Hvítasunnudagur: Hátíðar- messa kl. 11 árd. SÓLVANGUR í Hafnarfirði. Annar hvítasunnudagur: Guðs- þjónusta kl. 1 síðd. SéraGarðar Þorsteínsson. FRlKIRKJAN I HAFNAR- FIRÐI. Hvitasunnudagur: Há- tíðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra Guðmundur Óskar Ólafs- son. KÁLFATJARNARKIRKJA. Hvítasunnudagur: Fermingar- guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra Bragi Friðriksson. GRINDAVlKURKIRKJ A. Hvitasunnudagur: Fermingar- guðsþjónusta kl. 10.30 árd. og kl. 2 síðd. Annar hvítasunnu- dagur: Fermingarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra Jón Árni Sig- urðsson. KEFLAVlKURKIRKJA. Guðs- þjónusta á hvítasunnudag kl. 14.00. Ólafur Oddur Jónsson. YTRI-NJARÐVlKURSÓKN. Guðsþjónusta í Stapa á hvíta- sunnudag kl. 15.30. Ólafuródd- ur Jónsson. INNRI- NJARÐVlKURKIRKJA. Guðs- þjónusta kl. 17.00 á hvítasunnu- dag. Ólafur Oddur Jónsson. ÚTSKALAKIRKJA. Hvíta- sunnudagur: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 11 árd. Séra Guðmund- ur Guðmundsson. HVALSNESKIRKJA. Hvíta- sunnudagur: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 2 síðd. Séra Guðmund- ur Guðmundsson. LAGAFELLSKIRKJA. Hvita- sunnudagur: Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra Bjarni Sigurðsson. BRAUTARHOLTSKIRKJA. Hvítasunnudagur: Guðsþjón- usta kl. 4 siðd. Séra Bjarni Sig- urðsson. MOSFELLSKIRKJA Hvíta- sunnudagur: Guðsþjónusta kl. 9 síðd. Séra Bjarni Sigurðsson. STÓROLFSHVOLSKIRKJA. Hátiðarguðsþjónusta á annan í hvítasunnu kl. 2 e.h. Séra Stefán Lárusson. KELDNAKIRKJA Rang. Hvíta sunnudagur: Fermingarguðs- þjónusta og altarisganga kl. 2 síðd. Séra Stefán Lárusson. FlLADELFlA SELFOSSI. A1 menn guðsþjónusta kl. 4 síðd., hvítasunnudag. Annan hvíta- sunnudag: Almenn guðsþjón- usta kl. 4.30 síðd. Ræðumaður Willy Hansen. EYRARBAKKAKIRKJA. Hvítasunnudagur: Almenn Guðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. Framhald á bls. 37 Fyrsta opinbert myntuppboð Guðmundar Axelssonar Englandi, Christian prins (siðar Kristján 10. Danakonungur), Friðrik krónprins (síðar Friðrik 8 Danakon- ungur), Lovísa krónprinsessa, Georg prins af Grikklandi, Páll stórfursti af Rússlandi (bróðir keisarans), Kon- stantin krónprins af Grikklandi, Alexandra prinsessa af Englandi, Alexander Rússakeisari, Kristján 9 , Maud prinsessa af Englandi og að lokum börn Friðriks krónprins Louise og Haraldur. I fremri röðinni sjást, frá vinstri. Michael stórfursti af Rússlandi, Andreas prins af Grikklandi, Dagmar keisaraynja með dóttur slna Olgu, Louise drottning, Georg konungur af Grikklandi, Alexandra prinsessa af Grikklandi, Marla prinsessa af Grikklandi og Xenia af Rússlandi. Stúlkurnar, sem eru á hnjánum fremst á myndinni eru dætur Frið- riks krónprins þær Thyra og Inge- borg Fjölskyldumynd tekin i mai 1892 i tilefni af gullbrúðkaupi Kristjáns ni- unda Danakonungs og Louise drottningar í aftari röð frá vinstri, sjást Nicolai rússneski rikisarfinn, Nicolaos prins af Grikklandi, Carl prins (siðar Noregskonungur og hét þá Hákon 7 ), Victoria prinsessa af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.