Morgunblaðið - 17.05.1975, Síða 12

Morgunblaðið - 17.05.1975, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975 Hvítasunnukappreiðar Fáks: Flest beztukappreiðahross landsins mæta til leiks HINAR ARLEGU Hvítasunnu- kappreiðar Fáks þær 53. í röð inni, fara fram n.k. mánudag, annan í hvítasunnu á skeiðvelli félagsins á Víðivöllum. Samtals eru skráð um 80 hross tii keppni í gæðingakeppni og kappreiðum. Kappreiðarnar hefjast kl. 14.00 með því að lýst verður dómum gæðinga en dómar þeirra fara fram í dag og hefjast kl. 14.00. Erfitt er að geta sér til um úrslit i hinum ýmsu greinum því keppnis- hrossin eru að miklum hluta óþekkt. Gæðingar keppa í tveimur flokkum, alhliðagæðingar keppa i A — flokki en klárhest- ar með tölti keppa í B — flokki. Fyrsti hestur í A — flokki hlýtur til varðveislu farand- bikar, sem þeir feðgar Daníel Þórarinsson og Þorgeir Daníelsson gáfu en annar og þriðji hestur hljóta verðlauna- peninga. I B — flokki hlýtur fyrsti hestur farandbikar, sem gefinn er af Goðaborg, annar og þrióji hestur hljóta verðlauna- peninga. Af hestum, sem keppa í A — flokki má nefna Háfeta, Halldórs Eiríkssonar, sem varö annar í keppninni í fyrra og Skúm, 6 vetra rauðan úr Skaga- firöi, eign Halldórs Sigurðs- sonar, en báðir þessir hestar stóðu framarlega í gæðinga- keppni á landsmótinu á Vind- heimamelum s.l. sumar. I B — flokki keppa 13 hestar og í þeim hópi eru m.a. Demant, Halldórs Sigurðssonar, sem varð annar í þessum flokki í fyrra, Glaöur eign Vals Júlíus- sonar, sem lenti í öðru sæti i firmakeppni félagsins í fyrra. Af nýjum hestum má nefna Kóp, 10 vetra, mójarpan, ættaðan frá Fornustekkum í Hornafirði, eign Harðar G.'Al- bertssonar og stóðhestinn Alvara frá Vatnsleysu, eign Sigurlaugar Guðjónsdóttur. 1 hlaupunum hljóta þrjú fyrstu hrossin verðlauna- peninga. Til keppni í 250 m skeiði eru skráð 11 hross. Og eru í þeim hópi nokkrir þekktir skeiðhestar og ýmsir þekktir skeiðknapar koma þar einnig við sögu. Fyrst má nefna Hvin, Sigurðar Sæmundssonar, sem sigraði á vorkappreiðum f’áks og Gusts, þá keppir einnig Máni, Sigurbjörns Eiríkssonar, en hann sigraði á hvítasunnu- k ippreiðunum í fyrra. Reynir Aðalsteinsson, sem oft hefur lagt margan góðan skeiðhest- inn, kemur með nýjan hest Sleipni, eign Gylfa Jónssonar. Þá keppir hinn kunni skeið- maður Sigurður Ölafsson á hestinum Vafa, eign Erlings Sigurðssonar. Frá Selfossi kemur óþekktur hestur, Hrimnir, eign Tryggva Sigurðs- sonar. I 250m unghrossa hlaupi keppa 14 hross. og meðal þeirra eru þrjú fyrstu hrossin frá vor- kappreiðunum, Hreinn og Þór, báðir eign Harðar G. Alberts- sonar og Freydís, Arnar Þór- hallssonar. Af nýjum hrossum sem bætast í hópinn má nefna Fjöður, 6 vetra, en eigandi hennar Kristján Guðmundsson i Hafnarfirði, hefur oft komið með góð kappreiðahross til keppni. Einnig mætir aftur Reykur, Guðna Kristinssonar, FJARÖFLUNARNEFND kvenna I Fáki gengst um þessar mundir fyrir happdrætti og verður dregið I því í lok kapp- reiðanna annan I hvítasunnu. Þessa mynd tók Ijósm. IVHil. Sv. Þorm. af hestinum, sem er fyrsti vinningur í happdrætt- inu. Hann er grár að lit, 6 vetra og ættaður úr Eyjafirði, klár- hestur með tölti. Aðrir vinning- ar I happdrættinu eru ferð til Italíu fyrir einn, að verðmæti 40 þúsund krónur og silfur- búin svipa frá Halldóri Sigurðs- syni, gullsmið. Skarði. Hann veitti sigurvegar- anum á vorkappreiöunum harða keppni og varð þriðji í fyrra. Þrjú fyrstu hrossin í 350 m stökkinu á vo: kappreiðunum, mæta öll aftur til keppni á þessu sprettfæri á mánudaginn. En þau eru Sunna, Guðrúnar Guðmundsdóttur, sem kom skemmtilega á óvart og sigraði þá, Loka, Þórdísar H. Alberts- son og Geysir, Helgu Claessen. I hópinn bætast nokkur hross og má nefna tvö, sem setin eru af þekktum knöpum, Baldur Oddsson mætir til leiks með Sóða, 10 