Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.05.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975 3 Baldvin Tryggvason flytur erindi sitt á Bókaþingi í gær. T.v. Vilhjálm- ur Hjálmarsson, t.h. Böðvar Pétursson, forseti þingsins. Bókaþing: Bókaútgáfa á Is- landi á neljarþröm Sala erlendra bóka 20% að krónutölu BÓKAÞING var sett að loknum aðalfundi Félags ísl. bókaútgef- enda, sem haldinn var að Hótel Sögu í gær. Við setningu þingsins flutti formaður félagsins, Örlyg- ur Iiálfdánarson, ávarp. Þar kom fram m.a., að bókaútgefendur eru mjög svartsýnir um framtíð bóka- útgáfu á Islandi að óbreyttum aðstæðum. Örlygur sagðist þó vonast til, að eitthvað yrði að gert þannig að ekki færi svo að ríkið tæki yfir bókaútgáfu á landinu, þannig að einn aðili veldi lesefni handa landsmönnum. Örlygur taldi ýmsar ástæður vera fyrir þvi hvernig hag bókaút- gáfu í iandinu væri komið, m.a. þá að fólk keypti nú í síminnkandi mæli sjálft þær bækur, sem það læsi, en fengi þær i staðinn að láni í bókasöfnum. Hann kvað þá hugmynd hafa komið fram, að Framfærsluvísi- tala 426 stig KAUPLAGSNEFND hefur reikn- að vísitölu framfærslukostnaðar í maíbyrjun og reyndist hún vera 426 stig og hafa hækkað um 54 stig frá þvf I febrúarbyrjun. Hækkunin nemur 14,5% og f fréttatilkynningu frá Hagstofu Is- lands þar sem skýrt er frá út- reikningi vfsitölunnar segir, að um hafi verið að ræða miklar hækkanir á innkaupsverði að- fluttrar vöru, áhrif gengisbreyt- ingarinnar 14. febrúar síðastlið- inn, verðhækkun búvöru 1. marz 1975, verðhækkun á innlendum iðnaðarvörum, þjónustu og fleira. tekið yrði fyrir útlán bóka fyrstu mánuðina eftir að þær kæmu út og ennfremur þá, að ekki aðeins rithöfundar fengju greiðslur fyrir bækur, sem bókasöfn hafa til út- lána, heldur einnig bókaútgefend- ur. Formaður nefndi að lokum fjögur atriði, sem miðuðu að lausn þess mikla vanda, sem bóka- útgáfa á íslandi ætti við að etja, — niðurfellingu söluskatts á efni til bókaútgáfu, bókaútgáfunni væri ætlaður staður i bankakerf- inu, settur yrði á stofn sérstakur stofnlánasjóður til útgáfu meiri- háttar ritverka og greiðslur bóka- safna til bókaútgefenda. Þá sagði formaður það mjög áríðandi, að gerð yrði úttekt á bókaútgáfu hér á landi, og kvað hann bókaút- gefendur leggja mikla áherzlu á, að það yrði gert sem allra fyrst. I því sambandi kvaðst hann vona, að vilji ráðamanna til að leysa vanda bókaútgáfu væri ekki minni en þegar nauðsynlegt hefði þótt að leysa vanda dagblaða, svo sem gert hefði verið á eftirminni- legan hátt. Að loknu ávarpi formanns flutti Baldvin Tryggvason erindi, sem nefndist „Vandi íslenzkrar bóka- útgáfu“. Þar gerði Baldvin grein fyrir ýmsum þáttum útgáfumála og sagði m.a. að augljóslega hefði meðalsala hverrar nýútkominnar bókar dregist mjög saman á fáeinum árum. Hins vegar væri það lika ljóst, að bókaútgáfa hefði aukizt að því leyti til, að titlum hefði fjölgað. Hann sagði, að sala erlendra bóka næmi 20 af hundraði bókasölu hér á landi, en þá væri þess að gæta, að verð þeirra væri miklu lægra en íslenzkra bóka. Framhald á bls. 47. Bezti dagurinn í Norðursjónum TtU íslenzk sfldveiðiskip seldu afla sinn f Hirtshals og Skagen f Danmörku f gær. Aflinn var sam- tals 550 lestir og aflaverðmætið 11,3 milljðnir og lá þó ekki fyrir aflaverðmæti hjá Guðmundi RE sem var með um 100 lestir. Er þetta bezti söludagurinn hjá fs- lenzku bátunum á vertfðinni f Norðursjó til þessa. Meðalverðið var frekar lágt, enda fór töluverð- ur hluti aflans f bræðslu. Ásberg RE seldi bezt, var með 55 lestir og seldi þær á 2,9 milljónir, meðalverðið tæpar 53 krónur. Fífill GK var með 97 lest- ir og fékk fyrir þær 2,1 milljón! Helga II RE var með 46 lestir og fékk fyrir þær 1,6 millj., Súlan EA fékk 1,7 millj. fyrir 46 lestir, Ásgeir RE fékk 1,2 millj. fyrir 36 lestir, Faxáborg GK fékk 930 þús. fyrir 90 lestir, Reykjaborg GK fékk 200 þús. fyrir 51 lest, Loftur Baldvinsson EA fékk 250 þús. fyrir 6,7 lestir og Árni Sigurður AK 115 þúsund fyrir 21 lest. Þá fékk Guðmundur RE 100 lestir en verðmæti aflans lá ekki fyrir í (jærkvöldi. Enginn fundur í tógaradeilunni ENGINN fundur hafði I gær verið boðaður f kjaradeilu togarasjó- manna og Félags íslenzkra botn- vörpuskipaeigenda. Aðspurður sagði Torfi Hjartarson, að ekki væri til fundarins boðað, þar sem hann áliti það tilgangslaust eins og málin stæðu — svo mikið bæri í milli og aðilar reyndust ósveigjanlegir. Verkfræðingar fá 4% frá 1. júní SAMKOMULAG varð f kjaradeilu verkfræðinga og ráðgjafarfyrir- tækja um verklegar framkvæmd- ir aðfararnótt fimmtudagsins. 1 gær höfðu báðir aðilar samþykkt samkomulagið og var vinnustöðv- un af lýst. Sigurbjörn Guðmundsson verk- fræðingur, formaður samninga- nefndar vinnuveitenda, sagði að samkomulagið fæli í sér 4% grunnkaupshækkun frá 1. júní og er grunnkaupstala samninganna nú 97.500 krónur. Samkomulag varð jafnframt um að fresta frekari samningagerð, þar til ljóst yrði, hver stefna hinna almennu kjarasamninga yrði, m.a. í vísi- tölumálum. Voru aðilar sammála um að eigi væri fært að gera heildarkjarasamninga, þar eð óvissan á vinnumarkaðinum væri það mikil COSTA BRAVA r Til \ COSTA LIGNANO \DEL SOL VERÐUR FLOGIÐ verður flogið 2 i mánuði. verður flogið 1. sinni iviku. J mánuð Austurstræti 1 7 Símar 26611 — 20100 „GLEÐILEGT , ÚTSÝN ARSUM AR" FYRSTU SUMARFERÐIR ÚTSÝNAR ” TIL ÍTALÍU OG SPÁNAR simA."eU6n”-120,00 HEFJAST NÚ UM HVÍTASUNNUNA SJÁ EINNIG ÚTSÝNARAUGLÝSINGU Á SÍÐU 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.