vetra, leirljósan. Þessi hestur hefur hlaupið áöur. Þá mætir Trausti Þór Guðmunds- son með óþekktan hest, Hroll, ljósaskjóttan, eign Alla Rúts. I 800 m stökkinu keppa ýmsir kunnir hestar. Fyrst má nefna Storm, Odds Oddssonar, sem oft hefur sigrað á þessari vega- lengd og gerði það m.a. á Hvita- sunnukappreiðunum í fyrra. Sörli, Reynis Aðalsteinssonar, mættir einnig og er knapi, Að- alsteinn Aðalsteinsson en Sörli hlaut á síðasta ári afreksbikar- inn í 800 m stökki. Breki, Trausta Þórs Guðmundssonar, og Þjálfi Sveins K. Sveinssonar, sem háðu harða baráttu á vor- kappreiðunum, sem lauk með sigri Breka, mæta til leiks. Þá er ekki ósennilegt að þeir Loft- ur, Ragnars Tómassonar og Óð- inn, Harðar G. Albertssonar komi eitthvað við sögu. En keppni ætti að geta oröið hörð í þessu hlaupi en nokkuð kann það að ráðast af því hverjir lenda saman í riðlum. 1 800 m stökki er enginn úrslitasprett- ur. í 1500 m brokki eru flest hrossin óþekkt en þar mætir sigurvegarinn frá vorkappreið- unum Blesi, Valdimars Guð- mundssonar. Alls keppa 5 hross í brokkinu. I samtali við þá Berg Magnús- son, framkvæmdastjóra Fáks og Guðmund Ólafsson, sem sæti á í stjórn félagsins, kom fram að það eru eindregin tilmæli stjórnar Fáks, að knapar og for- ráðamenn keppnishrossa hafi keppnishrossin ætíð tilbúin um leið og þau eru kölluð fram og stuðli með þessu að líflegri og skemmtilegri kappreiðum. Veð- banki verður starfandi á svæð- inu en úrslit í kappreiðum eru oft æði óvænt og að sögn for- ráðamanna Fáks, hefur upp- hæð sú, sem veðjað er stundum tífaldast. Hver veðmiði kostar kr. 100.00. Kaffisala verður i hinum nýja áfanga að félags- heimili Fáks á Víðivöllum og aðrar veitingar fást keyptar á svæðinu. Tekið skal fram að Vatns- endavegur er lokaður annarri umferð en að kappreiðasvæð- inu meðan á kappreiðunum stendur eða frá kl. 13.00. Eru hestamenn sérstaklega beðnir um að virða þessa lokun og sinna gegningum og ferðum í hesthús sín á öðrum tíma. t-g- eftir JÓN AÐAL- STEIN JÓNSSON Afbrigði í frímerkjum 1 þætti 3. þ.m. voru fri- merkjasafnarar varaðir við að byrja of fljótt að safna svo- nefndum afbrigðum. Ekki var þá unnt að minnast á það nán- ar, við hvað væri átt með orðinu afbrigði. Raunar býst ég við, að flesta lesendur renni grun í merkingu orðsins og það, sem í því því felst. Segja má, að hug- takið afbrigði sé allteygjanlegt. Þó ber orðið það með sér, að átt er við ýmis frávik eða galla, sem koma fram í ákveðnum merkjum við prentun. Tek ég hér sem dæmi frímerki, sem margir kannast áreiðanlega vel við. Er það frimerki, sem kom út á 50 ára afmæli Eimskipafé- lags Islands 1964. Er á því mynd af hinu þekkta og góða skipi, Gullfossi. Efst á merkinu er letrað: 1914 — Eimskipafé- lag Islands — 1964. Nú vildi svo til við prentun og þrátt fyrir strangt eftirlit, að mönnum sást yfir stafsetningarvillu í öðru merki i annarri hverri örk. Þar sendur e i stað é í Eimskipafé- lag, svo að úr verður -felag. Að mínum dómi er þetta skemmti- legasta afbrigði í ísl. frimerkj- um eftir 1944. Upplag þessa frímerkis var 750 þús., svo að einungis 7500 merki eru með þessari prent- villu, þar eð 50 merki eru f örk. Þess vegna er ekki að undra, þótt verð þessa afbrigðis sé orð- ið allhátt í verðskrám. Annað skemmtilegt afbrigði er svokallaður plötugalli í 90 aura frímerki með mynd frá Vestmannaeyjahöfn, en það kom út 1950 ásamt mörgum öðr- um merkjuin í svonefndri At- vinnuvegaseríu. Þessi galli er í merki nr. 33 i örkinni. Sést þar greinilegt strik yfir húsþak á miðri mynd. Fleiri prentafbrigði eru til í merkjum lýðveldisins, en þessi eru einungis tekin hér sem dæmi um það, hvað við er átt. Handbók um íslenzk frímerki I framhaldi af framansögðu má benda frímerkjasöfnurum á bók, þar sem lesa má um þetta og miklu meira. Er það bók með ofangreindu heiti, sem Félag frímerkjasafnara gaf út 1973, en hefur því miður verið allt of lítið kynnt almenningi. Það ár komu út tveir hlutar handbók- arinnar, og ná þeir yfir tímabil- ið 1920—1970. Eru þeir merktir sem VI. og VII. hluti. Síðan verður haldið áfram lengra aft- ur, eins og höfundar greina frá í formála. Bókin er í lausblaða- formi, en það auðveldar mjög endurbætur og leiðréttingar á þeim hlutum, sem út hafa verið gefnir, og er auk þess miklu ódýrara og hentugra fyrir kaupendur og notendur bókar- innar. 1 Handbók um íslenzk frí- merki eru lýsingar á hverri út- gáfu með myndum og eins getið þeirra afbrigða eða prentgalla, sem fundizt hafa, og birtar myndir af þeim. Er vissulega um geysimikinn fróðleik að ræða í bókinni, og hefur margt komið þar fram, semi áður var lítt eða jafnvel óþekkt. Er eng- inn efi á, að frímerkjasafnarar geta haft mikið gagn af þessari handbók. Hún fæst í frímerkja- verzlunum i Reykjavík, óg var verði hennar mjög i hóf stillt þegar í upphafi. Síðan hefur óðaverðbólga gert það að verk- um að bókina má nú telja ódýra. Vil ég eindregið hvetja alla þá, sem safna íslenzkum frimerkjum, til að eignast þessa hluta handbókarinnar, enda flýtir ör sala þeirra fyrir út- komu annarra hluta bókarinn- ar og eins leiðréttingum og við- bótum við það, sem út er komið. Félag frímerkja- safnara Þetta félag er starfandi í Reykjavík og var stofnað 1957. Er það stærsta félag landsins í sinni grein og hefur mjög látið til sin taka málefni frimerkja- safnara frá upphafi þess, enda m.a. tekizt mjög góð samvinna með því og íslenzku póststjórn- inni. Þá hefur F.F. haldið all- margar frímerkjasýningar. Eru félagar F.F. rúmlega 200, flest- ir í Reykjavík, en einnig úti á landi og nokkrir erlendis. Herbergi hefur F.F. lengi haft að Amtmannsstig 2, efri hæð. Er það opið öllum fri- merkjasöfnurum og eins al- menningi, sem fræðast vill um frimerki, á miðvikudögum kl. 5—7 og laugardögum kl. 3—6. Eru þar til afnota frímerkja- verðlistar og frímerkablöð. Þá er á þessum tíma alltaf hægt að ná tali af einhverjum stjórnar- manni F.F. eða félagsmanni, sem veitir upplýsingar um fri- merki. Er öruggt, að almenn- ingur, sem á i fórum sínum frímerki, en hefur að vonum oft takmarkaða þekkingu á þeim, getur fengið haldgóða og trausta fræðslu um þessi efni hjá félagsmönnum F.F. Rétt er að benda á, að herbergi félags- ins er í júni til ágústloka ein- ungis opið á laugardögum kl. 3—5. Þá hafa á undanförnum árum verið haldin frímerkjauppboð á vegum F.F. Hafa safnarar oft gert þar góð kaup. Vil ég benda lesendum þáttarins á, að upp- boð er fyrirhugað alveg á næst- unni, en liklega verður það þó ekki fyrr en í byrjun næsta mánaðar. Uppboðsskrá verður send út til félagsmanna, en aðr- ir geta fengið hana keypta við vægu verði hjá F.F. Geta menn þar kynnt sér uppboðsefni, en svo verður það til sýnis á aug- lýstum uppboðsstað nokkurn tíma, áður en uppboð hefst. Frímerkjauppboð F.F. hafa ævinlega verið fjölsótt, enda oft eftir góðu að slægjast bæði fyrir unga safnara og gamla. Frímerkjasala póststjórnarinnar Þegar rætt var um Háskóla- örkina frá 1961 í þætti 1. marz sl., var þess getið, að hún væri enn fáanleg á Frímerkjasölu póststjórnarinnar í Reykjavik. Mér til ánægju hafði þessi ábending það i för með sér, að sala arkarinnar jókst næstu daga á eftir. Hins vegar láðist mér að geta þess, hvar Frí- merkjasalan er til húsa. Vil ég nú af gefnu tilefni bæta úr þessu og visa mönnum veginn. Frímerkjasalan er á efri hæð aðalpósthússins, og er gengið inn frá Austurstræti. Þar eru til sölu öll þau frimerki, sem eru ekki uppseld hjá póst- stjórninni, og þ.á m. sumar teg- undir, sem fást ekki lengur i almennum póstafgreiðslum. Er Frímerkjasalan opin alla virka daga nema laugardaga milli kl. 10—12 og 1—3.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.